Morgunblaðið - 03.01.2011, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 03.01.2011, Qupperneq 18
18 UMRÆÐAN Minningar MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. JANÚAR 2011 –– Meira fyrir lesendur MEÐAL EFNIS: Viðtöl við leikmenn Íslenska liðsins og þjálfara. Kynning á liðunum. Dagskrá mótsins. Ásamt öðru spennandi efni Þetta er blaðið sem allir íþrótta- unnendur hafa við höndina þegar keppnin verður sýnd í sjónvarpinu. PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA: Fyrir kl. 16, föstudaginn 7. janúar. NÁNARI UPPLÝSINGAR: Erling Adolf Ágústsson erling@mbl.is Sími: 569-1221 Katrín Theódórsdóttir kata@mbl.is Sími: 569-1105 Morgunblaðið gefur út glæsilegt sérblað 13. janúar 2011 um Heimsmeistaramót karlalandssliða í handbolta þar sem landslið Íslendinga er meðal þátttakenda. Keppnin er haldin í Svíðþjóð og stendur yfir frá 13. – 31. janúar. HM KARLA sé rb la ð Í HANDBOLTA Um mitt árið 2010 fékk ég óvænt símtal frá forstöðumanni Vinnumálastofnunar ríkisins á höfuðborg- arsvæðinu. Fyr- irspurn um það hvort ég gæti hugsað mér að gefa kost á mér sem ráðgjafi hjá stofnuninni vegna tímabundinna verk- efna sem í undirbúningi hefðu ver- ið og hrinda átti af stað skömmu síðar. Verkefnið kallaðist ÞOR og stóð fyrir Þekking og reynsla. Fólst það í því að kalla inn fólk 30 ára og eldra sem verið hafði á atvinnu- leysisskrá í eitt ár eða lengur til þess að kynna þeim ýmis námskeið og fjölbreytt og spennandi verk- efni sem í boði væru fólki að kostn- aðarlausu. Frábært framtak og án efa eitthvað það besta sem Vinnu- málastofnun hefur ráðist í. Mitt hlutverk átti að vera að sjá um þessar kynningar og reyna auk þess að vera uppörvandi og hvetjandi. Hvort sem um mis- skilning, mistök eða yfirnáttúrlega hand- leiðslu var að ræða ákvað ég að láta til- leiðast án þess þó ná- kvæmlega að vita hvað ég væri að hella mér út í, kastaði ég mér því beinlínis út í djúpu laugina. Um miðjan nóvember þegar ég svo þurfti frá að hverfa vegna veikinda höfðum við haldið um 60 fundi sem um 3.000 manns í at- vinnuleit sóttu og þóttu þeir eftir því sem mér skilst hafa tekist von- um framar og eftirvinnsla þeirra einnig. Um var að ræða ófaglært fólk, fólk með stúdentspróf, iðnmenntun og háskólamenntun. Ótrúlega flott fólk með fjölþætta þekkingu og ómetanlega reynslu að baki. Venjulegir Íslendingar af holdi og blóði en ekki einhverjar staðlaðar tölur á blaði eða sem hægt er að framkalla í tölvu. Fólk sem þráir að fá að láta muna um sig í at- vinnulífinu og láta gott af sér leiða. Fólk sem vonast til þess að stjórn- völd geri sitt til þess að marka eðlilegan ramma til þess að hjól at- vinnulífsins geti farið að snúast á nauðsynlegan og eðlilegan hátt. Eftir að hafa horft í augun á öll- um þessum þremur þúsundum Ís- lendinga á aldrinum 30-70 ára sem misst hafa vinnuna eftir að íslenskt bankakerfi hrundi og verið á at- vinnuleysisskrá í meira en eitt ár verð ég að segja að ég dáist að æðruleysi og þolinmæði, þraut- seigju og bjartsýni þessa mikla og dýrmæta mannafla. Kjarkur þeirra, þróttur og von er aðdáun- arverður og til eftirbreytni. Þetta er fólk sem býr yfir ómet- anlegri þekkingu og reynslu, sem þjóðfélagið hefur ekki efni á að nýta sér ekki. Um ómetanlegan mannauð er að ræða sem bíður á hliðarlínunni eftir því að fá tæki- færi til þess að láta til sín taka, muna um sig og láta gott af sér leiða. Og þótt ríkisstjórnin sé vafalítið öll af vilja gerð þá er það nokkuð ljóst að ekki er nóg