Morgunblaðið - 21.05.2010, Qupperneq 35
Minningar 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. MAÍ 2010
✝ Jóhann Þorleifs-son fæddist í
Þykkvabæ II í Land-
broti 13. júlí 1953.
Hann lést á heimili
sínu í Kópavogi 14.
maí sl. Foreldrar Jó-
hanns voru Þorleifur
Pálsson, f. 18. sept-
ember 1899, og Pál-
ína Margrét Stef-
ánsdóttir, f. 25.
janúar 1913. Jóhann
var næstyngstur af
níu systkinum. Systk-
ini hans eru: Svava
Margrét, f. 24.8. 1933, Jón, f. 21.8.
1934, Helgi, f. 18.6. 1936, Sig-
urlaug, f. 1.6. 1939, Páll Björgvin, f.
28.1. 1943, Óskar, f. 10.8. 1945,
Stefán, f. 15.1. 1951, og Þuríður, f.
16.3. 1957.
Jóhann giftist Sigurjónu Matt-
híasdóttur, f. 13.12. 1955, frá
Breiðabólsstað á Síðu 31.12. 1975.
Börn þeirra eru: 1) Erna Margrét, f.
5.6. 1975, sambýlismaður hennar
Þorsteinn Scheving Thorsteinsson,
f. 18.5. 1952, dóttir Ernu er Kol-
brún Tinna, f. 31.8. 2003, 2) Sandra
Brá, f. 24.1. 1979, sambýlismaður
hennar er Einar Bárðarson, f. 23.5.
1981, dóttir þeirra er Jóhanna Ell-
en, f. 5.10. 2006, 3)
Þormar Ellert, f. 9.1.
1987, unnusta hans er
Sæunn Káradóttir, f.
24.10. 1990, 4) Henný
Hrund, f. 13.6. 1990.
Jóhann ólst upp hjá
foreldrum sínum í
Þykkvabæ til 17 ára
aldurs en fór eftir það
nokkrar vertíðir til
sjós. Á árunum 1976-
1981 bjó hann á
Kirkjubæjarklaustri
ásamt fjölskyldu sinni
og vann þá við bygg-
ingarvinnu. Vorið 1981 tóku þau
hjónin við búskap á Breiðabólsstað
af foreldrum Sigurjónu og var það
hans aðalstarf fram til ársins 2006.
Frá árinu 1986-2006 vann Jóhann
við sjúkraflutninga og múrverk
samhliða búrekstrinum. Hann var
virkur í ýmsu félagsstarfi og var
m.a. formaður í björgunarsveitinni
Kyndli um tíma og í Veiðifélagi
Síðumannaafréttar síðustu árin. Jó-
hann var mikill náttúrunnandi og
fjallaferðir og stangveiði skipuðu
stóran sess í lífi hans.
Útför Jóhanns fer fram frá Prest-
bakkakirkju á Síðu í dag, 21. maí
2010, og hefst athöfnin kl. 15.
Húmar að kveldi, hljóðnar dagsins ys,
hnígur að Ægi gullið röðulblys.
Vanga minn strýkur blærinn blíðri
hönd,
og báran kveður vögguljóð við fjarð-
arströnd.
Ég er þreyttur, ég er þreyttur,
og ég þrái svefnsins fró. –
Kom, draumanótt, með fangið fullt af
friði og ró.
Syngdu mig í svefninn, ljúfi blær.
Sorgmæddu hjarta er hvíldin jafnan
vær.
Draumgyðjan ljúfa, ljá mér vinarhönd,
og leið mig um þín töfraglæstu frið-
arlönd.
Ég er þreyttur, ég er þreyttur,
og ég þrái svefnsins fró.–
Kom draumanótt, með fangið fullt af
friði og ró.
(Jón frá Ljárskógum.)
Viltu, þegar vorið blíða
vefur rósir kvölddögginni,
koma til mín, kvæði hlýða,
kveðja mig í hinzta sinni.
Lífið allt má léttar falla,
ljósið vaka í hugsun minni,
ef ég má þig aðeins kalla
yndið mitt í fjarlægðinni.
(Friðrik Hansen.)
Elsku pabbi, þín verður sárt sakn-
að. Við elskum þig öll.
