Morgunblaðið - 27.01.2011, Blaðsíða 34
34 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. JANÚAR 2011
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Myrkir músíkdagar hefjast form-
lega í kvöld með tónleikum Sinfón-
íuhljómveitar Íslands þar sem Daní-
el Bjarnason sveiflar tónsprotanum.
Á tónleikunum verða frumflutt þrjú
íslensk verk, Birting, hljómsveit-
arverk eftir Daníel sjálfan, Konsert
fyrir bassaklarinettu eftir Steingrím
Rohloff og Fiðlukonsert eftir Finn
Torfa Stefánsson. Þá verður einnig
flutt verk Györgys Ligetis, Atmos-
phéres, en um frumflutning hér á
landi er að ræða.
Daníel er rísandi stjarna í tónlist-
arheiminum hér á landi og hefur
vakið athygli, bæði sem tónskáld og
stjórnandi. Skyldi hann kjósa að
stjórna verkum sínum sjálfur?
„Ég er orðinn vanur að stjórna
mínum eigin verkum; þar sem ég
vinn líka sem hljómsveitarstjóri þá
finnst mér gaman að fylgja verkinu
alla leið, sérstaklega þegar um frum-
flutning er að ræða,“ segir Daníel og
bætir við að verkið sé eiginlega ekki
fætt fyrr en það hefur verið leikið á
tónleikum.
„Mér finnst það eiginlega órjúf-
anlegur hluti af ferlinu að stjórna
frumflutningnum.“
Daníel segir að Birting sé fyrsta
„hreina“ hljómsveitarverkið hans,
það er, ekki samið fyrir einleikara.
„Mig hefur lengi langað til að
skrifa svona hljómsveitarverk. Það
var kominn tími til,“ segir hann.
En skyldi það hljóma eins og hann
ímyndaði sér við skriftirnar?
„Já, það gerir það. Þegar ég skrifa
ímynda ég mér hvernig verki hljóm-
ar; stundum verð ég fyrir ákveðnum
vonbrigðum en sumt hljómar betur
en ég þorði að vona. Maður er alltaf
að prófa eitthvað aðeins nýtt og gera
tilraunir, þannig að maður er aldrei
alveg öruggur.“
Birting er í fjórum hlutum og
Daníel segir verkið nokkuð stórt í
sniðum. „Fyrir þá sem þekkja píanó-
konsertinn minn, Processioins, þá
fer þetta í aðeins aðra átt; þetta er
hægferðugra verk og hljómurinn lík-
lega þéttari.
Mér finnst mikilvægt að verkin
hafi sín sérkenni þótt þau beri líka
höfundareinkenni. Þetta verk er í
raun nokkuð frábrugðið öðru sem ég
hef gert.“ Hann hugsar sig um, bæt-
ir síðan við: „Samt held ég að það sé
hægt að kannast við mig í því.“
Tvær plötur í vinnslu
Daníel segir að síðustu misserin
hafi hann fengist nokkuð jöfnum
höndum við að semja og stjórna.
„Nú er ég hins vegar að
fara inn í tímabil þar sem
ég huga meira að mínu því
ég er með tvær plötur í
vinnslu. Aðra geri ég með
ástralska raftónlistarmann-
inum Ben Frost, hitt er sóló-
plata með eigin verkum.
Já, mér finnst það
mjög góð blanda að
semja bæði og stjórna, svo fram-
arlega sem ég gæti þess að annað
taki ekki alveg yfir.
Mér finnst mikilvægt þegar ég er
að semja að vera í tengslum við lif-
andi flutning, í því er viss jarðteng-
ing, og það gefur mér oft hugmyndir
að vinna mikið með tónlist-
armönnum, og líka að þurfa að
standa andspænis hljóðfæraleik-
urum og áhorfendum.
Ég sé mig ekki fyrir mér bara við
skrifborðið,“ segir Daníel.
„Órjúfanlegur hluti af ferlinu“
Morgunblaðið/Ómar
Stjórnandi og tónskáld Daníel Bjarnason stýrir Sinfóníuhljómsveitinni á æfingu í gær.
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Þessa dagana geta áhugamenn um
samtímamyndlist litið inn á stóra list-
kaupstefnu, ásamt þúsundum ann-
arra gesta. Nú þarf ekki að leggjast í
ferðalg til Basel, Miami eða London
til að sjá hvað kunnustu galleríin hafa
upp á að bjóða, eða til að kaupa verk
eftir misfræga myndlistarmenn. Um
liðna helgi var nefnilega opnuð fyrsta
alþjóðlega listkaupstefnan á netinu,
VIP Art Fair, með þátttöku 139 gall-
ería.
