Morgunblaðið - 21.05.2010, Side 25
Umræðan 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. MAÍ 2010
Er ekki flestum
orðið ljóst, jafnvel
fjölmörgum úr hópi
einörðustu Samfylk-
ingarmanna, að rík-
isstjórnin er vanhæf
til verkefna sinna?
Um það má svo
vissulega deila hvort
um megi kenna
rangri hugmynda-
fræði eða óheppilegu
mannavali, nema auð-
vitað hvort tveggja sé. Um síðustu
kosningar, sem mörkuðu tíma-
mótasigur félagshyggjunnar, voru
loforðin háleit og snerust öll um
mannúð, velferð, jöfnuð, siðbót og
hinn dæmalaust marklausa frasa
„skjaldborg um heimilin“.
Svo leið og beið uns kynntar
voru tímamótaaðgerðir í efnahags-
aðgerðum fyrir heimilin, samþykki
Alþingis um sértæka greiðsluað-
lögun. Mannúðin, velferðin, jöfn-
uðurinn, fyrirheitin um siðbót og
skjaldborgin um heimilin öll
tryggð á einu bretti! Eða hvað?
Þann 11. apríl sl. fjallaði Frétta-
stofa Stöðvar 2 um konu sem er
75% öryrki og í sértækri greiðslu-
aðlögun. Kröfuhafi hennar er
Sparisjóður Vestmannaeyja, sem
stefndi ábyrgðarmönnum kon-
unnar til að greiða þær skuldir
sem þeir höfðu gengist í ábyrgð
fyrir, þrátt fyrir að lögin um
greiðsluaðlögun verji ábyrgð-
armenn gegn þess háttar kröfum
með skýrum lagabók-
stöfum. Sparisjóðurinn
vill meina að þessi
greiðsluaðlögunarlög
séu andstæð stjórn-
arskrá og illu heilli
vann hann málið fyrir
héraðsdómi. Þetta
prófmál er núna hjá
Hæstarétti og á með-
an ganga lánasjóðir á
vegum félagshyggju-
apparatsins á borð við
LÍN sem og lífeyr-
issjóðir og aðrir kröfu-
hafar, miskunnarlaust
fram í innheimtu á hendur fólki
með þessi sértæku úrræði og jafn-
vel meðan þeir bíða enn eftir sein-
legri afgreiðslu. Þessi sigur spari-
sjóðsins hefur hrundið af stað
víðtæku fordæmi fyrir því að
ábyrgðarmönnunum sé stefnt til
greiðslu heildarskuldar fyrir hér-
aðsdómi meðan ofangreint prófmál
bíður úrskurðar Hæstaréttar.
Gengur þetta í andstyggilegt ber-
högg við öll félagshyggjuknúnu
skjaldborgarfyrirheitin en ennþá
verra er að lögtryggð vernd gegn
þess háttar aðgerðum er svikin.
Ef Sparisjóður Vestmannaeyja
sigrar í ofangreindu máli hlýtur
ríkið að vera skaðabótaskylt gagn-
vart skjólstæðingum greiðsluaðlög-
unar og ábyrgðarmönnum þeirra.
Jafnframt hlýtur siðbótarkrafan
sem ríkisstjórnin boðar að setja
opinberum lánasjóðum hömlur á
miskunnarleysi innheimtuaðgerð-
anna sem dæmin hafa sýnt sig að
eru í fullu fjöri. Hið eina fyllilega
siðlega í stöðunni úr því sem kom-
ið er væri hins vegar að Alþingi
samþykkti nýmæli laga um að
ábyrgðir skulda þeirra sem falla
undir sértæka greiðsluaðlögun
verði felld niður.
Ríkisstjórnin ber ábyrgð á
klúðrinu. Hvernig sem fer ber hún
einnig ábyrgð á að fylgja nið-
urstöðum Hæstaréttar eftir í sam-
ræmi við fyrirheit sín. Það og
meira til skuldar hún þeim fjöl-
skyldum sem lifa í þeirri martröð
að alger óvissa ríki um lögvernduð
réttindi sín og þar með framtíð-
arhorfur.
