Morgunblaðið - 06.07.2010, Síða 28
28 MenningFRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚLÍ 2010
„… eitt sinn var Vopnafjörður
smábær, í kvöld er Vopnafjörður
frábær,“ sagði Haukur S. Magn-
ússon, gítarleikari hljómsveit-
arinnar Reykavík!, á Sumargleði
Kimi-Records í fyrrasumar. Fyrsti
hluti Sumargleðinnar í ár hefst ein-
mitt á morgun með tónleikum á Só-
dómu Reykjavík. Þar spila hljóm-
sveitirnar Morðingjarnir, Retron,
Swords of Chaos, Me, The Slumber-
ing Napoleon og Reykjavík!
Þaðan verður svo haldið austur í
Neskaupstað þar sem hljómsveit-
irnar koma fram á rokkhátíðinni
Eistnaflugi sem haldin verður í
sjötta sinn dagana 8.-10. júlí.
Sumargleði Kimi
fer af stað með látum
Fólk
Sigurður Eggertsson, grafískur listamaður, hefur
unnið við ýmiss konar verkefni síðan hann útskrif-
aðist frá Listaháskólanum 2006 og fyrir marg-
vísleg fyrirtæki úti í hinum stóra heimi. Núna síð-
ast vann hann verkefni fyrir Nike. „Þetta er sem
sagt samstarfsverkefni blaðs sem heitir The Fa-
der og Nike og hugmyndin er að fá sex plötu-
snúða úr sex heimsálfum til að búa til sex mix. Þá
er notast við tónlist úr hverri heimsálfu og mitt
hlutverk er að búa til koverið fyrir hvert mix. Ég
notaði dýr úr hverri heimsálfu til að vera fulltrúi
hennar á koverinu,“ segir Sigurður en hann hefur
unnið með Nike áður þegar þeir opnuðu nýja búð í
Harlem í New York.
Sigurður hefur lítið unnið á Íslandi en vinnan er
alþjóðleg og fjölbreytileikinn mikill. „Vinnan mín
er svolítið þannig að ég dett oft inn í nýja miðla
sem ég hef í rauninni enga kunnáttu á en ég redda
mér alltaf einhvern veginn, þannig að þetta er
mjög fjölbreytt og gaman.“ Hann hefur búið í
Berlín að undanförnu, en bjó þar áður í Lund-
únum og á Íslandi. „Ég fór til Berlínar í skiptinám
þegar ég var í Listaháskólanum og ég veit ekki al-
veg hvað það er við borgina. Það er bara svo auð-
velt að vera hérna, hlutirnir kosta ekkert mikið
og allt er rosalega stórt og vítt. Þjóðverjar eru
líka mjög beinskeyttir og vingjarnlegir. Mér leið
ekki vel í London, hún er of upptekin og grá.“
Verkefnin framundan eru margvísleg og ljóst
að Sigurður hefur mörg járn í eldinum um þessar
mundir. „Annars hef ég mest gaman af að vinna
fyrir sjálfan mig og gera það sem mig langar að
gera, það skiptir mig miklu meira máli en að
vinna fyrir einhver stórfyrirtæki. Það er bara til
að borga leiguna,“ segir Sigurður að lokum.
gea@mbl.is
Vann stórt verkefni fyrir Nike og The Fader
Slegist Eitt af veggspjöldunum fyrir Nike.
Hljómsveitin Seabear fagnar út-
komu annarrar plötu sinnar We
Built a Fire, sem kom út fyrr á
árinu, með veglegum útgáfu-
tónleikum næstkomandi föstudag í
Iðnó kl. 21. Til að hita upp fyrir út-
gáfutónleikana mun hljómsveitin
koma fram á ókeypis tónleikum í
hljómplötu- og listabúðinni Havarí
á fimmtudaginn kl. 17. Sveitin kom
fram á Iceland Inspires-tónleik-
unum í Hljómskálagarðinum í síð-
ustu viku og voru það fyrstu tón-
leikar Seabear hérlendis í nokkurn
tíma, en sveitin hefur verið dugleg
að spila erlendis það sem af er
árinu.
Seabear hitar upp í
Havarí á fimmtudag
Það verður nóg um að vera á
fjölskylduhátíðinni Húnavöku sem
fram fer um næstu helgi á Blöndu-
ósi. Meðal þeirra sem koma fram í
ár eru leikararnir Gói og Halli sem
sjá um að kynna fjölskylduskemmt-
un og kvöldvöku. Hellisbúinn verð-
ur sýndur í Félagsheimilinu á föstu-
dagskvöldinu. Ingó Veðurguð
kemur í heimsókn á fjölskyldu-
skemmtunina. Sálin hans Jóns míns
verður með stórdansleik á laug-
ardagskvöldinu og auk þess koma
fram Ari Eldjárn uppistandari og
eftirherma og Bjartmar Guðlaugs-
son. Föstu liðirnir verða á sínum
stað, eins og fjölskylduskemmtun,
kvöldvaka, bakkasöngur, fjöldagít-
arspil og söngkeppni fyrir börn.
