Nýr Stormur - 01.10.1965, Blaðsíða 3

Nýr Stormur - 01.10.1965, Blaðsíða 3
» I • ! I m '' i FOSTUDAGUR 1. október 1965 IfMMUR áður en ávisanirnar koma. Þannig hafa fjölmargir skap að sér vaxtalaust veltufé og er sagt, að sum fyrirtæki hafi sérstaka menn í vinnu við að annast þessa hlið reksturs ins. Eru tilnefnd ýmis virðu leg fyrirtæki og borgarar hér í hæ, en verður ekki getið að sinni. Komið hefur fyrir, að kerfið hefur slitnað og varð svo hjá Jósafat, eða svo skyldi maður ætla. Ávísanir upp á tvær og hálfa milljón króna voru innistæðulausar einn góðan veðurdag. Póstur og sími stóðu andspænis veruleg um fjársvikum og reyndu að tryggja hagsmuni sína með kaupum á einu fyrirtækja Jósafats. Almenningur varð agndofa, því að líkur benda til að þarna sé um algjörlega tap að fé að ræða. Heyrðust nú raddir um, að Jósafat kynni að vera sjálfur valdur að þessu misferli. Var honum sýnd sú óhæfa að réttvísin taldi sig eiga van talað við hann og vildi hafa hann við höndina og bjó hon- um vist á sínum bæ. Sú vist var þó ekki löng, því að í ljós kom, að Jósafat hafði alls ekki undirritað um ræddar ávísanir heldur a|lt annar maður, sem sé starfs- maður íshúsfélagsins. Hefur nú sá frómi maður, hæstarétt arlögmaðurinn áðurnefndi, lýst því opinberlega yfir, að allar ásakanir á Jósafat í máli þessu séu úr lausu lofti gripnar. Ekki skýrir lögmað- urinn frá ástæðum fyrir því, að þessar ávísanir urðu til, en fullvísit er, að Jósafat hafi látið prókúruhafa sinn skrifa undir óútfyllt ávísanaeyðu- blöð, en annazt útfyllinguna sjálfur. Vafalaust er þetta rógburð ur einn, en Áki Jakobsson skuldar lesendum blaða, sem birtu yfirlýsinguna, skýringu á því, hvað af þessu fé hefur orðið, og hver á sök á því, að það hvarf. Keflvíkingar sum. ir hverjir telja, að Jósafat sleppi frá öllu saman, en ýms- ir meðeigendur hans í hinum 15 fyrirtækjum munu hafa orðið fyrir miklu tjóni, að því sagt er. Lengi hefur verið hljótt yfir þessu máli, og telja sumir, að Suðurnesjamenn muni hafa rétt fyrir sér, en hvað sem um það er er þó víst, að mörgum veigaminni málum hefur verið hraðað meir. Kunnugir telja, að með syndakvittun sinni hafi Áki verið að þakka fjármálaséní- inu leiðtteiningar við fram- kvæmdir á Suðurnesjum, en hann mun, að sögn, hafa feng ið þrjár milljónir króna af sparifé landsmanna til að byggja fiskvinnslustöð og hef ur komið upp einhverju húsi, sem mun að mestu leyti hafa þvf einu hlutverki að gegna að vera höfundi sínum til dýrðar. Þetta blað hefur engan á- huga á að væna menn um fjár drátt og óhæfu, sem hvergi hafa nálægt slíkum málum komið, en telur hins vegar, að slík mál séu ekki einkamál lögfræðinga og viðmælenda þeirra í dómarasætum. Þessi mál snerta almenning allan, þegar svo er komið. að ekki er annað sýnna en hið opin- bera verði fyrir stórfelldu tjóni. Saksóknari er áreiðan- lega ekki að leika sér að því að sakfella menn, þótt lög- fræðingurinn vilji svo láta vera. Hér er verið að leika með opinbera stofnun ís- lenzka. | Fólk lætur sig minna skipta hvernig viðskiptum við her- inn er háttað, svo framarlega að þau verði ekki til tjóns fyr ir þjóðina. Hið erlenda fjármagn er og verður, ef til kemur, fyrst og fremst til að þjóna erlend um hagsmunum. Hvort íslend ingar njóta góðs af, er svo allt annað mál, og er fyrst og fremst undir þeim sjálfum komið. Ef viðskipti þeirra við hið erlenda fjármagn eiga eft ir að verða