Morgunblaðið - 12.06.2010, Blaðsíða 1
L A U G A R D A G U R 1 2. J Ú N Í 2 0 1 0
Stofnað 1913 135. tölublað 98. árgangur
PINNINN
KITLAÐUR Í
GO-KART
BÖRNIN
FÓÐRUÐ
VIT Í VÉLUM
EINLEIKARI
AÐEINS
15 ÁRA
SUNNUDAGSMOGGINN BALDVIN ODDSSON 8UNA EKUR EINS OG LJÓN 10
Unnar kjöt- og fiskvörur eru á boðstólum mötuneyta grunnskóla Reykjavík-
ur sjö til tólf sinnum í mánuði, eða tvisvar til þrisvar sinnum í viku. Viðmið
Lýðheilsustöðvar eru að þær séu ekki oftar en einu sinni til tvisvar í mánuði.
Heilsuspillandi fæði á borð við bjúgu, kjötfarsbollur, kjúklinganagga, med-
isterpylsu, saltfiskstrimla, svikinn héra og krepinettur eru dæmi um algenga
rétti á matseðlum grunnskólamötuneytanna, segja þær Margrét Gylfadóttir,
Sigurrós Pálsdóttir og Sigurveig Káradóttir, sem hafa farið í saumana á mat-
seðlum grunnskólamötuneyta Reykjavíkur. Tvær síðarnefndu eru kokkar en
Margrét mikil áhugamanneskja um næringarmál. Að þeirra mati er full-
komlega óviðunandi að börnin fái slíkt magn unninna matvara í skólanum og
vísa í rannsóknir sem sýna hversu heilsuspillandi slíkur matur sé. Ýtarlega
er rætt við þær í Sunnudagsmogga í dag.
Salt og reykt í svöng börn
Hlynur Orri Stefánsson
hlynurorri@mbl.is
Umsóknum um nám við Háskóla Ís-
lands fjölgaði töluvert annað árið í
röð, en á sama tíma boða stjórnvöld
frekari niðurskurð til háskóla lands-
ins. Samkvæmt tölum sem birtar
voru í gær fjölgar þeim sem sækja
um að hefja nám við HÍ í haust um
18% frá fyrra ári, en þá hafði þeim
fjölgað um 20% frá árinu áður.
Katrín Jakobsdóttir, mennta- og
menningarmálaráðherra, segir útlit
fyrir að skera þurfi niður framlög til
háskólanna um 7,5 til 8% á næsta ári.
Ljóst sé að árið í ár og það næsta
verði mjög erfitt í þessum efnum.
„Þetta er auðvitað mikil blóðtaka
þar sem þetta verður þriðja árið í röð
sem við þurfum að skera niður,“ seg-
ir Kristín Ingólfsdóttir, rektor Há-
skólans. Ljóst sé að niðurskurðurinn
komi niður á starfsfólki sem fái
minna greitt þrátt fyrir aukið álag.
Kristín segir stjórnendur skólans
ekki hafa verið viðbúna þessari
miklu fjölgun umsókna enda er ár-
gangurinn sem útskrifaðist úr
menntaskólum minni en í fyrra. Hún
segir skýringuna á fjölguninni
mögulega liggja í því að atvinnuleit-
endur hafi í auknum mæli ákveðið að
hefja háskólanám, en einnig sé
mögulegt að hærra hlutfall stúdenta
sæki nú um hjá Háskólanum.
Fleiri nemar
en minna fé
til háskólanna
„Mikil blóðtaka,“ segir rektor HÍ um
að skera þurfi niður þriðja árið í röð
Mikil fjölgun
» Umsóknum um nám við Há-
skóla Íslands fjölgaði um 18%
frá fyrra ári, en á níunda þús-
und vill hefja nám við skólann í
haust.
» Í fyrra fjölgaði umsóknum
um 20% en þá hafði nem-
endum einnig fjölgað mikið
áramótin áður.
» Aldrei hafa fleiri umsóknir
borist Háskólanum á Akureyri,
en um 1.100 sækja um að
nema við skólann næsta vetur.
