Framsóknarblaðið


Framsóknarblaðið - 20.12.1969, Qupperneq 7

Framsóknarblaðið - 20.12.1969, Qupperneq 7
Jón R. Hjálmarsson, skólastjóri’ Selfossi, Véf réttin í Delfi Löngunin til að sjá fyrir ó- orðna hluti og ráða gátur fram tíðarinnar er vafalaust jafn- gömul mannlegri hugsun. Og þessi löngun hefur fylgt mönn unum allt til vorra daga, því að við verðum jafnvel vör ýmissa tilhneyginga í þessa átt nú á tímum vísindanna og mikils raunsæis. Nægir í því sambandi að minna á að hér í voru landi er til fólk, sem jafnvel hefur atvinnu af að segja viðskiptavinum sínum, hvað sé framundan á ævi- brautinni. En hvað um þá tegund spá- dóma má segja, verður því ekki á móti mælt, að á öllum öldum hafa menn verið mis- munandi glöggir við að átta sig á framtíðinni og ráða rún ir ókominna atburða. í forn- sögum íslendinga segir frá mörgum mönnum, er sáu fyr- ir og sögðu frá. hvað koma mundi eins og t.d. þeir Njáll á Bergþórshvoli og Gestur spaki í Haga. Maður sem líkt og þeir sáu fram í tímann nefndist forvitri. Spásagnir eru austurlenzk- að uppruna og voru mjög tíðkaðar í hinu forna Babylon iuríki og fleiri þeim menning arlöndum, er fyrst koma fram á sjónarsviðið í dagrenningu sögunnar. Þar lærðu vitring- ar snemma að spá í stjörnur og ráða út frá gangi himin- tungla örlög manna og ókom- in tíðindi. Frá Austurlöndum breidd- ist þessi kunnátta út, er menn ing tók að eflast hjá Evrópu- þjóðunum suður við Miðjarð- arhaf. Grikkir og Rómverjar töldu að guðirnir, gætu með ýmsum hætti látið mennina vita um ókomna atburði. Tóku þeir mark á fjölmörg- um fyrirbærum í náttúrunni, J er þeir álitu gefa vísbend- ingu um aðvaranir eða vilja guðanna, eins og t.d. flugi fugla, fari eldinga, veðragný og mörgu öðru. Rómverskir hershöfðingjar höfðu lengi vel með sér á herferðum hin svo nefndu heilögu hænsni, er gáfu til kynna með hegðun sinni hversu leiðangrinum mundi vegna. Ef hænsnin voru hress og dugleg að borða var það merki um að hern- um gengi allt að óskum, en væru þau dauf og lystarlaus þótti alls ekki ráðlegt að leggja til orrustu. Hjá þessum fornþjóðum var yfirleitt venja að engar ákvarðanir í mál- efnum ríkisins væru teknar nema að grennslast fyrst eft- ir, hvort velþóknun guðanna værir fyrir hendi. Og í einka málum var heldur ekki ráð- legt að flanna að neinu, t.d. að gifta sig, leggja upp í ferða lsg, sá í akur eða kaupa bú- fé, án þess fyrst að hafa spurt um álit æðri máttarvalda. Á nokkrum stöðum í þess- um fornaldarríkjum var svo til hagað að menn gátu fengið munnlega vitneskju um ó- orðna hluti og jafnvel skila- boð frá guðunum fyrir milli- Jón R. Hjálmarsson göngu spápresta. Þess háttar fyrirbæri nefndust véfréttir og hin frægasta þeirra allra var véfrétt Appollós í Delfi- í héraðinu Fókis í Grikk- landi. Delfi var aldrei nein stórborg, en hún stóð á und- urfögrum stað, í grænni hlíð við rætur hinnar snarbröttu svörtu hamra Parnassfjalls með útsýn suður yfir bláan Kórinþu - flóann til snævi krýndra fjalla Pelopsskaga. Véfrétt hafði verið í Delfi frá elztu tímum grískra manna í Hellas og ef til vill lengur. Framan af var véfrétt þessi í nafni gyðjunnar Demeter, sem var tákn frjóseminnar og móður jarðar. En snemma á öldum varð Demeter að þoka fyrir Appolló, er varð þar brátt allsráðandi. App- olló var elzti sonur Zeivs himnaguðs með Letó og einn allra þýðingarmesti guðinn í grískum trúarbrögðum. Hann var guð réttlætisins og feg- urðar, ljóss og æsku, söngs, og ljóðlistar, spásagna og vé- frétta. Véfréttir Appollós voru allvíða í hinum gríska heimi eins og t.d. á eynni Del os, þar sem guðinn fæddist en enginn þeirra jafnaðist þó á við spásagnasetrið í Delfi. Eftir að Appolló varð alls- ráðandi á þessum stað, leið ekki á löngu þar til borgin varð, trúarleg miðstöð allra grískra manna, þvi að spá- prestar Appollós brýndu fyr- ir fólki að sýna guðunum hlýðni og undirgefni og að virða vilja þeirra í stóru og