Morgunblaðið - 03.01.2011, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 03.01.2011, Qupperneq 32
MÁNUDAGUR 3. JANÚAR 3. DAGUR ÁRSINS 2011 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 350 ÁSKRIFT 3990 HELGARÁSKRIFT 2500 PDF Á MBL.IS 2318 1. Tilviljun að ég fór þessa leið 2. Í lífshættu eftir hnefahögg 3. Fæddist klukkan 11:11 4. Vilja ekki afhenda gögnin »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Morgunblaðsflugan góða kom víða við um jól og áramót. Kristinn Sig- mundsson og Mótettukórinn, Jónsi og sjálfur Shakespeare fengu að finna fyrir vængjaslætti hennar og höfðu bæði gagn og gaman af. »26 Morgunblaðið/Eggert Flugan flögraði út um allar þorpagrundir  Snorri Helga- son heldur tvenna tónleika í New York í vikunni, í Scandinavia House 6. janúar og í Rockwood Music Hall daginn eftir. Eftir það kemur hann aftur til Reykjavíkur til að taka upp efni fyrir næstu sólóplötu. Sú fyrsta, I’m gonna put my name on your door, kom út í fyrra. Snorri Helgason í New York  Alþjóðlegur skrítigöngudagur, eða „International Silly Walk Day“ fer fram föstudaginn 7. janúar. Hugmyndin er komin frá vin- sælum grín- skets Monty Pyt- hon. Tilgangurinn með uppátækinu virðist ekki vera neinn annar en sá að hafa gaman af lífinu og víst er að mörg skemmti- leg ljósmyndatækifæri munu verða til. Alþjóðlegur skrítigöngudagur Á þriðjudag Norðlæg átt, 5-13, en 13-20 á A- og SA-landi. Él norðaustantil, en þurrt og bjart að mestu um landið sunnan- og vestanvert. Frost 2 til 12 stig. Á miðvikudag Norðlæg átt, víða 5-13 en hvessir er líður á daginn. Dálítil él á N- og A- landi, en víða bjartviðri annars staðar. Heldur kólnandi. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Snýst í norðan 8-15, fyrst norðvestantil. Él eða snjókoma NA-til en skýjað með köflum S- og V-lands. Hiti 0 til 6 stig en frost víða 0 til 5 stig síðdegis. VEÐUR „Mér líður mjög vel hjá He- arts og er ekkert sér- staklega að hugsa mér til hreyfings. En það kemur að því að ég þarf á nýrri áskor- un að halda til að bæta mig frekar sem knattspyrnu- maður,“ sagði Eskfirðing- urinn Eggert Gunnþór Jóns- son, leikmaður og vara- fyrirliði skoska úrvals- deildarfélagsins Hearts frá Edinborg, í spjalli við Morg- unblaðið um áramótin. »4 Þarf nýja áskorun til að bæta mig Guðmundur Ágúst Kristjánsson, kylf- ingur úr GR, er kominn til landsins eftir vel heppnaða ferð til Bandaríkj- anna þar sem hann hafnaði í 4.-5. sæti á sterku ungmennamóti. Guð- mundur ræddi við Morgunblaðið um árið sem er að líða þar sem hann var farsæll á golf- vellinum innanlands sem erlendis. Sigur á Íslandsmóti 18 ára og yngri reyndist lykillinn að velgengni hans. Sigurinn á Íslands- mótinu var lykillinn Englandsmeistarar Chelsea í knatt- spyrnu eru dottnir út úr hópi fjögurra efstu liða úrvalsdeildarinnar. Þeir gerðu aðeins jafntefli, 3:3, á heima- velli gegn Aston Villa í gær þar sem þrjú mörk voru skoruð á mögnuðum lokakafla. Chelsea er nú í fimmta sætinu, sex stigum á eftir Manchest- er-liðunum tveimur sem eru í topp- sætunum. »3 Chelsea er dottið niður í fimmta sætið ÍÞRÓTTIR Talið er að um 3.500 erlendir ferða- menn hafi varið áramótunum hér á landi. Stígandi hefur verið í ára- mótaferðum erlendra ferðamanna hingað til lands síðustu ár. Að sögn Ernu Hauksdóttur, fram- kvæmdastjóra Samtaka ferðaþjón- ustunnar, eru þetta heldur fleiri ferðamenn en voru hér á sama tíma í fyrra. „Það er búið að vera stígandi í þessu síðustu árin en það er ekkert langt síðan þeir voru mjög fáir. Þeim þykir mjög áhugavert að keyra á milli brenna og horfa á flugeldana.“ Flestir dvelja í landinu í nokkra daga og skilja því eftir töluverðar gjaldeyristekjur hér að hennar sögn. „Það er mikið í boði fyrir erlenda ferðamenn og þeir nýta sér það vel. T.d. hefur hátt hlutfall þeirra farið í dagsferðir en boðið er upp á þær daglega alla dagana yfir jól og ára- mót frá Reykjavík, sama hvaða dag- ur það er.“ Að venju var áramótaveisla í Perl- unni á gamlárskvöld og að sögn Gísla Thoroddsen veitingamanns var uppselt í hana eins og raunar undanfarin ár. „Þetta eru fyrst og fremst útlendingar sem koma alls staðar að. Þeir koma fyrst til okkar að borða og fara svo á brennurnar áður en þeir koma aftur uppeftir til okkar til að horfa á flugeldana.“ Hann á ekki von á því að flugelda- dýrðin hafi valdið þeim vonbrigðum, nema síður sé. „Þeim fannst þetta æðislegt og ég hugsa að þeir séu ennþá með stjörnur í augunum.“ Morgunblaðið/Eggert Brennugleði Þótt erlendir ferðamenn sæki í að upplifa brennurnar yfir ármótin eru flestir brennugestir heimafólk. Meðal þeirra voru þau Katrín Talía og Tristan Imsland sem voru við áramótabrennu Fylkis við Rauðavatn á gamlárskvöld og kvöddu gamla árið með glitrandi stjörnuljósum.  Erlendum ferðamönnum fer æ fjölgandi yfir áramótin  Boðið upp á daglegar ferðir frá Reykjavík um hátíðirnar Ennþá með stjörnur í augum Færri flugeldar en oft áður og heppilegt veðurfar eru sennileg- ar ástæður fyrir því að loftið í Reykjavík hreinsaðist fljótt og vel eftir að mestu flugelda- skotin voru gengin um garð. Af þessum sökum var loftmengun varla mælanleg á nýársdag í Reykjavík, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá Reykja- víkurborg. Gott loft LÍTIÐ SVIFRYK Í BORGINNI

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.