Erna Margrét, Sandra Brá,
Þormar Ellert og Henný Hrund.
Sefur sól hjá Ægi,
sígur höfgi yfir brá,
einu ljúflings lagi
ljóðar fugl og aldan blá.
Þögla nótt, í þínum örmum
þar er rótt og hvíld í hörmum,
hvílir öllum oss.
(Sig. Sigurðarson frá Arnarholti.)
Takk fyrir allar yndislegu sam-
verustundirnar sem við áttum sam-
an, elsku pabbi. Það var alltaf svo
gott að leita til þín ef eitthvað bjátaði
á, þú varst svo ráðagóður, sama
hvert vandamálið var þá kunnir þú
alltaf lausn á því. Þú varst alltaf stoð
okkar og stytta í öllu og sýndir mikið
hugrekki í baráttu þinni. Þú styrktir
okkur með hugrekki þínu, elsku
pabbi, og fyrir það verð ég alltaf
þakklát.
Ég veit að þú hefur það gott þar
sem þú ert núna og fylgist grannt
með okkur þaðan. Þú ert og verður
alltaf hetjan mín.
Þín dóttir,
Henný Hrund.
Við hjónin sátum í sumarbústað
okkar á þínum heimaslóðum þegar
fréttir bárust af andláti þínu. Yfir
okkur helltust minningar um kæran
bróður og traustan vin. Okkur varð
Þær eru margar minningarnar úr
veiðiferðunum og ekki síður úr
ferðalögum okkar ásamt Jóni og
Lillu sem við áttum um landið. Þeir
dagar og ekki síður kvöldstundirnar
í tjaldvagninum eru minningarsjóð-
ur sem við varðveitum ásamt svo
mörgum öðrum minningum sem
aldrei munu gleymast. Í huga okkar
Siggu lifir minningin um góðan
dreng, félaga og bróður. Elsku Jóna,
Henný, Þormar, Sandra, Erna og
fjölskyldur, við Sigga sendum ykkur
okkar dýpstu samúðarkveðjur. Megi
góður guð styrkja ykkur og varð-
veita. Blessuð sé minning Jóhanns.
Eggert, Sigurlaug og fjölskylda.
Kæri mágur. Eftir langa og þrot-
lausa glímu við erfiðan sjúkdóm hef-
ur dauðinn nú knúið dyra og hrifið
þig brott frá eiginkonu, börnum,
barnabörnum og öðrum ástvinum.
Það vakti aðdáun allra sem fylgdust
með þér í erfiðum veikindum, hversu
hugprúður og æðrulaus þú háðir
hverja orrustuna eftir aðra og náðir
ítrekað þrótti, sem gaf dýrmætan
tíma í samvistum við fjölskylduna.
En lengi má manninn reyna og svo
fór, að vægðarlaus sjúkdómurinn
lagði þig að velli síðastliðinn föstu-
dag, þrotinn að kröftum.
Fyrir hartnær fjörutíu árum,
komst þú inn í Breiðabólsstaðarfjöl-
skylduna þegar þið Sigurjóna, sú
næstyngsta okkar systkina, hófuð
sambúð. Fyrstu búskaparárin dvöld-
uð þið í sambýli við foreldra okkar á
Breiðabólsstað með frumburðinn
Ernu Margréti, en þegar frá leið og
fjölskyldan stækkaði var flutt á
Klaustur, þar sem bæði stunduðu
vinnu og rýmra húsnæði var að fá.
Þetta voru góðir tímar í sveitinni
okkar kæru, mikið af ungu fólki að
festa sér búsetu og atvinnuástand í
blóma. Haustið 1980 þegar þið Jóna
voruð í miðjum klíðum við að koma
ykkur upp eigin húsnæði á Klaustri,
skipaðist skjótt veður í lofti, er Elín
móðir okkar féll frá á miðjum aldri.
Varð það til þess, að pabbi ákvað að
bregða búi á Breiðabólsstað og úr
varð, að þið tókuð við búskapnum og
fluttuð þangað aftur vorið 1981. Þar
hefur heimili ykkar verið æ síðan, að
frátöldum vikum og mánuðum í
Ljósalind 2 nú að undanförnu vegna
veikinda þinna.
