Morgunblaðið - 08.05.2010, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 08.05.2010, Blaðsíða 50
50 MenningFRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. MAÍ 2010 Mörgum finnst þeir hafa verið sviknir af stjórnvöldum og vilja við- brögð frá Hvíta húsinu 54 » JÓN INGI Sigurmundsson opnaði málverkasýningu í Gallerí Gónhól á Eyrarbakka 1. maí síðastliðinn. Á sýning- unni eru aðallega landslags- myndir og brugðið upp götu- myndum frá Eyrarbakka, málað með olíu en þó mest með vatnslitum. Inn á milli bregður fyrir óhlutbundnum formum. Hátíðin Vor í Árborg verður haldin 13. til 16. maí og mun atriði frá þeirri hátíð fara fram í sýningarsalnum 13. maí. Sýningin verður opin laugardaga og sunnudaga frá kl. 11.00 til 18.00. Auk þess verður opið annan í hvítasunnu og eftir samkomulagi. Sýningunni lýkur 30. maí. Myndlist Jón Ingi sýnir í Gallerí Gónhól Hluti úr einni mynd Jóns Inga. ÖNFIRÐINGAFÉLAGIÐ í Reykjavík efnir til ljós- myndasýningar í minningu Gunnlaugs Finnssonar á Sól- bakka 6 á Flateyri á morgun kl. 15:30. Gunnlaugur Finns- son, bóndi, kennari, alþing- ismaður og kaupfélagsstjóri, tók virkan þátt í starfi Önfirð- ingafélagsins í Reykjavík, sér- staklega í þeim þáttum sem snúa að margþættri sögu Sól- bakka og þeirra sem þar komu að málum Að lokinni opnun sýningarinnar býður hljóm- sveitin Granít frá Vík í Mýrdal til tónleika á æf- ingasviðinu í garðinum á Sólbakka. Granít hefur dvalið við upptökur í hljóðverinu Tankinum. Ljósmyndir Ljósmyndasýning Önfirðingafélagsins Gunnlaugur Finnsson ÞVERSAGNARKENND skapgerð Egils Skallagríms- sonar er viðfangsefni opins fyrirlestrar sem Laurence de Looze, prófessor í samanburðarbókmenntum við University of Western Ontario, flytur í stofu 101 í Odda á mánudag kl. 16:00. De Looze er sérfræðingur í evrópskum bókmenntum miðalda og endurreisnartímans og hefur birt greinar um bókmenntalega sjálfsvitund í Egils sögu, Bjarnar sögu, Gunnlaugs sögu og Grettis sögu. Fyrirlestur Laurence de Looze er haldinn á vegum Miðaldastofu innan Hugvís- indastofnunar Háskóla Íslands og er öllum opinn. Miðaldafræði Þversagnarkennd skapgerð Egils Laurence de Looze Eftir Árna Matthíasson arnim@mbl.is KÓPAVOGSDAGAR, árleg menningarhátíð Kópavogs- bæjar, hefjast í dag og standa út næstu viku. Í boði verða hátt í tvö hundruð menningarviðburðir, en Kópavogs- dagar eru í ár sérstaklega tileinkaðir Sigfúsi Halldórs- syni, tónskáldi og myndlistarmanni, sem hefði orðið 90 ára í september. Sigfús bjó í bænum í áratugi, er fyrsti heiðurslistamaður Kópavogs og þriðji heiðursborgari bæjarins. Guðrún Pálsdóttir, sviðsstjóri tómstunda- og menn- ingarsviðs Kópavogsbæjar, segir að hátíðin byggist að stærstum hluta á listamönnum í Kópavogi og eins leggist skólar og leikskólar og allar menningarstofnanir á eitt. Kópavogsdagar hefjast formlega með opnun sýningar á persónulegum munum Sigfúsar, bréfum, teikningum og ljósmyndum, í Tónlistarsafni Íslands sem Kópavogs- bær rekur í samvinnu við menntamálaráðuneytið. Sýn- ingin ber heitið: „Fúsi á ýmsa vegu“. „Fúsi var mjög fjöl- hæfur listamaður, listmálari og tónskáld sem samdi ótrúlega mikið af fallegum lögum sem lifa með þjóðinni. Í Tónlistarsafninu verður tónlistin í aðalhlutverki, en þar hengjum við líka upp málverk eftir hann og fleira. Líka vörpum við á skjá þáttum sem Sjónvarpið gerði um hann og hægt að hlusta á Fúsa sjálfan og horfa á hann á skjá.