Morgunblaðið - 06.07.2010, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 06.07.2010, Blaðsíða 11
Ljósmynd/Guðmundur Tómasson Laus Eins og margir klifrar Viðar fetlalaus, þ.e. án banda sem er ætlað að festa ísaxir við úlnliði klifrara. Hér sést Viðar klifra Óríon, ísklifurleið í Flugugili í Brynjudal í Hvalfirði. Um 80 metrar eru niður þar sem myndin er tekin. Viðar segir að meira frelsi felist í að klifra fetlalaus. Það gerir alla vinnu þægilegri og hreyfingar frjálslegri. hans sem hann kynntist á ísklifur- námskeiðinu fóru saman í ísklifur í Múlafjall. Þar var ekki ráðist í auð- veldar byrjendaleiðir, eins og kannski hefði verið eðlilegt, og Við- ar klifraði strembnar IV-V gráðu leiðir (erfiðustu ísklifurleiðirnar eru af gráðu VI+). „Ég gerði mér alls ekki grein fyrir reynsluleysi mínu,“ segir hann. Flestir ættu að fara hægar í sakirnar og Viðar tekur fram að þótt hann hafi lítið stundað íþróttir á fullorðinsárum hafi hann alltaf verið frekar sterkur og at- vinnan, húsasmíði, haldi hon- um í góðu líkamlegu formi. Sefur varla fyrir ótta Klifurferillinn hjá Viðari tók síðan stökk veturinn 2007 þegar hann byrjaði að klifra með Ívari Finn- bogasyni, einum reynd- asta ísklifrara landsins. Eftir að þeir gerðust klifurfélagar urðu ísklifurleiðirnar lengri, brattari og einhver myndi segja háskalegri. Jafnframt hefur Ívar dregið Viðar með sér í svonefnt alpaklifur en þá er klifrað upp snarbrattar fjallshlíðar með allan búnað í bakpoka. Þekktustu alpaleiðirnar hér á landi eru líklega suðurhlíðar Hrútsfjallstinda og austurhlið Þverártindseggjar. Dæmigerð ísklifurferð er ákveðin að kvöldi, í ljósi veðurspár fyrir næsta dag og ýmissa atriða sem segja til um hversu sterkur ís hefur myndast í viðkomandi ísfossi. Það segir ákveðna sögu um hvað það er sem heillar við ísklifur að um leið og Viðar og Ívar hafa tekið ákvörðun um erfitt ísklifur fær Við- ar í magann. „Óttinn kemur. Ég varla næ að sofa um nóttina. En þetta breytist þegar við leggjum af stað upp fjallið, í átt að klifurleið- inni. Eftir því sem við nálgumst leiðina meira dvínar óttinn og þeg- ar við leggjum í leiðina þá hverfur hann. Það er eins og maður fari í annan heim. Ég er iðnaðarmaður og finn oft fyrir lofthræðslu en aldrei þegar ég er að klifra,“ segir Viðar en dregur svo örlítið í land. „Og þó, auðvitað finnur maður fyrir ótta þegar maður er kannski í miðri leiðslu, þreyttur og pump- aður.“ Í miðri leiðslu, segir Viðar, og á við að þegar menn fara fyrstir af stað upp ísfossinn kallast það að leiða klifrið eða leiðsluklifur. Í ís- klifri, eins og í flestum greinum íþrótta og útivistar, er allt morandi í orðum sem hafa sérstaka þýðingu fyrir innvígða. Annað dæmi er „spönn“ sem á klifurmáli þýðir sá hluti leiðar sem klifraður er fram að fyrsta stoppi. Hver spönn er yf- irleitt jafnlöng og hefðbundnar klifurlínur eða um 50 metrar (lengdin getur þó verið mjög mis- jöfn). Ofboðslega ógnvekjandi Erfiðasta og eftirminnilegasta leiðsla Viðars var í þriðju spönn í klifurleið sem ber nafnið Þilið og er í Eilífsdal, í norðurhlíð Esjunnar. Þilið er ein frægasta ísklifur- leið landsins. Fyrsta og önnur spönn eru ekki ýkja frábrugðnar öðrum ísfossum en frægðina hefur leiðin hlotið vegna þriðju spann- arinnar. Þegar Viðar og Ívar klifr- uðu