Morgunblaðið - 08.05.2010, Page 48

Morgunblaðið - 08.05.2010, Page 48
48 Dagbók MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. MAÍ 2010 Orð dagsins: Nýtt boðorð gef ég yður, að þér elskið hver annan. Eins og ég hef elskað yður, skuluð þér einnig elska hver annan. (Jóh. 13, 34.) Víkverji vill huga vel að heilsusinni og hefur ákveðna kenn- ingu um það hvernig hann geti hald- ið sjálfum sér í formi. Kenningin snýst um peninga, vegna þess að eins og maðurinn sagði, þá eru pen- ingar fjöðrin í úrverki tilverunnar og knýja menn áfram, ýmist til góðs eða ills. x x x Víkverji hendir þess vegna pen-ingum í heilsufarsvandamál sín þar til þau hverfa. Ekki það að hann sé svo óskaplega fjáður. Heilsufarið er bara ofarlega í forgangsröðinni. Það nýjasta er að Víkverji ætlar að kaupa sér hjól og hjóla í vinnuna. Þar áður keypti hann sér allar hugsanlegar göngugræjur, til að geta stundað útivist að vetri til. Þar áður keypti hann sér skotvopn og er nú mjög aðgangsharður og nær- göngull í fuglaskoðun sinni á haustin. Einnig er hann slarkfær í stangveiði og er mikið fyrir að skella sér í sund. x x x Kenningin gengur semsagt út áað hámarka möguleika sína á hverjum tíma til þess að stunda hreyfingu og útvist. Ef maður á ekki sundskýlu, þá fer maður sjaldnar í sund (bara þegar enginn er nálægt). Ef maður á ekki hjól, þá hjólar mað- ur ekki í vinnuna. Ef maður á ekki byssu, þá sér maður enga ástæðu til að kjaga um Holtavörðuheiðina þvera og endilanga í nóvember. Ef maður á ekki hlaupaskó, þá fer mað- ur ekki út að hlaupa. Og svo fram- vegis. Fyrst þarf að henda peningum í vandamálið og svo verður hreyf- ingin eðlilegur hluti af lífsmynstrinu. x x x Þetta er í það minnsta kenningin.Enn hefur Víkverji þó ekki náð hinu fullkomna líkamsformi sem hann sækist eftir. Frekar skvapaður náungi sem gæti ekki farið handa- hlaup þótt lífið lægi við. Á því geta verið tvær skýringar. Annars vegar sú að hann sé algerlega hamslaus í svokallaðri inntöku næringar. Hins vegar að hann verði að kaupa sér meira af alls kyns græjum og dóti. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 tónverk, 8 klippur, 9 skýra, 10 liðin tíð, 11 ferðalag, 13 sár- um, 15 sæti, 18 skyggn- ist um, 21 dimmviðri, 22 dökk, 23 blaðs, 24 yfir- burðamanns. Lóðrétt | 2 órói, 3 þolna, 4 bumba, 5 kjánum, 6 reykir, 7 fang, 12 sjáv- ardýr, 14 dveljast, 15 sæti, 16 login, 17 smá, 18 kalt veður, 19 sori, 20 gangsetja. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 mælum, 4 hæfur, 7 tíkin, 8 lítri, 9 dót, 11 róar, 13 ókát, 14 áleit, 15 hass, 17 taut, 20 ógn, 22 róður, 23 æskan, 24 Arnar, 25 torga. Lóðrétt: 1 mætur, 2 lokka, 3 mund, 4 holt, 5 fátæk, 6 reist, 10 ódeig, 12 rás, 13 ótt, 15 horfa, 16 súðin, 18 ask- ur, 19 tinda, 20 órar, 21 nægt. 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Það getur reynst erfitt að halda sínu striki þegar engu er líkara en allir vilji leggja stein í götu manns. Nú skiptir öllu að hugsa til framtíðar og spara hverja krónu. (20. apríl - 20. maí)  Naut Ekki búast við kraftaverkum, en erfiða ástvininum virðist svo sannarlega vera að batna. Besta ráðið er að ráðast strax að rótum vandans og uppræta hann. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Það er oft gagnlegt að leita á vit sögunnar þegar leysa þarf vandamál nú- tímans. Einhver nákominn þér mun lík- lega benda þér á það. Alvara verður að fíflaskap. