Morgunblaðið - 27.01.2011, Blaðsíða 26
26 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. JANÚAR 2011
✝ Sigurjón Brinkfæddist í Reykja-
vík 29. ágúst 1974.
Hann varð bráð-
kvaddur á heimili
sínu í Garðabæ 17.
janúar 2011. For-
eldrar hans eru
Bjarney Sigríður
Sigurjónsdóttir, f.
17.10. 1955, og Ró-
bert Magnús Brink,
f. 27.11. 1955. Þau
slitu samvistum.
Bjarney giftist Fil-
ippusi Gunnari
Árnasyni, f. 28.7. 1956. Róbert
kvæntist Þórönnu Bjarnadóttur,
f. 15.9. 1955. Systkini Sigurjóns
sammæðra: Árni Filippusson, f.
1982, kona hans er Helena Jóns-
dóttir, f. 1983, dóttir þeirra er
Hrafntinna, f. 2008. Stjúpsystir
Sigurjóns er Nína Dögg Filipp-
usdóttir, f. 1974, maður hennar
er Gísli Örn Garðarsson, f. 1973,
dóttir þeirra er Rakel María, f.
2006. Systkini Sigurjóns sam-
feðra: Róbert Aron Róbertsson, f.
1978, kona hans er Elín Guðlaug
Stefánsdóttir, f. 1975. Rannveig
Hrönn Brink, f. 1979, maður
hennar er Gunnar Örn Helgason,
f. 1979, börn þeirra eru Embla, f.
2003, Rúrik, f. 2009. Magnús Þór
Brink, f. 1987. Unnusta hans er
Ragnhildur Edda Tryggvadóttir,
f. 27.6. 1987. Foreldrar Bjarn-
eyjar voru Aðalheiður Kristín
Óskardóttir, f. 1931, d. 2007, og
Sigurjón Sigurðsson, f. 1929, d.
1965. Foreldrar Róberts voru
gamla Hljóðritanum og var einn
af stofnendum Vesturports. Eig-
inkonu sinni Þórunni Ernu kynnt-
ist hann árið 2002 þegar þau
unnu saman í söngsýningunni Le
Sing Á Broadway og í kjölfarið
sneri hann sér alfarið að tónlist-
inni. Árið 2004 gaf hann út plöt-
una Go your own way með sínum
eigin lögum með hljómsveit sinni
The Flavors. Hann starfaði lengi
sem trúbador og söng víða með
vinum sínum í tónlistinni. Hann
samdi lög fyrir aðra tónlist-
armenn og kom að tónsmíðum
leiksýningarinnar Brims fyrir
Vesturport. Hann setti upp og lék
í Tónleiknum Bítl og tók þátt í
leiksýningum, m.a. Footloose,
leikferðum með Woycheck Vest-
urports, Le Sing á Broadway og
nú síðast Buddy Holly í Aust-
urbæ. Hann tók þátt í fjölmörgum
stórtónleikum, m.a. John Lennon
tribute og Sgt. Peppers tribute,
minningartónleikum Vilhjálms
Vilhjálmssonar og Eagles Tri-
bute. Hann tók þátt í lokakeppni
Söngvakeppni Sjónvarpsins árið
2005 með lagið Hjartaþrá, árið
2006 með lagið Áfram sem hann
samdi ásamt öðrum og árið 2010
með sitt eigið lag og texta, Wa-
terslide. Hann á einnig lag í
keppninni í ár, lagið Aftur heim.
Hann gaf út sólóplötuna Sjonni
Brink árið 2009 með lögum sínum
og Guðmundar Jónssonar úr Sál-
inni. Sigurjón starfaði einnig sem
dagskrárgerðarmaður á Bylgj-
unni. Sigurjón var mikill hesta-
maður og golfari, og félagi í
Hestamannafélaginu Gusti.
Útför Sigurjóns fer fram frá
Grafarvogskirkju í dag, 27. jan-
úar 2011, og hefst athöfnin kl. 15.
