Morgunblaðið - 03.01.2011, Síða 21

Morgunblaðið - 03.01.2011, Síða 21
MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. JANÚAR 2011 Atvinnuauglýsingar Forstjóri Mannvirkjastofnunar Mannvirkjastofnun er ný stofnun sem tekur til starfa þann 1. janúar 2011 skv. lögum nr. 160/2010. Mannvirkjastofnun tekur við hlutverki Bruna- málastofnunar auk verkefna er varða bygging- armál. Markmið nýrra laga um mannvirki er að auka öryggi og gæði mannvirkja, efla neyt- endavernd, bæta skilvirkni í stjórnsýslu mann- virkjamála og tryggja faglega yfirsýn í málaflokknum og samræma byggingareftirlit um land allt. Mannvirkjastofnunin hefur einnig það hlutverk að hafa eftirlit með og vinna að samræmingu brunavarna í landinu, stuðla að samvinnu þeirra sem starfa að brunavörnum og reka Brunamálaskóla. Starfssvið  Stjórnun og stefnumótun stofnunarinnar  Ábyrgð á rekstri, starfsskipulagi og starfsmannamálum  Áætlanagerð  Samskipti við stjórnvöld og hagsmunaaðila Menntunar- og hæfniskröfur Háskólamenntun á sviði mannvirkjamála Þekking á verksviði stofnunarinnar Stjórnunarreynsla Leiðtogahæfileikar og geta til að hvetja aðra til árangurs  Frumkvæði og metnaður til að sýna árangur í starfi og kraftur til að hrinda verkum í framkvæmd  Geta til þess að tjá sig í ræðu og riti á ensku auk dönsku, norsku eða sænsku Viðkomandi þarf að geta hafið störf eigi síðar en 1. apríl 2011. Launakjör eru samkvæmt ákvörðun kjararáðs. Konur jafnt sem karlar eru hvattir til að sækja um stöðuna. Umsóknum skal skilað til umhverfis- ráðuneytisins eigi síðar en 21. janúar 2011. Frekari upplýsingar veitir Magnús Jóhannesson ráðuneytisstjóri umhverfisráðuneytisins í síma 545 8600. Raðauglýsingar 569 1100 Húsnæði íboði ,,Stúdíó”-íbúðir í miðborginni skammtíma-/ langtímaleiga Þrjár fullbúnar ,,stúdíó”- íbúðir í hjarta miðbæjarins. Fyrirspurnir á kirkjuhvoll@kirkjuhvoll.is. Félagslíf MÍMIR 6011010319 I°  GIMLI 6011010319 III° Smáauglýsingar Smáauglýsingar Antík Antikklukkur og viðgerðir Sérhæfð viðgerðarþjónusta á gömlum klukkum og úrum. Guðmundur Hermannsson úrsmíða- meistari, ur@ur.is, s. 554 7770 - 691 8327. Dýrahald Cavalier hvolpar til sölu Þeir eru með ættbók frá HRFÍ, litlu krúttin fæddust 28. okt. Það er hægt að hafa samband í síma 846 4221 eða e-mail: laudia92@hotmail.com, www.teresajo.com. Gisting AKUREYRI Höfum til leigu 50, 85 og 140 m² sumarhús 5 km frá Akureyri, öll með heitum potti og flottu útsýni yfir Akureyri. Bjóðum einnig upp á íbúðir á Akureyri. www.orlofshus.is, Leó, s. 897- 5300. Húsgögn Til sölu queen size rúm 1,53x2 m. Tvöföld Serta dýna. Gafl og falleg yfirbreiðsla fylgja. Verð 80 þús. Uppl. í síma 896 9799. Óska eftir KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR Kaupum gull til að smíða úr. Spörum gjaldeyri. Heiðarleg viðskipti. Aðeins í verslun okkar Laugavegi 61. Jón og Óskar, jonogoskar.is - s. 552-4910. Bókhald Bókhaldsstofan ehf. Reykja- víkurv. 60, Hf. Færsla á bókhaldi, launaútr., vsk-uppgjör, skattframtöl, stofnun fyrirtækja. Magnús Waage, viðurkenndur bókari, s. 863 2275, www.bokhaldsstofan.is. Ýmislegt Náttföt - Sloppar Náttkjólar - Undirkjólar Vönduð vara - Gott verð Bílaþjónusta Ökukennsla Glæsileg kennslubifreið Subaru Impreza AERO 2008, 4WD. Akstursmat og endurtökupróf. Öruggur í vetraraksturinn. Gylfi Guðjónsson, sími 6960042, bilaskoli.is Bilaskoli.is Bókleg námskeið - ökukennsla - akstursmat - kennsla fatlaðra Ævar Friðriksson Toyota Avensis '06. 8637493/5572493. Gylfi Guðjónsson Subaru Impreza '08. 6960042/5666442. Snorri Bjarnason BMW 116i. 8921451/5574975. Visa/Euro. Sverrir Björnsson Volkswagen Passat '08. 