Morgunblaðið - 03.01.2011, Side 1

Morgunblaðið - 03.01.2011, Side 1
M Á N U D A G U R 3. J A N Ú A R 2 0 1 1  Stofnað 1913  1. tölublað  99. árgangur  MÁNI OG MAJA ÚTSKÝRA HVERN ÞÁTT LÍKAMINN TALDI ÞETTA ÓMÖGULEGT ROBYN GERÐI ÞAÐ GOTT Á AIRWAVES HEILSA 6 BESTU TÓNLEIKARNIR 25FRAMBURÐARÆFINGAR 10 Reuters Vatnselgur Í borginni Bundaberg. Talið er að tjónið hlaupi á þúsundum milljarða króna í mestu flóðum sem sögur fara af í Queenslandsríki í Ástralíu. Spáð var þrumuveðri í dag og voru gefnar út viðvaranir um að vatnshæðin myndi víða aukast enn frekar og jafnvel slá fyrri met. Tveir eru taldir af í hamförunum en umfangið er slíkt að tjónið mun ekki koma að fullu fram fyrr en að nokkrum vikum liðnum. Þannig er gert ráð fyrir að vatna- vextirnir valdi vandamálum út jan- úarmánuð en þá mun taka við mikið endurreisnarstarf. Er jafnvel talið að það muni taka allt að tvö ár að vinna upp tjónið af flóðunum. Björgunarsveitir hafa verið undir miklu álagi og er liðsauki á leiðinni frá öðrum landshlutum. »15 Gífurlegt eignatjón Kaplaverksmiðja » Fyrirhugað að festa kaup á kaplaverksmiðju í Noregi og flytja hana til Seyðis- fjarðar. » Kaplaverksmiðjan mun skapa 20-30 ný störf á Seyð- isfirði. Áætlað er að flytja kaplana út með ferjunni Nor- rænu. Þórður Gunnarsson thg@mbl.is Stefnt er að því að ljúka fjármögnun innan þriggja mánaða á kaplaverk- smiðju sem rísa mun á Seyðisfirði. Þetta segir Ólafur H. Sigurðsson, bæjarstjóri Seyðisfjarðar, í samtali við Morgunblaðið. Unnið hefur verið að því að koma á koppinn kaplaverk- smiðju á Seyðisfirði um þriggja ára skeið. „Fyrir jól var gert tilboð í verksmiðju sem er í Noregi. Við reiknum ekki með öðru en að því verði tekið. Um er að ræða 50 ára gamalt fyrirtæki í öflugum rekstri,“ segir Ólafur við Morgunblaðið. Að hans sögn nemur fjárfestingin um 1,2 milljörðum króna, en fyrirhugað er að þar af verði 800 milljónir í formi hlutafjár. Engrar fjárhagslegrar rík- isaðstoðar mun njóta við í verkefn- inu, sem leitt hefur verið af Þróun- arfélagi Austurlands og fyrirtækinu Álköplum. Ólafur segir að 5.000 fermetra hús- næði þurfi undir verksmiðjuna. „Mögulega verður verksmiðjan sett upp í húsnæði sem tilheyrir Síldar- vinnslunni, en ekki er víst hvort sú leið verður farin. En þetta mun skapa 20-30 ný störf á Seyðisfirði. Mestu máli skiptir þetta fyrir vinnufúsar hendur, en því er heldur ekki að neita að þetta mun auka útsvarstekjur bæjarsjóðs verulega,“ segir Ólafur. „Lykillinn að þessu öllu saman er að fá vírana frá álverinu á Reyðarfirði, nálægðin við álverið gerir þessa starfsemi mögulega á Seyðisfirði. Við gerum ráð fyrir því að kaplarnir verði síðan fluttir út með Norrænu.“ Færa verksmiðju í heilu lagi frá Noregi til Seyðisfjarðar  Fyrirhuguð 1,2 milljarða fjárfesting  Mun skapa tugi starfa fyrir Seyðfirðinga Þórður Gunnarsson thg@mbl.is Ráðist var á mann fyrir utan skemmtistaðinn Monte Carlo á Laugaveginum klukkan 2.30 aðfara- nótt gærdagsins. Var maðurinn sleg- inn þungu hnefahöggi í andlit og lá í gærkvöldi þungt haldinn á gjörgæslu- deild Landspítalans. Við vinnslu þess- arar fréttar var maðurinn enn í lífs- hættu. Ekki er talið að um undan- farandi átök hafi verið að ræða og árásin tilefnislaus. Árásarmaðurinn var handtekinn skömmu eftir árásina og játaði verkn- aðinn í gærkvöldi. Samkvæmt upplýs- ingum frá lögreglunni á höfuðborg- arsvæðinu telst málið upplýst. Maðurinn var í samráði við ákæru- valdið látinn laus eftir yfirheyrslur, laust fyrir klukkan 22 í gærkvöldi. Liggur þungt haldinn eftir til- efnislausa árás á í miðbænum  Árásarmaðurinn var látinn laus eftir yfirheyrslu í gærkvöldi Morgunblaðið/Eggert Árás Maðurinn varð fyrir árásinni fyrir utan skemmtistað á Laugavegi. Brúkaðar skottertur geta verið fyrirtaks bygg- ingarefni. Þetta vita byggingafræðingar af yngri kynslóðinni sem flykkjast gjarnan út úr húsi á nýársdag til að smíða sér varnarvirki eða jafnvel litla kofa úr þessum vanmetnu gersem- um. Hvort slíkir smiðir eiga heiðurinn af þessum stafla skal ósagt látið en Gunnhildur, Skuggi og Bjartur áttu ekki í vandræðum með að smokra sér framhjá honum á Ægisíðunni í gær. Spásserað framhjá eftirhreytum áramótanna Morgunblaðið/Eggert  Ólafur Þór Hauksson, sér- stakur saksókn- ari, segist vænta þess að niður- staða um hvort embættið fái að- gang að gögnum sem lagt var hald á í húsleit hjá Banque de Havilland í Lúx- emborg liggi fyrir í lok febrúar. Nú er beðið niðurstöðu æðsta dómstigs í Lúxemborg um málið, en neðra dómstig dæmdi sérstökum sak- sóknara í hag. Banque de Havill- and var reistur á rústum Kaup- þings í Lúxemborg. »6 Sérstakur væntir niðurstöðu í febrúar Ólafur Þór Hauksson Fólskuleg líkamsárás var framin á nýársmorgun, en þá sparkaði maður í höfuð annars manns sem þurfti í kjölfarið að leggjast inn á gjörgæslu- deild Landspítalans. Um kvöldmat- arleytið í gær var maðurinn útskrif- aður af gjörgæslu en þarf að dveljast lengur á spítalanum. Lögreglan hafði ekki fyrr en í gær hendur í hári árásarmannsins sem játaði skömmu eftir að hafa verið handtekinn. Lög- reglunni bárust vísbendingar sem leiddu til þess að árásarmaðurinn fannst. Yfirheyrslur stóðu yfir manninum í gærkvöld, en við vinnslu fréttarinnar hafði lögreglan ekki tekið ákvörðun um hvort gæsluvarð- halds yrði krafist yfir honum. Á nýársnótt voru gerðar alls sex líkamsárásir á höfuðborgarsvæðinu. Flestar þeirra voru gerðar í út- hverfum, í og við heimahús. Sparkaði í höfuð fórnarlambsins  Útskrifaður af gjörgæslu í gærkvöldi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.