að gert. Þetta fólk er upp til hópa meira en fúst til vinnu og margir uppfullir af frá- bærum hugmyndum sem vel væri hægt að koma í framkvæmd ef um- hverfið væri vinveittara. Því er mikilvægt að kæfa hér ekki allt í sköttum og álögum og gera hjólum atvinnulífsins kleift að fara að snú- ast á ný svo hagvöxtur aukist og rými skapist fyrir þá sem geta og vilja vinna úti á vinnumarkaðnum. Mætti árið 2011 færa okkur betri tíð með blóm í haga. Þekking og reynsla sem þjóðfélagið þarf á að halda Eftir Sigurbjörn Þorkelsson »Hafandi horft í aug- un á 3.000 manns á atvinnuleysisskrá er ljóst að við megum ekki verða af þeirri þekkingu og reynslu sem þetta góða fólk býr yfir. Sigurbjörn Þorkelsson Höfundur er rithöfundur og hefur undanfarið með öðru sinnt tíma- bundnum verkefnum sem ráðgjafi hjá Vinnumálastofnun. ✝ Unnur Péturs-dóttir fæddist í Brautarholti á Ísa- firði 8. febrúar 1935. Hún lést á Landspít- alanum, Fossvogi, 21. desember. Unnur var dóttir hjónanna Péturs Tryggva Péturs- sonar netagerð- armanns, f. 28.7. 1903, d. 3.2. 1996, og Albertínu Frið- bjargar Elíasdóttur, f. 10.12. 1906, d. 28.10. 1987. Bræður Unnar: Gunn- ar Pétursson, f. 31.3. 1930, og Oddur Pétursson, f. 2.7. 1931. Unnur giftist 28.8. 1954 Hjálmari Jóni Torfasyni gullsmið, f. 29.1. 1924. Foreldrar hans voru hjónin Torfi Hjálmarsson bóndi, f. 19.11 1892, d. 5.6. 1972, og Kolfinna Magnúsdóttir, f. 8.5. 1896, d. 21.1. 1987. Unnur og Hjálmar hófu bú- skap í Reykjavík 1954 þar sem Unnur var húsmóðir og Hjálmar starfaði sem gullsmiður. Unnur og Hjálmar eignuðust fjögur börn. 1)Kolfinna, f. 22.5. 1954. 2) Pétur Tryggvi, f. 24.1. 1956, maki Hlín Hermannsdóttir, f. 27.9. 1957 – skilin. Börn þeirra: Rós Péturs- dóttir, f. 29.4. 1981. Unnur Pét- ursdóttir, f. 17.10. 1986. 3) Hjálm- ar f. 16.8. 1960. Maki: Helena Vignisdóttir – skilin. Börn þeirra Sigrún Rut, f. 19.1. 1983. Helgi Hreinn, f. 6.1. 1986, maki 2: Gitte Tofteskov, f. 15.3. 1965, börn þeirra Alexander, f. 21.8. 1997, og Sofia, f. 1.9. 2002. 4) Torfi Rafn, f. 28.8. 1962, maki Sigurlaug Mar- grét Jónasdóttir, f. 12.11. 1963. Börn þeirra Freyr, f. 26.5. 1990 Sigrún, f. 29.11. 1994, og Sólveig, f. 8.8. 1998. Unnur ólst upp á Grænagarði á Ísafirði en 16 ára gömul fór hún í kaupavinnu í Mývatnssveit og Reykjadal. Þar kynntist hún Hjálmari sem bjó á Halldórs- stöðum í Laxárdal. Þau fluttust til Reykjavíkur 1954 þar sem Hjálm- ar lærði gullsmíði og Unnur var húsmóðir þar til hún hóf störf hjá Pósti og síma árið 1974. Síðar vann hún sem fulltrúi hjá launa- deild fjármálaráðuneytisins frá 1980 til 1988. Eftir það vann hún hjá bókasafni Kennaraháskóla Ís- lands í nokkur ár. Unnur aðstoð- aði einnig eiginmann sinn við rekstur gullsmíðaverslunar þeirra. Unnur verður jarðsungin frá Háteigskirkju í dag, 3. janúar 2011, og hefst athöfnin klukkan 13. Unnur gat farið í splitt án þess að hita upp, galdrað fram ævintýra- legar kökur svo maður fékk tár í augun, hún var fagurkeri og þótti vænt um fólkið sitt. Við fundum það alltaf. Börnin okkar Torfa sváfu oft hjá ömmu og afa, við þurftum aldrei að hafa neinar áhyggjur af því, hún setti þau í bað, hreinsaði eyrun, signdi þau áður en þau fóru í ull- arbolina, strauk þeim um vanga og þegar við foreldrarnir komum dag- inn eftir að ná í þau komu á móti okkur sérstaklega hrein og stillt börn sem kysstu ömmu með þakk- læti og sögðust koma fljótt aftur og fengu bros í staðinn. Við Unnur gátum setið og skoðað uppskriftir úr „Alt om Mad“ . Ég