smáu. Véfréttin lagði áherzlu á nauðsyn þess að halda sér hreinum frá blóðsúthelling um og krafa guðanna um hreinleika af illum verkum varð einnig að kröfu á siðgæðislegum hreinleika.. Samkvæmt boðum Appollós skyldu menn og virða lög og rétt og vann því véfétt hans bæði að siðgæðislegum og þjóðfélagslegum umbótum í hinum grísku borgríkjum. Appolló var því algjör and- stæða hins dularfulla og ó- reiðusama guðs gleðinnar, víns ins og hinna frumstæðu hvata Dýonýsosar eða Bakkusar eins og menn nefna hann oftast. Um þekkingu og mátt Ap- polló segir gríska skáldið Pindar um 500 f.Kr.: „Hann veit, hversu mörg blöð grænka á hverju vori og hve mörg sandkorn vindar loftsins og bylgjur hafsins ná að hræra. Iiann veit um allt, sem koma skal og hvaðan það kemur. Hann þekkir upphaf og enda- lok allra hluta.“ Véfrétt Ap- pollos í Delfi gaf fyrst og fremst svar við hinni knýj- andi spurningu um það, hvern ig menn öðluðust frið^ við guð- ina. En það var margt annað sem spáprestarnir fylgdust með og höfðu áhrif á eins og trúarbrögðin , er sífellt voru að taka breytingum. Þá var venja að bera það undir álit þeirra, ný lagafyrirmæli, sem þeir ýmist höfnuðu eða lögðu yfir blessun guðanna. Og eitt verkefni þeirra var að fylgj- ast með og leiðrétta tímatalið. Þá hefur verið sagt að í raun- inni hafi spáprestarnir í Del- fi stjórnað því, hvar grískir menn stofnuðu nýlendur sín ar hundruðum saman víðs- vegar við Miðjarðarhafið og Svartahaf, því alltaf var venja að leita álits véfréttarinnar áður en borgríki gerði út leið angur til nýlendu stofnunar. Delfi varð því á margan hátt miðstöð í hinum gríska heimi og því táknrænt fyrir stöðu þess forna spásagnaseturs, gagnvart umheiminum að í hofi Appollós í borginni var varðveittur einn af helgidóm- um guðsins, en það var mar- marasteinn omfalos eða nafla steinninn sem sagður var vera miðdepill jarðarinnar. í Delfi voru margar glæst- ar byggingar og má þar til nefna geysmikið hringleika- hús með sætum fyrir 5000 á- horfendur. Þar var og íþrótta- völlur, er á voru háðir marg- víslegir kappleikir til heiðurs Appolló og leikir þessir voru svo frægir í Hellas, að þeir stóðu engum að baki, nema hinum svo nefndu ólympsku- [ leikjum. En frægast staðurinn í Delfi' var hið mikla hof Appollós, þar sem véfrétt hans hafði að setur. Musteri þetta var að sögn reist yfir sprungu í fjallinu og upp úr sprungu þessari steig deyfandi gufa. Spásagn- ir fóru fram á ákveðnum tím- um og voru venjulega á 7 degi hvers mánaðar, en sjö var hin heilaga tala Appoll- ós. Spásagnir voru fram- kvæmdar af hofmeyjum, er nefndust Pyþíur eftir hinu forna heiti á Delfi, sem var Pýþó. Rík áherzla var lögð á hreinleik þessara hofmeyja. Auk þeirra voru í musteri Appollós spámenn og prestar sem báru veg og v^nda af, að orð guðsins væru túlkuð rétc. Þegar gest bar að garði, er spyrja vildi guðina ráða eða komast fyrir óorðna hluti, hófst athöfnin með því, að hofmærin tuggði lárberja lauf og drakk með af helgu vatni, er þar spratt úr jörðu. Síðan settist hún á þrífættan stól yfir sprungunni í berg- *%**■«*> 8amla "m burT, Gullfossi Æ Feröizt í jólaleyfinu. - Njótiö hátíöurinnar og áiamólanna um hoió i Gullfossi. - Áramótadansleilíur um horö í skipinu á siglingu i Kielarskuröi. - Skoöunar- og skemmtiferöir i hveui viökonmhöÍ!i. ió DAGA FERÐ - FARGJALD FRA KR.'f J.0UU,oo TIL KR. 21393,00 Söluskattur.fœöi og þjónuslugjald innifaliö. FERÐAAÆTLUN: FRA REYKjaVÍK 23. des. 196<J I AMSTFRDAM 27. og 28. des. t IIAMBOKG 29., 30. og 31. des. í KAUPMANNAH ÖFN 1., 2. og 3.^n. 1970 TIL REYKJAVÍKUR 7. jan. 1970 Njótið þess að ferðast FerÖizt ódýrt - Ferðizt nieö Gullfossi ALLAk NÁNARI UPFLYSINGAR VUTIR; FERÐASKRIFSTOFA EIMSKIPS, SÍMI 21460 H.E EIMSKIPAFÉLAG ÍSLANDS

x

Framsóknarblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Framsóknarblaðið
https://timarit.is/publication/795

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.