Morgunblaðið - 21.05.2010, Síða 21

Morgunblaðið - 21.05.2010, Síða 21
Fréttir 21ERLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. MAÍ 2010 Veera Musikapong (rauðklæddur fyrir miðju), einn af helstu leiðtogum Rauðstakkanna í Bangkok, var færður í varðhald í gær eftir að hann og fleiri leiðtogar gáfust upp. Um 40 manns, aðallega stjórnarandstæðingar, hafa fallið síðan herinn umkringdi viðskiptahverfið í liðinni viku. Hermenn lögðu hverfið undir sig á miðvikudag en þús- undir Rauðstakka höfðu girt hverfið af og haldið þar uppi mótmælum gegn ríkisstjórninni í nokkrar vikur. Gefin var skipun um útgöngubann í 23 héruðum til kl. 22 í gær- kvöldi. Ró var að færast yfir Bangkok en þar urðu geysi- miklar skemmdir í átökunum, kveikt var í 27 bönkum, verslanamiðstöðvum og öðrum húsum eftir uppgjöfina. Reuters Leiðtogar Rauðstakka gáfust upp Kristján Jónsson kjon@mbl.is Langt er síðan jafn mikil spenna hef- ur ríkt í samskiptum grannanna á Kóreuskaganum, Suður-Kóreu og Norður-Kóreu. Ástæðan er að birt hefur verið niðurstaða rannsóknar sérfræðinga frá nokkrum ríkjum, þ. á m. Svíþjóð, á flaki korvettunnar Cheonan. Skipið sökk í mars á um- deildu hafsvæði á mörkum lögsögu ríkjanna. Niðurstaða rannsóknar- innar er að tundurskeyti frá norður- kóreskum kafbáti hafi grandað skip- inu en með því fórust 46 manns. Sjálfir vísa N-Kóreumenn því ein- dregið á bug að þeir hafi átt nokkurn þátt í atvikinu. Meðal sönnunar- gagnanna er brot úr tundurskeyti sem talið er vera norður-kóreskt. S- Kóreumenn álíta að um sé að ræða grófustu ögrun í samskiptum ríkjanna frá því að samið var vopnahlé 1953 eftir þriggja ára stríð. Leggi Suður-Kó- rea málið fyrir Samein- uðu þjóðirnar á mánudag í von um að öryggisráðið fordæmi í kjölfarið Norður-Kóreumenn fyrir árásina er ljóst að Kínverjar, grannar og helstu bakhjarlar norðanmanna, lenda í vanda. Þeir hafa neitunarvald í ráðinu en spurningin er hvort þeir beita því ef almennt verður viður- kennt að sönnunargögnin séu traust. Kínverjar samþykktu refsiaðgerðir í ráðinu gegn N-Kóreu í fyrra vegna kjarnorkutilrauna hinna síðarnefndu en hafa tjáð sig af mikilli varkárni um Cheonan-málið. Grófasta ögrun N-Kóreu í áratugi Rannsókn sýnir að norður-kóreskt tundurskeyti grandaði herskipi sunnanmanna á umdeildu hafsvæði í mars Reuters Skilaboð N-kóreskir flóttamenn í S-Kóreu og ættingjar fólks sem norðan- menn hafa rænt senda upp loftbelg með diskum og áróðursbæklingum gegn kommúnistastjórninni í von um að belgurinn berist yfir landamærin. Breytingar á loftslaginu munu hafa hverfandi lít- il áhrif á út- breiðslu malaríu, ráðstafanir til að hefta útbreiðsl- una eru tíu sinn- um áhrifaríkari, að sögn BBC sem ræddi við vísinda- manninn Peter Gething í Oxford-háskóla. Hann stýrði fjölþjóðlegri rannsókn sem sagt er frá í tímaritinu Nature. Gething segir að tal um að hlýn- andi loftslag muni auka malaríuógn- ina dragi athyglina frá því sem raun- verulega þurfi að gera í baráttunni við vágestinn. Al Gore, fyrrverandi varaforseti Bandaríkjanna og einn þekktasti talsmaður aðgerða gegn hlýnandi loftslagi, segir meðal ann- ars í heimildarmynd sinni að ein af- leiðing hlýnunar verði stóraukin tíðni malaríutilfella. Veikin berst í menn með biti moskítóflugunnar og veldur millj- ónum dauðsfalla ár hvert. En tíðnin lækkaði á síðustu öld þótt meðalhiti á jörðinni hafi hækkað um 0,7 gráð- ur og víða má segja að malaría sé löngu hætt að vera sú ógn sem hún var, m.a. á votlendissvæðum á Ítalíu sem