Morgunblaðið - 21.05.2010, Qupperneq 14
14
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. MAÍ 2010
Sveitastjórnarkosningar 29. maí
skipað sér á bekk með vinsælli ferða-
mannastöðum landsins og það sé
ekki síst þessu átaki að þakka. Þessu
starfi vilji yfirvöld halda áfram og yf-
irfæra á önnur fyrirtæki, vinna t.d.
með hefðbundnum iðnfyrirtækjum á
sama hátt. Unnið sé að því í sam-
vinnu við Strokk að byggja koltrefja-
verksmiðju á svæðinu og mikilvægt
sé að tryggja millilandaflug um Ak-
ureyrarflugvöll með því að fá stjórn-
völd með bænum í það að stækka
flugstöðina og flugsvæðið á vellinum.
Eftirsóknarvert samfélag
Sigrún Björk Jakobsdóttir, oddviti
Sjálfstæðisflokks, tekur í sama
streng og segir að framkvæmdum
við flugstöðina mætti hrinda af stað
með litlum fyrirvara, en við þær geti
skapast 60 til 80 ársverk. Hún bendir
á að af 145 atriðum í málefnasamn-
ingi Sjálfstæðisflokks og Samfylk-
ingar hafi 131 komið til fram-
kvæmda. „Það sem við lögðum af
stað með 2006 hefur náð fram að
ganga,“ segir hún.
Sigrún Björk bætir við að íbúum
Akureyrar haldi áfram að fjölga, hafi
fjölgað um 90 á árinu. Það sýni að
samfélagið sé eftirsóknarvert og
staðfesti að vel hafi verið unnið.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið
við stjórnvölinn á Akureyri undan-
farin 12 ár. Sigrún Björk segir að í
ljósi árangursins á þessum tíma komi
niðurstöður umræddrar skoðana-
könnunar á óvart. Allir fjórflokkarn-
ir tapi en málið snúist um það að
velja fólk, sem kjósendur treysti, til
þess að reka sveitarfélagið og halda
verkinu áfram. Sjálfstæðismenn skili
mjög góðu búi, hafi gert samfélagið
að góðu og eftirsóknarverðu sam-
félagi. Hins vegar láti fólk andrúms-
loft augnabliksins og andúð á stjórn-
málamönnum hafa áhrif á sig. Það sé
slæmt því einhverjir verði að veljast
til starfa og mikilvægt sé að velja vel.
Erfiðir tímar séu framundan og taka
þurfi erfiðar ákvarðanir. Því sé mik-
ilvægt að hafa stjórnendur sem
treysti sér til þess. 136 einstaklingar
séu í framboði, allir vilji gera vel, en
mikilvægt sé að horfa á heildar-
myndina.
Nýjar áherslur
Guðmundur Baldvin Guðmunds-
son, oddviti Framsóknarflokks, segir
að aðaláherslan sé á atvinnumál og
mikilvægt sé að allir snúi bökum
saman. Flokkurinn vilji að ráðinn
verði verkefnisstjóri í atvinnumálum,
þau færð frá Akureyrarstofu og sett
undir nýja atvinnumálanefnd. Til að
standa vörð um velferðina þurfi að
byggja upp atvinnulífið.
Sigurður Guðmundsson, oddviti
Bæjarlistans, segir að algjört for-
gangsverkefni sé að koma atvinnulíf-
inu af stað á ný. Ýta þurfi á opinberar
framkvæmdir sem séu á teikniborð-
inu, endurreisa iðnaðinn og auka
stórlega frumkvöðlastarf og nýsköp-
un með beinni þátttöku bæjarins.
Nánast ekkert hafi gerst frá byrjun
kreppu, en Akureyri hafi allt til að
komast fyrst út úr þessum hremm-
ingum. Til að svo megi fara þurfi að
skipta um áherslur. „Það er gjá milli
bæjarstjórnar og fólksins.“
www.mats.is
Rekstrarniðurstaða A- og B-hluta
(Tölur í milljónum króna) Ársreikningur Ársreikningur
2009 2008
Í milljónum króna 1.165,3 -5.065
Rekstrarniðurstaða A hluta 165,915 -2.156
Skuldir og skuldbindingar samtals 14.553,5 13.990
Eigið fé (A-hluti) 9.089,5 4.502
Íbúafjöldi (Skv. Hagstofunni)
2009 2008
17.563 17.522
Erlend lán (hlutf. af heildarl.)
A-hluti A og B-hluti
37% 62%
Skuldir á hvern íbúa (milljónir króna)
2009 2008
0,828 0,798
Að meðaltali skuldaði því
fjögurra manna fjölskylda
árið 2009:
3,3milljónirAKUREYRI
Atvinna í brennidepli
Umskipti á Akureyri og milljarður í hagnað 2009 Gjá milli bæjarstjórnar og fólksins að mati odd-
vita Bæjarlistans Oddviti Sjálfstæðisflokks varar við andúð og andrúmslofti augnabliksins
FRÉTTASKÝRING
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Hermann Jón Tómasson, bæjar-
stjóri á Akureyri og oddviti Samfylk-
ingarinnar, segir að eins og annars
staðar skipti mestu máli að efla at-
vinnulífið. Vel hafi verið haldið á spil-
um á líðandi kjörtímabili en bæjar-
stjórn líði fyrir stöðuna í lands-
málunum.
