Morgunblaðið - 12.06.2010, Side 24

Morgunblaðið - 12.06.2010, Side 24
24 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JÚNÍ 2010 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Viðhorf ríkis-stjórnar-innar til vanda heimilanna í landinu kristallast í eftirfarandi um- mælum sem for- sætisráðherra lét falla á Al- þingi í vikunni: „Það er hægt að lesa það út úr útreikningum Seðlabankans að í stað þess að bankahrunið hafi fjölgað heim- ilum í vanda um að minnsta kosti 9.000, hefði ekkert verið að gert, þá stefnir í að fjölgunin verði lítil sem engin.“ Staðreynd málsins er vita- skuld sú, eins og flestir þekkja á eigin skinni, að fjárhagsstaða heimilanna í landinu er miklu verri en hún var fyrir banka- hrun. Að halda því fram að fjölgun heimila í vanda verði „lítil sem engin“ er í besta falli mikill misskilningur. Margir hafa furðað sig á aðgerðaleysi ríkisstjórnarinnar, en ef ráð- herrum hefur tekist að sann- færa sig um að þeir hafi náð slíkum tökum á vandanum er ekki mikil von til að þeir taki sig á. Ef menn berja hausnum við steininn og neita að við- urkenna að fjölskyldurnar í landinu eiga um sárt að binda er ekki að undra þótt skjald- borgin hafi verið meiri í orði en á borði. Einn mælikvarði á fjárhags- stöðu fjölskyldnanna í landinu er mikil fjölgun á vanskilaskrá Creditinfo. Frá ársbyrjun 2008 hefur fjölgað um ríflega þriðj- ung á vanskilaskránni og þar eru nú um 22.000 manns. Að óbreyttu gerir Creditinfo ráð fyrir að átta þúsund ein- staklingar til viðbótar lendi í al- varlegum vanskilum næsta árið og þá verður tíundi hver Íslend- ingur kominn á vanskilaskrána. Margfalt fleiri heimili en þessar tölur gefa til kynna eru í alvarlegum vanda og ná ekki endum saman. Marinó G. Njálsson, stjórn- armaður í Hags- munasamtökum heimilanna, telur til að mynda að í það minnsta 35% heimila séu í miklum vanda og að líkast til sé hlut- fallið allt að 60%. Erfitt er að skilja hvernig ríkisstjórnin getur verið svo úr tengslum við almenning í landinu að hún telji fjárhags- stöðu heimilanna með þeim hætti sem lesa má úr ofanrit- uðum orðum Jóhönnu Sigurð- ardóttur. Óskhyggjan villir mönnum oft sýn og kann að skýra þetta að hluta. Önnur ástæða er sennilega að ríkis- stjórnin hefur allt frá því hún tók við verið upptekin af auka- atriðum eða jafnvel af málum sem beinlínis eru skaðleg þjóðinni. Nægir í þessu sam- bandi að nefna baráttu rík- isstjórnarinnar fyrir því að ís- lenskir skattgreiðendur taki á sig skuldir þrotabús Lands- bankans og að Ísland sæki um aðild að Evrópusambandinu. Fjöldi minni mála og gælu- verkefna, sem ekkert hafa með vanda heimilanna eða endurreisn efnahagslífsins að gera, hafa einnig orðið til að beina athygli stjórnvalda frá því sem máli skiptir. Breyti ríkisstjórnin ekki af- stöðu sinni til þeirra mála sem brenna heitast á íslenskum al- menningi er ljóst að hún á ekk- ert erindi. Haldi þingmenn Samfylkingar og Vinstri grænna áfram að styðja hana getur hún að vísu setið áfram. Þá verða ráðherrastólarnir hins vegar dýru verði keyptir og ríkisstjórnin festir sig þá í sessi sem helsti vandi heim- ilanna. Forsætisráðherra er algerlega úr tengslum við kjör almennings} Helsti vandi heimilanna Forstjóri Hagasendir Morgunblaðinu „leiðréttingu“ um fyrirtækið og sér- stakur trúnaðar- maður Arion banka, Jóhannes Jónsson, fer með stóryrðum á vefnum. „Leiðréttinguna“ væri nær að kalla útúrsnún- ing því allir vita hvernig sem látið er hvar fyrirtækið er statt í dag og hvers vegna. Um stóryrði hins sérstaka talsmanns Arion banka þarf ekki að hafa mörg orð en sá banki styrkir örugglega stöðu sína í hinni fordæmdu fortíð með slíkum trúnaðarmanni. Hitt er hins vegar mikið um- hugsunarefni. Hvers vegna verða þeir svona argir Haga- forstjórinn og hinn sérstaki tals- maður Arion banka yfir orðum í leiðara Morgunblaðsins? Þeir hafa jú báðir haldið því fram að nánast enginn lesi blaðið og þess vegna leyfi Arion banki þeim að dæla peningum í einkafyrirtæki mannanna sem hlupu frá eitt þúsundum milljörðum króna og landinu í rúst yfir í stórhýsi sín og vill- ur í Ameríku. Sú ákvörðun var algjörlega byggð á við- skiptalegum forsendum. Eða var það ekki? Voru hinar við- skiptalegu for- sendur ekki við- skiptalegar þegar allt kom til alls?