Morgunblaðið - 03.01.2011, Page 20

Morgunblaðið - 03.01.2011, Page 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. JANÚAR 2011 ✝ Anna Baldvins-dóttir fæddist í Skriðukoti í Svarf- aðardal 15. febrúar 1919. Hún lést á Dalbæ á Dalvík 25. desember 2010. Anna var dóttir hjónanna Margrétar Kristjánsdóttur og Baldvins Arngríms- sonar sem lengst af bjuggu á Klaufa- brekkum í Svarf- aðardal. Hún átti þrjú yngri systkini; Höllu, Dagbjörtu og Stefán. Eig- inmaður Önnu var Haraldur Dav- íðsson f. 14. júlí 1907, d. 25. ágúst 1993, og bjuggu þau allan sinn bú- skap á Stóru-Hámundarstöðum á Árskógsströnd. Þau eignuðust fjögur börn; Maríu f. 1. apr- íl 1941, d. 12. febr- úar 1986. Davíð Hjálmar, f. 11. júlí 1944, maki Sigrún Lárusdóttir, f. 21. apríl 1952. Baldvin, f. 3. júní 1947, maki El- ín Lárusdóttir, f. 27. mars 1949. Hjördísi Guðrúnu, f. 9. júní 1949, maki Þorlákur A. Aðalsteinsson, f. 11. ágúst 1949. Barnabörnin eru níu og barna- barnabörnin sextán. Útför Önnu fer fram frá Stærra- Árskógskirkju í dag, mánudaginn 3. janúar 2011, kl. 14. Gulli og perlum að safna sér sumir endalaust reyna. Vita ekki að vináttan er verðmætust eðalsteina. Gull á ég ekki að gefa þér og gimsteina ekki neina. En viltu muna að vináttan er verðmætust eðalsteina. (Hjálmar Freysteinsson.) Af hverju skapast vinátta á milli fólks? Hvað verður til þess að vænt- umþykja verður til staðar hvað sem líður aldursmun eða öðru? Mér er ómögulegt að gera mér grein fyrir hvað varð til þess að okk- ur Önnu Baldvinsdóttur varð eins vel til vina og raun ber vitni. Hún sagði einu sinni við mig að hún vissi ekki hvernig hún ætti að skilgreina okkar samband, en í mínum huga vorum við einfaldlega góðir vinir. Við Gunni fórum í okkar árlegu jólaheimsókn til þessarar kæru vin- konu okkar á stysta degi ársins rétt fyrir jól til að færa henni jólakveðju, en komum þá að dánarbeði hennar. Ég verð ævarandi þakklát fyrir að hafa fengið þessa litlu kveðjustund. Við kynntumst Önnu þegar hún gekk til liðs við hóp fólks sem við hjónin leiðbeindum og stjórnuðum í þjóðdönsum, hún hafði mjög gaman af dansinum og naut þess að taka þátt með okkur. Hún fann fljótt að ég var svolítil sveitakerling í mér og að Gunni hafði gaman af garðrækt og fór að bjóða okkur að koma til sín og sjá garðinn sinn og lömbin á vorin, bjóða okkur í réttir og berjamó, Jónína Björt fékk að skoða og handleika steinana sem voru ófáir til í öllum regnbogans lit- um, það fór svo að úr þessu varð vin- átta sem ekki hefur slitnað og þó að við flyttum í burtu reyndum við eftir bestu getu að halda sambandi, koma til hennar, fá kaffi og súkkulaði, eða bara heyrast aðeins í síma. Eitt sem við Anna áttum sameig- inlegt var áhugi á vísum, hún hag- mælt vel og við fengum nokkrar vís- ur frá henni. Anna var hreinskilin, ákveðin og lá ekki á skoðunum sínum, þau Gunni áttu það til að bítast aðeins um sum- ar skoðanir, en svo var ævinlega hlegið dátt, og það var svo gott, að meira að segja síðast þegar við kom- um til hennar fyrir rúmum mánuði, þá gat hún enn gert grín og hlegið, þó að heilsan væri orðin léleg og hún hafi sennilega ekki munað eftir komu okkar þegar við vorum farin fram á gang. Anna var oft búin að tala um að nú væri hún að sjá okkur í síðasta sinn, hún væri alveg að fara að deyja, og Gunni var jafnoft búinn að svara því til að hann væri alveg hættur að trúa henni, hún hefði sagt þetta svo oft, og enn væri hún hér. Nú er samt komið að því að hún reyndist sannspá, ég trúi því að hvíldin sé henni góð. Mér finnst vel við hæfi að láta hér fylgja