Hermann segir að störf bæjar-
stjórnar hafi gengið hnökralaust fyr-
ir sig og til dæmis hafi fjármála-
stjórnin gengið vonum framar eins
og fram hafi komið í ársreikningi fyr-
ir árið 2009. „Fjárhagsstaðan er mun
betri en við þorðum að vona,“ segir
hann og vísar til þess að samkvæmt
fjárhagsáætlun hafi verið gert ráð
fyrir rúmum milljarði króna í halla í
fyrra en raunin hafi verið rúmur
milljarður í hagnað.
Samkvæmt nýlegum skoðana-
könnunum er meirihluti Samfylking-
ar og Sjálfstæðisflokks fallinn. Her-
mann segist halda að í könnununum
blandist saman afstaða fólks til
landsmála og þeirra erfiðleika sem
þjóðin hafi gengið í gegnum að und-
anförnu og svo skoðun á bæjarmál-
unum. Þótt einhverjir séu alltaf
ósammála því sem gert er sé heilt yf-
ir þokkaleg sátt í bænum um störf
bæjarstjórnar.
Hermann segir að í eðli sínu sé
Samfylkingin jafnaðarmanna- og
velferðarflokkur og ekki sé hægt að
halda uppi öflugu velferðarkerfi án
nægrar atvinnu auk þess sem hún sé
að vissu leyti líka velferðarmál. Hann
áréttar að ekki hafi allt farið á verri
veg í atvinnumálum á líðandi kjör-
tímabili og nefnir í því sambandi að á
Krossanesi rísi um 100 manna vinnu-
staður, svokölluð aflþynnuverk-
smiðja eða álþynnuverksmiðja. Þetta
hafi tekist vegna góðrar samvinnu
Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar
og Akureyrarbæjar. Bæjaryfirvöld
hafi lagt áherslu á að efla markaðs-
og kynningarmál og unnið að því með
ferðaþjónustunni. Akureyri hafi
L-listinn, listi fólksins, fær þrjá
menn kjörna samkvæmt nýlegri
skoðanakönnun Stöðvar 2 og
Fréttablaðsins. Geir Kristinn Að-
alsteinsson, oddviti flokksins, seg-
ir að ekkert sé í húsi enn, en nið-
urstöður könnunarinnar bendi til
þess að flokkurinn höfði til bæjar-
búa auk þess sem hann njóti góðs
af almennri afstöðu á landsvísu til
fjórflokksins.
Geir segir að atvinnumálin vegi
þyngst í bænum og L-listinn sé
með skýra stefnu í þeim málum.
Mikilvægt sé að bæjarstjórn geri
betur í því að verja hagsmuni íbúa
og fyrirtækja en láti flokksholl-
ustuna ekki þvælast fyrir eins og
raunin hafi verið. Flokkurinn sé
ekki með bæjarstjóraefni heldur
vilji standa faglega að ráðningu
bæjarstjóra, sem síðan berjist fyrir
hagsmunum bæjarbúa. Góð sam-
vinna hafi verið í bæjarstjórn á
liðnum árum og allir geti unnið
með öllum, samanber vinnu við
gerð síðustu fjárhagsáætlunar.
Vill breytingar
Andrea Hjálmsdóttir, oddviti VG,
segir að atvinnumálin brenni helst
á fólki. Atvinnuleysið sé meira en
nokkru sinni fyrr og leita þurfi
leiða til þess að fjölga störfum.
Nýverið hafi verið gerður samn-
ingur við ríkið um hjúkrunarheimili
og vonandi verði ráðist í stækkun
flugstöðvarinnar. Talsmenn VG
hafi talað fyrir mikilvægi þess að
efla samráðsvettvang atvinnulífs-
ins og bæjaryfirvalda því fólk verði
að koma sér út úr þrengingunum í
sameiningu. Í heimsóknum til
fyrirtækja hafi fulltrúar VG
fengið að heyra kvartanir stjórn-
enda vegna áhugaleysis bæjaryf-
irvalda á atvinnulífinu en það sé
kjörinn vettvangur fyrir yfirvöld að
efla þennan samráðsvettvang og
nýta háskólann í því starfi. Mikill
mannauður sé í bænum og hann
þurfi að virkja.
Akureyrarstofa sinnir atvinnumál-
unum. Andrea segir að hana þurfi
að efla. Hún hafi verið stofnuð eft-
ir kosningarnar 2006 og þá hafi
atvinnuleysið verið um 0,8% en nú
sé það um 8,0%, um 850 manns
séu atvinnulausir.
Andrea segir mikilvægt að standa
vörð um velferð bæjarbúa og það
sé takmark VG. Byggja verði á
stoðum skólanna og félagsþjón-
ustunnar. Bærinn sitji uppi með
menningarhús sem hafi farið langt
fram úr fjárhagsáætlun og rekst-
urinn eigi eftir að kosta bæinn
rúmlega 300 milljónir króna á ári.
„Það hefur verið eytt mikið um
efni fram,“ segir hún. „Ég held að í
stjórn bæjarins á næsta kjör-
tímabili verði ungt og kjarkmikið
fólk sem þorir að taka erfiðar
ákvarðanir og breyta.“
Samvinna mikilvæg og flokks-
hollusta má ekki þvælast fyrir
LISTI FÓLKSINS ÖFLUGASTUR Í SKOÐANAKÖNNUN
Andrea
Hjálmsdóttir
Sigurður
Guðmundsson
Sigrún Björk
Jakobsdóttir
Hermann
Jón Tómasson
Geir Kristinn
Aðalsteinsson
Guðmundur
Baldvin Guð-
mundsson