Rannveig Magn-
úsdóttir Brink, f.
1933, d. 1991, og
John Marshall
Brink, f. 1926, d.
1965. Foreldrar Þór-
önnu voru Anna Sig-
urðardóttir, f. 1920,
d. 1980, og Bjarni
Markússon, f. 1919,
d. 1988. Foreldrar
Filippusar Gunnars
eru Sólveig Guð-
laugsdóttir, f. 1936,
og Árni Filippusson,
f. 1932.
Eftirlifandi eiginkona Sigurjóns
er Þórunn Erna Clausen leik-
kona, f. 12.9. 1975. Þau hófu sam-
búð árið 2002 og gengu í hjóna-
band hinn 15.11. 2008. Synir
þeirra eru Haukur Örn Brink, f.
3.5. 2005, og Róbert Hrafn Brink,
f. 20.4. 2008. Fyrir átti Sigurjón
tvö börn, Aron Brink, f. 15.2.
1995, og Kristínu Maríu Brink, f.
6.7. 2000. Foreldrar Þórunnar
eru Elín Hrefna Thorarensen, f.
17.2. 1944, og Haukur Clausen, f.
8.11. 1928,d. 1.5. 2003. Alsystir
Þórunnar er Ragnheiður Elín
Clausen, f. 1968.
Sigurjón ólst upp í Breiðholti
og stundaði nám á listabraut í FB
og í Margmiðlunarskólanum.
Hann byrjaði ungur að semja og
flytja tónlist og í Seljaskóla varð
til hljómsveitin In Bloom. Hann
starfaði með föður sínum í Stúd-
íóbrauð og með stjúpföður sínum
í Verkver. Hann stofnaði hljóð-
verið Iceland Music Productions í
Elsku hjartans ástin mín. Ég get
ekkert sagt. Þú varst mér allt.
Minn ástarengill,
megi Guð nú taka á móti þér.
Minn ástarengill,
þegar lífi mínu lýkur mun ég hitta þig
minn ástarengill
er hér, og vakir yfir mér.
Ég þakka fyrir að hafa þig átt,
þú varst stjarna sem stefndir svo hátt.
Bestur varstu samt í því að fá mig til
að hlæja dátt.
Skrítið hvernig lífið er,
enginn veit hvernig allt þetta fer.
Þegar myrkrið svarta mætir mér,
mun ég finna styrk í þér.
Minn ástarengill,
megi Guð nú taka á móti þér.
Minn ástarengill,
þegar lífi mínu lýkur mun ég hitta þig
minn ástarengill
er hér, og vakir yfir mér.
Lítil hjörtu fylla sorgartár,
þín munu sakna um ókomin ár.
En þá segi ég: „ó hversu falleg sál,
hann var hann pabbi þinn“.
Ég skal syngja með þeim lögin þín
og minn’á ljósið sem úr augum þér
skín.
Ég kveð þig hjartagullið mitt,
Guð blessi manninn minn.
Minn ástarengill,
megi Guð nú taka á móti þér.
Minn ástarengill,
þegar lífi mínu lýkur mun ég hitta þig
minn ástarengill
er hér, og vakir yfir mér.
Takk fyrir að gefa mér elsku gull-
molana okkar. Ég mun nota allan
minn mátt í að vernda þau.
Þín alltaf,
Þórunn.
Elsku pabbi minn.
Það er svo óréttlátt að þú sért far-
inn frá mér og okkur öllum.
Þú varst svo skemmtilegur, kátur,
góður, fallegur og hjálpsamur.
Ég man þegar við fórum til Te-
nerife síðasta sumar, það var mjög
gaman að vera með þér og við höfð-
um það svo gaman saman.
Það var gaman að taka upp disk-
inn fyrir jólin þar sem ég söng og þú
spilaðir á gítarinn. Við ætluðum að
syngja fullt saman, pabbi minn.