með síðasta erindið úr ljóðinu Vinur í grennd: – – – Sjálfur, ef vin þú átt góðan í grennd gleymdu ekki, hvað sem á dynur, að albesta sending af himnunum send er sannur og einlægur vinur. (Þýðandi Sig. Jónsson.) Baldvin, Hjördís og Davíð, við Gunni og Jónína Björt sendum ykk- ur og fjölskyldum ykkar samúðar- kveðjur með þökk fyrir að hafa fengið að eiga samleið með móður ykkar þessi ár. Margrét Brynjólfsdóttir (Magga.) Anna Baldvinsdóttir ✝ Erlendur Björg-vinsson fæddist á Hlíðarenda í Breiðdal þann 4. júlí 1924. Þar ólst hann upp. Hann lést þann 27, desember á Uppsölum í Fá- skrúðsfirði. Erlendur var einn af 10 börnum hjónanna Sigurbjargar Erlends- dóttur frá Hvammi í Fáskrúðsfirði og Björgvins Jónassonar frá Stuðlum í Reyð- arfirði, ábúenda á Hlíðarenda. Systkini Erlendar sem nú eru öll látin voru Gísli Friðjón, Jóhanna Petra, Rósa, Ragnar, Her- björn, Guðlaugur, Gunnar en Helgi og Sigþór dóu ungir. Þann 10. nóvember 1969 giftist hann Friðbjörgu Midjord frá Fær- eyjum f. 18. júní 1943, d. 29. október 2005. Börn Erlendar og Friðbjargar eru 1) Nína Midjord f. 24. júní 1968, hennar maður er Sveinbjörn Eg- ilsson f. 23. júlí 1966, börn þeirra eru Egill Örn f. 12. janúar 1993, Sigríður Tinna f. 15. febrúar 1995, Gabríel andvana fæddur 22. desember 2006 og Sigfús Arnar f. 4. febrúar 2008. 2) um fótbolta og frjálsar, hann var einn að frumkvöðlum í Ungmenna- félaginu Hrafnkeli Freysgoða og var hann mjög virkur í þeim fé- lagsskap, hann var meðal annars rit- ari þess frá 1953-1960 og varafor- maður þess frá 1960-1961. Erlendur varð 1949 fyrsti Austurlandsmeist- ari Hrafnkels Freysgoða í frjálsum íþróttum í flokki fullorðinna í kringlukasti á móti á Eiðum. 1951 varð hann svo fimmtarþraut- armeistari. Erlendur keppti allra ungmennafélaga lengst fyrir Hrafn- kel Freysgoða eða í 30 ár. Erlendur fór á vertíðir sem ungur maður, bæði til Vestmanneyja og Hafnar í Hornarfirði. Einnig vann hann í Reykjavík við mublu- og leik- fangasmíði. Hann keypti jörðina Fellsás 1958 og hóf uppbyggingu og búskap þar ásamt Petru systur sinni. Erlendur var bóndi alla sína ævi og vann með búinu utan heimilis ýmsa vinnu, svo sem í fiski, við vöru- bílaakstur og við smíðar. Hann átti mörg áhugamál svo sem skógrækt og má sjá það kringum bæinn í Fells- ási. Erlendur hafði líka mikinn áhuga á tónlist og spilaði á harm- onikku. Erlendur verður jarðsunginn frá Heydalakirkju í dag, mánudaginn 3. janúar 2011, og hefst athöfnin klukkan 14. Sigurbjörg Petra f. 18. maí 1970, hennar maður er Emil Guð- finnur Hafsteinsson f. 17. ágúst 1966. Dóttir þeirra er Linda María Emilsdóttir f. 9. ágúst 1993, unnusti hennar er Jóhann Elís Run- ólfsson. 3) Sóley Berg- lind f. 8. apríl 1973, hennar maður er Sig- ursteinn Árni Brynj- ólfsson f. 9. mars 1972. Börn þeirra eru Ingibjörg Lilja f. 2. mars 1994, Árni Steinn f. 20. júlí 2003 og Malen Mist f. 13. nóvember 2009. 4) Rósa Elísabet f. 3. desember 1976, dóttir hennar er Friðbjörg Helga Bjarkadóttir f. 15. september 1998. 5) Björgvin Hlíðar f. 21. janúar 1978, sonur hans er Erlendur f. 17.október 2006. Einnig átti Erlend- ur fyrir synina Sigurbjörn Hlíðar og Hafstein Sævar af fyrri sambúð. Erlendur naut farkennslu eins og þá tíðkaðist, hann fór árin 1945- 1947 til Reykholts til náms. Hann tók meirapróf 1951 á Reyðarfirði. Hann hafði mikinn og brennandi áhuga á íþróttum og stundaði eink- Nú þegar komið er að leiðarlokum hjá þér elsku pabbi minn fer hug- urinn á flug til baka í minningasjóð- inn sem ég á. Það fyrsta sem kom upp í hugann þegar ég fór að hugsa