Morgunblaðið - 08.05.2010, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 08.05.2010, Blaðsíða 52
52 MenningFRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. MAÍ 2010  Kvikmynd Dags Kára Péturs- sonar, The Good Heart, vann til áhorfendaverðlauna á kvik- myndahátíðinni Off Plus Camera í Kraká í Póllandi sem er nýlokið. Þá voru einnig veitt peningaverðlaun, 10 þúsund dollarar, til að styrkja dreifingu myndarinnar en þau veitti fyrirtækið Gutek Film. The Good Heart verðlaunuð í Póllandi Fólk VEGNA mikillar eftirspurnar hefur Leikfélag Akureyrar ákveðið að sýna gamanleikinn 39 þrep í Íslensku óperunni um helgina. Óhætt er að segja að sýningin hafi slegið í gegn þar sem uppselt var á nær 50 sýningar. Áhorfendur streymdu í leikhúsið og komu sumir oftar en einu sinni. María Sigurðardóttir er leikstjóri sýning- arinnar, en hún hefur einnig leikstýrt sýningum á borð við Sex í sveit og Fló á skinni. María er að vonum ánægð með viðtökurnar sem verkið hefur fengið og stefnir á að bæta við sýningum hér syðra umfram þær sem sýndar eru um helgina ef vel gengur. Samkvæmt stúlkunum í miðasölu Íslensku óp- erunnar gengur miðasala vel og því er aldrei að vita nema borgarbúar fái tækifæri til að njóta fleiri sýninga. María segir 39 þrep vera algjöra leikhús- sýningu og sannkallaða veislu fyrir augað. „Fjórir leikarar fara með yfir hundrað hlutverk og eru því sífellt á hlaupum sem getur verið al- veg ótrúlega fyndið.“ Verkið er samið af breska háðfuglinum Pat- rick Barlow en byggt á skáldsögu John Buchan og kvikmynd Hitchcocks, The 39 Steps. Fyrsta sýning var í gær en næstu sýningar í kvöld og á morgun kl. 20. hugrun@mbl.is Gamanleikurinn 39 þrep kominn suður Grímur Bjarnason 39 þrep Mikill handagangur í öskjunni. Hægt að nálgast miða í miðasölu Íslensku óp- erunnar í síma 511-4200, opera.is eða á midi.is.  Íslenski dansflokkurinn sló í gegn á danshátíð í Bremen sem haldin var 9.-17. apríl. Að sögn markaðsstjóra dansflokksins, Jó- hönnu Pálsdóttur, voru þýskir gagnrýnendur yfir sig hrifnir af sýningunni en dansflokkurinn sýndi þrjú ólík verk, Grímuverð- launaverkið Kvart, Endastöð og Heilabrot. Blaðið Die Tageszeitung kallaði Íd óvænta stjörnu hátíðarinnar og sagði gagnrýnandi m.a. að verkin væru ótrúlega fjölbreytt og gagn- rýnendur Kreiszeitung Bremen og Augsburger Allgemeine hrósuðu dönsurunum einnig, fyrir dans- tækni og leiklistarhæfileika. Íd „óvænt stjarna“ danshátíðar í Bremen  Brasilíska söngkonan Jussanam mun syngja brasílísk lög eftir meistara á borð við Caetano Veloso, Jorge Ben og Tom Jobin í Kaffitári við Borgartún 10-12 á morgun, milli kl. 13 og 15. Agnar Már Magnússon mun leika undir á píanó. Kaffitár fagnar tvítugs- afmæli sínu á morgun og gefur gestum kaffi og köku. Jussanam og Agnar flytja brasilísk lög SUNNUDAGINN 16. maí ætlar leik- konan Anna Svava Knútsdóttir að flytja uppistandið Dagbók Önnu Knúts í annað sinn á Kaffi Rósenberg en það var einmitt frumflutt á sama stað nú á dögunum. Uppistandið samdi hún í samvinnu við Gunnar Björn Guðmundsson sem leikstýrir verkinu, en það var Anna sem leitaði til Gunnars þegar hana langaði að setja á svið leiksýningu um unglings- árin. „Dagbók Önnu Knúts fjallar um unglingsárin, ég er fædd 1977 þann- ig að þetta er kraftgalla- og landa- tímabilið,“ segir Anna og hlær. „Mig langaði svo að fjalla um þetta tímabil, af því að þetta er svo fyndinn aldur, það er allt svo átakanlegt og satt og allar tilfinningar svo ofsalega sterk- ar. Þannig að mig langaði að gera grín að því, en þannig að fólki myndi finnast að það mætti eiginlega ekki hlæja en gerði það samt.