Eftir Gunnar
Kristin Þórðarson
Gunnar Kristinn
Þórðarson
» Í lögleysu og and-
styggð stefna kröfu-
hafar skuldara í sér-
tækri skuldaaðlögun
ábyrgðarmönnum fyrir
héraðsdóm.
Höfundur er guðfræðimenntaður.
Kröfuhafar stefna
ábyrgðarmönnum skuldara
í sértækri greiðsluaðlögun
Nú þegar stutt er í
sveitarstjórnarkosn-
ingar reynir á hve
menn eru dómharðir
eða sanngjarnir í garð
stjórnmálamanna og
stjórnmálaflokka.
Gagnrýni er nauðsyn-
leg í stjórnmálum sem
og í öðrum málum en
hún þarf að vera
sönn. Þroskaður ein-
staklingur getur hrós-
að færum stjórnmálamanni sama
hvort hann er samherji eða and-
stæðingur. Þó þykir Kolbrúnu
Bergþórsdóttur sæmandi að skrifa
í pistil sinn í Morgunblaðinu
fimmtudaginn 13. maí: „… enda
tíðkast ekki í pólitík að láta and-
stæðinga njóta sannmælis.“ Það
vita allir að Sjálfstæðisflokkurinn í
Reykjavík hefur ekki 70% fylgi en
samt hefur Hanna Birna Kristjáns-
dóttir það fylgi kjósenda í borginni
sem borgarstjóri. Það dæmi sannar
að það tíðkast í pólitík að andstæð-
ingur njóti sannmælis.
Gott er að Kolbrún dregur fram
kosti Hönnu Birnu en hún gat al-
veg gert það án þess að draga úr
kostum formanns flokksins, Bjarna
Benediktssonar. Í áðurnefndum
pistli er ritað: „Sjálfstæðisflokk-
urinn mun sennilega fá skell í borg-
arstjórnarkosningunum í Reykja-
vík. Almenningur telur að
flokkurinn beri mikla ábyrgð á
hruninu og ekki bætir úr skák að
formaður flokksins er að mestu
leyti laus við forystuhæfileika og
nýtur takmarkaðs trausts, bæði
innan og utan eigin flokks.“ Þetta
er ekki í fyrsta skipti sem Kolbrún
reynir að klekkja á Bjarna í pistl-
um sínum heldur virðist hún mark-
visst vera að grafa undan honum.
Því er ekki óeðlilegt að að manni
læðist sá grunur að
þetta sé pantað.
Sjálfstæðisflokk-
urinn tók á sig mikið
fylgistap í kosning-
unum sl. vor og þá
kom áfellisdómur frá
kjósendum sem flokk-
urinn tók og tekur al-
varlega og er mark-
visst að vinna í því að
ná aftur trausti kjós-
enda. Undir forystu
formannsins er sú
vinna unnin af alvöru
og heilindum. Flokkurinn hefur
gengist við ábyrgð á hruninu án
þess að viðurkenna að hann hafi
þar komið einn að. Flokkurinn var
nefnilega í ríkisstjórn ásamt Sam-
fylkingunni. Stóð vaktina með Sam-
fylkingunni.
Að öllum líkindum verður lands-
fundur Sjálfstæðisflokksins haldinn
í júní nk. Þar munu sjálfstæð-
ismenn kjósa sér forystu. Bjarni
Benediktsson er eins og Hanna
Birna Kristjánsdóttir góður og
ábyrgur stjórnmálamaður og þjóðin
þarf svo sannarlega á slíkum mann-
eskjum að halda. Oft var þörf en nú
er nauðsyn að sjálfstæðismenn um
allt land láti ekki blekkjast af leigu-
pennum og kjósi D-listann í sveit-
arstjórnarkosningunum 29. maí
2010.
Eftir Lilju Guðrúnu
Hallgrímsdóttur
Lilja Guðrún
Hallgrímsdóttir
» Þetta er ekki í fyrsta
skipti sem Kolbrún
reynir að klekkja á
Bjarna í pistlum sínum
heldur virðist hún
markvisst vera að grafa
undan honum.
Höfundur er djákni á eftirlaunum og
stjórnarmaður í SES.