um þig var rauði Zetorinn; þú að aka heyi með heyhleðsluvagninn aftan í kúffullan, ég sitjandi í litla sætinu fyrir aftan ökumannssætið, þvílíkt sport! Þær voru ófáar ferðirnar, mitt verk var svo að stökkva út og opna og loka hliðum. Að vakna snemma og elta þig inn á tún að smala túnið eða að slá eða hvað það nú var. Fara á vornóttum í húsin að athuga með kindurnar og lömbin í sauðburði. Þú svafst nú ekki lengi þegar mik- ið var að gera enda var ekki hægt að saka þig um leti, ó nei. Þér þótti vænt um öll dýr, hundarnir þínir voru eins og menn í þínum huga. Að fá að fara með þér í smala- mennsku inn í Tinnudal var ekki nein smávegis upphefð. Já ég get talið upp þúsund hluti, það var samt best hvað þú varst allt- af í góðu skapi og góður við okkur þegar við vorum lítil, glens og gaman var ríkjandi á heimilinu okkar. Það var til dæmis ótrúlega gaman þegar þú lékst draug í hríslugarð- inum bak við húsið og við krakkarnir hlupum um allan garðinn, hlógum ekki neitt lítið þá. Þú hafðir mikinn áhuga á skógrækt og má sjá það í kringum húsið í sveitinni okkar í Fellsási. Það sem var stundum pirrandi og kostur í senn í þínu fari var að þegar þú fékkst hugmynd þurftirðu helst að framkvæma hana á stundinni og það var ekki beðið með hlutina, oft gátum við hlegið að slíkum uppá- komum þegar drifið var í hlutum sem „bráðlá á“. Kvöldkaffi, jólaköku- sneið og mjólkurglas fyrir háttinn og notalegt spjall, dagurinn gerður upp, með smágríni. Þú hafðir áhuga á svo mörgu; harmonikkan þín og þú að spila, þú að smíða eitthvað, annaðhvort úti eða inni. Handlaginn og vandvirkur. Já og ekki má gleyma íþróttum, þú hafðir brennandi áhuga á íþróttum og varst ansi góður íþróttamaður. Þið mamma voruð trúaðar mann- eskjur og gáfuð okkur krökkunum þá góðu gjöf inn í lífið. Mig langar að enda þessa litlu kveðju mína á fallegum sálmi sem ég rakst á. Elsku pabbi minn, ég veit að þú varst tilbúinn að fara og náðir að klára það síðasta sem þú ætlaðir þér að gera, að koma heim í sveitina þína á jólunum og borða jólamatinn með fjölskyldunni og kveðja. Á kerti mínu ég kveiki í dag við krossmarkið helgi og friðar, því tíminn mér virðist nú standa í stað, en stöðugt þó fram honum miðar. Ég finn það og veit að við erum ei ein, að almættið vakir oss yfir, því ljósið á kertinu lifir. Við flöktandi logana falla nú tár, það flýr enginn sorgina lengi. Hún braut allar vonir, hún braut allar þrár hún brýtur þá viðkvæmu strengi, er blunda í hjarta og í brjósti hvers manns. Nú birtir, og friður er yfir, því ljósið á kertinu lifir. Sá einn þekkir gleðinnar gáska og fjör sem gist hefur þjáning og pínu. Sá einn getur sigrast á ótta og kvöl, sem eygir í hugskoti sínu, að sorgina við getum virkjað til góðs, í vanmætti sem er oss yfir, ef ljósið á kertinu lifir. (Kristján frá Gilhaga) Þín dóttir, Nína Midjord Erlendsdóttir. Nú hefur þú kvatt okkur, pabbi, og þá er margs að minnast. Æska mín og okkar systkinanna var yndislegur tími og einkennist af væntumþykju og ég held að við höfum verið ótrú- lega heppin að eiga svona góða fjöl- skyldu, pabbi, mamma og Petra frænka sáu um að okkur vantaði aldrei neitt og allir hjálpuðust að við að gera æsku okkar eins góða og hún var. Pabbi var duglegur maður sem vann verkin sín vel og var áreiðan- legur og hann vildi síður draga það til morguns sem hann gat klárað í dag. Hans áhugamál voru íþróttir allskonar, skógrækt og garðrækt og það var regla hjá ykkur mömmu að gróðursetja alltaf nokkrar nýjar hríslur á hverju ári og margar ferðir fórum við uppí Hallormsstað til að