Morgunblaðið - 12.06.2010, Qupperneq 42
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JÚNÍ 2010
Þú færð 5 %
e n d u r g r e i t t
í Regnboganum
Þú færð 5 %
e n d u r g r e i t t
í Regnboganum
VINSÆLASTA
MYND ÁRSINS
Í SVÍÞJÓÐ
SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI
The A-Team kl. 10:30** B.i. 12 ára Streetdance 3D kl. 1 - 3:30 - 5:45 - 8 - 10:15 B.i. 7 ára
Get Him to the Greek kl. 1 - 3:20 - 5:40 - 8 - 10:25 B.i. 12 ára Snabba Cash kl. 8 - 10:30* B.i. 16 ára
Get Him to the Greek kl. 1 - 3:20 - 5:40 - 8 - 10:25 LÚXUS Húgó 3 íslenskt tal kl. 1 - 2:30 - 4 - 6 LEYFÐ
Robin Hood kl. 1 - 5 - 8 B.i. 12 ára
Streetdance kl. 3:30 - 6 - 9 B.i. 7 ára The A-Team kl. 9* B.i. 12 ára
Get Him to the Greek kl. 3 - 6 - 9 B.i. 12 ára Oceans kl. 3:20 - 5:45 LEYFÐ
Youth in Revolt kl. 4 - 6 - 8** - 10** B.i. 14 ára Snabba Cash kl. 8 - 10:30 B.i. 16 ára
SÝND Í SMÁRABÍÓI
SÝND Í SMÁRABÍÓI
SÝND Í SMÁRABÍÓI OG HÁSKÓLABÍÓI
F O R S Ý N I N G
„The A-Team setur sér það einfalda markmið
að skemmta áhorfendum sínum með látum, og
henni tekst það með stæl. Ekta sumarbíó!”
-T.V. - Kvikmyndir.is
ÞEIR VORU PLATAÐIR - ÞEIR VORU SVIKNIR - HEFNDIN ER ÞEIRRA
MISSIÐ EKKI AF FYRSTU STÓRMYND SUMARSINS!
SÝND Í SMÁRABÍÓI OG HÁSKÓLABÓI
FYRSTA DANSMYNDIN Í 3D - FRÁBÆR SKEMMTUN FYRIR ALLA!
*Aðeins sýnd laugardag **Aðeins sýnd sunnudag
FÓR BEINT
Á TOPPINN
Í BRETLANDI
*Aðeins sýnd laugardag **Aðeins sýnd sunnudag
Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og Háskólabíói ef þú borgar bíómiðann m
AF BIÐSTOFUM
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Það finnst engum manniskemmtilegt að bíða en bið eróhjákvæmilegur hluti mann-
legrar tilvistar. Læknar eru sú stétt
fólks sem oftast er beðið eftir, að því
er undirritaður best veit, og ófáum
klukkustundunum hefur hann varið
á biðstofum þeirra. Til að stytta
sjúklingum stundir er jafnan boðið
upp á lesefni á slíkum biðstofum og
það afar fjölbreytt oft á tíðum. Þann-
ig getur á einni og sömu biðstofunni
leynst lesefni sem höfðar til allra,
t.d. tímarit um hin ýmsu áhugamál,
garðrækt eða hestamennsku,
Bændablaðið er þar oft að finna og
sérrit um flugvélar, svo eitthvað sé
nefnt, að ógleymdum gömlum
kvennablöðum á borð við Vikuna.
Um daginn þurfti undirritaðurað bíða eftir lækni, líkt og svo
oft áður, og varð biðin æði löng, ná-
lægt tveimur klukkustundum. Þá
kom sér vel að hafa við höndina ein-
tak af tímaritinu Úrvali frá október-
mánuði 1988, býsna merkilegt rit
þar á ferð og „fyrir alla“, eins og stóð
prentað á fagurgrænni forsíðunni.
Margt spennandi var að finna í
þessu riti, m.a. ástarlíf eftir fæðingu
fyrsta barns, grein um „gígólóa“,
þ.e. fylgdarsveina, konu sem hlaut
dauðadóm fyrir barneignir og, síðast
en ekki síst, grein um að konur á
rauðum bílum væru hættulegar í
umferðinni.
Já, þetta hafði undirritaðanlengi grunað, að konur á rauðum
bílum væru hættulegri en konur á
bílum í öðrum litum, enda rauður lit-
ur hættunnar. Í hinni merku grein
kom fram að konur á rauðum bílum
væru sérstaklega hættulegar ef þær
væru framagjarnar og byggju við
fjölskylduvanda. Konur á bláum bíl-
um væru hins vegar yfirvegaðar og
létu skapið ekki hlaupa með sig í
gönur í umferðinni. Höfundur grein-
arinnar, Stella nokkur Bruce, vísar í
rannsóknir vesturþýskra sálfræð-
inga (tímaritið er frá 1988, eins og
fyrr segir) sem starfa, eða störfuðu,
fyrir bílaframleiðandann Opel. Sál-
fræðingar þessir fengu það verkefni
að kanna tengsl milli litavals á bílum
og sölu á þeim. Rannsóknin stóð yfir
í tvö ár, 1986-7, og var niðurstaðan
sú að sá litur sem kona kýs á bifreið
sína segði mikið til um skapgerð
hennar. Og til að renna stoðum und-
ir þetta bendir Stella á könnun sem
gerð var í Bandaríkjunum á tvö þús-
und árekstrum en hún leiddi í ljós að
rauðir bílar lentu oftar í árekstri en
bílar í öðrum litum. Stella segir að
sálfræðingarnir vesturþýsku séu
þeirrar skoðunar að „endurspeglun
af rauðu vélarloki bílanna geri konur
við stýrið sérstaklega frekar, óeirn-
ar og óþolinmóðar“. En eru karlar á
rauðum bílum hættulegir? Stella
gleymdi að gá að því.
Varast skal konur á rauðum bílum
» [K]om fram aðkonur á rauðum bíl-
um væru sérstaklega
hættulegar ef þær væru
framagjarnar og byggju
við fjölskylduvanda.
Kona á rauðum bíl Eins gott að mæta þessari ekki í umferðinni, greinilega stórhættuleg kona!