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Rifrildi um stjórnmál og trúmál eru líklegri en ekki í dag, því fólki er heitt í hamsi. Vertu slakur/slök og flækj- an leysist sjálfkrafa. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Þú hefur mikla þörf fyrir að upp- fræða aðra í dag. Óvæntur glaðningur berst til þín fljótlega. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Þú þarft að leggja þig sérstaklega fram til þess að ná tilskildum árangri. Ef þú bara ræðst á fyrstu verkefnin í nýju áætluninni þinni, þá ertu sigurvegari. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Eitthvað sem áður virtist á gráu svæði, er núna spurning um rétt eða rangt í þínum augum. Vertu viðbúin/n því að komast að ýmsu óvæntu. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Þér hættir til fullmikillar að- haldssemi gagnvart sjálfum/sjálfri þér og öðrum. Þú ert góður leiðbeinandi. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Þú vilt láta til þín taka í dag og sýna framtakssemi og skilvirkni. Leyfðu léttleikanum að vera með í för og þá muntu komast létt í gegnum þetta tímabil. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Þótt þig langi til að gera breytingar heima fyrir skaltu standast freistinguna og láta þær bíða betri tíma. Taktu til í tilfinningunum til þess að lífið geti haldið áfram snurðulaust. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Notaðu daginn til þess að leið- rétta misskilning. Einhver þér eldri og reyndari kann að hjálpa þér í dag. Slapp- aðu af og njóttu þess sem þú hefur. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Þú ert líklega að reyna hið ómögulega í dag. Eftir á skaltu leyfa sjálfsgagnrýninni að koma upp í hugann. Stjörnuspá 8. maí 1970 Lýður Jónsson, vegaverkstjóri á Vestfjörðum, hlaut Silfurbíl Samvinnutrygginga fyrir það frumkvæði sitt að skipta blind- hæðum á þjóðvegum. Fyrsta hæðin sem hann skipti, sum- arið 1954, var á veginum milli Haukadals og Meðaldals í Dýrafirði. 8. maí 1990 Hinn heimsþekkti söngvari Tom Jones, þá tæplega fimm- tugur, skemmti gestum á Hót- el Íslandi og „var ekki að sjá að aldurinn hefði sett veruleg spor á gamla hjartaknúsarann og kyntröllið,“ sagði DV. 8. maí 2000 Alþingi samþykkti lagabreyt- ingu sem fól í sér að samkyn- hneigðir í staðfestri sambúð fengu rétt til stjúpættleiðinga. Var frumvarpið samþykkt með 46 atkvæðum gegn einu, en þrír sátu hjá. 8. maí 2004 Síldarminjasafnið á Siglufirði hlaut Evrópuverðlaun safna, Micheletti-verðlaunin, fyrir framúrskarandi starf á sviði vísinda, iðnaðar eða tækni. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Þetta gerðist… Stefán Bjarna- son frá Ölvisholti í Flóa varð hundrað ára í gær, 7. maí. Stef- án heldur upp á afmælið í dag, laugardaginn 8. maí og verður með opið hús fyr- ir alla vini og kunningja á heimili sínu Sunnuvegi 19, Reykjavík, frá klukkan 16. 