Á Breiðabólsstað stækkaði fjöl-
skyldan og dafnaði vel við leik og
störf innan jafnt sem utan heimilis
og ekki varð betur séð en þið öll ynd-
uð hag ykkar vel. Við systkin og fjöl-
skyldur okkar áttum margar
ánægjulegar samverustundir með
þér og fjölskyldu þinni gegnum árin
heima á Breiðabólsstað, en þar höf-
um við alltaf fundið okkur velkomin.
Þegar þið tókuð við búinu, varð að
ráði að pabbi dveldi á heimili ykkar
meðan heilsa hans og kraftar leyfðu
og sýnir það best drenglyndi ykkar
og fórnfýsi að svo skyldi málum hag-
að. Það var honum ákaflega dýrmætt
að mega dvelja áfram heima og eng-
um duldist að honum leið vel hjá
ykkur. Þegar þú veiktist fyrir um
fjórum árum, flutti pabbi frá ykkur á
Breiðabólsstað, á dvalar- og hjúkr-
unarheimilið á Klaustri þar sem
hann nú býr við gott atlæti.
Elsku Jóhann, við systkin viljum
að leiðarlokum, þakka af alhug allt
sem þú varst okkur og pabba það
langa árabil sem hann dvaldi í ykkar
skjóli. Megi guðs blessun fylgja þér.
Hvíl í friði, vinur. Elsku Sigurjóna,
Erna Margrét, Sandra Brá, Þormar
Ellert og Henný Hrund og aðrir að-
standendur, okkar dýpstu samúðar-
kveðjur sendum við ykkur. Megi
góður guð styrkja ykkur í sorginni
og sólin brjótast á ný fram gegnum
skúraský.
Erna, Sigríður, Bjarni Jón,
Ragna og fjölskyldur.
Fallinn er frá Jóhann Þorleifsson,
bóndi og sjúkraflutningamaður,
Breiðabólstað í Skaftárhreppi. Mig
langar að minnast í örfáum orðum
samstarfsmanns og um leið þakka
fyrir það góða starf sem hann innti af
hendi sem sjúkraflutningamaður.
Jóhann féll frá langt fyrir aldur
fram, 57 ára gamall á þessu ári.
Hann háði hetjulega baráttu í langan
tíma við illvígan sjúkdóm sem
krabbamein óneitanlega er.
Jóhann starfaði í fjöldamörg ár við
sjúkraflutninga hér á Kirkjubæjar-
klaustri samhliða búskap. Hann,
ásamt öðrum, átti stóran þátt í að fá
það samþykkt að sjúkrabíll yrði
staðsettur á Kirkjubæjarklaustri
þegar björgunarsveitarbíll var útbú-
inn sem sjúkrabíll og síðar þegar
sérútbúinn sjúkrabíll kom á svæðið.
Jóhann eða Jói eins og hann var oft-
ast kallaður bjó yfir hafsjó af reynslu
og fróðleik um starfið, stóð vaktina
árum saman allt þar til að hann lét af
störfum fyrir nokkrum árum vegna
veikinda. Þegar heilsan leyfði kom
hann aftur til starfa og var hjá okkur
um tíma.
Reynsla Jóa til fjölda ára náði til
innstu rótar samfélagsins á erfiðum
stundum þegar veikindi eða slys bar
að garði. Hann vann af fórnfýsi og
má fullyrða að margir hugsa til hans
með þakklæti í huga. Jói var ákveð-
inn og hreinskiptinn. Hann var
skarpleitur og sviphreinn maður,
atorkusamur og harðduglegur, ósér-
hlífinn baráttumaður og var staðráð-
inn í að láta ekki í minni pokann í
baráttunni við krabbameinið. Hann
gat verið harður í horn að taka en
hélt tryggð við þá sem voru honum
kærir, var traustur, nákvæmur og
æðrulaus í mótlæti. Þessir mann-
kostir komu í góðar þarfir í sjúkra-
flutningastarfinu. Hann hélt ávallt
sínu striki, lagði metnað sinn í starfið
og vann af alúð og öryggi. Í þessu
litla samfélagi sem við búum í hefur
stórt skarð myndast við fráfall Jóa,
hans verður sárt saknað.
Kæri vinur, við þökkum þér sam-
fylgdina, minningin þín lifir.
