Nýr Stormur


Nýr Stormur - 23.09.1966, Blaðsíða 10

Nýr Stormur - 23.09.1966, Blaðsíða 10
10 ^ÍIeRMUR FÖSTUDAGUK, : ^ sept. 1966 Bör Börsson Teiknari: Jón Axel Egils 88. Herra Furon! Kjöt, feitmeti! Heild sala, smásala, heilsar nú fólkinu með handabandi og kynnir sig með Jiessum orðum. — Svei mér, sem þetta er ekki strákurinn á Furuvöllum! sagði gömul kona við bæjarvegginn. — Sá þykir mér vera kominn í holdin! Herra Fur- . on stendur gleitt og dregur af sér stóru hanzkana og slær þeim í lófa sér. Frú Furon, fyrrverandi Lára Isaksen inn- búðardama hjá Bör Börsson, fitlar feimnislega við lítið silfurveski, sem hún hcfir um hálsinn. 89. Allir horfa á herra Furon. Það er naumast hann er búinn að fá ístruna! Það er eins og Bör Börsson verði hreint að engu, en það er nú líka búið að hafa fyrir augunum í þrjú eða fjögur ár og það er eins og mesti glansinn sé farinn að mást af honum. Bör finnur þetta óðara og honum gremst þetta svo að hann getur ekki á sér setið. Ætlar þessi Furuvallastrákur að fara að setja hana niður? Nei, fari það bölvað. 90. Og Bör Börsson tekur til sinna ráða. Hann fer ofan í vasa sinn og tek- úr upp veskið sitt og segir svo hátt að allir heyra. — Þú getur víst ekki skipt fyrir mig nokkrum þúsund króna seðl- um, Níels? Eg þarf að borga nokkrum verkamönnum. Hann íekur tvo þúsund króna seðla úr veskinu og veifar þeim. Herra Furon hcildsali, kjöt, smásala, heildsala, verður að'viðundri: — Skipta. . . . Nei hann hafði ekki neina pen- inga á sér. 91. Viltu fara og vita hvort nokkur getur skipt þessu lítilræði fyrir mig? segir hann við O. G. Hansen. O. G. Hansen lileypur fram og aftur og veif- ar seðlunum hátt á Ioft. — Getur nokk ur skipt? getur nokkur skipt? hrópaði hann. Þetta hafði sín áhrif. Tvö þúsund krónur! Þeir ætluðu ekki að trúa sín- um eigin augum. Furon heildsali föln- aði niður í ekki neitt á augabragði. Já’, hann Bör Börsson! Þeir fóru sko ekki í fötin hans! 92. O. G. Hansen fær ekki skipt pen- ingunum og Bör Börsson tekur við þeim aftur. Honum gengur illa að koma þeim í veskið aftur, það er úttroðið af peningum. — Hann tekur þá handfylli sfína út úr veskinu og reynir að troða því í eitt hólfið, en þeir komast ekki þar. Þá verður han reiður og slær lóf- anum á veskið. Þetta varð til að reka smiðshöggið á niðurlægingu Furons heildsala, smásala — þessi smcllur! — Furon heildsali reynir að bjarga sér með því að hann hefði vel getað skipt þessu smáræði ef hann hefði verið lieima. Ó, já — þetta gátu nú allir sagt! 93. Furon tekur upp gullúrið sitt og horfir lengi á það, en það hjálpaði ekki grand. Það gat svo sem vel verið selstsemgull! Hann dregur á sig háu hanzkana og kveður Bör með handa- bandi. Auf wiedershen! herra Börsson! O — þakka þér fyrir heimlitið. — Far- vell herra Börsson, segir heildsalafrú- in og róttir honum hendina. — Verið þér sælar, frú, segir Bör, en Jósefína lætur sér nægja að kinka kolli til þeirra beggja. Þau sveifla sér inn í bílinn af mikilli leikni og þeysast af stað, en fólkið hrekkur í allar áttir. 94. Svei mér ef þessi Furuvallastrákur er ekki búinn að fá stórmennskubrjál- æði, sagði Bör Börsson og tekur þessa tvo þúsund króna seðla og stingur þeim í jakkavasa sinn svo að þeir Iafa út úr. — Verður ekki neitað, hneggjar O. G. Hansen. — Sveiattan segir Bör Börs son. — Fólk með stórmennskubrjálæði eru þau verstu fífl, sem ég þekki og svo hlæja þeir báðir, og gera sig að apaköttum. 95. Nú er allt .tilbúið að reisa flagg- stöngina. Allir kaðlar og festar í lagi. Langur stálkaðall er festur við stöng- ina og Hansen yddar blýantinn í ákafa og byrjar að skrifa: STÓRKOSTLEG ATHÖFN AÐ ÖLDUSTAÐ! Bör Börsson lætur reisa hæztu flaggstöng á Norður- Iöndum. — Hann hefur varið stórfé í þetta fyrirtæki. (Einkaskeyti frá hinum sérstaka útsenda fréttaritara blaðs vors). — Oh, nú brotnaði blýanturinn. 96. ÓIi í Fitjakoti klifrar nú upp á fjósþakið til að stjórna verkinu þaðan. Rafmótorinn er settur af stað; smiðir og verkamenn ganga undir kaðlana og leggja um herðar sér — en flaggstöngin bifast ekki. Óli æpir af fjósmæninum: — Standið ekki þarna og glápið eins og nautkálfar. Komið og takið í kaðl- ana, bölvaðir bjálfarnir ykkar! Nú tek ur stöngin að lyftast hægt og hægt frá jörðu — það er svo sem ekkert sældarbrauð að lyfta henni og nú hlæja allir. Óli hamast og kjaftar á fjósmæn inum, en enginn tekur mark á kjaftalát um hans. 97. Nú er flaggstöngin að komast í réttar stellingar; hún rís hærra þráð- beint upp, en allt í einu missir hún jafnvægið og kemur á fleygiferð beint ofan á Óla. Hann sér hvað verða viJl og rekur upp ægilegt öskur, baðar- »t öllum öngum og tekur tfhdir sig beint út í loftið ofan af fjósmæninum. Fólkið æpir af skelfingu og tvístrast út um allt — og þarna fellur flaggstöng- in beint ofan á fjósmæninn og niður í gegnum hann mcð ægilegu brothljóði!

x

Nýr Stormur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýr Stormur
https://timarit.is/publication/793

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.