Morgunblaðið - 21.05.2010, Qupperneq 10
Nú þegar óðum styttist í frumsýn-
ingu á mynd meistara Spielbergs um
sjálfan Tinna, eina af helstu per-
sónum heimsbókmenntasögunnar, er
full ástæða til að kíkja inn á ofan-
greinda vefsíðu um snillinginn og
fræðast um allt sem honum við-
kemur. Tryggir aðdáendur geta þarna
rifjað upp gömul kynni og þeir sem
ekki þekkja drenginn nú þegar geta
gætt sér á texta og myndum um hinn
belgíska Tinna, hundinn Tobba,
drykkjurútinn Kolbein kaftein, leyni-
löggurnar Skapta og Skafta, hinn ein-
hverfa Vandráð og allar hinar frá-
bæru persónurnar sem koma við
sögu í ævintýrum Tinna. Á þessari
vefsíðu eru að finna allar nýjustu
fréttir af Tinna, blogg um hann,
tölvuleiki með honum, hægt er versla
í gegnum veraldarvefinn í Tinnabúð,
fræðast um höfundinn Hergé og svo
mætti lengi telja. Hinn drengjalegi og
hjartahreini Tinni er ekki aðeins ofur-
áhugasamur blaðamaður, hann er
margslunginn eldhugi, hugrakkur
með eindæmum, með ríka réttlætis-
kennd en kannski fyrst og fremst eld-
klár einkaspæjari sem flettir ofan af
illmennum um víða veröld. Hann
kemur í veg fyrir stórtjón og styrjald-
ir, ofbeldi og yfirgang. Við Íslending-
ar hefðum heldur betur þurft á einum
Tinna að halda til að koma í veg fyrir
hrunið, eða fletta ofan af ódæðis-
mönnunum eftir á.
Vefsíðan: www.tintin.com
B́ófaskelfirinn barngóði
Skemmtilegt Nemandi við litríkt stofuborð.
Vorsýning Iðnskólans í Hafnarfirði opnar formlega í dag
við skólaslit. Sýningin er árlegur viðburður þar sem tekin
er saman vinna nemenda og verkefni sett upp.
Meðal þess sem er á sýningunni í ár er snjóbræðslukerfi
frá pípulagningadeild, draugabani frá rafmagnsdeild, sýn-
ishorn af vinnu nemenda í byggingadeild við endurgerð
gamallar kirkju í Krýsuvík. Hársnyrtideild sýnir nokkur
dæmi um mismunandi hárgreiðslu. Útstillingardeild sýnir
útstillingar í glerskápum. Stólamódel, formfræðilíkön,
fuglahús og leirbollar eru dæmi um fjölbreytilega vinnu
nema í hönnunardeild. Tækniteiknarar sýna lokaverkefni
sín, auk þess sem fjöldi smíðisgripa úr málmi, tré og plasti
verða á sýningunni.
Sýningin verður opin frá og með morgundeginum til
sunnudagsins 30. maí frá kl. 13 til 17 og er í húsnæði skól-
ans að Flatahrauni 12 í Hafnarfirði.
Meðfylgjandi myndir voru teknar þegar nemendur voru
að setja sýninguna upp í vikunni.
Morgunblaðið/Eggert
Hönnunardeild Nemandi við
stólamódel sitt.
Kassi Það er margt sniðugt á
sýningunni að sjá.
Grastaska Frumleg og grasgræn.
Draugabani
og fuglahús
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. MAÍ 2010
10 Daglegt líf
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Mér finnst mjög gamanað skapa og gera. Éghafði samt aldrei hugs-að svo langt að ég gæti
unnið við það.
Síðan gerðist það eiginlega
ósjálfrátt. Ég er lærður verkfræð-
ingur og vann á verkfræðistofu, en í
lok árs 2008 missti ég vinnuna og
tók þá upp hannyrðirnar aftur,“
segir Silja sem tók brosandi á móti
blaðamanni í verslun sinni í Garða-
stræti 2.
„Þegar ég var lítil saumaði ég
og prjónaði mikið, gerði jólafötin á
sjálfa mig og gjafir, og fannst það
rosalega gaman. Þetta var mitt
áhugamál þangað til ég fór að læra
verkfræði, þá fór mestur tími í lær-
dóm og ekki beint í skapandi um-
hverfi. Þegar ég síðan gekk með
son minn fyrir fjórum árum, tók ég
prjónana upp aftur og fór að gera
barnaföt og fleira. Þá áttaði ég mig
á því hvað ég saknaði sköpunar-
gleðinnar og hvað ég fæ mikið út úr
því að skapa. Út frá því fór ég að
sauma og prjóna ýmislegt fyrir vini
og fjölskyldu og svo, eiginlega strax
fyrsta daginn í atvinnuleysinu, fór
ég bara á fullt. Ég var búin að vera
að þróa eitthvað sem ég ætlaði að
gefa í jólagjafir og allt í einu varð
bara vitlaust að gera í þessu, alveg
óvart,“ segir Silja um upphafið að
SHE-fatalínunni.
„Þetta vatt upp á sig, ég stofn-
aði netsíðu og þetta spurðist út. Ég
náði varla að anna eftirspurn.“
Silja byrjaði með starfsemina
heima hjá sér á Vesturgötu og var
með opið eftir samkomulagi fyrst
um sinn en ákvað síðan að hafa
fastan opnunartíma einu sinni í
viku.
„En á ákveðnum tímapunkti
bauð íbúðin mín ekki upp á þessa
starfsemi lengur. Ég var ekki með
neitt aukaherbergi til að nýta undir
þetta, heldur var t.d lagerinn inni í
svefnherberginu, herbergi sonar
míns var mátunarklefi og stofan og
eldhúsið var undirlagt af flíkum og
saumadóti, þetta var bara komið í
matinn,“ segir Silja kankvís. Þar af
leiðandi ákvað hún að grípa tæki-
færið þegar rýmið á Garðastræti 2
losnaði og færa starfsemi sína
þangað og vera þar með vinnuað-
stöðu og litla verslun á sama stað,
sem hún opnaði í mars síðast-
liðnum.
„Þetta bara kemur
frá hjartanu“
Það var ekki á dagskránni hjá Silju Hrund Einarsdóttur að gera fatahönnun að
atvinnu sinni. En nánast „óvart,“ eins og hún orðar það, fór hún að hanna og
sauma föt sem hún selur nú undir nafninu SHE í verslun í Garðastræti.
Morgunblaðið/Golli
SHE Silja Hrund Einarsdóttir í eigin hönnun í búðinni sinni í Garðastræti.
Annað kvöld, laugardags-
kvöld, heldur plötusnúð-
urinn Óli ofur uppi stuð-
inu á Nasa við Austur-
völl. Óli ofur er þekkt-
astur fyrir að spila
underground house og
techno, en færri vita að
hann hefur mikinn áhuga
á diskói, og fær hann nú
loks útrás fyrir þann
áhuga. Það er kominn
tími á að diskóið, ein
vanmetnasta tónlistar-
stefna heims, fái upp-
reisn æru. Það mun hún
einmitt gera á Nasa við
aðstæður sem hæfa, í
öflugum búmmboxum við
tindrandi ljósasjó, og síð-
ast en ekki síst verður
hún spiluð af plötusnúð
sem hefur hæfileikann til
að spila hana.
Gamanið byrjar kl. 23
og kostar 1000 kr. inn.
Endilega...
...dansaðu diskó friskó
Diskó Travolta í Saturday Night Fever.