Morgunblaðið - 21.05.2010, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 21.05.2010, Qupperneq 20
20 FréttirVIÐSKIPTI | ATVINNULÍF MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. MAÍ 2010 Þórður Gunnarsson thg@mbl.is Stuðningi fjármálakerfisins við ís- lenskt atvinnulíf er verulega ábóta- vant, ef marka má nýja könnun IMD-viðskiptaháskólans í Sviss á samkeppnishæfni landa. Könnun IMD er að tveimur þriðju hlutum byggð á hagtölum og -gögnum, en að þriðjungi á svörum atvinnulífsins. Sá þáttur er snýr að stuðningi, gagnsæi og áhættu fjármálakerfisins er alfar- ið byggður á svörum atvinnulífsins, samkvæmt upplýsingum frá Við- skiptaráði. Af þeim 58 löndum sem könnunin tekur til situr Ísland í botnsætinu þegar kemur að styrk og gagnsæi fjármálakerfisins. Gagnsæi fjár- málastofnana þykir minnst á Íslandi af öllum löndum, og áhætta kerfisins er mikil. Jafnframt er skuldabyrði fyrirtækja allt of mikil til að þau geti tekið þátt í samkeppnismarkaði af fullum krafti. Aðhald og áhrif reglu- verks á Íslandi eru jafnframt ekki nægileg að mati fulltrúa atvinnulífs- ins sem svöruðu könnuninni. 48 fyr- irtæki úr öllum geirum svöruðu könnunni, en Viðskiptaráð er sam- starfsaðili IMD hér á landi. Seðlabanki Íslands fær jafnframt ekki háa einkunn í könnun IMD, en peningastefnan er að mati þeirra er unnu könnunina síst til þess fallin að styðja við atvinnulíf á Íslands. Fjár- magnskostnaður íslenskra fyrir- tækja er talinn til helstu veikleika ís- lenska hagkerfisins, sem og aðgengi þeirra að fjármagnsmörkuðum er- lendis. Góð vinnumarkaðslöggjöf IMD telur sveigjanleika íslensks vinnumarkaðar til helstu styrkleika Íslands. Jafnframt eru vel fjármagn- aðir lífeyrissjóðir taldir Íslandi til tekna. Samfélagslegir innviðir á sviði mennta- og heilbrigðisþjónustu þykja með þeim öflugustu. Umhverf- ismál þykja í besta standi hérlendis, sérstaklega með tilliti til mengunar. Stuðningur fjár- málakerfis ónægur  Samkeppnishæfni Íslands minnkar talsvert frá 2007 Morgunblaðið/Kristinn Atvinnulíf Peningastefna Seðlabanka Íslands þykir ekki til þess fallin að styðja við íslensk fyrirtæki, samkvæmt könnun IMD. Í hnotskurn » Ísland situr í 30. sæti yfir þau 58 lönd sem skoðuð voru í könnun IMD, en hafnaði í 7. sæti árið 2007. » Traust atvinnulífsins til fjár- málakerfisins er með því minnsta sem gerist hjá löndum sem skoðuð voru í könnun IMD. Gagnsæi íslenskra banka er ábótavant að sama skapi. „Við munum ekki endurreisa vogaðar fyrir- tækjasamsteypur sem lögðu undir sig heilu mark- aðina á Íslandi,“ sagði Gylfi Magnússon við- skiptaráðherra í opnunarávarpi sínu á morgun- verðarfundi Samkeppniseftirlitsins í gær. Fund- urinn var haldinn undir yfirskrift- inni „Yfirtaka banka á atvinnufyr- irtækjum“. Fjölmenni sat fundinn. Gylfi sagði að við bönkunum blasti tröllvaxið verkefni í endur- skipulagningu íslenskra fyrirtækja, en ábyrgð á því verkefni lægi fyrst og fremst hjá þeim. Gylfi sagði að endurskipulagningu yfirskuld- settra fyrirtækja mætti líkja við að gera við bifreið á ferð. Ekki væri hægt að stöðva starfsemi fyrirtækj- anna til að komast að því hvert vandamálið væri. Ráðherrann nefndi að bankarnir fengju ekki lausan tauminn í störf- um sínum á næstu misserum, en ef þeir treystu sér ekki til að taka um- deildar ákvarðanir og sætu þess í stað með hendur í skauti, gæti