Þetta er svo skrýtin tilfinning að þú
sért dáinn en ég veit að þú ert alltaf
hjá mér og ég er hjá þér. Þú varst al-
veg frábær persóna og með mikinn
húmor. Þú varst æðislegur söngvari,
ég var svo montin af þér, pabbi minn.
Ég ætla að gera þig mjög stoltan af
mér og ég veit að þú fylgir mér alltaf.
En nú er þessi stund komin sem átti
ekki að vera strax. Ég á svo margar
góðar minningar um þig, elsku
pabbi, í hjartanu.
Ég var gullmolinn þinn og engill-
inn þinn eins og þú sagðir svo oft.
Ég sakna þín mjög mikið, elsku
besti pabbi minn, og ég mun aldrei
gleyma þér.
Þín dóttir,
Kristín María.
Kæri sonur og bróðir.
Það er sárt að þurfa að sjá á eftir
þér úr tilvist okkar. Þú kenndir þér
einskis meins og varst eins heill og
góður og hægt er að vera. Fyrirvara-
laust ertu horfinn.
Heilindi þín, góðmennska, ástríki
og takmarkalaus dugnaður skilaði
þér ótrúlegum árangri í leik og
starfi. Sorgin er þungbær en minn-
ing um ástríkan fyrirmyndardreng
er og verður ljósið í lífi okkar um
ókomna tíð. Við vitum að það verður
gaman, mikil ást og mikið sungið
þegar að endurfundum kemur. Þú
sýndir okkur að ást og friður er allt
sem þarf.
Algóður Guð, viltu vísa Sigurjóni
veginn til þín, geyma hann í faðmi
þínum og blessa Þórunni eiginkonu
hans og börnin Aron, Kristínu Mar-
íu, Hauk Örn og Róbert Hrafn.
Guð geymi þig, elsku Sigurjón.
Pabbi, mamma Þóranna (Tóta)
og Magnús bróðir.
Fyrir tæpum þrjátíu og fjórum ár-
um kynntist ég litlum björtum dreng
sem tók á móti mér inn á heimili sitt
brosandi, þegar við Eyja mamma
hans fórum að vera saman.
Strax þá kom fram þessi eiginleiki
að gefa öllum tækifæri og gera það
besta úr öllu sem upp kom. Ég held
að það hafi ekki skemmt neitt að
Nína Dögg, dóttir mín, var með mér
og með þeim tókst mikil vinátta og
systkinaást frá fyrsta degi. Seinna
þegar Árni fæddist passaði hann upp
á litla bróður sinn, stoltur. Þegar
manni er hent út í svona hyldýpi eins
og nú hefur verið gert koma upp
milljón atvik og atburðir sem rifjast
upp. Við öll sem umgengumst
Sjonna eigum stríðni- og prakkara-
sögur, sem við getum rifjað upp og
gerum það um ókomna framtíð.
Strax kom í ljós að allt sem hann tók
sér fyrir hendur var gert alla leið, í
íþróttum, fimleikum, fótbolta, snó-
ker, skíðum og golfi. Hestamennska
og keppni var áhugamál sem kom
núna á seinni árum og þar eins og
alltaf varð að vinna.
Tónlistin var samt það sem átti
hug hans allan og það voru forrétt-
indi að fá að fylgjast með vexti hans
og þroska og átti hann mikið eftir
ógert þar. Föðurhlutverkið var hon-
um sérstaklega kært og var yndis-
legt að sjá hvernig hann sinnti börn-
unum, þeirra missir er mestur.
Systkinum sínum fimm var hann ein-
staklega mikilvægur félagi og vinur,
þó að hann gæti strítt þeim á sinn
glettna hátt var það alltaf fyrirgefið,
þegar hann setti upp brosið.
Þegar Sjonni hitti Þórunni fyrir
níu árum byrjaði nýr kafli í lífi hans,
tónlistin fékk forgang og hann
blómstraði, þeirra fallega heimili var
okkur öllum opið og þegar fjölskyld-
an hittist vildi hann að það væri hjá
þeim af því að það passaði best.