Hvers leigupenni
er Kolbrún?
Guðríður Arnardóttir, sem fer fyr-
ir Samfylkingunni í Kópavogi í
krafti tvö hundruð atkvæða á upp-
stillingarkaffi-
húsafundi henn-
ar, er komin
með áætlun um
það hvernig
megi enn auka
skuldir bæjar-
sjóðs Kópavogs.
Það á að slá
milljarð í það
minnsta til þess
að kaupa óklár-
aðar íbúðir af bönkunum og leigja
þær út.
Guðríði virðist ókunnugt um það
að Húsnæðisnefnd Kópavogs tap-
aði 391 milljón króna á árinu 2009
eftir að hafa fengið inn húsaleigu
upp á 277 milljónir. Það er ekki
hagkvæmara en þetta að reka
hundruð félagslegra leiguíbúða í
skuldum upp á fimm milljarða.
Eftirspurn eftir félagslegum íbúð-
um er auðvitað langt umfram getu
bæjarfélagsins til kaupa á fleiri
íbúðum og eru biðlistar langir.
Húsnæðisnefndin kaupir íbúðir ár-
lega af ýmsum aðilum á lægsta
verði. Fjöldinn og skorturinn hef-
ur ráðist alfarið af því hversu mik-
ið fé Guðríður hefur látið hana
hafa til ráðstöfunar ár hvert. Hús-
næðisnefndin hefur verið rekin af
mikilli hagsýni.
Víða standa auðar og hálfgerðar
íbúðir. Þær eru flestar í eigu
bankanna vegna þrota byggjend-
anna. Bankarnir græddu ekki
nema fimmtíu milljarða á síðasta
ári. Þeir hafa verið tregir til að
lækka verðið á þessum íbúðum.
Guðríður vill endilega rétta þeim
fé úr tómum bæjarsjóði til að og
breyta þessum íbúðum í félags-
íbúðir.
Guðríður telur sig best til þess
fallna, vegna áðurnefnds fylgis
síns, að verða bæjarstjóri Kópa-
vogs. Það má geta þess að á fjórða
þúsund Kópavogsbúa tóku þátt í
prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í
Kópavogi sem Guðríður sækir nú
hart að fyrir að vilja göngubrú yfir
Fossvoginn. Heldur hún því fram
að sín brú muni skila hagnaði með-
an hin þýði aðeins útgjöld. Ekki
virðist hina hagsýnu húsmóður
vera að finna í Samfylkingunni.
Það væri mikil ógæfa ef Kópa-
vogsbúar létu blekkjast af hinni
geysivinsælu Guðríði Arnardóttur
og Samfylkingunni í Kópavogi.
Hún vill auka vandann sem fyrir
er á kostnað skattgreiðenda í bæn-
um.
Varist vinstri slysin og kjósið
Sjálfstæðisflokkinn í Kópavogi.
Það er ekki heil brú í Guðríði.
HALLDÓR JÓNSSON
verkfræðingur.
Er heil brú í Guðríði?
Frá Halldóri Jónssyni
Halldór Jónsson
BRÉF TIL BLAÐSINS
Stórfréttir
í tölvupósti
–– Meira fyrir lesendur
PANTAÐU AUGLÝSINGAPLÁSS
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105
kata@mbl.is
Þann 4. júní gefur Morgunblaðið út
stórglæsilegt Garðablað.
Garðablaðið verður með góðum
upplýsingum um garðinn, pallinn,
heita potta, sumarblómin, sumar-
húsgögn og grill.
Stílað verður inn á allt sem
viðkemur því að hafa garðinn og
nánasta umhverfið okkar sem
fallegast í allt sumar.
MEÐAL EFNIS:
Skipulag garða.
Garðblóm og plöntur.
Sólpallar og verandir.
Hellur og steina.
Styttur og fleira í garðinn.
Garðhúsgögn.
Heitir pottar.
Útiarnar
Hitalampar.
Útigrill.
Ræktun.
Góð ráð við garðvinnu.
Ásamt fullt af spennandi
efni.
Gar
ðab
laði
ð
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA:
Fyrir kl. 16, mánudaginn 31. maí.
Garðablaðið