skaðinn vegna þess verið meiri en að taka ranga ákvörðun. thg@mbl.is Skulda- samsteyp- ur ei meir  Endurskipu- lagning vandasöm Gylfi Magnússon á fundinum í gær. Ítalski seðlabankinn hefur afnumið tímabundið reglur sem kveða á um að bankar landsins færi eign sína í rík- isskuldabréfum til bókar á markaðs- virði. Er þetta gert til þess að koma í veg fyrir að eiginfjárgrunnur þeirra veikist enn frekar, þar sem bankarnir þurfa ekki að færa stöður sínar í rík- isskuldabréfum til bókar á raunvirði. Sem kunnugt er hefur verð ríkis- skuldabréfa skuldugustu evruríkj- anna fallið mikið í verði, og þar af leið- andi hefur ávöxtunarkrafa þeirra hækkað, á undanförnum mánuðum, vegna ótta fjárfesta um ósjálfbæra skuldastöðu útgefendanna og mögu- leikann á greiðslufalli. Fram kemur í frétt Bloomberg-fréttaveitunnar að áður hafi þýsk og frönsk stjórnvöld gripið til sambærilegra aðgerða. Stofnun gríðarstórs björgunar- pakka Evrópusambandsins og Al- þjóðagjaldeyrissjóðsins, sem verður til reiðu handa verst stöddu evruríkj- unum, og bann þýskra stjórnvalda við nakinni skortsölu í vikunni verður ekki skilið til fulls nema með hliðsjón af áhrifum þróunarinnar á ríkis- skuldabréfamarkaðnum á eiginfjár- grunn helstu banka Evrópu. Í umfjöllun breska blaðsins The Daily Telegraph kemur fram að þýsk- ir bankar hafa veikasta eiginfjár- grunn allra banka heims um þessar mundir, að þeim japönsku undan- skildum. Þeir hafa ekki gengið hratt til verks við að styrkja eiginfjárgrunn sinn eftir hrunið á fjármálagerning- um tengdum bandarískum fasteigna- lánum og nú þurfa þeir að öllum lík- indum að taka á sig frekari skell vegna stórtækrar stöðutöku í ríkis- skuldabréfum á evrusvæðinu. Reyndar einskorðast þetta ekki við þýska banka. Evrópskir bankar hafa í miklum mæli nýtt sér nánast óheft aðgengi lausafjár hjá Evrópska seðla- bankanum til þess að kaupa ríkis- skuldabréf þeirra evruríkja sem eru skuldugust í því sem virtist vera áhættulaus viðskipti. Hinsvegar hef- ur hættan að baki rækilega minnt á sig að undanförnu. ornarnar@mbl.is Seðlabanki hjálpar ítölskum bönkum  Þurfa ekki að færa ríkisskuldabréf til bókar á markaðsvirði vegna ástandsins Reuters Fjárfestir Spáir í spilin. Ennfremur kemur fram í skýrsl- unni að stjórnvöld hafi einnig það markmið að „feikileg skuldsetning ríkissjóðs“ (e. huge indebtedness of the state treasury) komi ekki í veg fyrir að Ísland taki upp evru á til- skildum tíma. Þarf að greiða 600 milljarða niður til að uppfylla skilyrði Sem kunnugt er kveða Maast- richt-skilyrðin á um að heildar- skuldir hins opinbera megi ekki fara yfir 60% af landsframleiðslu. Samkvæmt Hagstofu Íslands voru krónuna á meðan aðlögunarferlið stendur yfir. Samkvæmt framkvæmdastjórn- inni vilja stjórnvöld með þessu freista þess að komast sem fyrst inn í ERM II-gjaldeyrissamstarf ESB, en það er heitið yfir hið formlega aðlögunarferli sem á sér stað áður en aðildarríki ESB fær heimild til þess að taka upp evru. Aðlögunar- ferlið snýst um að koma á stöð- ugleika gengishreyfinga viðkom- andi gjaldmiðils gagnvart evru og undirbúning hagkerfisins til þess að uppfylla Maastricht-skilyrðin. Örn Arnarson ornarnar@mb.is Í skýrslu, sem framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur unnið um aðildarumsókn Íslands fyrir Evrópuþingið, kemur fram að rík- isstjórn Íslands leggi