Núna síðast annan í jólum var stór-
fjölskyldan, móðurmegin, þar með
yndislega stund. Sjonni spilaði á gít-
arinn og krakkarnir gengu í kring-
um. Við ákváðum saman að þetta
skyldum við gera á hverjum jólum í
framtíðinni. En lífið tekur okkur á
staði sem við viljum ekki vera á og
núna hugsum við ekki lengra en
næsta dag, ekki næstu jól. Síðasta
laugardag kom hann við hjá okkur
mömmu og leyfði okkur að hlusta á
endanlega útgáfu af laginu sínu í
söngvakeppninni, svo stoltur. Stoltið
er okkar. Takk, litli drengur, fyrir
samveruna.
Kveðja.
Þinn pabbi,
Gunnar.
Elsku, elsku, elsku besti bróðir
minn. Síðustu dagar hafa verið erf-
iðir, hræðilegir, tómlegir, sorglegir
og hreint út sagt ömurlegir. Eftir
sitjum við öll með sömu spurn-
inguna, „af hverju?“ Hvernig má það
vera að svona yndislegur bróðir, son-
ur, eiginmaður, pabbi og frændi
þurfi að kveðja svona snemma, ég
get ekki séð neitt annað en ósann-
girni í því. Allar minningar sem ég á
um þig eru góðar enda varstu aldrei
neitt annað en góður og vildir öllum
alltaf vel. Við systkinin litum alla tíð
upp til þín og vorum mjög stolt af því
að eiga þig sem bróður. Ég man svo
vel þegar ég var lítil stelpa og við Ró-
bert biðum alltaf svo spennt eftir að
þú kæmir til að vera hjá okkur í
Sandgerði. Þú kenndir okkur alla
nýju töff og kúl frasana úr höfuð-
borginni … þú varst okkar idol. Ég
naut þess að stjana í kringum þig og
„gilla“ þér á bakinu, þú varst nautna-
seggur.
Þú varst alltaf til staðar og tilbú-
inn að hjálpa þegar á þurfti að halda.
Þú varst hægri hönd okkar Gunna
þegar við keyptum okkar fyrstu íbúð
og það var mikið öryggi og ánægja
að hafa þig með í þessu ferli. Svo
komstu daglega til að hjálpa okkur
að gera íbúðina fína og hugmyndir
þínar fengu að njóta sín, þú varst
smekkmaður.
Þú varst góður frændi og áttir
stolta frænku sem var alltaf svo glöð
að sjá þig í sjónvarpinu eða heyra í
þér í útvarpinu. Embla steig sitt
fyrsta skref á sviði með þér fyrir
rúmum 2 vikum og fannst það al-
gjört æði. Þú skynjaðir áhugann hjá
henni og bauðst mér að koma með
hana í bílskúrinn til að taka sönginn
upp. Þannig varst þú, góðhjartaður.
Rúrik fer á mis við mikið að fá ekki
að kynnast þér. Við fjölskyldan mun-
um sjá til þess að hann fái að vita
hvernig maður þú varst og taki þig
til fyrirmyndar.
Þú eltir drauminn þinn og hann
rættist. Þú varst að gera frábæra
hluti í tónlistinni, á leiksviðinu, í út-
varpinu og síðast en ekki síst áttirðu
yndislega fjölskyldu sem þú sinntir
vel, fjölskyldu sem upplifir mikla
sorg og söknuð núna. Þú varst mikill
fjölskyldumaður. Við munum öll
hlúa að fjölskyldu þinni og saman
hjálpumst við að í þessari miklu
sorg. „All those pictures of you in my
head“, eru yndislegar, fallegar, verð-
mætar, ógleymanlegar, ljúfar, hlýj-
ar, og ég mun varðveita þær að eilífu.
Hvíl þú í friði, elsku fallegi bróðir
minn,
Rannveig.