Eiginkonu Jóhanns, börnum og
öðrum nánum aðstandendum send-
um við okkar innilegustu samúðar-
kveðjur á erfiðum tímum, missir
ykkar er mikill.
Fyrir hönd starfsfólks og sjúkra-
flutningamanna á Heilsugæslunni
á Kirkjubæjarklaustri,
Auðbjörg B. Bjarnadóttir
hjúkrunarstjóri.
Jóhann Þorleifsson
hugsað til allra þeirra veiðiferða í
Geirlandsá og í Hólmana sem við
systkinahópurinn höfum farið í en
þessar ferðir hafa alla tíð verið ein-
staklega skemmtilegar og fjörugar.
Með bros á vör varð okkur hugsað til
þess þegar Eggert festi bílinn í
Hólmunum og ekki nokkur leið var
að losa hann. Það varst svo þú sem
náðir bara í traktorinn heim á
Breiðabólstað og náðir að losa mann
og bíl upp úr sandinum. Þannig
varstu alltaf, yfirvegaður og úrræða-
góður. Þú varst mikil veiðikló og
veiddir einatt bæði flesta og stærstu
fiskana sem gat oft verið svekkjandi
fyrir okkur hin. Við eigum líka
ógleymanlegar minningar um ótal
ferðalög hér heima og erlendis þar
sem þú naust þín í forystuhlutverki,
öruggur bílstjóri á góðum bíl. Við
þökkum þér fyrir þessar minningar
og samfylgdina.
Elsku Jóna og fjölskylda, þið hafið
staðið ykkur eins og hetjur á þessum
erfiðu tímum. Megi Guð styrkja ykk-
ur í sorg ykkar.
Jón og Unnur (Lilla).
Þegar ég fékk þær fregnir að Jó-
hann Þorleifsson mágur minn væri
látinn setti mig hljóðan. Þótt maður
teldi sig vita í hvað stefndi kemur
dauðinn manni alltaf í opna skjöldu.
Stríðinu sem hann og fjölskylda hans
hafði háð af æðruleysi við hinn mis-
kunnarlausa sjúkdóm var lokið. Kall-
ið var komið.
Í söknuði okkar Siggu vegna frá-
falls hans koma margar minningar
og minningarbrot í hugann. Við átt-
um svo mörg áhugamál saman. Þar
bera kannski hæst veiðitúrarnir sem
við fórum ásamt mökum okkar,
skyldfólki og venslamönnum. Þær
voru dýrlegar stundirnar sem við
áttum upp við Arnarvatn, í Hópinu
og Eyrarlóninu, en þá perlu áttir þú
stóran hlut í að skapa. Ég gleymi
ekki þegar við fórum í fyrstu sjóbirt-
ingaseiðin þangað og svo seinna þeg-
ar við fórum að kanna veiðina þar.
Það var líka líf og fjör þegar haldið
var til veiða í Hólmanum ásamt öðru
venslaliði. Þær ferðir hófust alltaf á
matarveislu á Breiðabólstað.
Geirlandsáin var okkar uppáhald í
áraraðir. Fáir eða engir þekktu hana
betur en þú. Við þræddum ána oft
tveir saman og áttum okkar eigin
siði og hefðir sem við framkvæmdum
alltaf áður en við óðum ána fyrir neð-
an Flatarhyl. Þaðan var haldið upp
að Höfðabólshyl, þar voru sömu hlut-
irnir í sömu röð framkvæmdir ár eft-
ir ár. Sest í brekkuna fyrir ofan hyl-
inn í 15-20 mínútur, sopið á pelanum,
reyktir tveir vindlar og spjallað sam-
an meðan hylurinn var kannaður. Þú
vissir alveg hvar sjóbirtingurinn eða
laxinn lá og kenndir mér á hylinn.
Svo var kastað og oftar en ekki var
hann á í fyrsta kasti.