Listkaupstefnan stendur út vik-
una. Um helgina var opið fyrir boðs-
gesti, sem voru að stórum hluta safn-
arar, blaðamenn og fólk sem er í
viðskiptum við galleríin, en þessa
dagana geta allir farið inn og skoðað.
Galleríum er skipt í flokka eftir því
hversu stór eða kunn þau eru. Hvert
þeirra sýnir nokkur verk og er hægt
að renna yfir þau eins og í sýning-
arsal á skjánum, hægt er að skoða
hvert verk betur, fá verðhugmynd –
og er þarna að finna verk á öllum
skalanum; fyrir einhverja tugi þús-
unda eftir lítt þekkta listamenn, upp í
tugi milljóna króna eftir heimskunna.
Þá er hægt að vera í beinu samtali við
starfsfólk galleríanna og fá aðgang að
enn fleiri verkum hjá því.
200.000 heimsóknir
i8 galleríið í Reykjavík hefur síð-
ustu árin tekið þátt í mörgum alþjóð-
legum listkaupstefnum og er eitt
hinna 139 frá 30 löndum sem var boð-
ið að vera með á VIP Art Fair.
„Þetta hefur verið mikið fjör,“ seg-
ir Börkur Arnarson sem stýrir i8.
„Okkur er sagt að vefurinn hafi verið
heimsóttur 200.000 sinnum.“
Hann segir að bæði hafi gengið vel
og illa en um helgina varð álagið svo
mikið á vefinn að hann hrundi gall-
erímegin þótt gestir gætu engu að
síður skoðað flest svæði hans.
„Áhuginn hefur verið mjög mikill,
sem er ánægjulegt, þótt ekki virkaði
allt. Nú er allt komið í lag og mikill
fjöldi gesta. Við ætlum að breyta sýn-
ingunni fyrir síðustu dagana.“
Spurningin sem blaðamenn sem
fjalla um þessa vefkaupstefnu spyrja
er hvernig gangi að selja dýr lista-
verk á netsýningu; jafnvel þrívíða
skúlptúra og innsetningar.
„Ég er ekki viss um það hvort gall-
eríin selja mikið,“ segir Börkur. „Mér
heyrist flestir galleristar vera sam-
mála um að fólk sé mest að skoða; það
fer ekki miklum sögum af sölu. Þarna
er hinsvegar mikið af verkum sem
fólk þekkir, eða verk listamanna sem
það þekkir, og þá veit kaupandinn
nokkuð vel að hverju hann gengur.“
Listkaupstefna
opin á netinu
„Hefur verið mik-
ið fjör,“ segir Börkur
Arnarson hjá i8
Á kaupstefnu Sýning i8 á vefnum.
Verk eftir Ólaf Elíasson skoðað.
WWW.vipartfair.com
Tónleikar Sinfóníuhljómsveitar Íslands í kvöld, sem Daníel Bjarna-
son stjórnar, eru opnunartónleikar Myrkra músíkdaga í ár. Frumflutt
verða þrjú íslensk tónverk, Birting, eftir Daníel sjálfan, Fiðlukonsert
eftir Finn Torfa Stefánsson og Konsert fyrir bassaklarinettu eftir
Steingrím Rolhoff. Einleikarar á tónleikunum eru þau Sigrún
Eðvaldsdóttir og Rúnar Óskarsson.
Ný íslensk tónverk frumflutt
OPNUNARTÓNLEIKAR MYRKRA MÚSÍKDAGA Í KVÖLD
Daníel Bjarnason stjórnar SÍ á tón-
leikum í kvöld Frumflutt verða þrjú
íslensk verk, eitt eftir hann sjálfan
Finnur Torfi Stefánsson
Á Myrkum músíkdögum verður fjölbreytt
efnisskrá að vanda. Daníel Bjarnason
stjórnar tónleikunum og semur auk þess
nýtt hljómsveitarverk. Tveir nýir íslenskir
konsertar hljóma og hinn heillandi hljóðmúr,
Atmosphéres, eftir György Ligeti verður fluttur.
Miðasala á www.sinfonia.is og 545 2500
„Mig langar
sífellt að
prófa nýja
hluti“
György Ligeti