Morgunblaðið - 21.05.2010, Síða 28
28 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. MAÍ 2010
✝ Kristófer DarriÓlafsson fædd-
ist í Reykjavík 11.
september 2006.
Hann lést á gjör-
gæsludeild Land-
spítalans 17. maí
2010 af slysförum.
Foreldrar hans eru
Ólafur Haukur Há-
konarson, f. 26.
júní 1980, og María
Magdalena Stein-
arsdóttir, f. 8. mars
1979. Systir Krist-
ófers er Emilía
Þóra Ólafsdóttir, f. 14. apríl
2009. Foreldrar Maríu eru Stein-
ar Þór Guðjónsson, f. 20. maí
1955, og Maria Jolanta Polanska,
f. 4. apríl 1959. Systir Mariu er
Sandra María Steinarsdóttir Pol-
anska, f. 24. febrúar 1985. For-
eldrar Ólafs Hauks eru Þóra
Sveinsdóttir, f. 20. apríl 1952, d.
2. júlí 1991, og Hákon Há-
konarson, f. 24. nóvember 1952,
kvæntur Kristínu Kristjáns-
dóttur, f. 6. júlí 1967. Systkini
Ólafs Hauks eru 1) Guðrún Erla
Hákonardóttir, f. 21. mars 1970,
gift Einari Sólberg Helgasyni, f.
2. mars 1969. 2)
Helga Há-
konardóttir, f. 22.
september 1972. 3)
Gunnar Há-
konarson, f. 20.
nóvember 1973,
kvæntur Herdísi
Hersteinsdóttur, f.
10. apríl 1971. 4)
Hákon Há-
konarson, f. 3. júlí
1978, kvæntur
Önnu Ósk Sigurð-
ardóttur, f. 13. des-
ember 1981. 5)
Hulda Hákonardóttir, f. 5. janúar
1980, gift Friðgeiri Kemp, f. 28.
mars 1978. 6) Arnar Snær Há-
konarson, f. 26. desember 1989.
7) Hekla Hákonardóttir, f. 20.
desember 1994, d. 25. september
1996, og 8) Hera Huld Há-
konardóttir, f. 19. september
1997.
Kristófer Darri ólst upp í Graf-
arvogi í Reykjavík og var á leik-
skólanum Lyngheimar.
Útför Kristófers Darra fer
fram frá Grafarvogskirkju í dag,
21. maí 2010, og hefst athöfnin
kl. 13.
Elsku fallegi drengurinn okkar,
Kristófer Darri. Engin orð fá því lýst
hversu mikið við söknum þín. Þú ert
ljósið í lífi okkar, fallegu minningarn-
ar sem við eigum saman munu lifa í
hjörtum okkar að eilífu. Þú varst
yndislegur sonur og bróðir, svo blíð-
ur og góður við alla í kringum þig.
Passaðir svo vel litlu systur þína frá
fyrsta degi eins og okkur öll í fjöl-
skyldunni, alltaf að biðja okkur að
fara varlega og setja á okkur bílbelti.
Þú varst svo mikill gleðigjafi og hafð-
ir svo þægilega og góða nærveru.
Elsku Kristófer Darri, takk fyrir
allar yndislegu samverustundirnar
sem þú gafst okkur. Megi Guð og
englarnir passa þig þangað til við
hittumst á ný.
Nú söknuðurinn
mikill er
því þú ert ei
lengur hér.
Og alltaf okkar
hugur dvelur
hjá þér.
En ég veit að
einn dag við
hittumst á ný.
Og að móttaka
þín verður
hlý.
(Ásta Aðalsteinsdóttir)
Kveðja,
Mamma, pabbi og Emilía Þóra.
Elsku Kristófer
Það eru svo margar góðar minn-
ingar sem við eigum með þér. Síðast-
liðin þrjú ár og átta mánuði hefur þú
fyllt lífið okkar af svo mikilli gleði og
við sáum ekki sólina fyrir þér, elsku
stóri strákurinn okkar ömmu og afa.
Þú varst svo einstaklega skemmti-
legt barn, elsku engillinn okkar.
Elsku sólargeislinn okkar, við áttum
svo margar góðar stundir saman,
okkur finnst svo sárt að þurfa að
kveðja þig svo snemma.
Við munum aldrei gleyma þeim
stundum sem við áttum saman og þú
lifir í hjarta okkar á meðan við lifum.
Við trúum ekki að þú sért farin frá
okkur, við bara trúum því ekki að þú
hafir farið svo snemma, við finnum
fyrir svo mikilli reiði, sársauka og
söknuði.
Elsku litli engillinn okkar, það eru
ekki til nein orð sem geta lýst því
hversu mikið við söknum þín og
hversu mikið við elskum þig. Þú
verður alltaf stóri strákurinn okkar
ömmu og afa. Guð geymi þig, Krist-
ófer okkar.
