Morgunblaðið - 11.11.2010, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 11.11.2010, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ | 7 Ef stemning er fyrir því hjá starfsfólkinu getur verið mjög skemmtilegt að fólk komi með jólakökur og gotterí í vinnuna. Á mörgum heimilum eru bökuð kynstur af smákökum og ugglaust einhverjir bakarar á vinnustaðnum sem vilja láta ljós sitt skína. Jafnvel má gera úr þessu lítinn viðburð þar sem sest er niður í rólegheitum, þægi- leg jólalög sett á fóninn, og kannski borið fram kalt jólahlaðborð. Með nokkra góða osta við höndina, graflax, eðalskinkur, paté, sultur og jólasíld tekur enga stund að galdra fram prýðilegt veisluborð. Svo má ekki gleyma maltölinu og kannski jafnvel skenkja vín í glös og skála fyrir jólunum.Morgunblaðið/Kristinn Morgunblaðið/Kristinn Kalt jólaborð á örskotsstundu Á mörgum vinnustöðum er rólegra yfir jólin. Þá er fjarska skemmtilegt að taka frá part úr degi til að gera eitthvað létt og jólalegt. Slík uppákoma getur hrist hópinn betur saman og létt lundina hjá öllum. Sumir bjóða starfsfólkinu út að borða í langan hádegismat og dreifa jafnvel litlum glaðningum í leiðinni. Aðrir velja að fara í litla óvissu- eða skemmtiferð. Innlit í Keiluhöllina í Öskjuhlíð eða á Go- kart-völlinn er eitthvað sem allir hafa gaman af. Svo má líka taka upp á því að baka á vinnustaðnum, ef aðstaða er til. Í betri bakaríum má fá tilbúið piparkökudeig og það er skemmtileg afþreying að skera út kökur og skreyta með vinnufélögunum. Ekki skemmir fyrir ef vinnurýmið fyllist af yndislegum piparkökuilmi. Þar sem ekki er ofn til afnota má föndra konfekt og þarf ekki mikið meira en marsípan- massa, hnetur og núggat í einfaldar en góðar konfektuppskriftir. Súkkulaði- hjúpinn má hita á rafmagnshellu eða jafnvel í örbylgjuofninum. Morgunblaðið/Jakob Fannar Brugðið á leik á aðventunni Jólagjöfin verður alltaf hlýlegri ef hún er höfð persónuleg. Hægt er að velja klass- íska matarkörfu fyrir starfsfólk eða við- skiptavini en kjörið að bæta kannski við einum hlut sem tengist viðtakandanum sérstaklega. Kassi af góðum golfkúlum eða skemmtileg kylfuhlíf er t.d. tilvalinn glaðningur handa golfáhugamanninum. Áttaviti eða vandaður vasahnífur hentar að sama skapi útivistarmanninum og kemur örugglega í góðar þarfir. Ef þú veist að barn er á heimilinu má lauma í körfuna leikfangi eða barna- teiknimynd og ef einn fjölskyldumeðlim- urinn er fjórfættur og loðinn er upplagt að með öllum jólamatnum fylgi eins og eitt gott nagbein eða katnip-leikfang. Morgunblaðið/Ómar Eitthvað per- sónulegt í pakkann

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.