Morgunblaðið - 12.06.2010, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 12.06.2010, Blaðsíða 23
23 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JÚNÍ 2010 Úrval ríkisskuldabréfasjóða Reiðubréf ríkistryggð Sparibréf stutt Sparibréf meðallöng Sparibréf löng Sparibréf verðtryggð1 Sparibréf óverðtryggð 1 7,09%* 9,56%* 13,24%* 15,05%* – – Ríkisskuldabréfasjóðir Enginn munur ákaup- og sölugengifram til 1. júlí Sjóðir sem bera ávöxt Landsbankinn býður upp á sex ríkisskuldabréfasjóði sem fjárfesta nær eingöngu í ríkistryggðum skuldabréfum. Sjóðirnir eru með sömu fjárfestingarstefnu en mismikla vaxtaáhættu. Munurinn felst aðallega í lengd þeirra skuldabréfa sem fjárfest er í og hlutfalli verðtryggðra og óverðtryggðra ríkisskuldabréfa.Sjóðirnirhafa skilað betri ávöxtun en almennir innlánsreikningar síðasta árið og henta vel fyrir reglubundinn sparnað. N B Ih f. (L an d sb an ki nn ), kt .4 71 0 0 8 -0 2 8 0 . E N N E M M / S ÍA / N M 4 2 4 9 2 FJÁRMÁLARÁÐGJÖF | landsbankinn.is | 410 4040 Ríkisskuldabréfasjóðir Landsbankans eru verðbréfasjóðir samkvæmt lögum nr. 30/2003 og lúta eftirliti Fjármálaeftirlitsins. Rekstrarfélag sjóðanna er Landsvaki hf. og vörslufélag þeirra er NBI hf. (Landsbankinn). Áhætta fylgir ávallt fjárfestingu í sjóðum þar sem gengi þeirra getur bæði hækkað og lækkað. Nánari upplýsingar um sjóðina má finna í útboðslýsingu eða útdrætti úr þeim á landsbankinn.is og á landsvaki.is. Fjárfestum er bent á að kynna sér útboðslýsingu sjóðanna áður en fjárfest er í þeim. * Nafnávöxtun sl. 12 mánuði m.v. 28. maí 2010. 1. Sjóðurinn tók til starfa þann 7. maí 2010 og þar af leiðandi liggja upplýsingar um nafnávöxtun ekki fyrir. Baldur Arnarson baldura@mbl.is Mikil spenna er nú í Kirgistan eftir að minnst 37 féllu í átökum Kirgista og Úsbeka í borginni Osh. Upp úr sauð í fyrradag en átökin eru þau hörðustu frá því Kurmanbek Bakiyev var steypt af stóli forseta í apríl. Um 500 manns særðust. Bráðabirgðastjórn er við völd í Kirgistan og hefur hún lýst yfir neyð- arástandi í landinu. Hermenn gráir fyrir járnum vakta göturnar en augljóst er að undir niðri kraumar mikil heift og reiði. Fram kemur á vef breska útvarps- ins, BBC, sem er með fréttaritara í Osh, að upptök átakanna séu óljós. Leiddust út í skotárásir Krytur á milli fylkinga hvorra úr sínum þjóðflokknum hafi leiðst út í skotárásir á götum úti. Úsbekar eru í meirihluta í borginni sem var vígi Ba- kiyevs, fráfarandi forseta. Skemmdir voru unnar á verslunum og kveikt í bílum en á vef BBC segir að svo virðist sem flestar árásanna hafi beinst gegn verslunum Úsbeka. Lífið hélt svo áfram sinn vanagang í gær er verslun komst í samt horf. Óttast er að stjórnmálakreppan í landinu geti þróast yfir í borgarastríð en rifjað hefur verið upp að Rússar og Bandaríkjamenn hafi þar her- stöðvar. Haft var eftir vitnum á vef dag- blaðsins Guardian að götur Osh litu út eins og vígvöllur. Gengi ráfuðu um götur en heimildarmaður blaðsins segir allt að 300 Kirgista hafa gengið berserksgang í einu hverfa Úsbeka. Spennan við suðupunkt  Hátt í 40 féllu í átökum þjóðflokka í Kirgistan  Neyðarástandi lýst yfir Reuters Reiði Kveikt í verslun í Osh. Kurmanbek Ba- kiyev flúði til Hvíta-Rússlands eftir að minnst 85 mótmæl- endur féllu fyrir hendi hersveita í apríl. Nokkrum vikum síðar tóku stuðnings- menn hans yfir stjórnsýslu- byggingar í suðurhluta landsins og ögruðu þar með bráða- birgðastjórninni í höfuðborginni Bishkek. Bakiyev er þriðji forseti landsins frá því það varð sjálf- stætt ríki við fall Sovétríkjanna. Flúði Í SKUGGA HARMLEIKS Kurmanbek Bakiyev Olían sem flætt hefur úr borholunni í Mexíkóflóa mun með tíð og tíma brotna niður í hafinu og verða að lífrænum efnum. Olía er mynduð úr kolvetnum og er því lífrænt efni. Hún er hins veg- ar lífseig í vatni en eins og sjá má koma sveppir að niðurbrotinu. Ferlið er margþætt og hefur veðurfar við flóann sín áhrif á það. Heimild: ITOPF Grafík: Kinyen Pong Dreifing Tjöruboltar Þunnt olíulag DREIFING Olía er léttari en vatn og dreifir úr sér á yfirborðinu. UPPGUFUN Léttari efnasambönd í olíunni gufa upp og skilja eftir þykkari olíu sem erfiðara er að leysa upp. TVÍSTRUN Veðrun brýtur olíu- brákina niður í dropa. Stærstu droparnir liggja á yfirborðinu og mynda þunnt lag. LEYSNI Efnasambönd sem leysast upp í vatni leysast upp í vatninu