100 ára „ÉG er afmælisbarn og hef alltaf haldið upp á stórafmælin mín. Á minni afmælum koma vinir og fjölskylda einnig ávallt í heimsókn. Þar að auki er ég félagsvera og vil hafa margt fólk í kringum mig. Ég er t.d. alltaf með sunnudagskaffi og mun gera það á meðan ég stend í fæturna,“ segir Laufey Þorleifsdóttir sem heldur upp á áttræðisafmælið í dag kl. 15 í veislusal að Sléttuvegi 23 í Reykjavík og hlakkar mikið til. „Mér fannst sjötugsafmælið mitt ein- staklega skemmtilegt því þá komu svo margir sem ég hafði ekki hitt lengi, meðal annars gamlar skólasystur. Ég vona inni- lega að það verði þannig líka í dag. Ég var viss um að sjötugs- afmælið væri síðasta stórafmælið sem ég myndi halda upp á en þar skjátlaðist mér aldeilis. Ég á þó ekki von á að þau verði fleiri,“ segir Laufey sem starfaði lengi sem afgreiðslukona í Káp- unni auk þess að sjá um þrif fyrir Félagsmálastofnun Reykjavíkur í fjörutíu ár. andri@mbl.is Laufey Þorleifsdóttir er 80 ára Sannkallað afmælisbarn Sudoku Frumstig 5 6 9 5 1 6 3 8 7 8 3 1 3 6 2 9 1 7 3 6 2 1 6 8 5 8 6 3 5 1 9 2 8 9 5 6 8 1 3 2 5 7 3 6 7 5 3 7 9 8 7 6 9 1 9 6 4 8 4 3 8 6 4 1 2 5 8 9 2 3 5 7 1 7 8 9 6 1 5 4 2 3 6 4 1 8 2 3 7 5 9 5 2 3 9 7 4 8 6 1 2 9 6 7 4 8 1 3 5 8 1 7 3 5 9 2 4 6 4 3 5 2 6 1 9 7 8 3 5 2 1 9 7 6 8 4 9 7 8 4 3 6 5 1 2 1 6 4 5 8 2 3 9 7 3 2 8 6 9 1 7 5 4 4 1 6 7 8 5 9 3 2 9 7 5 2 3 4 6 1 8 5 6 3 9 7 8 4 2 1 1 4 2 5 6 3 8 9 7 7 8 9 4 1 2 5 6 3 8 5 4 1 2 6 3 7 9 6 9 1 3 4 7 2 8 5 2 3 7 8 5 9 1 4 6 8 2 6 4 5 7 9 3 1 3 4 7 9 1 8 2 5 6 5 1 9 6 3 2 8 4 7 9 7 2 3 6 5 1 8 4 6 3 1 7 8 4 5 9 2 4 5 8 2 9 1 6 7 3 1 9 3 5 7 6 4 2 8 2 6 5 8 4 3 7 1 9 7 8 4 1 2 9 3 6 5 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig töl- urnar 1-9 og aldrei má tví- taka neina tölu í röðinni. Í dag er laugardagur 8. maí, 128. dagur ársins 2010 Skák Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. e4 c5 2. c3 g6 3. d4 cxd4 4. cxd4 d5 5. exd5 Rf6 6. Rf3 Rxd5 7. Rc3 Bg7 8. Bc4 Rxc3 9. bxc3 O-O 10. Bf4 a6 11. a4 Da5 12. O-O Bd7 13. Re5 Dxc3 14. Hc1 Da3 15. Bb3 Be6 16. Bxe6 fxe6 17. Dg4 Db3 18. Hc7 Bxe5 19. dxe5 Rc6 20. Bh6 Hf5 21. Hc1 Staðan kom upp á Skákmóti öðlinga sem fer senn að ljúka í húsakynnum Taflfélags Reykjavíkur. Bjarni Hjart- arson (2112) hafði svart gegn Úlfhéðni Sigurmundssyni (1775). 21… Db6! og hvítur gafst upp enda hótar svartur bæði hróknum á c7 og máti, t.d. yrði hvítur mát eftir 22. Hd7 Dxf2+ 23. Kh1 Df1+. Svartur á leik. Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Verst spilaða alslemman Norður ♠KD53 ♥G109863 ♦4 ♣G7 Vestur Austur ♠96 ♠G108 ♥42 ♥K75 ♦97532 ♦G86 ♣KD92 ♣10865 Suður ♠Á742 ♥ÁD ♦ÁKD10 ♣Á43 Suður spilar 7♠. Útspil ♣K. Því hefur verið haldið fram að úr- slitaleikur Bandaríkjanna og Austur- ríkis á ólympíumótinu 1988 sé verst spilaði úrslitaleikur á heimsmeist- aramóti fyrr og síðar. Þetta spil var eitt af þeim verstu í leiknum. Bæði 6♥ og 6♠ vinnast auðveldlega í NS en Bandaríkjamenn enduðu í 6Gr. Vestur spilaði út ♣K og þótt legan væri góð var aðeins hægt að fá 11 slagi. Við hitt borðið komust Austurríkis- menn í 7♠. Alslemman virðist auð- unnin. Sagnhafi drepur útspilið, tekur ♠Á, spilar spaða á kóng, svínar ♥D, tekur ♥Á, spilar spaða á drottningu, trompar hjarta og getur síðan hent laufi í borði í tígul, trompað lauf og lagt upp. Sagnhafi byrjaði vel, tók á ♣Á, ♠Á, spilaði spaða á kóng og … tók næst á ♠D og slemman var töpuð. Nýbakaðir foreldrar? Sendið mynd af barninu til birtingar í Morgunblaðinu Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda mynd af barninu með upplýsingum um fæðingarstað, stund, þyngd, lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig má senda tölvupóst á barn@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.