Morgunblaðið - 21.05.2010, Qupperneq 11
Steinefnafarði gef-
ur fallegan ljóma
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Nýjar förðunarvörur eru stöðugt að
koma á markað. Svokallaður stein-
efnafarði er vinsæll núna og eru flest
snyrtivörumerki komin með hann í
sínar raðir. En hvað er steinefna-
farði? Blaðamaður fékk Margréti
Jónasardóttur förðunarmeistara hjá
Make Up Store til að svara því.
„Steinefnaförðunarvörur eða
mineral makeup eru ekkert nýtt af
nálinni. Þær eiga, ef svo má segja,
rætur sínar að rekja til fyrri alda,
þegar menn notuðu ýmis jarðefni til
að snyrta sig.
Undanfarin ár hefur steinefna-
farði komið sterkur inn á markað,
sérstaklega síðustu þrjú ár. Fram-
leiðsla á farðanum eins og við þekkj-
um hann í dag hófst um miðjan átt-
unda áratuginn, en náði ekki
útbreiðslu fyrr en árið 1994,“ segir
Margrét um sögu farðans.
Úr náttúrulegum steinefnum
„Fyrst um sinn var markhópur-
inn konur sem þoldu illa hefðbundinn
farða, voru með viðkvæma húð eða
önnur húðvandamál. Nú í dag nær
markaðurinn yfir mun stærri hóp.
Farðinn varð fyrst vinsæll fyrir
þá fallegu áferð
sem hann gefur.
Húðin verður
lýtalaus og fall-
egur ljómi kemur
á hana. Stein-
efnafarðinn er
eini farðinn sem
nota má á við-
skiptavini eftir
meðferðir á
snyrtistofu,
vegna græðandi, verndandi og sef-
andi eiginleika hans.
Það sem gerir steinefnafarðann
svo einstakan eru innihaldsefnin,
sem eru, eins og nafnið gefur til
kynna, náttúruleg steinefni,“ segir
Margrét.
Spurð hverjir séu helstu kostir
steinefnafarðans segir Margrét að
þeir séu margir. „Hann er í fyrsta
lagi mjög góður fyrir viðkvæma húð
og góður til að hylja rósroða og
bletti. Efnin í honum eru náttúruleg
og hann virkar vel fyrir alla í hvaða
loftslagi sem er og verndar fyrir sól-
inni. Farðinn er léttur og nátt-
úrulegur og lítur eðlilega út á húð-
inni og stíflar ekki svitaholur, það er
því óhætt að sofa með hann því húðin
andar betur,“ segir Margrét að lok-
um.
Förðun
Margét R.
Jónasardóttir
Lýtalaus Ætli Taylor Swift noti steinefnafarða?
Reuters
Daglegt líf 11
Margbreytileg Þetta er sama fjöl-
breytta flíkin, hægt að nota sem kjól,
topp, pils, slá, sjal, blússu og klút.
Ekkert óþægilegt
Silja býður upp á fjölbreyttan
fatnað, allt frá leggingsbuxum, kjól-
um og upp í ullarslár og kápur. „Ég
byrjaði á því að hanna flíkur sem
mér fannst mig hafa vantað, en ég
er þannig gerð að ég á erfitt með að
vera í óþægilegum fötum. Þó ég sé
að fara fínt vil ég vera í þægilegu
og hef ég það að markmiði í minni
hönnun að allt sé þægilegt, það
skiptir mig mestu máli. Flíkurnar
eru fjölbreytilegar og á að vera
hægt að nota bæði fínt og hvers-
dags,“ segir Silja og fer ekki með
neinar ýkjur. Fötin í versluninni
eru úr þægilegum efnum og sniðin
ættu að henta öllum konum.
Silja vinnur að mestu ein í
versluninni en bakatil er hún með
saumaaðstöðuna sína. „Ég er síðan
með saumakonu sem aðstoðar mig.
Ég blanda mikið saman prjóni og
hekli við saumaskapinn og er það
svolítið einkenni mitt. Hingað til hef
ég keypt mest af efnunum hér
heima en ég hef einnig verið að
hanna mín eigin munstur og hef lát-
ið útbúa efni fyrir mig, en ég er síð-
an á leiðinni erlendis í efnaleið-
angur.“
Rómantísk og gamaldags
Spurð hvaðan hún fær inn-
blástur í hönnun sína verður Silja
mjög hugsi og skellir svo upp úr.
„Ég hef ekki mikið spáð í því, bara í
sjálfa mig og minn smekk, ég er
svolítið rómantísk og gamaldags.
Ég get því miður ekki sagt íslensk
náttúra eða fuglar,“ segir hún og
hlær dátt. „Ég sæki lítið í ríkjandi
tískustrauma þegar ég hanna og
hef lítið spáð í innblæstrinum, þetta
bara kemur frá hjartanu.“
Silja segist eiga orðið stóran
fastakúnnahóp sem henni þykir
orðið mjög vænt um, innan hans sé
allur aldur og allskonar konur.
Silja segir að hún gæti ekki
hugsað sér að vera í öðru starfi en
því sem hún er í núna.
„Mér finnst þetta alveg ótrú-
lega gaman. Það eina sem dregur
stundum úr mér er þegar ég sé
hönnunina mína kóperaða, ég tek
það mjög nærri mér,“ segir Silja.
Verslunin í Garðastræti er lítil
og heimilisleg. Þar er hún með heitt
á könnunni, barnahorn og kósý sófa
sem nýtist vel fyrir fylgimenn. Silja
segir viðskiptin ganga mjög vel og
er hún þakklát fyrir það. Einnig er
hún komin með vefverslun sem er í
fullum gangi og sendir hvert á land
sem er og líka til útlanda. „Ég
reyni að hugsa ekki of mikið fram í
tímann heldur nýt ég þess dag
hvern að starfa við það sem mér
þykir skemmtilegt. En enginn veit
síðan hvað framtíðin ber í skauti
sér,“ segir þessi brosmilda og hæfi-
leikaríka, unga kona að lokum.
Ljósmynd/Kristján Eldjárn
Butterfly Laus og þægilegur kjóll með stórum fiðrildaermum með hekluð-
um kanti. Fyrirsætan er Sigríður Þóra Ásgeirsdóttir.
Ég byrjaði á því að hanna flíkur sem mér fannst mig hafa vantað en ég er þannig
gerð að ég á erfitt með að vera í óþægilegum fötum.
Silja er með vefsíðuna: www.madebySHE.is
og þaðan er hægt að komast inn á bæði
vefverslunina og Facebook-síðu SHE. Versl-
unin Garðastræti 2 er opin á fimmtudögum
og föstudögum frá kl. 12 til 18.
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. MAÍ 2010
Leiðrétting
Í blaðinu í gær var sagt frá skemlauppboði sem fer fram í dag í Gylfaflöt,
dagþjónustu fyrir fötluð ungmenni. Í fréttinni stóð að Gylfaflöt væri í
Bæjarflöt 17 í Kópavogi en hið rétta er að hún er í Bæjarflöt 17 í Reykja-
vík.
Í dag milli kl. 15 til 17 er tíu ára afmælishátíð Gylfaflatar og kl. 16.15
fer fram uppboð á skemlum sem ungmennin hafa gert til fjáröflunar fyrir
Gylfaflöt.