Framsóknarblaðið - 23.01.2003, Blaðsíða 11

Framsóknarblaðið - 23.01.2003, Blaðsíða 11
F umlausir Á hraðri leið út á Heimagötu. Margar sögur eru til af einkennilegri hegðun sumra þessa margfrægu gosnótt. Menn tóku með sér hina ýmsu skrítnu hluti eða verkfæri, sem þeir skildu svo ekkert í, af hverju þeir hafi einmitt gert það. Flestir íbúa héldu einfaldlega ró sinni og gerðu það sem skyldan bauð þeim. Margir hafa minnst á, að er Surtseyjagosið var, hafi það einhvern veginn greipt sig inn í hug Eyjamanna að gos á eyjunni eða nálægt henni gæti alltaf gerst. Einmitt þess vegna hafi margir haft einhvem vara á sér og jafnvel skipulagt það með sjálfum sér, hvað gera skildi ef gos brytist út, á eða við Heimaey. Það hafi blundað í undirmeðvitund margra hvað og hvemig haga ætti sér við slíkar aðstæður. Það rennir stoðum undir þessa skýringu, hversu ömggir og fumlausir íbúar bæjarins voru þessa örlagaríku nótt. Það hafði mikið að segja um hversu flutningarnir á fólki gengu vel fyrir sig sem og annað. • Móttökurnar er við Vest- mannaeyingar fengum er við komum upp á land voru hreint út sagt frábærar og verður full- seint þakkað fyrir allt það er gert var. Gosnóttina er bátarnir komu til Þorlákshafnar voru hjálp- arsveitir til staðar. Rútur voru klárar að flytja alla til Reykjavíkur. Þar var farið í skóla og allir skráðir og fengu hressingu. íslendingar eru ein þjóð og kom það vel í ljós þessa örlagaríku daga. • Hann kom labbandi í rólegheit-um niður á bryggju gosnóttina með hjólbörur. I börurnar hafði hann komið fyrir því merkasta og því bráð- nauðsynlegasta er hann taldi að hann þyrfti að hafa með sér. Já, okkar maður ætlaði sko ekki að skilja nýja sjónvarpið eftir. • Eldri kona kom niður á bryg- gju. Henni var hjálpað um borð í einn bátanna. Hún hélt á plast- poka. Sú gamla var nýbúinn að fá sér glænýja hárkollu og ætlaði að sjálfsögðu að hafa hana með upp á land. • Svo var það einn stórfrændi Vestmannaeyinga er bjó í Reykjavík og var ákaflega stoltur af uppruna sínum. Konan vakti hann gosnóttina og sagði honum frá því að það væri byrj- að að gjósa í Eyjum. Já, já sagði hann og sneri sér á hina hliðina. Um morguninn er hann loksins vaknaði brá honum heldur betur í brún og mundi eftir samtalinu um nóttina. Hann sneri sér að konunni og sagði „og eru þeir þá allir kannski dauðir”. • Sumt má ekki segja eins og t.d. er við vorum á einum vörubflnum og unnið var við að bjarga búslóðum úr mörgum húsum og flytja niður á bryggju. Við byrjuðum í einni ónefndri götu (það var á Hólagötunni) svo var hafist handa við að bera út, komu þá ekki 11 kassar af þessum fína Tuborg bjór upp úr brunninum og eitthvað af sterku. Þetta kom sér vel og hressti björgunarmenn við. Svo komum við að næsta húsi, þá gerist bara nákvæmlega það sama. Björgunarmenn voru í fínu lagi og það var unnið langt fram undir morgunn. • Tveir virðulegir borgarar í bænum voru að hjálpa vini sínum að bera búslóðina út á vörubíl og voru langt komnir með verkið. Þeir taka á milli sín dýrindis sófa úr plussi og fíniríi, leggja af stað með hann út, þá hefst mikið gjóskufall. Það er engum blöðum um það að fletta, sófinn stóð í ljósum logum og brann glatt og hratt. Það var aldrei sest í þann fína sófa aftur. En teppið úr stofunni var notað til að hlífa því sem komið var upp á bfl. Það teppi var heldur aldrei notað aftur. • Menn kölluðu nú ekki allt ömmu sína í gosinu eins og eftirfarandi saga ber með sér: Rótgróinn Eyjamaður er búsettur var í austurbænum stóð og starði á eldgosið og mikilfen- gleika þess. „Magnað sagði hann, alveg stórmagnað. Otrúlegt, alveg ótrúlegt. Einstaklega er þetta mikilfeng- legt. Á meðan brann húsið hans á augabragði. • Viðlagasjóðshúsin. Fljótlega var hafist handa við að reisa inn- flutt hús víðsvegar um landið á vegum Viðlagasjóðs. Margir muna eftir gámahverfinu er var í Hveragerði. Ölfusborgir voru fullar af Vestmannaeyingum allt sumarið. Stór hverfi voru reist af viðlagasjóðshúsum á Selfossi. Reykjavfk (kardimommubær- inn). I Keflavík. Þorlákshöfn. Hafnarfirði. Garðinum. Eyrar- bakka, Stokkseyri, Hellu, Akranesi og víðar voru sett niður hús. Varnargarðurinn. Lá frá gosstöðvunum og vestur Urðarveg. Eftirtaldir aðilar styrkja útgáfuna SKYLIÐ FRIÐARHÖFN SKELJUNGUR Deloitte 3DÍSFÉLAG VESTMANNAEYJA HE HÖLLIN Yeistu-og Ráðstefnuhús ueioiue / &Touche Sm,m VINNSLUSTOÐIN DRIFANDI HITAVEITA SUÐURNESJA hf. '&ctffyútýcluei&Ulácvi bh BERGUR-HUGINN ISLANDSBANKI GEl: « SPARISJOÐUR VESTMANNAEYJA 1 Land) KAUPÞiNG KUTMAGAKOT SAMSK.lt* (fsso) LIFEYRISSJOÐUR VESTMANNAEYJA EIMSKIP (cmfifít 01 9 ■ vestmannaeyiar viking tourr HÚSASMIÐJAN KLETTUR Strandvegi JR verktakar

x

Framsóknarblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Framsóknarblaðið
https://timarit.is/publication/795

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.