Nýr Stormur


Nýr Stormur - 21.01.1966, Qupperneq 10

Nýr Stormur - 21.01.1966, Qupperneq 10
/ 10 89ifamui> » FÖSTUDAGUR 21. janúar 1966. Bör Börsson júníór Teiknari: Jón Axel Egils Þjóðvegurinn lá um túnið á Furu völlum. Níels stóð á hlaðvarpanum og var að smyrja vagnöxul. — Góðan daginn, sagði Bör. — Nei, góðan daginn! Þú svona snemma á ferðinni, Bör! Hvert er ferðinni heitið? Níels setti hjólið á öxulinn og sneri því. — Ég varð að skreppa ofan í Niðarós, sagði Bör Börsson. — Jæja, hvað á nú að gera þar? Hjólið snérist hratt um ásinn og sólin skein í heiði. — O, það er nú svona sitt af hverju — forretningsútréttingar, eitt hvað verður maður að fá af vör- um og svo eru það bankaviðskiptin, sagði Bör og bar sig mannalega. — Ja-há, ætlarðu Lika að leggja peninga inn í bankann? spurði Níels. — Já, maður verður að geyma pen ingana í bankanum, þegar maður hefir ekki eldtrausta skápa og svo eru það líka renturnar, það er nú svo skrítið með þær! — Níels stóð með feitabrúsann í hendinni og horfði á hjólið snúast og hægja ferð ina. — Þú vildir nú ekki gera mér dá- lítinn greiða í Niðarósi, Bör? — Jú, ef ég get. — Viltu taka fyrir mig dálitið af peningum og leggja inn í bankann, þá er það búið og gert? Það lá við að Bör Börsson hoppaði i loft upp af gleði. Þarna eygði hann von. Hann áttaði sig þó og sagði dræmt: — Mér er nú illa við að bæta á mig miklu af peningum og það annara manna peningum, en upp á gaml- ann kunningsskap skal ég samt gera þetta fyrir þig. — Hvað er þetta mikið? — Tólf hundruð krónur. — Tólf hundruð! Er þér alvara? — Já, þú veizt hann Andrés í Þórs- ey varð að punga út með þó nokk- uð og svo er það móðurarfurinn minn. Það gæti brunnið hvaða dag sem er. Já, eldurinn er ekki til að spauga með, sagði Bör Börsson júní- ór. Hálftíma scinna gekk hann nið- ur veginn með tólf hundruð krón- ur í vasanum. Hann söng af gleði og sólin skein. Gæfan hafði aftur brosað við Bör Börssyni júníór, kaupmanni á Öld- urstað. Að vísu voru þetta ekki hans peningar, en hann gæti tekið þá að láni í nokkrar vikur, meðan hann væri að koma undir sig fótunum að nýju. Bör Börsson söng og dansaði á veginum. Nú skyldi verða líf í tusk unum.. Hann skyldi panta nýjar vörur. Hvert vagnhlassið á fætur öðru o£ hann skyldi græða — græða! Þennan morgunn keypti Bör Börs- son sér farmiða á 2. farrými með lest inni til Niðaróss. Hann keypti sér heljarstórann vindil í sjálfsalanum á stöðinni og kveikti í honum áður en hann steig inn í lestína. Fólkið starði og gapti á hann stórum aug- um. Það voru ekki nema ríkisbubb- ar, sem ferðuðust á 2. farrými. AI- múgafólkið varð að láta sér nægja þriðja klassa. Bör Börsson hallaði sér ánægju- lcga aftur á bak í þessu dúnmjúka hægindi. Þetta yfirstéttalíf! Það var dásamlegt! Þetta var svo gott. Það fór fiðringur um Bör. Nú ferðaðist hann eins og þeir stóru. Oh) Hvílík stund! Þegar lestarþjónninn kom og spurði hann hvort hann ætlaði að fá miðdegismat í Lyngási, sagði Bör: Já. Auðvitað! Nafnið? spurði lestar- þjónninn. BÖRSSON GRÓSSERI! • Börsson er í Niðarósi og hefir greitt skuld sína. Bentzen & Co. eru lunga- mjúkir og hafa boðið Bör inn á skrifstofu upp á vindil. Þar inni eru skrifaðir langir pöntunarseðlar upp á nýjar vörur, sem á að senda upp að Öldurstað, til firmans Bör Börs- son júníór. Ólsen prókúruhafi af- greiðir Bör og sýnir honum vöru- sýnishornin. Hann tekur úr pokun- um með vísifingri hægri handar og lyktar af. Bör rís á fætur og fer eins að. Bör Börsson er kominn út á götu f Niðarósi og hér var hvorki meira né minna en allt fullt af fínum fraukenum. Hvert sem hann leit tif- aði einhver heldri frauken. Hann sá nú hvað það hafði verið fíflalegt að vera að eltast við hana Finklu á nrestsetrinu. Hér voru þær eins og rjúpnahópur í skógi — þetta var eins og í sjálfri Paradís. Allt f einu nam hann staðar, tók út úr sér sígarann, spýtti um tönn niður í mölina og þurrkaði sér um munninn á handarbakinu. Þarna sat ein fín frauken á bekk! Hún starði niður fyrir sig og virtist vera mjög raunamædd. Bör sýnd- ist hún myndi vera konsúlsdóttir -r en þrátt fyrir það gat hún verið ó- lukkuleg. Hann ætti líklega að fara til hennar og heilsa henni, annars sýndist honum að hún myndi ekki vera til í tuskið. Bör Börsson gekk að bekknum, sló saman hælunum og bar hendina upp að hattbarðinu. — Góðan dag, fröken. Situr hún hér alein og hugsar um örlög sín? Þar næst gekk hann þrjú skref áfram og rak upp rosahlátur. Hún leit upp og horfði á skakk á hann undan hattbarðinu. — Góðan dag, sagði hún. — Eruð þér sorgmædd? — Sorgmædd? — Já, táldregin af yðar heittelsk- aða? — Hún geispaði. — Ætlið þér að spandéra? — Spandéra? Bör Börsson varð himinlifandi. Nú hafði hann loks- ins hitt á ósvikna konsúlfrauku. Má ég hafa þann heiður að bjóða yður eina flösku af limonaði frá Niðaróss- límonaði-fabrikku-útibú? — Límonaði? Hh, ha. Ha, ha! Nei! ÖI! Vín! Steik! Nú var Bör Börsson viss um að hann hafði hitt á reglulega fína konsúlfröken. Hún reis á fætur og lagaði sig til og svo gengu þau Bör Börsson júníór inn í Ráðhús=JgaII- arann.

x

Nýr Stormur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýr Stormur
https://timarit.is/publication/793

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.