“ Sigfúsar Halldórssonar verður víðar vart í Kópavogi næstu vikuna, því Bókasafn Kópavogs sýnir úrklippu- bækur hans og allt það sem til er um hann í rituðu máli, Björn Thoroddsen skipuleggur tónleika í Salnum þar sem Stefán Hilmarsson, Hera Björk og Egill Ólafsson syngja lög Sigfúsar, kórahátíð verður haldin á upp- stigningardag þar sem ellefu kórar úr Kópavogi syngja lög eftir Sigfús og hljómsveit skipuð ungum tónlistar- mönnum úr Kópavogi flytur lög Sigfúsar undir hand- leiðslu Björns Thoroddsen. Til viðbótar við hyllingu Sigfúsar Halldórssonar verða aðrir listamenn líka áberandi að sögn Guðrúnar, og þannig verður verða fjórtán listamenn úr Kópavogi með opnar vinnustofur um helgina, yfirlitssýning á verkum Hafsteins Austmanns og svo má telja. Sjá nánari dag- skrá á vefsetrinu kopavogsdagar.is. Menningarhátíð Kópavogs  Árleg Menningarhátíð í Kópavogi haldin í sjöunda sinn  Hátíðin helguð Sigfúsi Halldórssyni  Hátt í tvö hundruð ólíkir menningarviðburðir í boði Morgunblaðið/Ernir Menningarhátíð Frá sýningu á persónulegum munum Sigfúsar Halldórssonar, bréfum, teikn- ingum og ljósmyndum, í Tónlistarsafni Íslands á Kópavogsdögum. Verk Ólafar Nordal Leiðsla ífordyri Hallgrímskirkjusamanstendur af af-steypum af andlitum 25 safnaðarmeðlima og hljóðverki í kirkjuskipinu þar sem 24 safn- aðarmeðlimir syngja sálm Hallgríms Péturssonar „Gefðu að móðurmálið mitt“ við nýtt lag eftir Jón Nordal sem þar að auki hljómar í klukkum kirkjunnar. Sýningin er sú fyrsta í nýrri sýn- ingaröð á vegum Listvinafélags Hall- grímskirkju og kallast „Kristin minni“. Það er sérlega ánægjulegt að sjá hinn mikla metnað sem lagður er í þetta nýja verkefni en sýnendum í verkefninu er boðið að fá guðfræðing og skrifara til samráðs og samræðu. Í þessu verki tóku séra María Ágústs- dóttir og Ólafur Gíslason listfræð- ingur þátt í samræðunni og sá síð- arnefndi skrifar texta sýningarinnar. Ólöf Nordal, einn af þekktustu samtímalistamönnum Íslands er jafn- framt löngu orðin þekkt fyrir sérstæð kirkjulistaverk sín þar sem aðal hennar felst í því að hún tengir hug- takið kirkja órjúfanlega við söfnuðinn sem verður oftast útgangspunktur verka hennar. Það er ákaflega vel til fundið hjá Ólöfu að fá safnaðarmeð- limi til að ljá verkinu ásjónu sína og rödd. Afsteypan af andlitum þeirra á meðan þau loka augum sýnir mynd sem er gjörólík dauðagrímunni sem rætt er um í texta. Svipurinn á andlit- unum minnir okkur á svipinn sem við finnum að við sjálf setjum upp þegar við biðjum bæn eða hugsum um há- fleyg og andaktug málefni. Það er eins og augun horfi inn á við og teng- ist þar einhverju sameiginlegu afli sem er fyrir utan manneskjuna sjálfa. Það er eins og bænin eða leiðslan hafi orðið eftir í ásýnd verkanna, eins og hægt sé að sameinast bænum þeirra og ná yfir tíma og rúm. Söngur safnaðarmeðlimanna og fallegt stefið sem klukkan spilar má allt í senn upplifa sem ákall, áminn- ingu og ádeilu. Söngurinn er ekki tæknilega fullkominn en meðlimi safnaðarins langar örugglega innst inni til að syngja í guðþjónustum, ekki bara hlusta. Lofgjörð og bæn eru þeir trúarlegu þættir sem eru undirstaða lifandi samfélags trúaðra og í því ljósi er skrítið að starfsfólk kirkjuhúsanna taki yfir þessa þætti að mestu. Sýningin snertir líka á sameigin- legum uppruna listar og trúar, hvern- ig trúin er sífellt sköpuð og endur- sköpuð í samræðu og samfélagi