Morgunblaðið - 27.01.2011, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 27.01.2011, Blaðsíða 15
15 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. JANÚAR 2011 Segja boltann hjá stjórnvöldum Þeir stjórnlagaþingsfulltrúar sem Morgunblaðið náði tali af í gær eru flestir sammála um að boltinn sé hjá stjórnvöldum um næstu skref í kjölfar ógildingar kosninganna. Þeir sem taka afstöðu segja þó að réttast væri að kjósa aftur. Fæstir fulltrúanna hafa í hyggju að höfða skaðabótamál gegn ríkinu vegna kostnaðar við kosningarnar og undirbúnings fyrir þingsetuna að svo komnu máli. kjartan@mbl.is Hæstiréttur ógildir kosningu til stjórnlagaþings Andrés Magnússon segir stjórnalagþingmennina hafa hist á fundi í fyrra- kvöld og hafi eiginlega verið samstaða um að bolt- inn væri hjá stjórnvöldum og þingmennirnir væru ekki réttir aðilar til að tjá sig um framhaldið. Varðandi hugsanlega skaðabótakröfu þá snerist málið ekki um per- sónulegan fjárhag þeirra tuttugu og fimm. Andrés Magnússon Ekki í aðstöðu til þess að ræða framhaldið „Ég er þeirrar skoðunar að það sé ekki nema eitt að gera og það er að kjósa aft- ur,“ segir Guðmundur Gunnarsson sem hyggst ekki fara fram með neinar skaðabótakröfur enda hafi hann ekki lagt út eina ein- ustu krónu við kosning- arnar. Hann hafi svo sem eytt töluverðum tíma í undirbúning en hyggst ekki rukka fyrir það. Guðmundur Gunnarsson Ætlar sér ekki að rukka fyrir undirbúning Erlingur Sigurðarson seg- ir að það sé einboðið að kosningarnar til stjórn- lagaþings verði end- urteknar. Ekki þurfi ný framboð eða kynningar. Frambjóðendur standi á sama stað og kvöldið fyrir kjördag í nóvember. Hann hafi ekki íhugað skaða- bótakröfu enda snúist málið ekki um slíkt. Erlingur Sigurðarson Frambjóðendur á sama stað og fyrir kjördag Ari Teitsson segir mjög brýnt að halda stjórnlaga- þingið hvort sem er með núverandi fulltrúum eða öðrum og sem fyrst. Þá segir hann dapurlegt ef þessi tilraun renni út í sandinn vegna smávægi- legra hnökra sem séu að mörgu leyti tilkomnir vegna þeirrar nýjungar sem kosningarnar voru. Segir hann umburðarlyndi dómstóla ekki vera mikið gagnvart því. Ari Teitsson Lítið umburðarlyndi dómstóla vegna hnökra Katrín Fjeldsted telur bolt- ann vera hjá ríkisstjórn og þingi og að nauðsynlegt sé að endurskoða stjórn- arskrána með þeim hætti sem ákveðið hafi verið með stjórnlagaþingi. „Ég vil ekki hugsa þá hugsun á enda ef það verð- ur fallið frá stjórnlaga- þingi. Ég held það hefði ekki góð áhrif á stemminguna í þjóðfélaginu.“ Segist hún alls ekki hafa í hyggju að fara fram á skaðabætur þrátt fyrir að hafa gert ráðstafanir vegna vinnu eins og ýmsir aðrir. Katrín Fjeldsted Að hætta við hefði slæm áhrif á þjóðfélagið „Ég er óskaplega fegin að vera ekki hluti af stjórn- völdum sem þurfa að ákveða framhaldið. Þau eru í miklum vanda. Að hætta við væri mikil upp- gjöf og ótrúlega mikill peningur væri þá farinn í súginn,“ segir Inga Lind. Hún segir líklegast eðli- legast í stöðunni að kjósa aftur en það út- heimti ævintýraleg fjárútlát til viðbótar. Þetta sé eitt af stóru málum ríkisstjórn- arinnar og því sé ekki ólíklegt að sá kostur verði ofan á í framhaldinu. Inga Lind Karlsdóttir Er fegin að vera ekki í sporum stjórnvalda „Það verður að halda stjórnlagaþing og gera það á faglegan og löglegan hátt,“ segir Örn Bárður Jónsson. Hann segir tvær leiðir