8924449/5572940. - nýr auglýsingamiðill  569-1100finnur@mbl.is Þjónustuauglýsingar Tilboð á finnur.is TEXTI + LOGO 6.500 KR. Hægt er að senda pantanir á finnur@mbl.is eða í síma 569 1107 ✝ Ágústa Jóns-dóttir fæddist í Reykjavík 1. sept- ember 1922. Hún andaðist á hjúkr- unarheimilinu Eir að morgni 26. janúar síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Jón Einarsson múrari, f. 30. desem- ber 1878, d. 8. júní 1939, og Anna Jóns- dóttir, f. 7. júlí 1878, d. 29. október 1970, bæði ættuð úr Flóan- um. Systkini Ágústu eru: Salvör, f. 27. október 1903, d. 8. desem- ber 1989, Ingibjörg Guðrún, f. 22. nóvember 1905, d. 27. maí 1976, Kristín, f. 24. mars 1908, d. 3. október 1971, Einar, f. 16. apríl 1912, d. 14. ágúst 1991, Guðrún, f. 20. ágúst 1913, d. 11. janúar 2003, börn þeirra eru Grethe og Kjell Erling; Eyrún hjúkrunarfræð- ingur, búsett í Mofellsbæ, f. 10. jan. 1955, maki hennar er Har- aldur A. Haraldsson, börn Eyrún- ar eru Ágúst Már, Hlín og Kári; Jón Gnarr borgarstjóri, f. 2. jan. 1967, maki hans er Jóhanna Jó- hannsdóttir, börn Jóns eru Dagur Kári, Margrét Edda, Kamilla María. Börn Jóns og Jóhönnu eru: Frosti og Jón Gnarr. Ágústa fæddist og ólst upp í Reykjavík og bjó þar alla sína tíð. Hún gekk í barnaskóla en fór fljótlega að vinna hin ýmsu störf, bæði til sjávar og sveita. Hún vann sem matreiðslukona á Bíó- barnum um nokkurt skeið ásamt systrum sínum Ingibjörgu og Guð- rúnu. Síðustu 25 starfsár sín vann Ágústa í mötuneyti Borgarspít- alans, eða þar til hún lét af störf- um sökum aldurs. Útför Ágústu fer fram frá Frí- kirkjunni í Reykjavík í dag, mánudaginn 3. janúar 2011, kl. 13. Jón f. 30. september 1914, d. 14. júlí 1981, maki Salvör Guð- mundsdóttir, f. 16. október 1918, Gunn- laugur, f. 12. nóv- ember 1918, d. 15. september 1981. Ágústa giftist Kristni Óskarssyni lögregluþjóni árið 1942 og hóf búskap með honum í Reykja- vík. Kristinn fæddist 30. júlí 1918 og lést 30. nóvember árið 2008. Börn Ágústu og Kristins eru Óskar, leigubílstjóri í Reykja- vík, f. 15. des. 1942, maki hans er Jarþrúður Williams, börn Óskars eru: Kristinn, Arnar Freyr, Sig- rún og Hákon; Anna K. Östmark búsett í Noregi, f. 14. nóv. 1946, maki hennar er Gunnar Östmark, Það var óveður í skarðinu og ég var á leiðinni að kveðja hana mömmu mína. Ég komst ekki til hennar í tæka tíð, en við kvöddumst samt. Mamma mín var góð kona, hörkudugleg hafði yndi af börnum og dýrum, mamma var haukur í horni svo margra, mamma gat lagt saman í huganum, mamma spilaði brids, mamma gat sett permanent í vinkonur sínar og systur, mamma gat litað augabrýr, mamma gat bakað góðar tertur, mamma gat eldað góðan mat, mamma passaði börn og dýr fyrir börnin sín, mamma gat hliðrað aðeins til á heimili sínu þannig að börn og barnabörn gátu verið þar um óákveðinn tíma, mamma gleymdi engum afmælisdögum og gaf öllum eins og venjulega rausnarlegar jólagjafir síðustu daga lífs síns, mamma gleymdi engum. Mamma var oftast til staðar fyr- ir mig þegar ég þurfti á henni að halda, en ég var samt ekki alltaf sátt við skoðanir hennar á hinum ýmsu málum sem snertu mig og mitt líf fyrr og síðar. Þegar ég var eitthvað lasin og vildi þá gjarnan að mamma segði: „Elskan mín, nú skaltu bara leggja þig og reyna að sofa, en frekar en að auka mér letina sagði hún mér oftar en ekki söguna af því þegar hún var með 40 stiga hita en fór samt í vinnuna, eða söguna af því þegar hún handleggsbrotnaði en fór samt í vinnuna. „Hún gat reyndar ekki hrært í stóra pott- inum en stelpurnar gerðu það fyrir mig,“ sagði hún. Það þýddi ekkert að vera með eitthvert væl við mömmu. Mamma sagði við mig fyrir nokkrum dögum: „Það getur verið að mig sé að dreyma, en það er oft eins og einhver sé hjá mér og strjúki mér um vangann“ … „ég held að þetta sé hann pabbi þinn“. Það var eins og hún vissi eitthvað, en þó ekki. Ég sé mömmu fyrir mér liggj- andi á akri á ókunnum stað um- vafða blómum, unga og fallega og það kemur myndarlegur ungur maður gangandi til hennar, leggst við hliðina á henni réttir út hönd- ina strýkur henni um vangann og segir rétt si sona: „Ertu nú loksins komin til mín, elsku múa mín.“ Söknuður minn og minna er og verður mikill. Hvíl í friði elsku, besta mamma mín Andvarinn bar rödd mína af stað, hún vildi ná fundi fjallkonunnar. Hún gaf fjallkonunni hold sitt. Hún gaf urðinni bein sín. Hún gaf kyrrðinni óm sinn. Hún gaf húminu blik sitt. Vorinu von sína. Fjallinu líf sitt. Kom til baka og gaf mér dauða sinn. (Kristinn Óskarsson.) Þín dóttir, Eyrún. Ágústa Jónsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.