manna. Texti sýningarinnar er sér- staklega áhugaverður í þessu tilliti. Listin og trúin eiga það sameiginlegt að hafa á fjarlægst uppsprettu sína, uppsprettu sem í báðum tilfellum (þótt oft á ólíkan hátt sé) felst í and- legum og fagurfræðilegum grunn- þörfum mannsins. Það er góð upplifun að koma í kirkjuna, gefa sér góðan tíma til að skoða verkin, hlusta á hljóðverkið sem hljómar með ákveðnu millibili sem og kirkjuklukkurnar. Verkið er hvetjandi, það minnir okkur á að við (sem viljum) erum kirkjan og sem slík ber okkur að taka þátt í að móta helgihaldið og standa vörð um að- komu okkar að grunnþáttum trúar- iðkunarinnar, bæn og lofgjörð. Hallgrímskirkja, fordyri og kirkjuskip. Ólöf Nordal bbbbn Sýningin stendur fram á sumar. Sýningin er á vegum Listvinafélags Hallgrímskirkju. Sýningarstjóri Guðrún Kristjánsdóttir myndlistarmaður. Aðgangur ókeypis. ÞÓRA ÞÓRISDÓTTIR MYNDLIST Ásjóna og rödd safnaðarins Kirkjulist Listakonan Ólöf Nordal. KVENNAKÓR Reykjavíkur stendur á þeim tímamótum að nýr stjórnandi hefur tekið við kórnum. Stjórn- andi hans und- anfarin þrettán ár hefur verið Sigrún Þorgeirs- dóttir en nú tekur Ágota Joó við stjórninni og stýrir kórnum á tónleikum í Lindakirkju í Kópavogi á morgun kl. 17. Tónleikarnir eru meðal annars óvenjulegir fyrir það að kórinn syng- ur á sjö tungumálum; ensku, frönsku, ítölsku, þýsku, rússnesku, ungversku og íslensku. Flutt verða verk eftir ungverska tónskáldið Józ- sef Karai, Rossini, Schumann, Astor Piazzolla, Luis Prima, Aron Copland og John Davenport, svo dæmi séu tekin. Píanóleikari á tónleikunum verður Vignir Þór Stefánsson og einnig leikur með kórnum tríó Vadim Fjodorov, sem er skipuð þeim Vadim Fjodorov á harmóníku, Gunnari Hilmarssyni á gítar og Leifi Gunnarssyni á kontrabassa. Sungið á sjö tungumálum Vortónleikar Kvenna- kórs Reykjavíkur Ágota Joó FYRIR rúmum áratug hrinti bóka- vörður í Seattle af stað verkefni sem felst í að fá sem flesta íbúa í tiltek- inni borg til að lesa sömu bókina. Byrjað var á The Sweet Hereafter eftir Russell Banks sem íbúar Seattle lásu og í kjölfarið fylgdu fleiri bækur og fleiri borgir um allan heim; íbúar Edinborgar lásu The Lost World eftir Arthur Conan Doyle, Dyflinnarbúar Myndina af Dorian Gray eftir Oscar Wilde, Galveston í Texas The Curious Inci- dent of the Dog in the Night-time eftir Mark Haddon og svo má telja. Nú beita menn netinu fyrir sig, nánar tiltekið Twitter, og bókin sem varð fyrir valinu er American Gods eftir enska rithöfundinn Neil Gai- man. Verkefnið fór í loftið í vikunni og sem stendur eru 7.170 að fylgjast með á Twitter, sjá: @1B1T2010. Ein bók fyrir alla Sigfús Halldórsson (fæddur 7. september 1920, látinn 21. desember 1996) var málari, leiktjaldahönnuður, tónskáld og dægur- lagahöfundur. Hann fæddist í Reykjavík og ólst þar upp, en bjó lengi í Kópavogi. Þriggja ára var hann farinn að leika á píanó og hóf síðan píanónám átta ára. 13 ára gamall hóf hann teikninám og stundaði það samhliða söng- og hljómfræðinámi. Síðar bætti hann við sig námi í leik- tjaldagerð. Þrátt fyrir ótvíræða listhæfileika vann Sigfús lengst af almenna vinnu hjá J. Þor- lákssyni og Norðmann, á bókasafni Banda- ríkjahers á Miðnesheiði, Skattstofunni og sem teiknikennari. Meðal þekktustu laga hans eru Við eig- um samleið, Dagný, Tondeleyó og Litla flugan. Ótvíræðir listhæfileikar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.