Morgunblaðið - 06.07.2010, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 06.07.2010, Blaðsíða 2
2 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚLÍ 2010 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Iðjagrænt gras var ekki það eina sem blasti við ljósmyndara Morgunblaðsins þegar hann flaug yfir tjaldsvæði Úthlíðar nú um helgina. Leifar lágu á víð og dreif og báru vitni um jörfagleði næturinnar. „Um leið og síðasta tjald var farið vorum við mættir með her af fólki sem tók ekki nokkra stund að hreinsa þetta,“ segir Björn Sigurðsson, umsjónarmaður tjaldsvæðisins. Hann segir slæma umgengni fyrst og fremst vera í útilegum ungs fólks. „Margir hafa gefist upp á því að leyfa unga fólkinu að nota tjaldstæðin sín og leyfa að- eins þeim sem eru eldri en 25 ára að tjalda. En eins og Guðmundur góði á Hólum sagði þá verða vondu börnin að vera einhvers staðar.“ Morgunblaðið/Árni Sæberg Einhvers staðar verða vondu börnin að vera „Þetta eru gríðar- leg vonbrigði,“ seg- ir Aldís Hafsteins- dóttir, bæjarstjóri í Hveragerði, um seinkunina á breikkun Suður- landsvegar. Kæru- nefnd útboðsmála hefur fellt úr gildi samning Vegagerð- arinnar við Véla- leigu AÞ ehf. um verkið. „Það er með ólíkindum að mik- ilvægar stórframkvæmdir skuli tefj- ast vegna formsatriða og mistaka,“ segir Aldís. Sér þyki undarlegt að hægt sé að vefengja niðurstöðu út- boðs á vegum hins opinbera með þeim hætti sem Kærunefnd útboðsmála gerði. „Þessi stórframkvæmd átti ekki bara að bæta umferðaröryggi heldur einnig að ýta hjólum efnahagslífsins í gang.“ Töfin von- brigði og með ólíkindum Aldís Hafsteinsdóttir Lýsing greiðir allan málskostnað í máli gegn skuldara sem þingfest var í síðustu viku og hlýtur flýtimeðferð í héraðsdómi. Málið, sem verður flutt á morgun, er rekið eftir breyttri kröfugerð þar sem þess er ekki krafist að skuldarinn greiði af láni samkvæmt gengistryggingu. Lögmaður skuldarans, Jóhannes Árnason hdl., segir að eftir að dómur Hæstaréttar um að gengistrygging sé ólögleg féll hafi verið um tvennt að velja fyrir þá sem þegar stóðu í málarekstri. Annars vegar að fella mál niður og höfða nýtt eða að breyta kröfugerð á þann hátt að báð- ir aðilar viðurkenni ólögmæti geng- istryggingar. Síðari kosturinn hafi verið valinn og báðir aðilar hafi verið sammála um að óska eftir flýti- meðferð. Málið henti vel til að skera úr um réttaróvissu enda sé kröfu- gerðin skýr og taki á kjarnaatriðum varðandi vaxtakjör af gengistryggð- um lánum. Skuldari geri kröfu um að Lýsing greiði málskostnað en Lýsing geri ekki kröfu á móti um að fá málskostnað greiddan. Lýsing greiðir máls- kostnað Eyrún Magnúsdóttir eyrun@mbl.is Jón Ásgeir Jóhannesson og Ingi- björg Pálmadóttir greiddu upp lán vegna glæsiíbúða á Manhattan- eyju í New York að verðmæti 10 milljónir dala í maí síðastliðnum. Þetta kemur fram í dómsskjölum sem aðgengileg eru á vef æðsta dómstóls New York-ríkis. „Ég get ekkert tjáð mig um þetta mál,“ sagði Steinunn Guð- bjartsdóttir, formaður slitastjórnar Glitnis. Slitastjórnin rekur nú mál gegn þeim og viðskiptafélögum þeirra fyrir dómstóli í New York. Steinunn kvaðst ekki geta svar- að því hvort slitastjórn hefði vitað af því að hjónin ættu 10 milljónir dala, eða jafnvirði um 1,3 milljarða íslenskra króna, á bankareikningi. Slitastjórn Glitnis stefndi Jóni Ásgeiri, Ingibjörgu og fimm öðrum 12. maí sl. til greiðslu 256 milljarða króna og hefur farið fram á kyrr- setningu eigna. Í dómsskjölum sem dagsett eru þann 18. júní síð- astliðinn er vitnað í Michael Miller, einn af eigendum lögfræðiskrif- stofunnar Steptoe and Johnson LLP í New York sem starfar við ráðgjöf fyrir slitastjórnina. Þar fullyrðir Miller að lán með veð í íbúðum Jóns Ásgeirs og Ingibjarg- ar á Manhattan hafi verið greitt „um miðjan maí“. Lánveitandi hafi verið Royal Bank of Canada og lánið hafi verið greitt með fé sem tekið hafi verið út af reikningum hjónanna í sama banka. Áttu 1,3 milljarða í banka  Greiddu upp 10 milljóna dala lán með innistæðu