Heimsmeistarakeppni karla í fótbolta hófst með glæsibrag í Suður-Afríku
í gær. Heimamenn gerðu jafntefli, 1:1, við Mexíkó og Frakkland og Úrú-
gvæ skildu jöfn, 0:0. „Það er 17. júní á hverjum degi núna. Hér ríkir of-
boðsleg gleði yfir því hvað Suður-Afríka stóð sig vel í opnunarleiknum og
allir eru stoltir af þeim. Suður-Afríkubúar eru mikil íþróttaþjóð og þetta
sameinar fólk,“ sagði Kolbeinn Kristinsson íbúi í Höfðaborg við Morgun-
blaðið. » Íþróttir
Reuters
Gleði í Suður-Afríku
Markaður fyrir dýr, notuð úr og Bang &
Olufsen-sjónvarpstæki er í mikilli sókn
en vísbendingar eru um að fólk sem hafi
fé á milli handanna leiki á kreppuna með
því að kaupa lúxusinn á hagstæðara
verði. Biðlisti er eftir Rolex-Submar-
iner-úrinu og væntir úrsmiður þess að
„slegist verði um það“.
Lítið lát er á ásókn landans í merkja-
vöru því í lúxusversluninni Leonard hef-
ur salan á skartgripum aukist eftir fjár-
málahrunið 2008.
Þá seljast úr á um 100.000 krónur reglulega í versl-
unum Leonard, að sögn Sævars Jónssonar, annars eig-
enda verslunarinnar, sem bætir því við
að efnafólk hafi varast að kaupa dýr úr í
Fríhöfninni, á til dæmis milljón króna,
til að sneiða hjá umtali í kjölfarið.
Frekari vísbendingu um að Íslend-
ingar sæki í dýrar gæðavörur þrátt fyrir
gjaldeyrishöft og sögulegt atvinnuleysi
er að finna í verslun Sony Center í
Kringlunni.
Þar hafa kaupendur fært sig eitt verð-
þrep niður í sjónvarpstækjakaupum, úr
lúxusþrepi og niður í tæki á verðbilinu
250.000 til 400.000, frekar en að kaupa ódýrustu
tækin. baldura@mbl.is » 18
Biðlisti eftir Rolex-úrum og
góð sala sögð í flatskjám
Lögð verður
fram þingsálykt-
unartillaga á Al-
þingi um helgina
um að Ísland
dragi til baka
umsókn sína um
aðild að Evrópu-
sambandinu.
Fyrsti flutnings-
maður er Unnur
Brá Konráðs-
dóttir, Sjálfstæðisflokki.
Hún segir að forsendur hafi
breyst mikið frá því að Alþingi sam-
þykkti að sækja um aðild fyrir tæpu
ári. Þá hafi margir verið að hugsa
um að það gæti verið ávinningur
fyrir Ísland að taka upp evru.
Vandi evrunnar sé það mikill að
ljóst sé að það sé ekki valkostur fyr-
ir okkur. Efnahagsvandi Evrópu-
ríkja hafi leitt til þess að kallað sé
eftir meiri miðstýringu innan ESB.
Þetta þýði að innganga í ESB kalli
á enn meira fullveldisafsal.
Unnur Brá telur að afstaða þing-
manna til málsins hafi breyst og
rétt sé að láta reyna á það með at-
kvæðagreiðslu. egol@mbl.is
Umsókn um aðild að
Evrópusambandinu
verði dregin til baka
Unnur Brá
Konráðsdóttir
Almannavarn-
ir hafa ákveðið
að loka fyrir al-
menna umferð í
Þórsmörk vegna
hættu á skyndi-
legum flóðum úr
gígnum á Eyja-
fjallajökli. Vatn
er að safnast
fyrir í sigkatlinum. Kjartan Þor-
kelsson, sýslumaður í Rangár-
vallasýslu, segir hættu á flóði nið-
ur Gígjökul og út í Markarfljót.
Hann segir erfitt á þessari
stundu að segja fyrir um hvort
hætta er á stóru flóði. Vatn safnist
fyrir og það geti brotist fram með
litlum fyrirvara. Ákveðið hafi ver-
ið að banna alla almenna umferð
inn í Þórsmörk en staðan verði
endurmetin eftir helgi þegar búið
sé að kanna betur stöðuna.
egol@mbl.is
Öll almenn umferð
í Þórsmörk bönnuð
Sumarhappdrætti
Krabbameinsfélagsins
167 skattfrjálsir
vinningar að verðmæti
24.415.000 kr.
Dregið 17. júní 2010
MHækka sértæka skatta »6