höfuðáherslu á að gjaldeyrismálin verði í for- grunni í aðildarviðræðunum. Í skýrslunni segir að ríkisstjórnin leitist eftir því að ná sérstöku sam- komulagi við ESB og Evrópska seðlabankann við upphaf samninga- viðræðna um stuðning við íslensku heildarskuldir íslenska ríkisins ríf- lega 100% af landsframleiðslu við lok febrúar. Þetta þýðir með öðrum orðum að íslenska ríkið þyrfti að greiða niður skuldir um 600 millj- arða króna á næstu árum ásamt því að koma á stöðugleika krónunnar samhliða afnámi gjaldeyrishafta og ná verðbólgumarkmiðum til þess að geta verið gjaldgengt inn á evru- svæðið. Gengislækkun í kjölfar afnáms gjaldeyrishafta Framkvæmdastjórnin telur að stjórnvöld hafi stigið rétt skref í efnahagsmálum í kjölfar banka- hrunsins og segir gjaldeyrishöftin nauðsynleg um tíma til þess að koma á stöðugleika á gjaldeyris- markaði með krónuna. Fram- kvæmdastjórnin vitnar í greiningu Economist Intelligence Unit á stöðu mála hér á landi en þar kemur með- al annars fram sú skoðun að gengi krónunnar muni lækka á næsta ári samhliða því að létt verður á gjald- eyrishöftum. Skýrsluhöfundar vilja ekki leggja mat á hversu skörp sú gengislækkun verður. Höfuðáherslan á upptöku evru  Framkvæmdastjórn ESB segir ríkissjóð Íslands „feikilega“ skuldsettan í skýrslu um aðildarumsókn ● Guðrún Johnsen, varaformaður stjórnar Arion banka, sagði á aðalfundi hans í gær að stjórn bankans legði mikla áherslu á að styrkja innra eftirlit bankans og auka samstarf við eftirlits- stofnanir. Þá hefur verið ákveðið að starfsmenn bankans taki þátt í fræðslu- fundaröð í samstarfi við Siðfræðistofn- un Háskóla Íslands. Einnig hefur starfs- hópur um siðferði verið skipaður í bankanum. Fjölgað var um einn í stjórn bankans á aðalfundinum. Nýr stjórnarmaður er Colin C. Smith frá Bretlandi. Smith hefur m.a. starfað hjá Midland Bank sem forstjóri alþjóðlegrar áhættustýr- ingar og lánasviðs. Hefur hann einnig gegnt stjórnunarstörfum hjá European American Bank og US Multinational Corporate Group í Austur-Asíu. Áhersla á að styrkja innra eftirlit Arion ● Slitastjórn Glitnis hefur samþykkt 137 kröfur í þrotabú Glitnis eins og þeim var lýst, af 4.294 kröfum sem tekin hefur verið afstaða til, og hafnað 304 alfarið. Þá sam- þykkti slit- astjórn 1.695 kröfur með breytingum, þ.e. almennar kröfur og rétthærri, og 2.158 kröfur vegna víkjandi skulda- bréfa. Alls voru gerðar 8.649 kröfur í búið að fjárhæð 3.430 milljarðar króna. Haldnir hafa verið tveir fundir með kröfuhöfum þar sem kynnt var afstaða til krafna. Hafna 304 kröfum ● Skuldabréfavísitala GAMMA hækkaði um 0,14 prósent í viðskiptum gærdags- ins. Verðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,09 prósent og sá óverð- tryggði um 0,26 prósent. Velta á skuldabréfamarkaði nam 11,55 millj- örðum króna og lokagildi vísitölunnar var 186,08 stig. Úrvalsvísitala Kauphallarinnar hækk- aði um 1,22 prósent. Bréf Marels hækk- uðu um 2,39 prósent og BankNordik lækkuðu um 3,8 prósent. Hækkanir á mörkuðum Stuttar fréttir…                   !  "   " #  " $ % & '  '  $ ()$( $ *! +,-./0 +/0.1/ +,,./+ ,+.2-3 ,1.133 +0.2/4 ++,./+ +.2,3- +-1.4- +4-.-5 +31.+5 +/0.43 +,3.+5 ,+.440 ,1.1-, +0.433 ++3.+3 +.2,/+ +-+.+0 +01.2, ,+0.3140 +31.2/ +/0.-/ +,3.43 ,+.0+- ,1.+4+ +0.4/+ ++3.24 +.23,3 +-+.53 +01./5

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.