Jolanta amma og Steinar afi.
Að skrifa minningargrein um
þriggja ára sólargeisla er óbærilegt
og nokkuð sem enginn ætti að þurfa
að gera. Hvernig er enda hægt að
setja á blað tilfinningar og hugsanir
þegar sorgin er svo sár að hjörtun
gráta óhuggandi og viðstöðulaust?
Að lifa börn sín er þungbærasta
sorgin sem á foreldra er lögð. Engin
huggunarorð fá sefað sársaukann
þegar barn er hrifsað burt úr lífi sínu
á örskotsstundu í svo hræðilegu slysi
að engan gat órað fyrir að gæti
mögulega gerst. Við horfum sorgar-
augum fram á veginn og spyrjum
spurninga sem enginn fær svarað.
Enginn er viðbúinn því að missa
barn sitt í svo sviplegu slysi og víst
að slysin gera ekki boð á undan sér.
Það hræðilegasta af öllu hefur gerst
og lífið verður aldrei samt á ný.
Okkur langar ekki að skrifa niður
minningar um Kristófer; okkur lang-
ar bara að lifa þær með honum. Það
var svo margt sem við ætluðum að
gera saman. Kristófer var búinn að
velja sinn hest í hesthúsinu; Riddari,
það var sko vinur hans og átti sann-
arlega að vera hesturinn hans Krist-
ófers í bjartri framtíð.
Erfiðustu sporin stíga harmi
slegnir foreldrar Kristófers litla.
Kærleikur og stuðningur fylgir þeim
í hvívetna nú, ómetanlegar vina-
hendur sem líkna eins og hægt er og
hjálpa þeim að halda áfram.
Elsku, yndislegi Kristófer, sem
alltaf var svo sjálfstæður og rólegur,
en með ákveðnar skoðanir á lífinu.
Hann vildi gera allt sjálfur; reima
skóna sína og klæða sig. Heilbrigður,
fallegur og ljúfur drengur.
Fjölskyldan hefur ekki farið var-
hluta af sorginni áður og hefði haldið
að nóg væri komið af sársauka henn-
ar í þessari jarðvist en svo hefur ekki
orðið raunin. Aftur stöndum við van-
máttug og lömuð gagnvart þunga
hennar, en nú svo óvænt og umfram
allt tilgangslaust.
Hjartans, elsku Óli og María.
Kærleikur og stuðningur ástvina
munu smám saman hjálpa ykkur að
sjá tilgang með lífinu á ný og gefa
okkur öllum styrk til að halda áfram.
Á svipstundu hefur lífið breyst, sem
og allar okkar væntingar. Óttinn við
að lifa áfram án elsku, litla Krist-
ófers er ólýsanlegur; hvernig á það
að vera hægt og hvernig eigum við að
fara að því? Sorgin verður alltaf til
staðar, en góðar minningar verða
okkur veganesti og við höldum áfram
vegna þess að minning hans lifir í
huga okkar. Það getur enginn tekið
frá okkur. Við tökum einn dag í einu.
Með stuðningi ættingja og vina tekst
þessi ferð.
Minning um yndislegan ljúfling og
einstaklega vel gerðan dreng fylgir
okkur um alla eilífð. Elsku hjartans
börnin okkar, Óli og Mæja; hugur
okkar dvelur hjá ykkur og harmur
okkar allra svo mikill.
Elsku Kristófer, anginn litli. Við
trúum því að amma Þóra og Hekla
föðursystir þín hafi tekið þér opnum
örmum í fallegu himnaríki. Þú munt
lifa áfram og alltaf í hjörtum okkar.
Guð gefi mömmu þinni og pabba
styrk og æðruleysi til að halda
áfram.
Afi og Kristín.
Það var fallegur og sólríkur dagur
síðastliðinn laugardag þegar reiðar-
slagið dundi yfir.
Það var eins og dimmdi yfir og
dregið væri fyrir sólu þegar Steinar
sonur okkar færði okkur fréttirnar
af því að elsku Darri litli lægi þungt
haldinn á sjúkrahúsi efitr skelfilegt
slys. Það er óskiljanlegt að lítill fal-
legur og ljúfur drengur fullur af lífs-
gleði og þrótti skuli vera tekinn frá
okkur með svo sviplegum hætti og
raun ber vitni. Elsku litli langömmu-
og langafa-drengurinn okkar, hann
Kristófer Darri, var fyrsta barna-
barnabarnið okkar, hann fæddist á
fallegum haustdegi fyrir tæpum fjór-
um árum. Ekki grunaði okkur þá að
við ættum eftir að fá að hafa hann hjá
okkur í svona ótrúlega stuttan tíma.