koma til greina, til að þingið verði að veruleika. Annars vegar að Alþingi skipi þingmennina sem kjörnir voru í nóvember og hins vegar að efna til nýrra kosninga. „Það eru annmarkar á báðum leiðum, finnst mér. Það eru annmarkar á því að skipa, en það er kannski einfaldasta leiðin. Það er svolítið flókið að kjósa upp á nýtt. Það er alltaf spurn- ing hvort það sé vit í því að endurtaka kosn- ingar sem gáfu ákveðna niðurstöðu. Vegna þess að það hefur áhrif á kjósendur í næstu umferð. Það er ekki sjálfgefið að það sé hin rétta leið. Ég dreg það í efa.“ Örn Bárður segist ekki hafa íhugað hvort hann muni krefjast skaðabóta. „Ég þarf að bíða átekta og sjá hvað gerist.“ Örn Bárður Jónsson Efast um að rétt leið sé að endurtaka kosninguna „Við viljum að þetta stjórn- lagaþing verði haldið, það er ekki okkar að ákveða hvort það verði kosið aft- ur,“ segir Ómar. Það sé fyrir hvern og einn að ákveða með hugsanlegt skaðabótamál, hann hafi sjálfur ekki íhugað það. Hann bendir þeim sem hafa gert lítið úr nauðsyn þess að hafa góða stjórnskipun á fordæmi þjóðfundarins árið 1851 sem hafi í raun verið stjórnlagaþing. Í það hafi verið eytt fé þó að þjóðin hafi búið í torfkofum. „Þinginu var slitið. Árangurinn á pappírunum var enginn. Er nokkur sem held- ur því fram að þjóðfundurinn hafi verið óþarfur og ekki gert neitt gagn?“ Ómar Ragnarsson Ekki stjórnlagaþingmanna að ákveða framhaldið „Ég held að eini kosturinn sé bara að kjósa aftur. Það er það eina sem hægt er að gera,“ segir Lýður sem segist myndu bjóða sig fram aftur ef aðstæður standi til þá. Hann segist ekki hyggja á skaðabótamál. Kostn- aðurinn við kosningarnar hafi þegar verið nógu mikill svo það bætist ekki ofan á þjóðina. „Ég var ekki í þessu út af peningum,“ segir Lýður. Lýður Árnason Eini kosturinn að end- urtaka kosningarnar „Mér myndi ekki einu sinni detta það í hug,“ segir Katrín Oddsdóttir spurð að því hvort hún íhugi skaða- bótamál í kjölfar ógildingar kosninganna. „Það er ekki neinn skaði í mínu tilfelli. Mér finnst það bara sorg- legt fyrir Ísland. Það er síst í mínum huga að sækjast eftir peningum úr ríkissjóði þegar það ríkir n.k. lýðræðisleg þjóðarsorg í landinu.“ Katrín Oddsdóttir Dettur ekki í hug að fara fram á skaðabætur „Fyrsta tilfinning mín er sú að það sé réttast að kjósa aftur. Mér finnst nauðsynlegt að það sé lýð- ræðislegt umboð á bak við þetta batterí,“ segir Silja Bára sem gerir ráð fyrir að hún myndi bjóða sig aftur fram ef til þess kæmi. Sjálf segist hún ekki hafa orðið fyrir skaða vegna ógildingarinnar og hafi ekki skoðað hugsanlegt skaðabótamál. Silja Bára Ómarsdóttir Lýðræðislegt umboð er þinginu nauðsynlegt „Við sem höfum „hags- muna“ að gæta eigum eig- inlega ekki að tjá okkur um þetta. Ég er eindreginn stuðningsmaður þess að það verði haldið stjórn- lagaþing en ég held að stjórnvöld og Alþingi verði að fá frið til að finna lausn,“ segir Þorkell Helgason. Hann segist hafa haft beinan og óbeinan kostnað af kosningunum en hann hafi samt ekki íhugað bótakröfu. Þorkell Helgason Stjórnvöld og Alþingi fái frið til að finna lausn Ástrós Gunnlaugsdóttir, nemi, segir að best sé að bíða og sjá og vonast til að stjórnlagaþing verði haldið hvort sem það verði nú eða síðar. „Þetta er vissulega mikið svekkelsi,“ segir hún. Hún sé búin að eyða nán- ast öllu sínu sparifé í kosn- ingabaráttu og hafi tekið sér