Morgunblaðið - 03.01.2011, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 03.01.2011, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. JANÚAR 2011 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Una Sighvatsdóttir una@mbl.is Á annan tug manna leitaði á slysa- deild Landspítalans vegna augn- áverka af völdum flugelda á nýárs- nótt. Þar af var sjö vísað áfram til augnlækna til frekari meðferðar. Í öllum þeim tilfellum var um full- orðið fólk að ræða, sex karlmenn á aldrinum 45-55 ára og eina konu. Elínborg Guðmundsdóttir augn- læknir segir óvenjulegt hversu margir meiddust við að skjóta upp flugeldum í faðmi fjölskyldunnar. Tvö hinna slösuðu voru ekki sjálf að skjóta upp heldur voru aðeins áhorfendur. Algengustu augnslysin við áramót verða þegar unglings- drengir fikta eftirlitslaust við flug- elda, gjarnan dagana fyrir og eftir gamlárskvöld. Einn þeirra sem vísað var á augnlæknadeild reyndist alvarlega slasaður, þótt enn sé of snemmt að segja til um hverjar langtímaafleið- ingar slyssins verða, að sögn El- ínborgar. Maðurinn lá inni í sólar- hring. Hann fékk að fara heim í gær í leyfi en kemur aftur á Land- spítalann í dag til frekari skoðunar. Enginn með hlífðargleraugu Elínborg segir að áverkar á aug- um vegna flugeldaslysa séu einkum tvenns konar. Annars vegar séu það brunasár en hinsvegar þegar högg kemur á augað svo blæðir inn á það. Ekkert þeirra sjö sem þurftu hjálp augnlækna var með hlífð- argleraugu þegar slysin áttu sér stað. Elínborg segir óhætt að full- yrða að hlífðargleraugu hefðu í öll- um tilfellum dregið úr skaðanum. „Það hefur sýnt sig að hlífðargler- augun gera gæfumuninn, ekki síður fyrir þá sem fylgjast með í fjar- lægð.“ Óvenjumargir sköðuðust á augum  Maður á fertugsaldri alvarlega slas- aður  Enginn með hlífðargleraugu Morgunblaðið/Brynjar Gauti Öryggi Það er skemmtilegt að fagna áramótum með litríkum flugeldum en gleðin getur snúist í andhverfu sína á augabragði ef slys verða. Steingrímur J. Sigfússon fjár- málaráðherra segir að áfram verði unnið að hagræðingu og end- urskipulagningu Stjórnarráðsins, enda sé slíkt í stjórnarsáttmála Samfylkingar og Vinstri grænna. Nýtt atvinnuvegaráðuneyti tengist hugmyndum um nýtt ráðuneyti um- hverfis- og auðlinda. Jón Bjarnason, landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, hefur lagst gegn stofnun nýs atvinnuvegaráðu- neytis þar sem sjávarútvegs-, land- búnaðar og iðnaðarmál yrðu sam- einuð. Hann ritaði grein í Morgun- blaðið á gamlársdag og benti m.a. á að þingið hefði hafnað slíkri samein- ingu. Þá væri ekki gert ráð fyrir henni í nýrri stefnumörkun undir heitinu Ísland 2020. Undir þetta tekur Þór Saari al- þingismaður. „Það var mikið talað gegn atvinnuvegaráðuneyti í um- ræðum í þingsal í haust. Svo kom í ljós að það var ekki stuðningur við það í allsherjarnefnd sem sló það af.“ Jóhanna Sigurðardóttir for- sætisráðherra hefur hins vegar sagst vongóð um að samþykkt verði að sameina sjávarútvegs-, landbún- aðar- og iðnaðarráðuneyti í nýtt at- vinnuvegaráðuneyti á vorþingi. Aðspurður segir Steingrímur J. Sigfússon að áfram verði unnið að sameiningu ráðuneyta. „Vinstri græn hafa lengi barist fyrir því að styrkja stöðu umhverfisráðuneyt- isins með því að gera það að um- hverfis- og auðlindaráðuneyti. Á móti því hafa menn gjarnan séð fyrir sér að verði til atvinnuvegaráðuneyti en það var niðurstaða manna í haust að það þyrfti að gefa því meiri tíma. Það verður gert enda vitum við að skiptar skoðanir eru um ýmislegt í þeim málum.