Sérstakir gestir hátíðarinnar í ár
eru 25 krakkar úr Skólalúðrasveit
Seltjarnarness sem hefur lengi ver-
ið undir stjórn Blönduósingsins
Kára Húnfjörð Einarssonar.
Fjölbreytt fjölskyldu-
skemmtun á Húnavöku
Matthías Árni Ingimarsson
matthiasarni@mbl.is
Fyrir skemmstu kom út platan
Here, þriðja sólóplata tónlist-
arkonunnar Önnu Halldórsdóttur,
og er hún nú fáanleg bæði hér-
lendis og í Bandaríkjunum. Í til-
efni af útgáfunni voru haldnir vel
heppnaðir tónleikar á tónleika-
staðnum Delancey í New York-
borg, þar sem upptökustjóri plöt-
unnar, Davíð Þór Jónsson, kom og
spilaði með Önnu ásamt sellóleik-
aranum Sæunni Þorsteinsdóttur.
Anna hefur verið búsett í New
York undafarin sjö ár og unnið
þar við tónlist fyrir kvikmyndir og
auglýsingar.
Tekin upp á sveitabæ
Platan var tekin upp á tveggja
vikna tímabili í október á síðasta
ári á sveitabæ á Álftanesinu, þar
sem Davíð Þór Jónsson stjórnaði
upptökum.
„Það var frekar ótrúlegt hvern-
ig það kom til að við tókum hana
upp þarna á Álftanesinu. Ég sendi
tölvupóst á vini og vandamenn og
sagði þeim að ég vildi taka upp
plötu heima og hafa þetta pínu
óvenjulegt og í leiðinni aðeins
halda niðri kostnaðinum. Svo fékk
ég bréf frá vinkonu minni sem
sagði mér frá þessum sveitabæ á
Álftanesi sem væri ónotaður. Ég
ákvað að setja mig í samband við
bóndann á bænum og hann var
hinn elskulegasti og við fengum að
vera þarna í tvær vikur í eintómri
sælu,“ segir Anna.
Anna flaug til landsins með
tvær fullar ferðatöskur og svo
kom Davíð Þór með allt sitt haf-
urtask, sem Anna segir ekki
hafa verið neitt lítið af
græjum.
„Svo breyttum við bæn-
um bara í heimilislegt
stúdíó og fengum til
okkar góða
gesti.“
Góðir gestir
Fjöldi
góðra gesta
kom og lék
með Önnu
á plötunni. Þar á meðal Ólöf Arn-
alds, Leifur Jónsson, bróðir Dav-
íðs Þórs, Sveinn Rúnar Grím-
arsson, John Lehr, básúnuleikari
frá New York, og svo kom Sæunn
Þorsteinsdóttir sellóleikari til New
York þar sem lögð var lokahönd á
plötuna.
„Ég var ekkert smáheppin að fá
svona mikið af frábæru fólki með
mér,“ segir Anna. Platan var klár-
uð í febrúar síðastliðnum og er
Anna á fullu þessa dagana að
vinna að kynningu hennar.
Ísland í haust
– Verða haldnir tónleikar á Ís-
landi á næstunni?
„Ég er að vinna í því og það
verður vonandi með haustinu. Ég
er að fara í gegnum svo mikið með
Ísland núna, eins og dreifingu og
annað henni tengt. Ég er svona að
skoða hvernig það gæti gengið.
Spurning hvort ég kem heim með
bandið frá New York eða hvort ég
verð með einfaldari útfærslu af
bandinu heima. Mig langaði að
koma heim í sumar en ákvað að
vera í New York og fylgja plöt-
unni vel eftir hér.“
Fyrri plötur Önnu og sú nýja
eru nú komnar í sölu hjá tónlist-
arveitum á borð við Gogoyoko-
.com, cd-baby og iTunes. Ágóði
Here rennur til CED Society sem
er munaðarleysingjahæli fyrir
börn á Norður-Indlandi, rekið af
góðvini Önnu, búddamunknum
Lama Tenzin Chogyal.
Með tvær fullar ferðatöskur
Útgáfutónleikar Anna Halldórsdóttir tónlistarkona ásamt Davíð Þór Jónssyni á útgáfutónleikum á Delancey í New York á dögunum.
Anna Halldórsdóttir gefur út þriðju sólóplötu sína Platan tekin
upp á sveitabæ á Álftanesi Kemur til Íslands í haust og heldur tónleika
Árið 1996 gaf Anna út plötuna
Villtir morgnar og var í kjölfar-
ið valin bjartasta vonin á Ís-
lensku tónlistarverðlaun-
unum. Undravefurinn kom út
árið 1998 en hana tók Anna upp
í Danmörku ásamt Birgi Bald-
urssyni og Orra Harðarsyni.
Tónlist Önnu og hefur
mátt heyra í kvikmyndum á
borð við Kiran over Mong-
olia, The Fifth Season, Writt-
en by Gandhi og The Place.
Fyrri verk
ANNA HALLDÓRSDÓTTIR
Anna
Halldórsdóttir
Hljóðverið Anna tók upp plötuna Here á sveitabæ á Álftanesi.