Nýr Stormur


Nýr Stormur - 08.07.1966, Síða 11

Nýr Stormur - 08.07.1966, Síða 11
FÖSTUDAGUR 8. júlí 1966. f9H<MHÍIIR' 11 FRITZ BAADE: «*♦ - Paradís eða ragnarök? — kapphlaupið — til — aldamótanna Myndin lítur þá þannig út: Árið 1900 var stálframleiðsla alls heimsins aðeins 28 milljón tonn. Þar af voru 16 milljónir framleiddar í Evrópu, utan Rússlands, en 10 milljónir voru framleiddar i Bandaríkjunum. Þau tvö milljón tonn, sem eftir eru komu aB mestu frá Rúss- landi. Aldarfjórðungi síðar hafði þessi mynd breyzt að einu leyti: U. S. A. hafði á styrjaldartím- anum byggt svo upp stáhðnað sinn að hann var kominn fram fyrir Evrópu. Bandaríkin framleiddu 57 milljón tonn.Evrópa 53 milljón tonn og Sovétríldn voru komin upp í 5 milljónir tonna. En nú, eins og í byrjun aldarinnar var aðeins um þrjá framleiðslustaði á stáli að ræða, svo nokkití næmi, en það voru Bandaríkin, Evrópa og Rússland. Að vísu höfðu Japanir hafið framleiðslu á stáli, en sú framleiðsla var ekki mikil, enn sem komið var. ÖIl önnur lönd, sem þurftu að nota stál, urðu að kaupa það frá þessum löndum. Aldarfjórðungi síðar, þ. e. ár- ið 1950 sjáum við fyrir okkur enn nýja mynd Nú hefir stál- framleiðslan aukist upp í 188 milljónir tonna, þ. e. a. s. um 50%0. Skiftingin á framleiðslunni er enn sú að Bandaríkin halda for- ustunni með 88 milljónir tonna og er þannig mesta stálfram- leiðsluland veraldar með helm- ing stálframleiðslunnar. Évrópa fyrir utan Rússland er með ná- lægt 60 milljónir tonna, en stál- framleiðsla Sovétríkjanna hefir aukist upp í 27 milljónir tonna, það er að segja tíu sinnum meir en í Rússlandi keisaranna. Eftir árið 1950 fer að koma veruleg breyting á framleiðsl- una. Æ fleiri lönd taka nú til við framleiðslu stáls og er svo komið 10 árum síðar að komm- únistaríkin Rússland, Kína, Pól- land og Tékkoslovalda fara langt fram úr stálframleiðslu Vestur-’Evrópu og eru nálægt því jafnstórir framleiðendur og Bandaríkin. Nú slculum við líta fram í tímann. Eftir öllum sólarmerkj- um að dæma, mun stálfram- leiðsla heimsins verða komin upp í 540 milljón tonn árið 1975 Við getum varla gert ráð fyrir að stálframleiðsla Vestur-Evr- ópu verði meiri en 90 milljónir tonna. Ekki er trúlegt að fram- leiðsla Bandaríkjanna verði meiri en ca. 160 milljón tonn. Aftur á móti má gera ráð fyrir að kommúnistalöndin verði kom in upp í 240 milljón tonn, Þenn- an útreikning má grundvalla á framleiðslugetu Sovétríkjanna og kommúnistalandanna í Evr- ópu. Hinsvegar er ekki gott að segja um, nema Kína komist fram úr þessari áætlun. Þó að það hafi ekki mikið með nútímann að gera, má geta þess til gamans, að kínverjar voru fyrstu framleiðendur járns í veröldinni. í safninu National History Museum í Chicago er jámvasi, sem gerður var í Kína 200 árum fyrir Krist. Þrátt fyrir þá staðreynd að Kínverjar fundu stálið mörg hundruð árum á undan Evr- ópumönnum, notuðu þeir það aldrei til að búa til fallbyssur, nema til vamar hofunum. Það að þeir mörgum öldum síðar, stóðu andspænis fallbyssum enskra kaupmanna, sem rieyddu upp á þá ópíumverzluninni, er ömurleg staðreynd, þar sem þeir höfðu sjálfir mörg hundmð ára forskot í járn og stálfram- leiðslunni. Nú byggir Kína hvert stál- iðjuverið á fætur öðm og árið 1975 má reikna með þyí að kommúnistalöndin verði komin með meira en helming allrar stálvinnzlu veraldar. Á 7. degi Frh. af bls. 6. „íslenzkt fyrirtæki" og „ís- lenzkur atvinnuvegur." Perlum kastað fyrir svín . .Vísir leiðir hinn sænska prófessor á vit íslenzkra les- enda og hann segir það, sem raunar fjöldinn veit, að ís- lendingar megi skammast sín fyrir að framleiða skeþnufóð- ur úr síldinni, fóður sem síð- an er notað til að auka of- framleiðslu á svínum, m. a. í Danmörku og Svíþjóð. Fróðir menn telja að fjárfesting í fiskiðnaðarverksmiðjum sé fljót að skila sér, séu hráefni nóg. Það er staðreynd að ís- lendingar eiga nóg hráefni og flytja það óunnið út, en samt vantar þær verksmiðjur, sem fyrir éru í fiskiðnaði og þó geta þær ekki unnið nema úr litlu broti af því hráefni, sem aflast. PLASTEINANGRUN Údýr og mjög góð einangrun. Vönduð framleiffsla. REYPLASTH. F. • Ármúla 26 — Sími 30978 Einkaframtakið rennur út í sandinn vegna þess að ríkið hefir ekki skilning á þjóðhags legri þýðingu þess, að vinna úr sjávaraflanum. „Rikið, það er ég“. — Hr. Bjarni Benediktsson og félag- ar hans, virðast nú hafa tek- ið sér þessi frægu orð í munn. Greinin í Vísi var þungur á- fellisdómur yfir þá félaga, sinnuleysi þeirra og fávizku. Þeir starblína í þvílíkri ofsa- trú á stórgróðann, að þá skipt ir ekki lengur máli, hvort hann lendir í höndum útlend- inga og íslendingar fá aðeins smámola af borðum húsbænd- anna. Heimsk stjórn! Sjálfstæð tilvera þessarar þjóðar á efnahagssviðinu, er orðið þeim svo fjarlægt hug- tak, eftir áratuga betl hjá erlendum þjóðum, að sinnu- leysið og forheimskunin er orðin að leiðarljósi. tslending ar þurfa að reisa nokkrar verk smiðjur, sem kosta brot af ál- verksmiðju, til að vinna úr hráefnum sínum. Tæknin er orðin gífurleg á þessu sviði, en vinnuafl þarf þó allmikið. Ríkisstjórnin er nú búin að sjá fyrir aukinni tregðu á því, þar sem íslenzkar hendur eiga enn á ný að fara að vínna fyrir útlendinga. Hafi Vísir þökk fyrir birt- ingu greinarinnar, sem ætti að vekja landsmenn til um- hugsunar um þessi mál. Þeim mun verða gerð nánari skil hér í blaðinu síðar. Hvað vita erlendir vinir yðar og viðskiptamenn um Island? Sendið þeim landkynningarbókina ICELDAN 4 a Traveller’s Guide Bókin þjónar tvennum tilgangi: Hún er gagnleg ferðahandbók og handhæg uppsláttarbók um land og þjóð. ICELAND — A TRAVELLER’S GUJDE er.í pappa- öskju og fylgir límmiði. Þér þurfið aðeins að skrifa nafn sendanda og viðtakanda á miðann og setja bókina í póst. Þér losnið við pökkun og óþarfa fyrirhöfn. ÍSLENDINGUM á leið til útlanda viljum við benda á þessi ummæli Alþýðublaðsins um ICELAND — A TRAVELLER’S GUIDE: „Þessi bók er ekki aðeins handhæg fyrir erlenda ferðamenn, heldur getur hún verið gagnleg fyrir hvern þann, sem vill hafa handhægar almennar upplýsingar um land og þjóð. Ber ekki sízt að nefna íslendinga sjálfa, til dæmis þá, sem eiga fyrir höndum að ferðast til annarra landa og hitta þar útlendinga. Vilji þeir hafa rétt svör á reiðum höndum mun þeim reynast vel að hafa blaðað í þessari bók í flugvélinni á útleið.“ ICELAND er rituð af Peter Kidson, fyrrum sendi- ráðsritara, og hefur hlotið meðmæli Ferðamálaráðs. ICELAND — A TRAVELLER’S GUIDE sameinar kosti fræðiritsins og myndabókarinnar, fer vel í vasa og tekur lítið rými frá öðrum farangri. ICELANÐ er nýjjasta og íturlegasta lundkynningarhókin. HAFIÐ RÉTT SVAR Á REIÐUM HÖNDUM. Fæst í næstu bókabúð. FERÐAHANDBÆKUR SU BOGAHLÍÐ 14, SÍMI 3 56 58 l A > l V

x

Nýr Stormur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýr Stormur
https://timarit.is/publication/793

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.