En á stuttri ævi sinni veitti hann öll-
um í kringum sig mikla gleði og við
erum svo lánsöm að vera rík af fal-
legum minningum um elsku Darra
okkar sem við munum ætíð geyma í
hjarta okkar. Guð geymi elsku litla
drenginn okkar.
Ég er hjá þér, ó Guð,
sem barn hjá blíðri móður,
sem lítill fugl, á mjúkri mosasæng.
Ég er hjá þér, ó Guð.
Já, þú ert hér, ó Guð
og nóttin nálgast óðum
ef þú ert hér, þá sef ég sætt og rótt.
(Þýð. Kristján Valur Ingólfsson)
Megi algóður Guð styrkja elsku
Maríu, Óla, Emelíu Þóru, Steinar,
Jólöntu, Söndru og Kjartan og alla
þá sem eiga um sárt að binda á þess-
um erfiðu tímum.
Árna Steinunn og Guðjón,
langamma og langafi í
Skerjafirði.
Elsku litli frændi okkar, það er
óraunverulegt og ósanngjarnt að
þurfa að kveðja þig. Þú varst tekinn
svo skyndilega og alltof snemma.
Allar þær fallegu minningar sem við
eigum um þær stundir sem við feng-
um að njóta með þér eru okkur dýr-
mætar. Þú varst svo mikill töffari
með fallegu stóru bláu augun þín og
ljósa hárið. Minningin um brosmild-
an góðan dreng sem bræddi hjörtu
okkar. Þér munum við aldrei gleyma.
Endar nú dagur, en nótt er nær,
náð þinni lof ég segi,
að þú hefur mér, Herra kær,
hjálp veitt á þessum degi.
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni,
sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sig. Jónsson frá Presthólum.)
Takk fyrir allar stundirnar sem
við áttum með þér, þín verður sárt
saknað.
Elsku Óli og María, megi guð vera
með ykkur og styrkja í sorginni.
Hulda, Friðgeir og Rósa Kristín.
Það er erfitt að trúa því að Krist-
ófer Darri, litli frændi minn, sé dá-
inn. Lífið lék við þennan litla fjöruga
sólargeisla þangað til síðastliðinn
laugardag þegar hann á örskots-
stundu lenti í hræðilegu slysi á leik-
velli í nágrenni við heimili sitt. Hann
komst aldrei til meðvitundar og lést
tveimur dögum síðar. Darri litli eins
og hann var kallaður af okkur í fjöl-
skyldunni bjó við mikið ástríki for-
eldra sinna og fjölskyldu og fékk gott
uppeldi sem endurspeglaðist vel í
framkomu hans. Okkur hjónum er
það sérstaklega minnisstætt hversu
hlýr og nærgætinn hann var við litlu
systur sína, Emelíu Þóru, sem er rétt
rúmlega eins árs. Þess mátti t.d. sjá
glöggt merki í jólaboði hjá okkur
þegar hann vildi fullvissa sig um
hvar hún ætti að leggja sig og hvort
hún hefði nú ekki örugglega fengið
pelann sinn. Slík var umhyggja
Darra fyrir litlu systur. Það verður
tómlegt fyrir Emelíu litlu að fá ekki
Darra sinn aftur heim til að leika við.
En það er huggun harmi gegn að
Darri verður alltaf með foreldrum
sínum og fjölskyldu í huga og hjarta
og minningin mun lifa um fallegan
góðan dreng sem fékk að lifa alltof,
alltof stutt.
Elsku María, Óli og Emilía Þóra,
við biðjum góðan Guð og engla að
vaka yfir ykkur og gefa ykkur styrk
á þessum erfiðu tímum.
Ragnhildur (Raggý) og Ágúst.
Það er sárara en hægt er að koma í
orð að þurfa að kveðja dásamlega
litla vin okkar og frænda Kristófer
Darra Ólafsson. Við eigum öll erfitt
með að skilja af hverju þriggja ára
snáði sem rétt var að hefja sína lífs-
göngu skuli kallaður yfir móðuna
miklu svona langt fyrir aldur fram.
Á laugardaginn var fjölmennt í
hverfislaugina; Karó, Sæunn Ása,
Guðmundur Oliver, Mæja „frænka“
Kristófer Darri og Emilía Þóra, við
áttum þar saman frábæra stund sem
átti bara að vera forsmekkurinn að
sumrinu. Ekki grunaði okkur að
þetta yrði fyrsta og jafnframt síðasta
sundferðin okkar saman þetta sum-
arið, við erum afar þakklát fyrir að
hafa getað eytt með þér þessum fal-
lega vordegi. Þú kannski skoðar
sundlaugar fyrir okkur á þeim stað
sem Guð hefur kallað þig til og við
förum saman í þær síðar.
