Nýr Stormur - 05.01.1968, Blaðsíða 4
o
FÖSTUDAGUR 5. JAN. 1968.
VINNINGAR
ÍHAPPDRÆTTI
HÁSKÖLANS
1968
VINNINGAR ÁRSINS
12 FLOKKAR
2 vinningar á.
22 vinningar á
24 vinningar á
1.832 vinningar á
4.072 vinningar á
24.000 vinningar á
Aukavinningar:
4 vinningar á
44 vinningar á
1.000.000 kr.
500.000 kr.
100.000 kr.
10.000 kr.
5.000 kr.
1.500 kr.
50.000 kr.
10.000 kr.
rriomimtn ss
2.000.000 kr.
11.000.000 kr.
2.400.000 kr.
18.320.000 kr.
20.360.000 kr.
36.000.000 kr.
200.000 kr.
440.000 kr.
t
30.000 90.720.000 kr.
‘AUKAVINNINGAR:
í 1.—11. flokki kemur 10.000 króna aukavinningur á næsta
númer fyrir neðan og fyrir ofan það númer sem hlýtur
hæstan vinning.
í 12. flokki kemur 50.000 króna aukavinningur á næsta
númer fyrir neðan og fyrir ofan milljón króna vinninginn.
\ •
UMBOÐSMENN:
Arndís Þorvaldsdóttir, Vesturgötu 10, sími 19030 - Frimann Frímannsson, Hafnarhúsinu, sími 13557 - Guðrún
Ólafsdóttir, Austurstræti 18, simi 16940 - Helgi Sívertsen, Vesturveri, sími 13582 - Jón St. Arnórsson, BanRá-
stræti 11, sími 13359 - Þórey Bjarnadóttir, Kjörgarði, Laugaveg 59, sími 13108 - Verzlunin Straumnes, Nesvegi
33, sími 19832.
KÓpXvÓGUR: Guðmundur Þórðarson, Litaskálanum, sími 40810- Borgarbúðin, Borgarhoitsbraut 20, sími 40180
HAFNARFJÖRÐUR: Kaupfélag Hafnfirðinga, Vesturgötu 2, sími 50292. Verzlun Valdimars Long, Strandgötu 39.
sími 50288.
Nr. 7/1967.
Reykjavík, 27. des.
H - fréttir
Nú eru um eitt hundrað og
fimmtíu dagar fram að
H-degi. Verið er nú að undir-
búa og skipuleggja almenna
umferðarfræðslu sem fram á
að fara á fyrstu þrem mánuð-
um næsta árs. Að undanförnu
hefur verið unnið að stofnun
umferðaröryggisnefnda úti á
landsbyggðinni og er nú búið
að stofna 24 umferðaröryggis-
nefndir og í þeim eru samtals
um 200 manns. íbúar á þeim
svæðum þar sem búið er að
stofna nefndirnar eru samtals
36.340.
Að undanförnu hefur Hann
es Hafstein fultrúi hjá Slysa-
varnafélagi íslands unnið að
því að stofna umferðaröryggis
nefndir úti um and, en nefnd-
ir þessar eru stofnaðar að til-
hlutan Framkvæmdanefndar
hægri umferðar. Eins og nafn
ið ber með sér, þá er hlutverk
þessara nefnda að vinna að
umferðaröryggi, hver í sínu
byggðarlagi, og má segja að
hér sé um að ræða nýtt afi á
sviði umferðarmála, sem von-
andi á eftir að láta margt gott
af sér leiða á þessu sviði.
Með stofnun umferðarörygg
isnefndanna í huga, hefur
landinu verið skipt í 18 um-
dæmi, utan höfuðborgarsvséð-
isins. Hverju þessara um-
dæma er svo skipt í starfs-
svæði. í sambandi við um-
dæmaskiptinguna er rétt að
taka það fram, að þar er ekki
farið eftir hinni venjulegu
sýsluskiptingu, heldur miðað
við, hvernig lega þéttbýlis-
staða er, o. s. frv.
Búið er núna að stofna um-
ferðaröryggisnefndir á svo til
öllu svæðinu frá og méð
Austur-Skaftafellssýslu, norð-
ur og vestur í Húnavatnssýsl-
ur. Var fyrst hafizt handa um
stofnun umferðaröryggis-
nefnda í Eyjafirði, og haldið
þaðan vestur í Skagafjörð og
Húnavatnssýýsur, en siðan
haldið til Hornafjarðar, og
norður eftir öllum Austfjörð-
um, og endað í S-Þingeyjar-
sýslu. Á þessu svæði er búið að
stofna 24 umferðaröryggis-
nefndir, en alls munu þær
verða 50—60 talsins á öllu
landinu. Núna eftir áramótin
verður hafizt handa um stofn-
un umferðaröryggisnefnda á
Suðurlandi, Vesturlandi og
Vestfjörðum, og er þess vænzt
að stofnun nefndanna geti
verið lokið í janúarmánuði.
Framhald á bls. 7