“ Morgunblaðið/Jim Smart Óljóst Ágreiningur hefur verið um stofnun nýs atvinnuvegaráðuneytis. Áfram unnið að hagræðingu Atvinnuvegaráðu- neyti hafnað á þingi Íslensk fiskiskip, stór og smá, munu flest hver halda aftur á miðin í dag eftir nokkurra daga frí. Ljósmyndari Morgunblaðsins var á ferli við smá- bátahöfnina í Reykjavík þar sem einhverjir voru að gera klárt fyrir vetrarvertíðina. Á flestum miðum umhverfis landið er spáð hægum vindi framan af degi en hvessa tekur þegar líður á daginn. Hvassast verður á miðunum fyrir austan landið í þessari viku. Morgunblaðið/Eggert Sjósókn hefst að nýju eftir jóla- og nýársfögnuð Hegningarlagabrotum fækkaði á höfuðborgar- svæðinu árið 2010 um 10% frá árinu á undan. Mun- aði þar mest um innbrot, sem voru fjórðungi færri en árið 2009. Þetta kemur fram í bráðabirgðasam- antekt lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu um helstu afbrot liðins árs. Tölurnar eiga enn eftir að breytast eitthvað en að sögn lögreglu gefa upplýs- ingarnar þó innsýn í það hvert stefnir. Miðað við þær tölur sem nú liggja fyrir voru að meðaltali framin sex innbrot á dag á höfuðborg- arsvæðinu árið 2010, samanborið við átta á dag árið 2009. Af þessum sex voru að meðaltali tvö innbrot framin á heimili höfuðborgarbúa á degi hverjum. Ofbeldisbrotum fækkaði um 13% milli ára. Minniháttar líkamsárásum fækkaði um 8% en al- varlegri líkamsárásum um tæpan þriðjung. Fram kemur í samantekt lögreglu að tæpur helmingur allra ofbeldisbrota á sér stað í miðborg Reykjavíkur í kringum skemmtanahald um helgar. Tilkynningar um nauðganir voru þriðjungi færri árið 2010 en árið á undan. una@mbl.is Færri innbrot, nauðganir og líkamsárásir í höfuðborginni  Innbrotum fækkaði úr átta í sex að meðaltali á dag Morgunblaðið/Júlíus Reykjavík Afbrotum fækkaði í borginni 2010. Í fimm tilfellum af sjö varð slys þegar reynt var að kveikja aftur í tertu sem ekki logaði í fyrstu tilraun. Kristinn Ólafsson, fram- kvæmdastjóri Landsbjargar, segir að alltaf geti leynst gölluð eintök inni á milli. Mikilvægt sé að beygja sig aldrei yfir tertur sem ekki kvikni í heldur skvetta á þær vatni og skila þeim til björgunarsveitanna. Þá ítrekar Kristinn mikilvægi hlífðar- gleraugna, sem fylgja ókeypis með flugeldum Landsbjargar. Fimm slys tengd tertum BOGRAÐI YFIR TERTU Lögreglan og tollgæsla lögðu hald á mun minna magn fíkniefna árið 2010 en árið á undan. Hinsvegar fjölgaði fíkniefnabrotum um fimmtung á milli ára, bæði hvað varðaði vörslu og meðferð en einnig fjölgaði enn mál- um sem vörðuðu framleiðslu fíkniefna. Umferðarbrotum þar sem ekið var undir áhrifum ávana- og fíkniefna fjölgaði um 15% milli ára en ölvunarakstursbrotum fækkaði hinsvegar. Brotum gegn áfengislögum fjölg- aði um 40% milli ára og er það einkum vegna brota á reglugerðum um sölu á áfengi. Fleiri aka dópaðir AUKIN FRAMLEIÐSLA FÍKNIEFNA

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.