V i n n i n g a s k r á
3. útdráttur 20. mai 2010
A ð a l v i n n i n g u r
Kr. 3.000.000 kr. 6.000.000 (tvöfaldur)
1 6 5 4 6
V i n n i n g u r
Kr. 100.000 Kr. 200.000 (tvöfaldur)
2 2 0 9 3 2 4 7 5 2 3 1 1 7 1 5 9 5 3 2
V i n n i n g u r
Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur)
4301 10852 14382 18962 26224 72290
9024 12253 18681 23253 43072 79127
V i n n i n g u r
Kr. 15.000 Kr. 30.000 (tvöfaldur)
1 2 2 0 7 1 6 0 1 8 9 6 6 3 0 2 0 5 3 8 2 7 5 5 0 3 6 0 6 2 0 9 1 7 1 3 2 5
1 2 3 0 7 4 4 8 1 9 9 8 7 3 2 0 0 7 3 8 4 9 3 5 0 4 5 2 6 2 7 7 5 7 1 5 4 1
1 4 7 9 7 9 7 9 2 0 7 1 9 3 2 0 3 7 4 1 1 3 0 5 0 9 2 5 6 3 5 1 9 7 2 1 6 9
2 4 1 1 1 0 9 8 3 2 0 7 8 2 3 3 6 8 4 4 1 2 9 4 5 2 2 8 7 6 4 1 8 6 7 3 3 5 1
3 8 7 0 1 1 4 8 5 2 1 7 1 2 3 3 6 8 9 4 1 9 2 0 5 2 5 0 4 6 4 6 3 2 7 4 8 0 7
4 5 5 0 1 3 6 8 3 2 4 5 4 4 3 3 8 3 8 4 5 2 1 8 5 2 5 8 3 6 5 1 3 3 7 5 0 9 9
4 5 7 3 1 4 7 1 6 2 4 7 3 4 3 4 6 8 5 4 5 8 8 8 5 3 1 1 0 6 5 9 4 2 7 9 1 1 4
4 9 8 6 1 6 3 8 5 2 5 9 3 9 3 4 9 5 0 4 6 3 8 3 5 6 5 1 9 6 7 0 3 3 7 9 2 0 6
5 3 0 7 1 6 9 7 9 2 8 5 3 9 3 7 2 7 3 4 6 4 9 7 5 9 6 2 8 6 7 6 7 0 7 9 2 7 9
5 8 5 3 1 7 6 4 8 2 8 6 9 5 3 7 7 2 4 5 0 1 7 5 6 0 6 7 7 7 1 2 2 8 7 9 9 4 1
V i n n i n g u r
Kr. 7.000 Kr. 14.000 (tvöfaldur)
2 0 5 8 4 3 3 2 0 4 3 2 3 0 4 7 1 3 9 6 0 4 5 4 8 7 0 6 6 1 4 6 7 2 3 0 8
2 7 0 8 9 9 2 2 0 6 2 2 3 0 4 9 6 3 9 6 4 6 5 5 2 0 1 6 6 1 8 6 7 2 3 5 3
4 8 8 9 6 4 6 2 0 6 4 6 3 0 8 8 8 4 0 1 0 9 5 5 9 6 5 6 6 2 9 6 7 2 8 0 1
5 5 7 1 0 0 5 2 2 0 7 6 5 3 0 9 4 6 4 0 1 2 1 5 6 0 7 2 6 6 3 2 1 7 2 8 1 8
6 6 8 1 0 0 9 2 2 1 2 7 7 3 1 2 0 5 4 0 1 5 6 5 6 1 6 0 6 6 3 3 2 7 3 2 4 0
7 0 5 1 0 1 8 9 2 1 5 1 9 3 2 4 6 8 4 0 7 5 4 5 6 4 5 8 6 6 8 5 5 7 3 7 3 3
8 3 0 1 0 3 2 2 2 1 6 4 0 3 2 7 1 9 4 0 9 3 9 5 6 6 5 1 6 7 0 9 8 7 4 1 1 8
8 5 8 1 0 9 6 9 2 1 9 6 8 3 2 8 2 3 4 1 0 0 4 5 6 7 6 4 6 7 1 0 8 7 4 2 1 8