“ Anna er þarna að vísa meðal ann- ars í ögrandi undirtitillinn sem er Helförin mín! „Anna Knúts segir ljóta hluti um alls konar fólk og at- vik, til dæmis um homma, en maður verður að fyrirgefa henni af því að hún er bara dálítið vitlaus. Eins og þetta með Helförina, hún er ekkert að vísa í atburðina sem slíka, hún er bara að nota þetta orð sem hún hefur heyrt. Hún ætlar ekki að misbjóða neinum þannig.“ Uppistandið unnu þau þannig að þau lásu margvíslegt efni um ung- lingsárin og einnig lét Gunnar Önnu hafa spurningar um unglingsárin hennar, sem hún svaraði með því að skrifa niður allt sem kom í kollinn og hann fínpússaði að lokum efnið til. Anna segir að það hafi verið spaugi- legt við rannsóknarvinnuna hvað all- ir virðast upplifa unglingsárin á svipaðan hátt. „Unglingar virðast aðallega skrifa í dagbækurnar sínar hvað allt er ömurlegt, nema ef mað- ur hefur lent í sleik eða eitthvað, annars bara hatar maður mömmu og allt er í rugli. Útgangspunkturinn hjá okkur er hvað það er hræðilegt að vera venjulegur. Anna er ekki feit og ekki mjó, ekki með mislit augu, hvorki ljóshærð né dökkhærð. Hún er alltaf að reyna að gera eitthvað til að skera sig úr og verða öðruvísi.“ Sýningin 16. maí hefst kl. 21. holmfridur@mbl.is Morgunblaðið/Ernir Anna Svava Knútsdóttir Er fædd á kraftgalla- og landatímabilinu. Hádramatísk unglingsár  Dagbók Önnu Knúts á Rósenberg 16. maí Eftir Matthías Árna Ingimarsson matthiasarni@mbl.is ÞAÐ er í mörg horn að líta hjá söngkonunni Heru Björk Þórhallsdóttur þessa dagana. Hún er á fullu að undirbúa sig fyrir söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva sem fram fer síðar í mánuðinum og í dag kemur út platan hennar Je Ne Sais Quoi. Farsælt samstarf Á plötunni halda Hera Björk og Örlygur Smári áfram farsælu samstarfi sínu, en eins og flestir vita eru þau höfundar evr- óvisjónlagsins Je Ne Sais Quoi. Hera Björk segir að hún og Örlygur hafi verið með hugmynd að plötu í nokkurn tíma. Fyrir mán- uði var svo ákveðið að bretta upp ermarnar, taka hana upp og gefa út. Fengu þau til liðs við sig fjölda lagahöfunda á plötunni, innlenda sem er- lenda. Þar á meðal Dana og Svía sem sömdu lagið Someday sem Hera Björk flutti og hafnaði í öðru sæti í undankeppni Evróvisjón í Danmörku fyrir ári. Segir hún plötuna vera ákveðið framhald af laginu í ár og að tónlistin á henni sé dansvænt ást- arpopp. Jafnframt sé það mjög mikilvægt að fara í keppnina með plötu undir hendinni. Ekki er nóg að mæta bara með eitt lag á svæðið eða gamla plötu. Evróvisjónveisla í Smáralindinni í dag Mikil veisla verður haldin í Smáralind í dag þar sem Hera Björk mun stíga á svið og flytja framlag okkar í Evróvisjónkeppninni ásamt nokkum vel völdum lögum af nýju plötunni. „Svo ætlum við að gefa eiginhandaáritanir og gera þetta skemmti- legt. Við erum að fara til Noregs fyrir Íslands hönd og við viljum leyfa öllum að taka þátt í þessu með okkur í Smáralindinni í dag.“ Eins og segir eru stífar æfingar fyrir keppnina þessa dagana og er verið að leggja lokahönd á ís- lenska atriðið. „Undirbúningurinn gengur rosa- lega vel og þetta er allt á réttu róli hjá okkur. Við ætlum að fara út og gera okkar allra besta til að kynna landið okkar og í framhaldi selja fullt af pakkaferðum fyrir ferðamenn til Íslands í sumar,“ segir Hera Björk að lokum og hlær. Dansvænt ástarpopp  Platan Je Ne Sais Quoi með söngkonunni Heru Björk Þórhallsdóttur kemur út í dag  Tónlistin svipuð framlagi Íslands í Evróvisjón segir söngkonan Morgunblaðið/Ernir Hera Björk Í dag kemur út platan Je Ne Sais Quoi með söngkonunni og Evróvisjónfaranum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.