Nýr Stormur


Nýr Stormur - 21.01.1966, Page 1

Nýr Stormur - 21.01.1966, Page 1
J Föstudagur 21. janúar 1966 „Ödeigur", skrifar pistilinn í dag á bls. 4. 2. árgangur Reykjavík 3. tölublaS „Sjaldan launar kálfur ofeldi.” — Skattsvik af hæstu gráðu STÓRFELLT HNEYKSLI Ræðismaður fyrir erlent ríki, svíkur sitt nýja föðurland um stórfé í sköttum íslendingar hafa átt því láni að fagna, að menn af ís- lenzku bergi brotnir, sem sezt hafa að erlendis og gerst erlendir ríkisborgarar, hafa yfirleitt reynzt hinu nýja fósturlandi nýtir og góðir borgarar. Þeir hafa reynzt hinu fámenna föðurlandi góð landkynning, verið einskonar ódiplomatiskir sendiherrar eða ræðismenn. Þeir hafa haft skilning á, að þrátt fyr- ir skyldurnar við föðurlandið, sem ól þá og ætt þeirra, hafa þeir tekist á hendur nýjar skyldur við sitt nýja fóstur- land, sem var öðrum skyldum æðri. Þeim bar að taka þátt í gleði og sorgum hinna nýju samborgara, deila kjörum með þeim, gegna skyldum sín um við þá og þeim hefir einn ig verið ljóst að þeir nutu sömu réttinda og heið- urs og að skömm hins nýja fósturlands, var einn- ig þeirra. Eins og kunnugt er, hefir mikil leynd hvílt yfir nöfnum þeirra, sem uppvísir voru að því að svíkja stórlega undan skatti, nú í vetur. Ríkisstjórnin hefir bannað nafnbirtingu þess- ara manna, sem þó hafa gerst sekir um glæp, sem afar þung viðurlög liggja við hjá þjóð- um, sem reyna að byggja þjóðfélög sín upp á raunverulegan og réttlátann hátt. Blaðið hefir undir höndum nöfn nokkurra þessara manna, en mun ekki birta þau, nema allt komi í leitirnar, til að mismuna þeim ekki. Hins vegar hefir það komist að slíku misferli hjá trúnaðarmanni einnar vinaþjóðar okkar og mun það mál verða gert að umræðuefni hér. Austan um haf Fyrir mörgum árum réðst til íslandsferðar ungur maður úr einu nágrannalandi okk- ar. Um hvatir hans til þess er blaðinu ekki kunnugt og skiptir heldur ekki máli. Sveinninn . ungi réðist til starfa í Reykjavík og varð verzlun starfssvið hans. Kom og fljótt í ljós, að hann var duglegur og sýnt um fésýslu. Stofnaði hann verzlun í Reykjavik og gerðist ttrátt um svifamikill kaupmaður á sínu sviði og rak smásölb- og inn- flutningsverzlun, svo og eins konar verksmiðjurekstur. — 4llMtMtMMItM”’*MMMMMtMfMltltlttltllMIMIIMMMMIMf^ Hver er aðalræffis- maffurinn? Þaff er spuming sem lesendur ■ verffa sjálfir aff ráffa fram úr. -'i|iiiiti,itiiitiiiiii,iitiiiiiiii,tiiiiit„iiii,1,1111111111,11111^ Fyrirtækið var staðsett á góð um stað í bænum og safnað- ist kaupmanninum brátt fé. Varð hann skjótt einn af efn- aðri kaupmönnum borgarinn- ar og jukust umsvif hans eftir því. Frá ættjörð sinni hafði hann fengið það veganesti, sem jafnan hefir fylgt þeirri þjóð, en það var vinnusemi, sparsemi og nýtni auk þess sem hann kunni vel að verð- leggja vöru sina, svo ekki yrði tap á höndluninni. Kom nú svo að landar hans eygðu verðleika mannsins og fólu honum trúnaðarstörf hér á landi. Kaupmaðurinn hafði nú ákveðið að dveljast áfram með þjóð þeirri, er ól hann svo vel. Þótti honum vel við eiga að eignast hér nýja fóst- urjörð, þótt hann héldi tengsl um og vináttu við ættjörð sína. Sótti hann um ríkisborg ararétt, sem var fúslega veitt- ur svo gegnum og efnuðum manni. Batzt hann nú sam- borgurum sinum þeim bönd- um, að þola með þeim súrt og sætt. Heldri maSur Kaupmaðurinn kunni vel að umgangast fólk af hinni svokölluðu æðri stétt, en það er einkum fólk, sem hefir rúm fjárráð og hefir gaman af að koma saman í dýrðlegum fagn aði, sem auður og áhrif geta veitt. Gerðist kaupmaðurinn nú sjálfur heldri maður og hj álpaði þar til hið mikla álit, sem landar hans höfðu á hon- um, en þeir hafa löngum haft Framh. á bls. 2. HÆSTIRÉTTUR OG RÍKISSTJÚRNIN EIGAST VIO í Lögbirtingablaðinu nú fyrir skömmu, kom tilkynning frá dóms- málaráðuneytinu um að pað hefði hinn 22. des. s.l., samkvœmt tillög- um frá Hœstarétti, veitt tveim lögfræðingum rétt til að flytja mál fyr ir Hœstarétti, þetm Birni Sveinbjörnssyni og Jóni Finnssyni í Hafn- arfirði. Ákvörðun í slíkum málum liggur í höndum Hæstaréttar, þótt dómsmálaráðuneytið gefi út þessi leyfi. Það sem er sérstakt við þessa ákvörðun, er það að þessir menn hafa ekki lokið tilskyldum prófum, eðOj sótt um að fá slík réttindi. Aðeins tveir menn hafa áður hlotið slíka verðleikaviðurkenningu, þeir Einar Arnórsson prófessor og Benedikt Sigurjónsson, Hæstaréttar- dómari. — Bœði lœrðir og leikir velta þessu máli fyrir sér og þótt flestir vilji veg þessara manna sem mestann, liggur þó að margra áliti annað og meir hér að baki. Er Hæstiréttur að gefa ríkisstjóminni áminningu fyrir framkomu hennar í Hafnarfjarðarmálinu? Þær gerast margar skrítnar svipmyndirnar, sem birtast á tjaldinu þessa dagana „Ódeigur“ rœðir þessi mál í pistii sínum í blaðinu í dag. Björn Sveinbjörnsson, hrlm. .Tón Finnsson hæstaréttarl.m.

x

Nýr Stormur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýr Stormur
https://timarit.is/publication/793

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.