Þrátt fyrir að hafa aðeins fengið að
njóta þín, elsku Kristó, í tæp fjögur
ár stendur eftir fullt af minningum,
minningum um lífsglaðan og fjörug-
an dreng sem var stolt foreldra sinna
ásamt henni Emilíu Þóru og ekki síð-
ur hvers manns hugljúfi munu lifa í
hjörtum okkar um ókomna tíð.
Elsku María, Óli og fjölskyldur,
sársauki ykkar hlýtur að vera óbæri-
legur en það er huggun að vita af
honum Kristófer ykkar í mjúkum
faðmi Guðs sem mun ásamt henni
ömmu Þóru vaka yfir honum og leið-
beina um ókomna tíð.
Hjúfrið ykkur upp að henni Emilíu
Þóru ykkar, faðmið hana og rifjið
upp saman fallegar minningar um
drenginn ykkar dásamlega og fal-
lega Kristófer Darra sem nú er horf-
inn á braut.
Við þurfum öll að standa saman á
þessum erfiðu tímum, okkar dyr og
okkar faðmur verða ykkur alltaf op-
in, gleymið því aldrei.
Ágúst, Karólína, Sæunn Ása og
Guðmundur Oliver.
Ekkert er sárara en að sjá eftir
kornungu barni í opinn dauðann.
Slíkur missir er foreldrum skelfilegri
reynsla en nokkur orð fá lýst.
Frammi fyrir þessum voðaatburðum
stöndum við öll orðlaus, varnarlaus
og agndofa.
Það er fallegur laugardagseftir-
miðdagur og sólin skín. Lítill labba-
kútur á fjórða árinu finnur að það er
vor í lofti og ákveður upp á sitt eins-
dæmi að fara í könnunarleiðangur,
steinsnar frá heimili sínu í örfáar
mínútur. En veröldin er viðsjárverð,
þrátt fyrir vorið, og litli landkönn-
uðurinn á ekki afturkvæmt. Eins og
hendi sé veifað og áður en nokkur
veit er þessi litli sólargeisli ekki leng-
ur á meðal okkar. Eftir situr minn-
ingin um fallegan og hugljúfan dreng
sem kom til að gleðja alla þá sem
honum kynntust, – með brosi sínu og
lífsgleði.
Elsku María, Óli og Emilía Þóra,
Jolanta, Steinar, Sandra, Kjartan og
aðrir ættingjar og vinir. Guð geymi
ykkur öll og hughreysti.
Marta og Kjartan Gunnar.
Kristófer Darri
Ólafsson
HINSTA KVEÐJA
Dvel ég í draumahöll
og dagana lofa.
Litlar mýs um löndin öll
liggja nú og sofa.
Sígur ró á djúp og dal
dýr til hvílu ganga.
Einnig sofna skolli skal
með skottið undir vanga.
(Þýð. Kristján frá Djúpalæk)
Elsku Kristófer Darri þín
verður sárt saknað,
Þín frændsystkini,
Þóra, Guðrún Eva, Helgi
Björn, Benedikt Einar, Bjarg-
hildur Vaka, Hróðmar Vífill,
Sólberg Vikar, Katrín Anna,
Hrefna María, Hersteinn
Skúli, Egill Kári, Hildur Inga
og Rósa Kristín.
Nú vaka englarnir yfir þér og
beina þér á nýja braut. Þú hef-
ur þig til flugs, skimar yfir dali
og fjöll með vindinn í gylltu
lokkunum. Þú ert á góðum stað
og brosir því þú finnur innri
styrk og þér líður vel. Guð
blessi þig og fjölskyldu þína,
elsku Kristófer, þú verður
ávallt í hjörtum okkar.
Elísabet Ásgeirsdóttir.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
HULDA SIGRÍÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR,
hjúkrunarheimilinu Eir,
áður Efstasundi 92,
Reykjavík,
lést á Landspítalanum í Fossvogi á uppstigningar-
dag, fimmtudaginn 13. maí.
Útför hennar fer fram frá Langholtskirkju föstudaginn
21. maí kl. 13.00.
Guðmundur Páll Ásgeirsson, Anna Sjöfn Sigurðardóttir,
Margrét Ásgeirsdóttir, Magnús Guðmundsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, dóttir og systir,
HELGA VILMUNDARDÓTTIR,
Álfhólsvegi 25,
Kópavogi,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi miðvikudaginn 19. maí.
Útför verður auglýst síðar.
Gunnhildur J. Gunnarsdóttir,
Hlífar V. Helgason, Lísa María Hjartardóttir,
Sindri Snær Snorrason,
Gunnhildur V. Friðriksdóttir, Vilmundur Þorsteinsson,
Þorsteinn J. Vilmundarson,
Oddur F. Vilmundarson.