Morgunblaðið - 03.01.2011, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 03.01.2011, Qupperneq 12
Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. JANÚAR 2011 Munið að slökkva á kertunum Slökkvilið höfuborgasvæðisins Staðsetjið ekki kerti þar sem börn eða dýr geta auðveldlega rekið sig í þau og velt þeim um koll Rúnar Pálmason runarp@mbl.is Íbúasamtök miðborgar telja eðlilegt að lögreglan á höfuðborgarsvæðinu mæli hávaða við skemmtistaði líkt og hún mæli hraða á götum úti og hvort ökumenn hafi drukkið áfengi. Hávaðamælingum er sinnt af Heil- brigðiseftirliti Reykjavíkur en íbúa- samtökin benda á að það þætti furðulegt ef lögregla þyrfti að reiða sig á aðra til að sinna hraðamæl- ingum. Í bréfi sem Magnús Skúlason, for- maður samtakanna, sendi lögreglu- stjóranum á höfuðborgarsvæðinu í vikunni er minnt á að í lögreglusam- þykkt Reykjavíkur sé lagt bann við að „hafast nokkuð að sem veldur ónæði eða raskar næturró manna“. Lögregla sporni við hraðakstri og akstri undir áhrifum áfengis með því að beita þar til gerðum mælitækjum en þegar komi að hávaðamælingum séu úrræðin fátæklegri. Helst hafi lögregla getað kallað til starfsfólk heilbrigðiseftirlits til að sjá um mæl- ingarnar. Slíkt geti vart talist skil- virk aðferð við löggæslu að kalla til utanaðkomandi aðila, jafnvel utan hefðbundins vinnutíma og þegar yf- irvinnubann sé í gildi hjá viðkom- andi. „Ætla mætti að eðlileg vinnu- brögð lögreglu væru að meta aðstæður með mælingum og mati þannig að til áminninga gæti komið og síðar leyf- issviptinga ef áminn- ingum er ekki sinnt,“ segir í bréf- inu. Opnir of lengi Stefán Eiríksson lögreglustjóri segir hávaðamælingar á könnu heilbrigðisyf- irvalda. „Við erum ekkert að kalla eftir því að auka verkefnin hjá okkur. Þetta kallar líka á sérhæfð tæki og þekkingu,“ segir Stefán. Lögregla leggi á hinn bóginn oft mat á hvort hávaði sé of mikill, bæði á veitingastöðum og í heimahúsum og þurfi engin mælitæki til þess. „Það er nú ekki flókið. Við erum öll með eyru og heyrum flest.“ Stefán tekur fram að lögregla þekki vel vandann í miðborginni og deili áhyggjum íbúasamtakanna af hon- um. Málið snúist ekki bara um há- vaða heldur um fjölda og staðsetn- ingu skemmtistaðanna. Stefán hefur lengi verið þeirrar skoðunar að stytta þurfi afgreiðslu- tíma veitingastaða í miðborginni. Um áramótin mun borgin stytta af- greiðslutíma um hálftíma, þannig að þeim verði lokað klukkan 5 að morgni um helgar og aðfaranætur frídaga og afgreiðslutíminn styttist um hálftíma til viðbótar í júní. Stef- án segir að lögregla telji að ganga þurfi lengra á þeim svæðum þar sem skemmtistaðir eru inni í íbúðabyggð. Vilja að lögregla mæli hávaða við skemmtistaði  Bannað að valda ónæði og raska næturró  Íbúasamtök segja að lögregla geti allt eins mælt hávaða eins og hraða  Lögreglustjóri segir verkefnið á könnu heilbrigðisyfirvalda Fyrsta barn ársins kom í heiminn kl. 1:38 á nýársnótt í Reykjavík og var þar á ferðinni frumburður Þóru Bjarkar Bjartmarz og Sveins Héðinssonar. Barnið reyndist myndarpiltur sem vó 2905 grömm við fæðingu og heilsaðist móður og barni vel á nýársdag. Upp- haflega hafði verið ráðgert að sá stutti kæmi í heiminn í lok mánaðarins en honum hefur legið á að líta dagsins ljós, því fæðingin gekk hratt fyrir sig að sögn Sveins. Morgunblaðið/Eggert Fyrsta barn ársins að flýta sér Rósa Magnúsdóttir, deildarstjóri umhverfiseftirlits Reykjavíkur, segir að heilbrigðiseftirlit Reykja- víkur sinni nokkrum útköllum á ári vegna hávaða frá skemmtistöðum. Þrátt fyrir yfirvinnubann sinni heil- brigðiseftirlitið öllum sínum lögboðnu skyldum, líka utan hefðbundins vinnutíma. Brugðist sé við kvörtunum með hávaðamælingu. Þeir sem vakna vegna ónæðis geta þó ekki hringt í eftirlitið og óskað eftir mælingu held- ur þurfa þeir að leggja fram kvörtun. Rósa segir aðspurð að í sjálfu sér geti lögregla keypt hljóðmæla og þjálfað sína menn í að beita þeim. Mælarnir séu reyndar dýrir (fullkomnir mælar kosta nokkur hundruð þúsund) og töluverða þjálfun og sérþekkingu þurfi til að mæla hávaða á réttan hátt til þess að hægt sé að byggja á mæling- unni kröfu um áminningu, sektir o.þ.h. „Þú tekur ekki bara einhvern mæli upp úr vasanum og mælir bara einhvern veginn,“ segir hún. Þá megi heldur ekki gleyma því að lögregumenn geti lagt mat á hvort ónæði stafi af tónlist með sínum eigin eyrum. Dýr mælitæki HEILBRIGÐISEFTIRLIT KALLAÐ ÚT VEGNA HÁVAÐA Morgunblaðið/Júlíus Miðbær Lögregan þarf að fást við margvísleg verkefni í miðborginni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.