fletti blöðunum, benti á spennandi rétti sem gaman væri að elda, en gerði svosem ekki meira en það, en Unnur eldaði alla þessa rétti, sem ég benti henni á, af nákvæmni, eitt- hvað sem ég reyndi að tileinka mér en tókst aldrei. Saman gátum við þó stundum eldað skemmtilega rétti, hún með mæliskeiðina og ég með handfylli af kryddi. Einhvernveg- inn passaði það saman. Við Sigrún mín hugsum oft til Parísarferðarinnar um árið, þá vissum við að Unnur var orðin veik, farin að gleyma örlitlu svo það var með mikilli gleði sem við fórum saman til þessarar yndislegu borg- ar með Möggu frænku. Þar horfði hún á Monet, drakk Kir Royal og lét barnabarnið sitt naglalakka á sér táneglurnar með bros á vör og það var í litlu hótelherbergi í 6 hverfi sem hún fór í splitt og upp- skar mikinn hlátur. Þegar Unnur greindist með Alz- heimer vissum við að það yrði erf- itt, kona sem var skipulögð, sjálf- stæð, þrjósk og gerði hlutina eftir sínu höfði gat ekki lengur gert það sem hún vildi. Það gat stundum verið skelfilega erfitt að fylgjast með þessum sjúkdómi sem hægt og rólega var að taka Unni frá okkur. En einu gleymdi hún aldrei, það var leiðin frá Bólstaðarhlíð 4 að gull- smíðaverkstæði Torfa míns á Laugaveginum, þangað mætti hún á hverjum degi, stundum tvisvar á dag og Torfi, eins erfitt og það var fyrir hann að sjá mömmu sína hverfa örlítið á hverjum degi, tók henni fagnandi, hún settist við hlið- ina á honum, horfði á hann vinna, tók stundum í höndina á honum og sagði „það er svo gott að eiga þig“ og fékk sér svo kaffibolla og dökkt súkkulaði og brosti til hans. Við höfum það á tilfinningunni að ein- hver hafi gripið inn í líf Unnar, ein- hver sem vissi að svona vildi hún ekki enda, með útþurrkaðar minn- ingar og bjargarlaus. Tengdamóðir mín fékk heilablóðfall, þegar hún var á leið til Torfa síns og náði aldr- ei alla leið. Það er með trega en þakklæti líka sem við kveðjum Unni Péturs- dóttur og ég efast ekki um að Magga frænka bíður eftir henni með rjúkandi kaffi og hlátrasköllin eiga eftir að bergmála á himnaríki og hinir englarnir eiga eftir að biðja nú Unni blessaða að skella í eina klessuköku, en við sem eftir erum ætlum að vera dugleg og baka kök- una góðu í hvert skipti sem við söknum hennar, og kökurnar eiga eftir að verða þónokkrar. Sigurlaug Margrét Jónasdóttir. Amma Unnur. Upp af himnum ofan sveifst þú inn til mín og rödd þína ég heyrði svo sveif ég upp til þín. Þú bakaðir klessuköku og settir mig í bað og last bókina Depil, jáallir muna það. Þótt þú sért farin, þá kemur þú til mín sest á rúmið hjá mér svo hvísla ég til þín: Amma vertu hjá mér bæði dag og nótt ég heyri röddina hjá þér svo ég sofi rótt. Ég elska þig, amma Unnur. Sólveig Torfadóttir. Það er með söknuði að ég kveð þig, elsku amma mín. Ég er þakklát fyrir svo margt. Takk fyrir allar heimsóknirnar til okkar þegar við vorum í Danmörku, fyrir að fá að búa hjá ykkur afa öll árin sem ég var í Tónó, fyrir allar leikhús- og tónleikaferðirnar, fyrir að vera alltaf velkomin til ykkar. Þú hafðir alltaf nógan tíma og pláss fyrir hvern sem átti í hlut. Við gerum öll það sem við getum fyrir afa, þó svo að enginn geri það eins vel og þú. Ég vil enda þetta á orðunum sem voru þér svo hugleikin: .... Hafðu á mildi mætur og mundu eftir því. Að gefa þeim sem grætur, gleði sína á ný. (GW) Kveðja frá okkur systrum. Rós Pétursdóttir. Unnur Pétursdóttir - nýr auglýsingamiðill 569-1100 finnur@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.