Framsóknarblaðið - 20.12.1969, Page 19
-JÓLABLAÐ FRAMSÓKNARBLAÐSINS 1969
Gamla benkahúsið að Heimagötu 1.
hér í Eyjum voru að Stein-
holti (Kirkjuvegur 9) og
hafði stofnunin til umráða
2 herbergi og kompu inn af
forstofunni. Um áramótin
1923 — 1924 flutti bankinn í
Tungu, þar sem nú er Hótel I
Hamar. Var það húsnæði
miklu rýmra og auk þess ör-
uggara ,þar sem þar var um
steinbyggingu að ræða.
Þann 1. apríl hóf svo ís_
landsbanki starfsemi í nýj-
um húsakynnum að Heima- j
götu 1. Þar var bankinn síð_ |
an til húsa þar til hann
flutti 2. febrúar 1956 í eigið
húsnæði, glæsilega byggingu
að Kirkjuvegi 23. Húsnæðis-
mál bankans eru saga út af
fyrir sig ,sem ekki verður
rakin hér.
Fyrsti bankastjóri hér var
Haraldur Viggó Björnsson
og starfaði hann frá 1919 til
1946. Þá tók við Bjarni Sig-
hvatsson til 1953. Síðan Bald
ur Ólafsson til 1968. Þá tók
núverandi bankastjóri, Ólaf-
ur Helgason við bankastjóra
starfinu.
Guðmundur Ólafs, lögfræð
TILKYNNIN6
Samkvœmt reglugerö nr. 258 frá 7.
des. J9S4 má enginn selja flugelda eða
aöra slíka skotelda, nema hann hafi
fengiö til þess leyfi hlutaöeigandi
slökkviliösst jóra.
öllum flugeldum og öörum slíkum
ingur, gegndi hér starfi úti-
bússtjóra stuttan tíma eftir
lát H. V. Björnssonar 1946.
Þá veitti Hilmar Stefánsson,
síðar bankastjóri Búnaðar-
banka íslands, útibúi Lands-
Dankans forstöðu meðan það
starfaði. Alls hafa 51 — 22
konur og 29 karlmenn — ver
ið fastráðin við útibúið hér
í Vestmannaeyjum. Lengst-
an sterfsaldur hafa að baki
sér:
Framsóknar.
blaðið
Ritnefnd:
Sigurgeir Krisljánsson
Jóhann Björnsson, áb.
Afgreiðslu annast:
Sveinn Guðmundsson
Gjaldkeri:
Hermann Einarsson
Jóhannes Tómasson, 26 ár.
Jakob Ó. Ólafsson, 23 ár.
Sighv. Bjarnason, 21 ár.
Ólafur Helgason, 17 ár .
Hjálmar Eiðsson, 15 ár.
Eg ,sem þessar linur rita
hefi ekki við hendina upp-
lýsingar varðandi veltufé
bankans hér, útlán eða inn-
lán. Hinns vegar er það ljóst,
að með stofnun útibúsins
fengu menn aukinn aðgang
að fjármagni, sem þeir nýttu
í þágu útgerðarinnar með
þeim árangri ,að Vestmanna-
eyjar urðu mesti útgerðar-
bær landsins.
1929 voru gerðir út 97 bát-
ar, en þeir voru 22 árið 1907.
Samfara aukningu skipastóls
ins óx aflamagnið, sem leiddi
af sér margvíslegar fram-
kvæmdir og uppbyggingu í
landi. Þar var bankinn einn
snar hlekkur í keðjunni.
Fjármagnið er afl fram_
kvæmdanna svo sem kunn-
ugt er. Síðar ,þegar frystihús
in og fiskiðnaður í sambandi
við þau kom til sögu ,fékk
bankinn enn stærra hlutverki
að gegna. Þá hefur bankinn
haft allmikil viðskipti við
bæjarfélagið.
Árið 1943 var Sparisjóður
Vestmannaeyja, sá er nú
starfar, stofnaður og hefur
samstarf milli þessara
tveggja stofnana verið með
ágætum.
í tilefni fimmtíu ára afmæl
is -bankans afhenti banka
stjórinn, Ólafur Helgason,
bæjarstjórn 300.000,00 kr., sem
verja skal til væntanlegs
Fiskiðnskóla., sem áhugi er
fyrir að stofna hér í Eyjum.
Takist það hins vegar ekki
Bjarni Sighvatsson.
verði fjárhæðinni varið til
Stýrimannaskólans. Er hér
um rausnarlega gjöf að ræða,
sem stefnir að þvi að mennta
starfsfólkið er vinnur hér
við fiskiðnað, í því skyni að
framleiðslan verði betri og
verðmeiri.
Hér í upphafi þessara sund
urlausu þanka um bankastarf
_semi hér í Eyjum var minnst
á stóra drauma aldamóta-
skáldanna. Nú, þegar fer að
liða á öldina hafa sumir
þeirra orðið að veruleika.
Þær „gnóttir lífsins linda“,
sem Einar talar um í íslands-
ljóðum hafa verið nýttar í
þágu þjóðarinnar. Uppbygg-
ing hér í Vestmannaeyjum
talar sínu máli um það.
Bankastarfsemi hér í fimm-
í|íu ár er þarfur þáttur í
þeirri þróun. Mikið starf,
sem á því sviði hefur verið
unnið vildi ég hér með
þakka og óska Útvegsbanka
íslands allra heilla á þessum
tímamótum.
Sigurgeir Kristjánsson.
skoteldum sem haföir eru til sölu,
skulu fylgja prentaöar leiöbeiningar
reglur á íslenzku og skal þess sérstak
lega getiö, ef óráölegt þykir aö börn
innan 16 ára aldri hafi þá undir hönd-
um, og er þá sala eöa afhending til
þeirra meö öllu óheimil.
Bannaö er aö selja flugelda og annas konar
skotelda til almennings nema á tímabilinu 27.
desember til 6. janúar, að báðum dögum meö-
töldum.
Bann þetta nœr þó ekki til skipa,
björgunarsveita eöa annarra aöila,
sem líkt stendur á um.
Bannaö er að hafa til sölu flugelda
sem eru meira en tveggja ára gaml-
ir.
Þetta tilkynnist hér meö hlutaöeig-
endum til eftirbreytni.
Bœjarfógeti.
Ostur
á jólaborðið
OSTA- OG SM3ÖRSALAN