voru ræst fram til að svipta moskítófluguna kjörlendi sínu. Einnig hefur tekist að útrýma að mestu malaríu víða í Afríku- og As- íulöndum með því að auka notkun flugnanetja og ýmis lyf fækka einnig dauðsföllum. kjon@mbl.is Hlýnun eykur ekki útbreiðslu malaríu Moskítofluga að störfum. Vilja aðlögun » Deilurnar um loftslagsbreyt- ingar eru harðar. Nú hafa 14 þekktir vísindamenn frá sex ríkjum, þ. á m. virtir loftslags- fræðingar, sent frá sér svo- nefnda Hartwell-yfirlýsingu. » Þeir telja útilokað að sam- staða náist um ýtrustu aðgerð- ir gegn losun koldíoxíðs. Finna verði málamiðlun en hefja að- lögun að loftslagsbreytingum, hver sem orsök þeirra sé. Tíðni lækkar þrátt fyrir hlýrra loftslag Vígbúnaður á Kóreuskaga er um- fangsmeiri en gengur og gerist annars staðar í heiminum og ekki bætir úr skák að norðanmenn ráða yfir fáeinum frumstæðum kjarnorkusprengjum. Oft hefur komið til bar- daga síð- ustu áratug- ina en ávallt tekist að hindra stórstyrjöld. Bandaríkja- menn hafa nær 30.000 manna lið í Suður-Kóreu, lið sem talið hefur verið tryggja að norðanmenn æði ekki út í nein ævintýri. En þótt S- Kórea sé mun auðugri og fjöl- mennari en einræðisríkið N-Kórea stendur hún illa að vígi vegna þess að rétt fyrir norðan landamærin er geysimikill liðsafli sem gæti lagt Seoul, höfuðborg sunnanmanna, í rúst á fáeinum dögum. Lítill neisti gæti verið nóg GRÁIR FYRIR JÁRNUM Samhliða þingkosningum í Kaliforn- íu í nóvember verður þjóðarat- kvæðagreiðsla um tillögu þess efnis að heimilt verði að nota kannabis- efni. Ný könnun bendir til þess að kjósendur skiptist í tvo nær jafn- stóra hópa, 49% með og 48% á móti tillögunni, hinir eru óákveðnir. Ein röksemdin fyrir tillögunni er að með því að færa viðskipti með kannabis- efni upp á borðið fái ríkið geysimikl- ar skatttekjur. Ekki er vanþörf á því, Kalifornía riðar á barmi gjaldþrots. „Allar kannanir sýna að kjósendur vilja skipta á misheppnaðri stefnu og annarri sem býður upp á heiðarlegri og skynsamlegri lausn,“ var haft eft- ir einum forsvarsmanna þeirra sem vilja leyfa efnið, Dan Newman, í The Los Angeles Times í gær. Andstæð- ingur hans, John Lowell, sagði hins vegar að samtök hans myndu nota tímann til að fræða almenning um gallana við að afnema bannið og þá yrði tillagan felld. Þegar er heimilt að nota og selja takmarkað magn af kannabisefnum til lækninga í Kaliforníu. kjon@mbl.is Hassið upp á borðið? Þjóðaratkvæðagreiðsla verður í Kaliforníu í nóvember um það hvort aflétt skuli banni við sölu á kannabisefnum Gróðavænlegt » Í tillögunni er ákvæði um að Kaliforníuríki skuli hafa eftirlit með sölunni eins og sölu áfengis og tóbaks. » Kannabis er nú sögð vera sú planta sem gefur mestar tekjur í sambandsríkinu. Bloggarar á ysta hægrivæng í Bandaríkjunum benda nú á nýja hættu: Að Rima Fakih, 24 ára stúlka sem nýlega var kjörin ungfrú Bandaríkin, sé áreiðanlega róttækur múslími. Hún beri sama eftirnafn og nokkrir harðskeyttir frammámenn í Hizbollah- hreyfingunni líbönsku en Fakih er ættuð frá Líbanon. Fræðimenn sem þekkja til Hiz- bollah segja einnig að ef hún léti sjá sig í hverfum Hizbollah í Beirút í flegna kjólnum, með demantaprýtt armbandið eða í nettu bikiní- sundfötunum sínum, yrði hún vafa- laust hýdd. En bloggarinn Debbie Schlussel lét ekki sannfærast; Fa- kih væri bara að blekkja og vildi í reynd heilagt stríð, jihad. Hizbollah í dulargervi? Reuters Varasöm Fegurðardísin Fakih á verðlaunapallinum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.