} Um leiðréttingu O rðanotkun í fjölmiðlum er áhuga- vert rannsóknarefni. Orðræða sem svo er kölluð, það hvaða orð notuð eru í umræðu, hvernig þau eru notuð og í hvaða samhengi, getur haft úrslitaáhrif á það hvaða skilaboð komast til þess sem les, horfir á eða hlustar. Eða hvað? Frá hruninu 2008 hafa bæði embættismenn og þingmenn sagt af sér. Sem dæmi hafa ráðuneytisstjóri, bæjarstjóri og þingkona sagt af sér embættum vegna ólíkra mála. Ekki er ætlunin að leggja mat á það hvort þeir eða þær sem tekið hafa pokann sinn á undan- förnum misserum hafi verðskuldað slíkan endi á sínum ferli í stjórnsýslu eða stjórn- málum. En það er þess virði að skoða hvað var sagt við brottför af vettvangi. Ráðuneytisstjórinn sem sagði af sér vegna hlutabréfa- viðskipta gerði það vegna þess að „umfjöllun um við- skiptin … og um athugun á þeim hafi truflandi áhrif á hans daglegu störf,“ eins og sagði í bréfi sem birt var í fjölmiðlum á sínum tíma. Það var semsagt umfjöllunin sem olli afsögninni, ekki það sem fjallað var um. Þingkona sagði nýverið af sér vegna þess að hún taldi að „umræða um fjármögnun kosningabaráttu … í tveim- ur prófkjörum til borgar og þings árið 2006 og vanga- veltur um eðli hennar yfirgnæfi öll mín störf á þingi.“ Með öðrum orðum voru það ekki styrkirnir sjálfir eða upphæðir þeirra sem voru ástæða afsagnarinnar, heldur umræða og vangaveltur um þá. Bæjarstjórinn sem sagði af sér eftir tap í kosningunum sagði þegar hún felldi úr gildi umdeildan kaupmála að hún gerði það til að „taka af öll tvímæli.“ Þetta tiltekna orðalag virðist reyndar njóta talsverðra vinsælda þegar menn vilja ekki kveða sérlega fast að orði. Forstjóri Orku- veitu Reykjavíkur segir nú þegar greint hef- ur verið frá milljóna króna bílakaupum fyrir- tækisins fyrir útvalda starfsmenn að þau „orki tvímælis.“ Ekki að kaupin séu út í hött, ekki að gerð hafi verið mistök með því að leyfa kaupin. Nei, þau bara orka tvímælis og af þeirri ástæðu ætlar forstjórinn að taka kaupin til skoðunar. Var „umfjöllunin“ um hlutabréfakaup ástæða þess að ráðuneytisstjórinn vék? Var „umfjöllun um athugun“ á þeim ástæðan? Steig þingkon- an niður sökum þess að „umræða“ fór fram um mál hennar í fjölmiðlum? Af því að „vangaveltur um eðli“ komu upp? Og voru „tvímæli“ ástæða þess að kjósendur gagnrýndu bæjarstjórann fyrir kaupmálann? Orðalag getur haft áhrif, en þegar notkun orðanna er svo fullkomlega á skjön við þann skilning sem venjulegt fólk leggur í umfjöllunarefnin, þá skiptir í raun litlu hvaða nöfnum hlutirnir eru kallaðir. Eða hvað ætli þurfi að gera til að fólkið í borginni verði sátt við átta milljóna króna jeppa fjármálastjórans? Taka af honum öll tvímæli? eyrun@mbl.is Eyrún Magnúsdóttir Pistill Af tvímælum og öðrum ummælum STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon FRÉTTASKÝRING Hjalti Geir Erlendsson hjaltigeir@mbl.is Ó líklegt þykir að sátt náist um hvalveiðar á fundi Al- þjóðahvalveiðiráðsins sem hefst Agadir í Mar- okkó 21. júní næstkom- andi. Fáist engin niðurstaða um stjórn veiðanna helst ástand hvalveiða óbreytt. Vonir stóðu til að málamiðlunar- tillagan milli þeirra ríkja sem eru fylgj- andi hvalveiðum og þeirra sem eru þeim andvíg næði fram að ganga á árs- fundinum. Tólf ríki voru fengin til