frí frá námi þessa önnina úr skóla auk þess að setja vinnu til hliðar. Hún eigi von á barni í vor og því ráði hana enginn í aðra vinnu nú. Þá eigi hún ekki rétt á atvinnuleysisbótum þar sem hún sé námsmaður. „Þau mega eiga von á skaða- bótakröfu frá mér,“ segir Ástrós. Ástrós Gunnlaugsdóttir „Mega eiga von á skaðabótamáli frá mér“ „Mér finnst það eigi að gera allt til að tryggja að stjórnlagaþing verði hald- ið, hvort sem það verður haldið núna eða síðar,“ segir Arnfríður Guð- mundsdóttir. „Það þarf að tryggja það að þetta verði að mögu- leika. Mér finnst það mik- ilvægast.“ Arnfríður kveðst ekki hafa hugleitt að krefjast skaðabóta í kjölfar ógildingar kosn- inganna. „Ég sé ekki neina forsendu fyrir mig að gera það. Ég er að sjálfsögðu ríkis- starfsmaður,“ segir Arnfríður að lokum. Arnfríður Guðmundsdóttir Allt gert til að tryggja að þingið verði haldið „Eini kosturinn sem kemur ekki til greina er að hætta við stjórnlagaþingið og hverfa aftur í hin drunga- legu, reykfylltu bakher- bergi fjórflokksins til þess að véla um grundvallarlög íslenska lýðveldisins. Það stendur hins vegar upp á stjórnvöld að finna leiðir,“ segir Eiríkur Bergmann Einarsson. Hann segir aðalmálið að þingið fari fram en atvinnustjórnmálamönnum hafi ekki verið treyst fyrir stjórnarskrárbreytingum þar sem þeir hafi skilað auðu í þeim málum í um sjötíu ár. Ekki gangi að hverfa aftur til hrossakaupa fjórflokksins. Hann segist ekki hafa velt skaðabótakröfu fyrir sér. Þetta sé svo nýskeð að hann hafi ekki velt því fyrir sér ennþá. Eiríkur Bergmann Einarsson Hverfum ekki aftur til hrossakaupa fjórflokksins „Íslands óhamingju verður allt að vopni. Það sem skiptir fyrst og fremst máli er að stjórnlagaþing verði haldið. Einn kosturinn væri að kjósa aftur. Það er bæði dýrt og sérkennilegt, mér finnst það smánar- blettur á okkur að þurfa að fara svona með þessa gjörð eins og gert er með þessum dómi. Mér finnst að það eigi að leita allra leiða til að þessi kosning standi með einhverjum hætti,“ segir Þórhildur Þorleifsdóttir, sem telur ákvörðun Hæstaréttar engan áfellisdóm yfir frambjóð- endum eða kjósendum. Aðeins sé um tækni- leg atriði að ræða sem ekki höfðu áhrif á nið- urstöðu kosninganna sjálfra. Þórhildur Þorleifsdóttir Niðurstöðurnar standi með einhverjum hætti „Ég tel mikilvægt að stjórnlagaþing verði haldið og endurskoðun stjórn- arskrárinnar sé skyn- samlegt að fara í,“ segir Dögg Harðardóttir. Menn hljóti að virða niðurstöðu Hæstaréttar en athyglivert sé að kosningarnar hefðu talist gildar í löndunum í kringum okkur eins og Bretlandi. Enginn hafi efast um að þessir 25 ein- staklingar séu þeir sem þjóðin kaus. Ef ríkið verði skaðabótaskylt sé skynsamlegt að reyna að nota starfskrafta þessa fólks í stað þess að borga því laun fyrir ekki neitt. Dögg Harðardóttir Kosningarnar hefðu stað- ið í nágrannalöndunum „Ef við værum að heyra frá kosningum í öðru landi, dómstóll hefði dæmt þær ógildar, þá held ég að utan frá hefði okkur þótt óeðlilegt ef menn hefðu ákveðið að sniðganga þann úrskurð eða ákveðið að blása þær af. Eins freistandi og það væri fyrir okkur í þessari stöðu að vilja láta eins og ekkert hefði gerst held ég að eðli- legast út frá lýðræðissjónarmiðum sé að boða til annarra kosninga.“ Pawel Bartoszek Verði kosið á ný út frá lýðræðissjónarmiðum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.