umhverfis þau. ÝRING Öldur blanda olíunni við vatnið þannig að af stað fer ferli sem nefnt er ýring eða þeyting.Við það myndast agnir sem standa af sér veðrun og geta verið á yfir- borðinu í marga mánuði. OXUN Kolvetni í olíunni ganga í gegnum efnahvarf með súrefni sem leiðir til myndunar stærri olíukolvetna, svonefndra tjörubolta. SETMYNDUN Olíusameindir blandast og laðast að þykku botnfalli þannig að þær sökkva. LÍFRÆNT NIÐURBROT Bakteríur og sveppir nærast á kolvetnum í olíunni. Magn næringarefna, hitastig og súrefnis- magn eru hér í lykilhlutverki. Niðurbrot hefðbundinnar hráolíu við dæmigerðar aðstæður í hafi. Breidd hvers bils er til marks um mikilvægi ferlanna sem þar fara fram fyrir niðurbrotið. NIÐURBROT OLÍU VEÐRUN MEÐ TÍÐ OG TÍMA Klst. Dagur Vika Mánuður Ár Lífrænt niðurbrot Setmyndun Uppgufun Tvístrun Sundrun Oxun Ýring Dreifing Aftur til náttúrunnar Kröfu bresku þingmannanna fv. Elliot Morley, David Chaytor, Jim Devine og Hanningfield lá- varðar um að ákærum á hendur þeim vegna fríð- indahneykslisins svonefnda verði vísað frá dómi var hafnað í gær. Þeirra gæti beðið fangelsisvist. Það var Justice Saunders dómari sem kvað upp dóminn með þeim rökstuðningi að það væri „engin rökrétt, hagnýt, siðferðisleg eða lagaleg réttlæt- ing“ fyrir því að vísa málinu frá. Áfrýja niðurstöðunni Fjallað er um málið í Daily Telegraph, dag- blaðinu sem ljóstraði upp um fríðindahneykslið, útbreidda misnotkun á styrkjakerfi þingmanna, en þar segir að fyrrverandi þingmennirnir fjórir hyggist áfrýja niðurstöðunni í sumar. Því þurfi að taka málið upp aftur og þar með senda skatt- borgurum reikning upp á tugi milljóna kr. vegna aukins máls- kostnaðar sem fellur á ríkið. Þingmennirnir héldu því fram að sú regla hefði verið í gildi í um þriggja alda skeið að þingmenn væru hafnir yfir lögsóknir sem endað gætu með fangelsisvist, sjónarmið sem dómarinn hafnaði. Fari svo að áfrýjuninni verði hafnað verð- ur réttað yfir fjórmenningunum sitt í hvoru lagi en réttarhöldin gætu hafist fyrir árslok. Ákærurnar lúta að meintum bókhaldssvikum til að fela slóðina vegna ólöglegra styrkja en há- marksrefsing við slíkum brotum er sjö ár. Sakaður um að svíkja út milljónir Til marks um umfang brotanna nefnir blaðið að Morley, sem er fv. þingmaður Verkamannaflokks- ins, líkt og Chaytor og Devine, hafi þegið um 30.000 pund, eða um 5,7 milljónir kr., í stuðning vegna húsnæðisafborganna sem brutu í bága við lög. Hinir þingmennirnir þrír eru einnig sakaðir um að hafa misnotað lögin í eiginhagsmunaskyni. Þingmenn ekki hafnir yfir lögin Elliot Morley Vladimír Pútín, forsætisráðherra Rússlands, sagði við Nicolas Sar- kozy, forseta Frakklands, að Rússar ætluðu ekki að selja Írönum flug- skeyti. Þetta væri í takt við þær refsiaðgerðir sem öryggisráð Sam- einuðu þjóðanna hefði samþykkt, að því er AFP-fréttastofan hafði eftir ónefndum embættismanni. Umræddur embættismaður segir að Pútin hafi sagt við Sarkozy að ákvörðun Rússa um að styðja frek- ari refsiaðgerðir muni kosta sitt. Ír- anar séu mjög ósáttir og muni fara fram á skaðabætur, þar sem Rússar hafi brotið samkomulag. Samkomulagið út um þúfur Ráðgjafar Dímítrí Medvedev Rússlandsforseta hafa látið hafa eft- ir sér að líklega yrði ekkert úr sam- komulaginu. Það ætti hins vegar eft- ir að tilkynna um ákvörðunina með formlegum hætti. Sarkozy fagnaði stuðningi Rússa er hann snæddi hádegisverð með Pútín í Elysée-forsetahöllinni. „Þetta er þaulhugsað skref sem mun kosta Rússa mikið,“ segir emb- ættismaðurinn að Sarkozy hafi sagt við Pútín. jonpetur@mbl.is Engin flugskeyti til Írans Vladímír Pútín Ástralskir bænd- ur sem hafa vatnsréttindi frá Murray-Darling, vatnasvæðinu sem sér meðal annars Canberra fyrir vatni, óttast að stjórnvöld muni skera vatnskvóta þeirra niður um 40% á næstu vikum. Ásakanir um kosningabragð Fjallað er um málið á vef Sydney Morning Herald en þar segir að bændur líti svo á að stjórn Kevins Rudds forsætisráðherra sé með þessu að reyna að undirstrika græn stefnumið sín fyrir kjósendum, nú þegar styttist í þingkosningar. Bændurnir sem blaðið ræðir við fullyrða að þeir hafi engan annan valkost en að bregða búi, fari svo að vatnið verði skammtað. Búist er við að ákvörðunin verði kynnt í júlí. Skrúfa fyrir bændurna Þurrkar í Murray-Darling.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.