að semja málamiðlunartillögu og átti Ís- land sæti í þeim hópi.Viðræðurnar skil- uðu ekki tilsettum árangri sem leiddi til þess að formaður Alþjóðahval- veiðiráðsins og varaformaður tóku til- lögurnar upp á sína arma. Málamiðlunartillaga þeirra verð- ur tekin fyrir á ársfundinum í næstu viku. Tómas H. Heiðar, aðalfulltrúi Ís- lands í Alþjóðahvalveiðiráðinu, segir tillöguna meðal annars fela í sér bann við milliríkjaviðskiptum með hvala- afurðir. Íslensk stjórnvöld hafi lýst því yfir að tillagan sé óásættanleg. Auk viðskiptatakmarkana segir Tómas að hvalveiðikvótarnir sem lagð- ir séu til í tillögunni séu langt undir sjálfbærnimörkum samkvæmt vís- indalegri ráðgjöf. Óásættanlegt viðskiptabann Umrædd tillaga gerir ráð fyrir ár- legum kvótum fyrir Ísland upp á 80 langreyðar og 80 hrefnur. „Íslensk stjórnvöld eru ekki reiðubúin að ræða takmörkun hval- veiða nema tillagan um viðskiptabann verði tekin af borðinu,“ segir Tómas H. Heiðar. Til samanburðar hljóði ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar upp á 200 langreyðar og 200 hrefnur á ári. „Ljóst er að málamiðlunartillagan er óásættanleg fyrir Ísland í núverandi formi, enda gerir hún ráð fyrir því að milliríkjaviðskipti með hvalaafurðir verði bönnuð,“ segir Tómas. Íslendingar lifi af útflutningi sjáv- arafurða og geti því af prinsipp- ástæðum ekki fallist á bann við við- skiptum með sjávarafurðir sem aflað sé með sjálfbærum hætti. Þar við bætist að viðskipti falli al- farið utan valdsviðs Alþjóðahval- veiðiráðsins. Tómas segir að flest ríki sem andstæð séu hvalveiðum hafi hafn- að málamiðl- unartillögu for- manns og varaformanns Alþjóðahvalveiði- ráðsins á þeim for- sendum að þau væru mótfallin hvalveiðum al- mennt. Flest frið- unarsamtök sem fjalli um hvalveiðar hafi einnig fordæmt tillöguna og ljóst þyki að mörg þeirra megi ekki til þess hugsa að málamiðlun náist innan ráðs- ins milli ríkja sem fylgjandi eru hval- veiðum og ríkja sem eru þeim andvíg. „Einu myndi gilda þótt fyrir lægi að málamiðlun fæli í sér aukna hvala- vernd og minni hvalveiðar en ella. Mörg þessara samtaka eru öfgafull, stjórnast af peningalegum hagsmunum og þrífast á deilu áðurnefndra ríkja og ófriði innan ráðsins,“ segir Tómas. Óbreytt ástand Tómast H. Heiðar segir að Ísland muni á uppbyggilegan hátt taka þátt í samningaviðræðum á ársfundinum í Agadir til að stuðla að málamiðlun en afstaða áðurnefndra ríkja og frið- unarsamtaka gefi því miður ekki ástæðu til bjartsýni um að samkomulag náist. Eins og staðan sé í dag þá hafi Al- þjóðahvalveiðiráðið enga stjórn á hval- veiðum í heiminum að undanskildum frumbyggjaveiðum og fátt bendi til breytinga í þeim efnum. Morgunblaðið/Golli Hvalveiðar Tómas H. Heiðar, aðalfulltrúi Íslands í Alþjóðahvalveiði- ráðinu, segir Íslendinga ekki geta fallist á viðskiptatakmarkanirnar. Málamiðlunarvið- ræður sigldu í strand Umdeildar veiðar » Ólíklegt er að sátt náist um stjórn hvalveiða á ársfundi Al- þjóðahvalveiðiráðsins. » Málamiðlunartillaga gerir ráð fyrir því að milliríkjaviðskipti með hvalaafurðir verði bönnuð. » Íslensk stjórnvöld telja þá niðurstöðu óásættanlega. » Stjórnvöld segja hvalveiði- kvótana sem lagðir séu til í til- lögunni langt undir sjálfbærni- mörkum samkvæmt vísinda- legri ráðgjöf. » Formlega er bann Alþjóða- hvalveiðiráðsins frá 1982 í fullu gildi. » Nú hefur Alþjóðahvalveiði- ráðið enga stjórn á hvalveiðum í heiminum að undanskildum frumbyggjaveiðum. » Noregur og Ísland stunda löglegar veiðar í atvinnuskyni á grundvelli mótmæla og fyrir- vara við hvalveiðibannið frá 1982. » Japanir stunda vísinda- veiðar á grundvelli 8. gr. al- þjóðasamningsins um stjórnun hvalveiða (stofnsamnings ráðs- ins). Tómas H. Heiðar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.