eitthvað í líkingu við það, sem virðist hafa átt sér stað á Keflavíkurflugvelli í þessu tilfelli og fleirum, er miklu betra að vera laus við allt erlent fjármagn. Siðleysi lögfræðingsins í þessu máli er auk þess að vera lítilsvirðing við réttar. far og dómsvald, lítið samboð ið manni, sem hefur verið | ráðherra og í miklu áliti. Auk ' þess hefur hann talið sig and snúinn stétt þeirri, er fjár- málamaðurinn verður að telj ast til. Hvort herinn hefur tap að nokkru á þessum viðskipt um við fjármálamanninn, skiptir litlu máli, en talið er alveg víst, að fjármála- maðurinn sé ekki saklaus, og mun það koma í ljós. Kemur þá til álita ,hvort Áki Jakobs- son sé ekki í raun og veru kominn í svo mikla fjarlægð við uppruna sinn, eða þá að litur gullsins hefur villt hon- um sýn. Þessi grein er skrifuS fyrst og fremst til að vekja athygli á, að hið nýríka íslenzka ríki stendur á brauðfótum. Fjármunir — pen ingar erii enn það afl, sem allt hreyfist eftir. Hver sá er getur kló fest fjármuni með illu eða góðu, telur sig hafa gripið Guð f fót- inn. Hvernig þeirra fjármuna er aflað skiptir minnstu máli. Vitað er um hóp manna sem ekki líta við að afla sér lífsviðurværis á annan hátt en að græða fé. Þessir menn líta hvorki til hægri eða vinstri. Mútur og hótanir eru heiztu viðbrögðin ef ekki allt geng ur eftir áætlun. Sá maður sem hér um ræðir, er aðeins tekinn sem dæmi um Það ástand, sem skapast þegar allur viðskiptamór- all snýst aðeins um gróða — stór- gróða. Samhliða þessum gróða hlýtur alltaf einhver að tapa. Venjulega er það almenningur — fólkið er vinnur við framleiðsluna, sem tap ar. Gróðinn skapar engin verð- mæti í höndum þessara manna, því að þeir fárt yfirleitt alls ekki við framleiðslu. Yfiriýsingar lög fræðinga breyta hér engu um. 12 Todda í Sunnuhlíð eftir MARGRÉTI JÓNSDÓTTUR. Þetta er fram hald bókarinnar TODDA FRÁ BLÁGARÐ. — í fyrri bókinni segir frá dvöl Toddu í Kaup- mannahöfn. Þegar hún er 7 ára, fer hún til ís- lands með móðusystur sinni. Hér er sagt frá viðtökunum, sem Todda litla fæ hjá ömmu sinni í Sunnuhlfð og ýmsu, sem við ber fyrsta vetúrinn, sem hún dvelur á íslandi. Hanna og Tom síðasta bókin um Hönnu. Hanna finnur nú, að njósnir og eltingaleikur við allskonar óknytta- lýð er bæði erfitt og getur verið áhættusamt. Og þar sem ástin er nú líka komin í spilið, tekur hún að lokum þann kostinn að láta allar njósnir sigla sinn sjó og breiðir faðminn mót unnusta sínum. Kim og. leðurjakkarnir og Kim og smyglararnir eru nýjustu bækurnar um Kim og félaga hans. Vinir okkar frá fyrri Kim-bókum flækjast hér inn i viðsjárverða atbuði, spennandi og dular- fulla. Vigga og vinir hennar. Þetta er hugþekk saga um Viggu og vini henn ar, þá Níels og Henning. Þeir eiga lftinn og rennilegan seglbát, sem þau sigla oft á sér til skemmtunar. Og auðvitað er Sigga með þeim á þessum dámsamlegu ferðum. Sagan af Tuma litla. Hér kemur seinna bindið og niðurlag sögunnar af Tuma litla eftir Mark Twain. fslenzkir les- endur, eldri og yngri, kannast við Söguna af Tuma litla. en bókin hefur verið ófáanleg mörg- undanfarin ár, og kemur nú sem góður vinur í heimsókn til íslenzka lesenda. Þrír fræknir ferðalangar Þessi skemmtilega saga kom út fyrir nokkrum árum og seldist þá upp. í bókinni er sagt frá ævintýralegu ferðalagi Þriggja röskra dengja Þeim hafði veið boðið tii Frakklands í Tieim sókn ti lfrændfólks. en glötuðu vegabréfum og