á kanadískum bankareikningi  Slitastjórn Glitnis gefur ekki upp hvort hún vissi um innistæðuna í RBC Staðreyndir » Málið er rekið af slitastjórn Glitnis fyrir æðsta dómstóli New York-ríkis. » Dómstóllinn heitir New York Supreme Court. » Vefur dómstólsins er: www.nycourts.gov/supct- manh/. » Einfalt er að slá inn leitarorð til að nálgast öll málsskjöl sem lögð hafa verið fram. Jón Ásgeir Jóhannesson Ingibjörg Pálmadóttir grænna svæða og gönguleiða. Hinn helmingur fjárins fer að mestu í við- haldsverkefni við leik- og grunn- skóla. Stærsti pósturinn sem skorinn er niður er liðurinn kaup vegna skipu- lagseigna. Fyrri meirihluti hafði ætl- að að verja 400 milljónum til upp- kaupa á eignum, s.s. eldri húsum til endurgerðar skv. upplýsingum frá framkvæmda- og eignasviði. Minna til bygginga á horni Austurstrætis og Lækjargötu Sóley Tómasdóttir, fulltrúi Vinstri grænna í borgarráði, lét bóka á fund- inum að hún setti fyrirvara við fjár- mögnun, „þar sem til stendur að tæma alveg þann sjóð sem borgaryf- irvöld hafa upp á að hlaupa vegna skipulagseigna“, eins og segir í fund- argerð. Dagur sagði að borgarráð hefði talið hæfilegt að skilja 30 millj- ónir eftir til þessara kaupa ef eitt- hvað sérstakt kæmi upp á en nýta 370 milljónir annars staðar. Til viðbótar við þá upphæð færir borgin 380 milljónir króna út úr fé- laginu Jörundi ehf. sem er í eigu borgarinnar og fer með eignarhald húsanna við Austurstræti 22 og Eyrún Magnúsdóttir eyrun@mbl.is Borgarráð samþykkti í gær tillögu borgarstjóra um 900 milljóna króna breytingar á fjárfestingaráætlun borgarinnar fyrir 2010 í því skyni að skapa störf. Þannig er áætlað að með því að ráðast í framkvæmdir og við- hald fyrir samtals 500 milljónir króna geti um 150 manns fengið vinnu til áramóta. Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs, segir að þau viðbótar- verkefni sem ráðist verði í verði boð- in út. Ekki bætist við 150 manns á launaskrá hjá borginni heldur sé um að ræða áætlaðan fjölda starfa sem skapist hjá verktakafyrirtækjum og öðrum sem vinni verkefnin. Eins og Morgunblaðið hefur greint frá verður 250 milljónum af þeim 500 sem nú hefur verið sam- þykkt að setja í sérstök átaksverk- efni varið til endurgerðar leikvalla, Lækjargötu 2. Að sögn Dags hefur hægst á framkvæmdum á þeim reit og því hafi verið talið vænlegra að nýta féð sem átti að fara í þær fram- kvæmdir í smærri verkefni víðar um borgina. „Við erum einfaldlega þeirrar skoðunar að borgin eigi að beita sér í atvinnumálum og ráðast af fremsta megni í framkvæmdir þegar at- vinnuleysi ríkir en draga heldur saman þegar atvinnuleysi verður orðið minna. Þetta er í raun klassísk kreppuhagfræði,“ segir Dagur. Stærsti einstaki liðurinn utan sér- stakra átaksverkefna er 200 milljón- ir til viðbótar við þær 500 sem voru á áætlun ársins vegna Norðlingaskóla. Á borgarráðsfundi í gær óskuðu sjálfstæðismenn m.a. eftir upplýs- ingum um áhrif breytts fasteigna- mats á rekstur borgarsjóðs. Þeir lögðu áherslu á að minni tekjum af þeim sökum mætti ekki mæta með auknum álögum á borgarbúa. „Klassísk kreppuhagfræði“  900 milljónir færðar til í áætlun borgarinnar til að skapa atvinnu við framkvæmdir og viðhald  Ekki skapast ný störf hjá borginni heldur verða verk boðin út  Fulltrúi VG setur fyrirvara við fjármögnun Breytingar á fjárfestingaráætlun Reykjavíkurborgar 2010 Hvar er skorið niður? Verkefni mínus Lækjargata 2/Austurstræti 22 380 Kaup á skipulagseignum 370 Ýmsar framkvæmdir/hönnun 35 Ýmis verkefni,mest skipulagstengd 30 Frestun Suðurlandsvegar 20 Götulýsing, endurnýjun 20 Hlíðarfótur 20 Leikskóli/grunnskóli Úlfarsfelli 20 Landfylling við Ánanaust 5 Samtals: 900 Tölur eru í milljónum króna Hvað bætist við? Verkefni plús Atvinnuátak 500 Norðlingaskóli 200 Hjúkrunarheimili Suðurlandsbr. 80 Tjarnarbíó 40 Eftirstöðvar frá fyrra ári 30 Losunarsvæði jarðvegs 20 Laugardalur, ýmis verkefni 15 Boltagerði 10 Austurberg, félagshús 5 Samtals: 900

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.