kaupa plöntur. Þú varst duglegur að hjálpa mömmu við blómagarðinn og þú vildir hafa fallegt í kringum þig. Þú dáðist að öllum þeim sem stunduðu íþróttir, þú sagðir okkur það margoft að íþróttir væru und- irstaða að góðri heilsu og þú varst líka góð fyrirmynd sem við litum upp til. Búskapurinn var þér mikið áhugamál og þú varst mikill dýravin- ur og sárnaði þér fátt meira en að sjá illa farið með dýr. Nú seinni árin átt- um við nokkrar kindur sem þú sást um meðan heilsan leyfði og eftir það tókst þú þátt í öllu sem um var að vera í kringum þær. Þú varst ólatur að labba niður í fjárhús til að fylgjast með fénu á sauðburði, fylgjast með heyskapnum og smalamennskunum á haustin og hjálpaðir til það sem þú gast, þér fannst það ekki viðeigandi að sitja heima í bæ og horfa á aðra vinna. Þú passaðir alltaf uppá að öll dýrin fengju mat og húsaskjól. Þú vildir hafa allt snyrtilegt í kringum þig og vildir alltaf vera vel til fara, nýklipptur, og þú varst sér- staklega virðulegur þegar þú varst kominn í jakkafötin þín. Þú hafðir gaman af því að gleðja fjölskylduna þína og mér var sagt að þegar þú sem ungur maður varst að koma heim af skólanum eða af vertíð þá hafir þú keypt gjafir til að færa þeim sem heima voru og þessi siður fylgdi ykkur þegar þið fóru eitthvað og við krakkarnir voru heima þá fengum við oft einhvern glaðning þegar þið komu heim. Þú varst mikill barnavinur og hafðir gaman af því að hafa þau í kringum þig og oftar en ekki auka- krakkar á heimilinu okkar og alltaf var nóg pláss fyrir alla og alltaf nóg- ur matur. Það var því mikið áfall fyr- ir þig þegar þú misstir strákana þína og sú reynsla setti mark á þig. Það var dýrmætt fyrir dóttur mína að fá að alast upp hjá hjá ykkur. Það var yndislegt að þú gast framkvæmt ætl- unarverk þitt að koma heim um jólin, þú sast til borðs með okkur, borðaðir uppáhaldsmatinn þinn: rjúpur, rjúpnasósu, jólasalat, brúnaðar kart- öflur og laufabrauð, uppábúinn og virðulegur þó þú hafir verið orðinn svona mikið veikur. Jæja, pabbi, nú kveðjumst við í bili og það er skrítið að hafa þig ekki lengur hér, ég þakka þér samfylgd- ina og takk fyrir allt, elsku pabbi. Sigurbjörg Erlendsdóttir. Erlendur Björgvinsson HINSTA KVEÐJA Elsku afi minn. Ég horfi upp í næturhimininn, sé þar margar stjörnur, nú dvelur þú meðal englanna, þar hefur þú margt að geyma, þar á meðal margar minningar, sem ég mun aldrei gleyma. Hvíl í friði, elsku afi minn. Sigríður Tinna Sveinbjörnsdóttir. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, GRÉTAR ÁSS SIGURÐSSON viðskiptafræðingur, Brúnastekk 11, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík miðvikudaginn 5. janúar kl. 15.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans bent á Krabbameinsfélagið. Sigrún Andrewsdóttir, Sigurður Áss Grétarsson, Árelía Eydís Guðmundsdóttir, Andri Áss Grétarsson, María Árdís Gunnarsdóttir, Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, Steinunn H. Blöndal, Helgi Áss Grétarsson, Ólöf Ingvarsdóttir, og barnabörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, KARIN WAAG HJÁLMARSDÓTTIR, Gullsmára 10, Kópavogi lést á hjúkrunarheimilinu Mörkinni 29. desember. Útför hennar fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík miðvikudaginn 5. janúar kl. 13:00. Hjálmar W. Hannesson, Anna Birgis, María Inga Hannesdóttir, Ólafur Georgsson, Guðrún Andrésdóttir, Jakob Bragi Hannesson, Kristín Hanna Hannesdóttir, Páll Torfi Önundarson, Glódís Karin E. Hannesdóttir, Guðmundur Hannes Hannesson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.