Morgunblaðið - 03.01.2011, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 03.01.2011, Qupperneq 10
10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. JANÚAR 2011 Útsalan er hafin v/Laugalæk • sími 553 3755 „Þetta er eðalgræja, Massey Ferguson 135, árgerð 1969 og hann er enn gangfær,“ segir Níels Magnús Magnússon, skógarhöggsmaður í Austurhlíð í Biskupstungum, en hann var þrjá klukkutíma að festa ljósaslöngu á útlínur Fergu- Var þrjá klukkutíma að skreyta gamla dráttarvél Rúmlega fertugur Ferguson í hátíðarbúningi Morgunblaðið/Kristín Heiða sonsins til að heiðra hann yfir hátíðarnar. „Pabbi keypti þennan traktor frá Vaðnesi í Grímsnesi á sínu öðru bú- skaparári 1976. Hann hefur því þjónað okkur í 34 ár og hefur tilfinningalegt gildi.“ Ylfa Kristín K. Árnadóttir ylfa@mbl.is Þ að er mikil þörf á efni sem sérfræðiþekking okkar talmeinafræðinga tekur til og höfum við verið að bæta úr því síð- ustu árin. Það voru ekki til íslenskar bækur sem taka svo mikið og mark- visst á beinni framburðarþjálfun R- og S-hljóðanna og orðið löngu tíma- bært að þannig bækur kæmu út,“ segir Bryndís Guðmundsdóttir tal- meinafræðingur en í haust komu út S- og R-framburðarbækurnar sem hún er höfundur að. Hún segir eft- irspurn eftir þjónustu talmeinafræð- inga sífellt vera að aukast og nauð- synlegt sé að geta hjálpað sem flestum. „Ég held að það létti líka mikið á kerfinu ef við fræðingarnir komum upplýsingum til foreldra í stað þess að liggja á þeim og hafa börn á bið- listum eftir vinnu okkar á við- Leikur gerður úr framburðaræfingum Bryndís Guðmundsdóttir talmeinafræðingur hefur gefið út bækur og spil með áherslu á S- og R-hljóðin og byggir hún á áratugareynslu úr starfi sínu. Bækurnar eru fyrir börn á aldrinum 4-12 ára en Bryndís segir þær líka henta fyrir nýja Ís- lendinga af erlendum uppruna. R- og S-hljóðin eru með síðustu málhljóðunum sem börn tileinka sér á forskólaaldri og við 4 ára aldur hafa allt að 25% barna ekki náð valdi á þessum hljóðum. Spil Halla Sólveig Þorgeirsdóttir og Búi Kristjánsson teiknuðu allar mynd- irnar í bókunum og spilunum sem þeim fylgja. Vefsíðan sem blaðamaðurinn Holly Becker hleypti af stokkunum árið 2006 er sannarlega augnayndi fyrir alla fagurkera. Nafn síðunnar decor8 er orðaleikur út frá enska orðinu decorate og vísar til innihalds henn- ar. Síðan er ætluð sem vettvangur fyrir þá sem vilja deila opinskáum, frumlegum og fallegum hugmyndum og skoðunum um hönnun af ýmsu tagi. Þar má einnig finna greinar tengdar ýmiskonar fagurfræði sem Holly vonast til að verði lesendum síðunnar innblástur að meira skap- andi og litríku lífi. Á síðunni má með- al annars finna ótal krækjur á ým- iskonar hönnunarvefsíður víðs vegar úr heiminum sem ættu sannarlega að geta glætt hugarflug þeirra sem langar að breyta dálítið til á heimilinu á nýju ári. Einnig er þar að finna mjög víðtækan lista með flottum hönn- unarverslunum víða um heim, bæði í Bandaríkjunum og Evrópu. Ekki slæmt að vera með slíkt í vasanum á ferðalagi, sama hvort maður vill kaupa eða bara skoða sig um. Á vefsíðunni er líka hægt að skrá sig í stutt námskeið þar sem kenndar eru bestu leiðirnar til að setja upp fallega og skemmtilega hönn- unarvefsíðu. Vefsíðan www.decor8blog.com Hönnun Fallegir og gamaldags hlutir setja notalegan svip á heimilið. Hlutir sem gleðja augað Jólaljósin eru svo ósköp falleg og lýsa upp skammdegið. Það er enginn sem segir að rífa þurfi allt heila klabbið niður um leið og jól og ára- mót eru um garð gengin. Margir taka allt niður eftir þrettándann en það er full ástæða til að njóta þess að hafa seríurnar aðeins lengur uppi við og hafa jafnvel litaglaða seríu í eldhús- eða stofuglugganum sem fær að vera þar fram á vor þegar loksins fer að birta. Margir leyfa líka eins og einni seríu að vera dálítið lengur uppi úti í garði. Verum óhrædd við að lífga upp á umhverfið nú í byrjun nýs árs og fagna því með fallegri rafmagnsbirtu. Endilega … … njótið ljós- anna áfram Birta Leyfum ljósunum að njóta sín. Nú í byrjun árs er gott að hafa í huga að oft vill vera kalt í veðri. Þrátt fyrir kjólana, jakkafötin, pilsin og pinnahælana skulum við samt muna að við erum á Íslandi og það er vetur. Þetta þýðir að það er ekki endilega sól og blíða úti heldur tek- ur kuldaboli á móti okkur þar sem við tiplum út fín og sæt með hárið í föstum skorðum Þegar við erum búin að klæða okkur upp og erum tilbúin að halda út á galeiðuna má því ekki gleyma hlýju fötunum og aukahlutunum. Mjög mikilvægt er að gera ráð fyrir hlutum eins og húfu, hönskum og trefli. Herrar góðir, smeygið fal- lega treflinum sem þið fenguð í jólagjöf um hálsinn og dömur dragið fram loðkragana og húfurnar. Nú er um að gera að nota spari- legu útifötin og fylgihlutina og fyrir dömurnar er gott að hafa stærri gerðina af veski með sér til að geta geymt allt klabbið ofan í. Þannig ætti kuldaboli hvergi að komast nærri og eyðileggja annars gott og skemmtilegt kvöld. Verið vel klædd á djamminu Flottir Trefill og húfa mega ekki gleymast á köldum kvöldum. Upp með trefla og loðkraga

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.