farangri. En þeir gefast ekki upp Gang andi fara þeir ferða sinna og sofa þar sem þá ber að garði Ævintýrin geta verið erfið, en gaman er að ryfja þau upp og heyra frá þeim sagt á skemmtileean hátt. Fallegu ævintýrin. í þessai skemmtilegu bók eru fjórtán gömul ævintýri Mörg gömlu ævintýrin eru falleg Þau hafa haft i sér tífsmáttinn tii þess að standast umrót breytinganna. Tíminn síar úr það bezta og skilur eftir perlurnar, Ævintýrin heita: Steinn Bollason, Förin til stjarnanna, Fiskurinn i eykinni og hérinni í tjörninni. Sendi boði Drottins Kölski og saumastúlkam Bauna- bækur frá LEIFTRI Átta UNGLINGABÆKUR, fjórar fyrir FULLORÐNA. kóngurinn, Kóngsveizlan, Munaðarleysingjarnir sjö Enarráði drengurinn, Sagan ) af heimskum strák, Gæfu Fj baunin, Sólin og tunglið, Smælki, Höllin fyrir austan 1 sól og vestan mána. — Bjarni Jónsson listmálari hefur teiknað margar falleg ar myndir í bókina BÆKUR FYRIR FULLORÐNA: Draumar og vitranir eftir HUGRÚNU: Prófess or Jóhann Hannesson segir m. a i formála fyrir þess- ari bók: - „Veröld hins ósýnilega er oft og einatt hrollvekjandi, ekki síður en hinn sýnilegi hlutaheimur Þetta veit sérhver sá. sem verið hefur í snertingu við hina ósýnilegu veröld. Nú hafa íslendingar ekki aðeins verið í snertingu við hina ósýni legu veröld í hundruð ára, heidur jafnvel átt erfitt með að greina á milli veraldanna. Oft virðast áhrifin frá hinu ósýnilega hafa orkað sterkar á menn en öfl hins sýnilega heims Mér er í minni kona ein öldruð. er sagði okk- ur systkinunum sögur. þegar við vorum lítil. Ævintýrin gerðust í ævintýraheiminum þar sem flest fór á endanum, eins og það átti að fara. — En hvað um huldufólksheiminn. draugana, galdrana — og drauma. sem menn dreymdi?“ Sjö sögur eftir SIR ARTHUR CONAN DOYLE Höfundur þessarar bókar, Sir Arthur Conan Doyle- var einn af kunnustu rithöfunum Breta Hann var fædur 1859. las læknisfræði og stundaði lækn ingar um skeið. en gerðist síðan blaðamaður og að lokum skáldsagnahöfundur Mesta frægð hefur hann hlotið fyrir leynilögreglusögur sín- ar, ævintýri Sherlock Holmes En auk þess hefu hann ritað fjölda lengri og styttrj sagna frá ýmsum tímum. Nokkrar þeirra hafa verið þýddar á íslenzku. svo sem fyrrnefndar leyni- lögreglusögur. Hvíta hersveitin v Baskerville- hundurinn. í heljargreipum og ýmsar smásögur og ritgerðir Jónas Rafnar, læknir. þýddi sögurnar. Sofandi kona eftír Georg Alexander ingibjög Jónsdóttir þýddi. — Sagan er ótrúlega spennandi Hún fjallar um ást og afbrotamál Viðburðarás sög- unnar er ör og fjörlega rituð Lesandinn er hugfanginn frá fyrstu til síðustu blaðsiðu — Taflið milli slunginna misyndismannn og Þaui- æfða þjóna lögreglunnar- þar sem gullið og auðævin eru annars vegar en fagrar og glys- gjarnar konur hins vegar, — þar eru öll meðul notuð í baráttunni. Gerviaugað efitr ERLE STANLEY GARNER Þetta er PERRY MASON-bók - Ólafur Sv Björnsson þýddi bókina — Höfundur þessarar bókar er meða! allra frægustu höfunda leynilögreglu sagna Bækur hans eru nú þýddar um allan heim Aðalpersónu hans, Perry Mason þekkir svo til hvert mannsbarn. Perry Mason er hér eins og venjulega að leysa torráðna gátu Og honum tekst að sýkna þann, sem hafðu er fyrir rangri sök. Prentsmidjan LEIFTUR

x

Nýr Stormur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýr Stormur
https://timarit.is/publication/793

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.