Fréttablaðið - 21.11.2011, Blaðsíða 43
MÁNUDAGUR 21. nóvember 2011 23
NÝTT DOVE MEN+CARE
DOVE MEN+CARE inniheldur rakaeindir (micromoisture) sem hjálpa
húðinni að viðhalda eðlilegu rakastigi.
Í rakaeindunum eru olíur sem virka um leið og DOVE MEN+CARE
kemst í snertingu við húðina. Húðin verður ekki fitug viðkomu
heldur náttúrulega rök og mjúk.
LÁTTU ÞÉR LÍÐA VEL Í EIGIN SKINNI
Vesturhrauni 3 · 210 Garðabæ.
Sími 480-0030 · www.burstagerdin.is
- Í öll anddyri
- Hvaða stærð sem er
- Afgreidd á 2 dögum
• •
FÓTBOLTI Heiðar Helguson fór
á kostum þegar lið hans, QPR,
vann 3-2 sigur á Stoke í ensku
úrvalsdeildinni um helgina. Heið-
ar skoraði tvö markanna og er
nú alls kominn með fimm mörk
á tímabilinu. Heiðar er í 10.-
14. sæti yfir markahæstu menn
deildarinnar en hann hefur spil-
að minna en flestir aðrir í kring-
um hann á listanum og er því í
hópi efstu manna þegar kemur
að meðalfjölda mínútna á milli
marka.
Eins og sjá má á meðfylgjandi
töflu er Heiðar í hópi stórstjarna
þegar kemur að mínútu á milli
marka að meðaltali og slær við
mönnum eins og Wayne Rooney
og Rafael van der Vaart.
Heiðar skoraði fyrsta mark-
ið sitt á tímabilinu í leik gegn
Blackburn 15. október síðastlið-
inn en það var fyrsti leikur hans
í byrjunarliði á tímabilinu. Fram
að því hafði hann aðeins fengið
að spila í samtals 29 mínútur en
síðan þá hefur hann haldið sæti
sínu í byrjunarliðinu og meira að
segja aldrei verið skipt af velli.
Heiðar hefur þakkað knatt-
spyrnustjóranum Neil Warnock
traustið með því að skora alls
fimm mörk og er hann lang-
markahæsti leikmaður liðsins.
Heiðar er næstmarkahæsti
Íslendingurinn í sögu ensku
úrvalsdeildarinnar með 24 mörk.
Hann á enn nokkuð í land með að
ná Eiði Smára Guðjohnsen sem
skoraði 55 mörk í 211 deildarleikj-
um með Chelsea á sínum tíma.
Hann er nú hjá AEK í Grikklandi.
Heiðar hefur þó tekið fram úr
Eiði Smára, um stundarsakir að
minnsta kosti, þegar kemur að
meðalfjölda marka í leik. Heið-
ar hefur spilað 87 leiki og því
skorað 0,28 mörk að meðaltali í
leik. Meðaltal Eiðs Smára er litlu
minna, eða 0,26 mörk í leik. - esá
Heiðar Helguson í góðum félagsskap eftir að hafa skorað fimm mörk í aðeins sjö leikjum í haust:
Aðeins fimm hafa skorað oftar að meðaltali
ÖFLUGUR Heiðar Helguson fagnar einu
marka sinna í haust. NORDIC PHOTOS/GETTY
Mínútur á milli marka
1. Edin Dzeko, Manchester City 58,3
9 leikir; 10 mörk á 583 mínútum
2. Mario Balotelli, Manchester City 66,7
8 leikir; 6 mörk á 400 mínútum
3. Sergio Agüero, Manchester City 72,7
11 leikir; 10 mörk á 727 mínútum
4. Robin van Persie, Arsenal 76,4
12 leikir; 13 mörk á 993 mínútum
5. Demba Ba, Newcastle 91,8
11 leikir; 8 mörk á 734 mínútum
6. Heiðar Helguson, QPR 95,8
7 leikir; 5 mörk á 479 mínútum
7. Ivan Klasnic, Bolton 100,7
10 leikir; 6 mörk á 604 mínútum
8. Wayne Rooney, Man. United 102,3
11 leikir; 9 mörk á 921 mínútu
9. Yakubu, Blackburn 105,6
7 leikir; 5 mörk á 528 mínútum
10. Rafael van der Vaart, Tottenham 112
9 leikir; 6 mörk á 672 mínútum
11. Javier Hernandez, Man. United 117,8
11 leikir; 5 mörk á 589 mínútum
Enska úrvalsdeildin
Everton - Wolves 2-1
0-1 Stephen Hunt (36.), 1-1 Phil Jagielka (43.),
2-1 Leighton Baines (82.).
Manchester City - Newcastle 3-1
1-0 Mario Balotelli (40.), 2-0 Micah Richards
(43.), 3-0 Sergio Agüero (71.), 3-1 Dan Gosling
(88.).
Norwich - Arsenal 1-2
1-0 Steve Morison (16.), 1-1 Robin van Persie
(26.), 1-2 Robin van Persie (58.).
Stoke - Queens Park Rangers 2-3
1-0 Jonathan Walters (7.), 1-1 Heiðar Helguson
(21.), 1-2 Luke Young (43.), 1-3 Heiðar Helguson
(53.), 2-3 Ryan Shawcross (63.).
Swansea - Manchester United 0-1
0-1 Javier Hernandez (10.).
West Brom - Bolton 2-1
1-0 Jerome Thomas (15.), 1-1 Ivan Klasnic (20.),
2-1 Shane Long (55.).
Wigan - Blackburn 3-3
0-1 Yakubu Aiyegbeni (1.), 1-1 Jordi Gomez (6.),
2-1 Gary Caldwell (30.), 2-2 David Hoilett (59.),
3-2 Albert Crusat (87.), 3-3 Yakubu (98.)
Chelsea - Liverpool 1-2
0-1 Maxi Rodriguez (33.), 1-1 Daniel Sturridge
(54.), 1-2 Glen Johnson (86.)
Tottenham - Aston Villa í kvöld kl. 20.00
STAÐAN
Man. City 12 11 1 0 42-11 34
Man. United 12 9 2 1 29-12 29
Newcastle 12 7 4 1 18-11 25
Chelsea 12 7 1 4 25-17 22
Tottenham 10 7 1 2 21-15 22
Liverpool 12 6 4 2 16-11 22
Arsenal 12 7 1 4 25-22 22
Aston Villa 11 3 6 2 16-15 15
QPR 12 4 3 5 13-22 15
West Brom 12 4 2 6 11-17 14
Norwich 12 3 4 5 17-20 13
Everton 11 4 1 6 13-16 13
Swansea 12 3 4 5 12-16 13
Stoke City 12 3 3 6 10-22 12
Sunderland 12 2 5 5 14-13 11
Fulham 12 2 5 5 14-15 11
Wolves 12 3 2 7 13-20 11
Bolton 12 3 0 9 19-29 9
Blackburn 12 1 4 7 16-27 7
Wigan 12 1 3 8 10-23 6
Spænska úrvalsdeildin
Barcelona - Real Zaragoza 4-0
1-0 Gerard Pique (19.), 2-0 Lionel Messi (43.),
3-0 Carles Puyol (54.), 4-0 David Villa (75.).
Valencia - Real Madrid 2-3
0-1 Karim Benzema (20.), 0-2 Sergio Ramos
(72.), 1-2 Roberto Soldado (75.), 1-3 Cristiano
Ronaldo (79.), 2-3 Roberto Soldado (83.).
ÚRSLIT