8 6 0 1 1 7 7 6 2 1 9 8 7 3 2 8 6 2 4 1 2 6 0 5 6 8 2 4 6 7 1 8 1 7 4 6 7 2
1 4 5 1 1 1 8 4 4 2 2 8 6 3 3 3 6 2 1 4 2 4 2 6 5 6 8 4 6 6 7 2 7 8 7 4 7 5 6
1 4 6 6 1 1 8 5 8 2 3 0 6 5 3 3 9 8 3 4 3 1 3 2 5 8 7 4 6 6 7 3 5 8 7 5 3 8 0
1 5 8 2 1 1 8 7 0 2 3 6 0 0 3 4 0 4 3 4 4 0 7 0 5 8 9 8 6 6 7 5 7 9 7 5 5 3 1
2 1 9 3 1 2 0 5 0 2 3 6 7 8 3 4 7 7 8 4 4 4 5 5 5 9 3 1 1 6 7 6 8 0 7 5 5 9 9
2 2 3 9 1 2 4 3 2 2 3 9 0 5 3 5 3 3 7 4 5 6 8 6 5 9 7 5 5 6 8 0 4 8 7 5 6 2 5
2 3 4 2 1 2 4 5 0 2 4 5 5 8 3 5 4 5 7 4 6 0 8 4 6 0 0 4 9 6 8 1 0 9 7 6 0 7 4
2 3 8 1 1 5 3 4 7 2 4 7 4 6 3 5 5 6 9 4 6 7 9 0 6 1 2 0 9 6 8 2 4 4 7 6 2 2 0
2 5 7 8 1 5 7 4 9 2 5 0 8 8 3 5 9 8 0 4 7 0 5 8 6 1 6 6 2 6 8 5 8 9 7 6 2 4 3
2 6 0 4 1 6 4 0 5 2 5 8 4 6 3 6 2 2 2 4 7 4 0 1 6 1 9 7 7 6 8 8 4 6 7 6 4 8 3
4 0 9 4 1 6 8 8 6 2 6 1 5 5 3 6 2 6 8 4 7 5 8 3 6 2 2 5 2 6 9 0 0 7 7 6 8 2 1
4 3 0 8 1 7 0 8 7 2 6 3 9 4 3 6 7 7 4 4 8 5 6 7 6 2 4 9 6 6 9 4 0 6 7 7 7 8 9
4 4 8 3 1 7 4 4 6 2 7 0 0 8 3 7 1 7 7 4 9 1 1 1 6 2 6 5 4 6 9 6 0 1 7 7 8 6 4
5 2 9 9 1 7 6 0 4 2 7 6 3 1 3 7 1 8 1 4 9 1 2 9 6 2 8 0 8 6 9 7 6 3 7 8 6 3 9
5 6 8 7 1 8 0 6 2 2 7 8 4 6 3 7 3 3 2 5 0 1 6 5 6 2 8 3 6 6 9 8 6 9 7 8 8 8 9
5 6 9 1 1 8 1 7 0 2 8 0 2 8 3 7 3 5 1 5 0 6 3 5 6 3 5 3 0 7 0 1 9 5 7 9 3 7 3
6 8 5 5 1 8 5 3 5 2 8 2 2 9 3 7 6 9 7 5 1 4 1 9 6 4 0 0 6 7 0 4 9 5 7 9 5 8 6
6 9 8 3 1 8 6 2 2 2 8 6 2 1 3 7 9 1 8 5 1 5 5 6 6 4 0 8 8 7 0 6 5 3 7 9 8 0 1
7 5 4 6 1 9 1 2 3 2 8 6 7 7 3 7 9 3 0 5 2 3 4 8 6 4 1 8 5 7 0 7 4 3
7 5 9 7 1 9 1 5 4 2 9 3 2 0 3 8 1 6 5 5 3 3 1 1 6 4 2 4 8 7 0 7 5 2
7 6 8 8 1 9 4 0 5 2 9 3 8 2 3 8 9 2 0 5 3 8 8 4 6 4 7 1 5 7 0 9 3 3
8 0 3 4 1 9 5 8 0 2 9 4 7 5 3 9 0 3 3 5 4 2 5 3 6 4 8 5 9 7 0 9 6 4
8 3 5 2 1 9 9 1 7 2 9 6 3 7 3 9 1 7 4 5 4 3 8 1 6 5 8 2 3 7 1 2 3 3
8 4 0 0 2 0 0 6 7 3 0 1 8 8 3 9 3 8 3 5 4 6 6 6 6 5 8 3 6 7 1 3 8 0
Næstu útdrættir fara fram 27. maí & 3. júní 2010
Heimasíða á Interneti: www.das.is