Morgunblaðið - 03.01.2011, Qupperneq 13
FRÉTTIR 13Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. JANÚAR 2011
Fjölbreyttar sparnaðarleiðir
Þú stendur betur að vígi ef þú leggur til hliðar, hvort sem
ætlunin er að spara fyrir því sem keypt er, byggja upp
varasjóð eða langtímasparnað. Landsbankinn býður úrval
ríkisskuldabréfa-, skuldabréfa- og hlutabréfasjóða við allra
hæfi. Síðastliðna 12 mánuði skiluðu sjóðirnir betri ávöxtun en
innlánsreikningar og viðmið. Fé í sjóðum má alltaf innleysa.
Sjóðir í áskrift
Sjóðir í áskrift henta vel fyrir reglubundinn sparnað.
Viðskiptavinir njóta þess að enginn munur er á
kaup- og sölugengi í áskrift. Í hverjum mánuði hljóta tveir
heppnir viðskiptavinir 20.000 kr. viðbót við eign sína. Dregið
verður úr nöfnum þeirra sem hafa verið í áskrift að sjóðum í að
minnsta kosti eitt ár.
Á
vö
xt
u
n
se
m
vo
n
as
te
re
ft
ir
Áhætta
Reiðubréf
ríkistryggð 1
Sparibréf
stutt 1)
Sparibréf
meðallöng 1)
Markaðsbréf
Landsbankans
- stutt 1)
Markaðsbréf
Landsbankans
- meðallöng 1)
Markaðsbréf
Landsbankans
- löng 1)
Úrvalsbréf
Landsbankans 3)
7,01%* 11,69%* 14,03%*
Sparibréf
löng 1)
16,13%*
Sparibréf
óverðtryggð 1) 2)
-
Sparibréf
verðtryggð 1) 2)
- 12,23%* 15,75%* 14,34%* 34,89%*
Ríkisskuldabréfasjóðir
Hlutabréfa-
sjóðir
Blandaðir skuldabréfasjóðir
N
B
Ih
f.
(L
an
d
sb
an
ki
nn
),
kt
.4
71
0
0
8
-0
2
8
0
.
Sjóðir sem bera
góðan ávöxt
FJÁRMÁLARÁÐGJÖF | landsbankinn.is | 410 4040
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
4
4
8
15
Rekstrarfélag sjóðanna er Landsvaki hf. og vörslufélag þeirra er NBI hf. (Landsbankinn). Sjóðirnir eru starfræktir
í samræmi við l. nr. 30/2003 og lúta eftirliti Fjármálaeftirlitsins. Áhætta fylgir ávallt fjárfestingu í sjóðum þar sem
gengi þeirra getur bæði hækkað og lækkað. Ávöxtun í fortíð gefur ekki áreiðanlega vísbendingu um framtíðarárangur.
Fjárfesting í fjárfestingarsjóði telst almennt áhættumeiri en fjárfesting í verðbréfasjóði. Nánari upplýsingar má finna í
útboðslýsingum sjóða og útdráttum úr þeim á landsbankinn.is og á landsvaki.is. Fjárfestum er bent á að kynna sér vel
útboðslýsingar sjóða áður en fjárfest er í þeim.
* Nafnávöxtun í ISK sl. 12 mánuði m.v. 30. nóvember 2010
1) Sjóðurinn er verðbréfasjóður skv. lögum um verðbréfasjóði og fjárfestingarsjóði nr. 30/2003.
2) Sjóðurinn tók til starfa þann 7. maí 2010 og þar af leiðandi liggja upplýsingar um 12 mánaða nafnávöxtun ekki fyrir.
3) Sjóðurinn er fjárfestingarsjóður skv. lögum um verðbréfasjóði og fjárfestingarsjóði nr. 30/2003.
„Þetta er nú eiginlega alveg ótrúlegt, en svona
er maður heppinn að vera réttur maður á rétt-
um stað á réttum tíma, gera hlutina rétt og ná
þessum árangri,“ segir Ragnar Th. Sigurðsson
sem uppskar ríkulega fyrir vinnu sína á árinu
2010. Tvær ljósmyndir Ragnars af eldgosinu í
Eyjafjallajökli vöktu mikla athygli á heimsvísu
þegar þær birtust fyrst á fyrri hluta árs.
Annars vegar er það myndin hér til hægri af
bænum Dalseli í Austur-Landeyjum og hins
vegar nærmynd af eldglæringum í gosmekk-
inum. Síðustu vikur hafa myndirnar svo ítrek-
að verið endurbirtar og valdar í hópi mynda
ársins. Ragnar segist vart hafa yfirsýn yfir það
sjálfur hve víða myndir hans af eldgosinu hafa
farið, en meðal þeirra miðla sem endurbirtu
þær við áramót eru tímaritin Time, Nature og Newsweek, bandaríski sjón-
varpsþátturinn Today Show, New York Times og danska vefritið Inform-
ation. Aðspurður hvort þessi mikla velgengni muni hafa áhrif á störf hans
og tækifæri til framtíðar segist Ragnar sannfærður um það.
„Þarna hafa myndast góð persónuleg tengsl sem munu hjálpa mjög mikið
í næstu verkefnum.“ Þótt eldgosið í Eyjafjallajökli hafi verið dramatískt
segir Ragnar þó að það blikni í samanburði við þær hörmungar sem birtast á
öðrum helstu fréttamyndum ársins. „Það er hræðilegt að næstum allar
myndirnar nema af þessu eldgosi eru myndir af lituðu fólki sem lendir í öll-
um hörmungum heimsins. Það hryggir mig mjög.“ una@mbl.is
Eyjafjallajökull ratar víða í myndum
Myndir Ragnars Th. Sigurðssonar
víða meðal mynda ársins erlendis
Ragnar Th. Sigurðsson