fossinn 2008 leiddi Viðar fyrstu spönn og Ívar þá næstu. Þriðja spönninn kom síðan í hlut Viðars. „Hún er ógnvænleg. Ofboðslega ógnvekjandi,“ segir Viðar. Til að komast í Þilið þarf að ganga upp langa og bratta brekku áður en fyrstu tvær spannirnar taka við. Þriðja spönnin er á hinn bóginn að hluta til slútandi og fljótlega eru menn komnir út fyrir báðar fyrri spannirnar og ennfremur út fyrir brekkuna. „Þegar þú horfir niður í gegnum klofið á þér, þá horfir þú nokkur hundruð metra niður,“ seg- ir Viðar og er augljóst að þriðja spönnin er fræg að verðleikum. Viðar segir að tilfinningin sem helltist yfir hann þegar hann komst upp á topp hafi verið ólýsanleg. „Ég öskraði og lét öllum illum lát- um, einn upp á fjalli í roki og kulda. Ég fór í annan heim, þetta var ótrúleg tilfinning,“ segir hann. Það geti reyndar verið erfitt að lýsa henni fyrir fólki heima í stofu. Sæki námskeið Viðar hvetur alla þá sem hafa áhuga á ísklifri til að fara á nám- skeið því þar öðlist þeir bæði þekk- ingu og kynnist öðrum sem hafi áhuga á sportinu. Einnig sé grá- upplagt að ganga í Íslenska alpa- klúbbinn og taka þátt í dagskrá hans. Ísklifur sé frábær íþrótt, á færi allra sem séu í þokkalegu lík- amlegu formi og sjálfur hyggst hann klifra ísfossa fram yfir sjö- tugt. Alpar á Íslandi Viðar Helgason og Ívar Finnbogason á leið í suðurhlíð Hrútsfjallstinda en hún er ein flottasta „alpaleið“ á Íslandi. Daglegt líf 11 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚLÍ 2010 Þorvaldsdalsskokkið, elsta skipu- lagða óbyggðahlaup á Íslandi, um Þorvaldsdalinn var haldið í sautjánda skipti á laugardaginn var. Þátttaka var góð, en 55 annaðhvort gengu eða hlupu dalinn og 48 komu í mark áður en markinu var lokað kl. 16:00. Í kvennaflokki var metið slegið og kom Hólmfríður Vala fyrst í mark á tím- anum 2:21:33, önnur kvenna var Guð- björg Margrét Björnsdóttir á tím- anum 2:25:40 og í þriðja sæti var Sigríður Einarsdóttir á 2:29:45. Í karlaflokki var metið sömuleiðis slegið en þar kom Björn Margeirsson fyrstur í mark á tímanum 1:54:33, Stefán Viðar Sigtryggson var annar á tímanum 1:58:52 og í þriðja sæti var Sigurjón Sigurbjörnsson á 2:03:40. Óbyggðahlaup í Þorvaldsdal Tvö met slegin Met Hlauparar keppa sín á milli. n o a t u n . i s TVEIR 120G HA MBORGARAR MEÐ BEIKONI, OSTI OG BBQ S ÓSU 1 L PEPSI EÐA PEPSI MAX FYLGIR MEÐ ÞRIÐJUDAGST ILBOÐ Fljótlegt og gott í Nóatúni HM LÚXUS BORGARAR OG 1 L PEPSI KR./PK. 798 FRÓN KEX PÓLÓ OG CAFÉ NOIR 249 KR./PK. KEXSMIÐJAN VÍNARBRAUÐ 299 KR./PK. FRIES TO GO ÖRBYLGJU- FRANSKAR 479 KR./PK. NORMANDE BRAUÐ 249 KR./STK. NORDIC DELI LANGLOKUR 5 TEGUNDIR 20% afsláttur Ö ll ve rð er u bi rt m eð fy rir va ra um pr en tv ill u og /e ða m yn da br en gl Ísklifrarar þurfa að eiga töluvert af búnaði, s.s. ísaxir, mann- brodda, ísklifurskó, karabínur, ísskrúfur, tvista og svo mætti lengi telja. Eitt par af ísklifur- skóm er rándýrt og eftir gengishrun getur það kostað yfir 70.000 krónur. Ein ísskrúfa getur kostað 10.000 krónur. Viðar segir að vissulega sé búnaður- inn dýr en á móti komi að þörf á við- haldi sé tiltölulega lítil. Miðað við mörg önnur áhugamál sé ísklifur ekki dýrt. Gott að byrja fyrir hrun TÖLUVERÐAR GRÆJUR Viðar Helgason

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.