Elsku bróðir besti. Í dag kveð ég
þig, bróður minn og vin minn, allt of
fljótt. Harmur minn er mikill. Þetta
er svo óraunverulegt og ég á afar
erfitt með að skilja hvers vegna þú
ert farinn. Hvernig má það vera?
Ég minnist margs í okkar samlífi;
tilhlökkunarinnar að fá þig í heim-
sókn til Sandgerðis, hvatningar og
umhyggju þegar ég flutti óharðnað-
ur til Reykjavíkur, samveru þinnar
með vinum mínum, spilirís á Hverf-
isbarnum, fæðingar barna þinna,
stolts míns yfir nöfnum mínum
tveim, textagerðar í bíl fyrir utan
stúdíóið í Hafnarfirði, Bítlsins, New
York-ferðar okkar og pabba, brúð-
kaups ykkar Þórunnar og skíðaferð-
ar okkar bræðra í Frakklandi.
Allar mínar minningar um þig eru
fullar af ást og gleði. Við vorum einu
sinni ósáttir. Þá var ég 11 ára og þú
15 ára og ég neitaði að gilla á þér
bakið. Ég var með móral lengi á eft-
ir. Ég hef oft haft það á orði og sótt í
það styrk hversu léttlyndur þú alltaf
varst; yndislegur hæfileiki sem
minnir mig á það hversu miklu máli
skiptir að líta á það jákvæða í lífinu.
Það gerðir þú á einstakan hátt og
smitaðir alla í kringum þig enda
hafðir þú alla tíð mikið að gefa.
Þrátt fyrir að þú sért farinn allt of
snemma hefurðu áorkað miklu.
Börnin þín, konan þín og lögin þín
eru mér afar kær og ég vona það,
bróðir minn, að ég geti hlúð að konu
þinni og börnum eins og mér er frek-
ast unnt. Það er líka mín einlæga von
að samverustundum með Nínu og
Árna muni fjölga til muna.
Við töluðum saman um daginn og
þú varst á leiðinni að heimsækja mig
til Sviss til að skíða með mér í
nokkra daga. Þetta voru okkar síð-
ustu samskipti og þau voru full af til-
hlökkun, spennu og hlátri. Vinskap-
ur okkar og bræðrakærleikur var
sannur. Fyrir það er ég afar þakk-
látur. Ég mun eftir fremsta megni
styðja við Rannveigu, Magnús og
mömmu og pabba á þessum erfiðu
tímum. Því geturðu treyst. Megi
minning þín lifa um ókomna tíð elsku
bróðir,
Róbert Aron.
Elsku hjartans Sjonni minn. Þú
söngst þig inn í hjarta fjölskyldunn-
ar árið 2002 og umvafðir okkur allar
með ást og hlýju frá fyrsta degi.
Glaðværðin og léttleiki þinn gerði
heiminn fallegri og gaf okkur von um
bjarta framtíð. Þið Þórunn gáfuð
okkur mömmu stærstu gjafir lífsins,
augasteinana okkar og hjartagullin
Hauk Örn og Róbert Hrafn. Aron og
Kristín María eru gullmolarnir sem
fylgdu með. Þið voruð meira en hjón.
Þið unnuð saman og voruð sálufélag-
ar. Það geislaði af ykkur hamingjan
og ástin og þið voruð líka svo falleg
saman. Engin orð geta lýst þér né
tilfinningum okkar til þín nógu
sterkt eða vel. Þú varst einfaldlega
falleg sál og fallegur ungur maður.
Þú varst líka svo einlægur og mikill
friðarins maður og fólki leið vel í ná-
vist þinni. Þú varst einstakur pabbi.
Við kveðjum báðar besta vin okkar,
yndislegan tengdason og mág. Hug-
ur okkar og hjarta eru full af minn-
ingum sem tala ljúft til okkar. Þetta
skarð verður aldrei fyllt.
Guð blessi þig og minningu þína,
elsku hjartans Sjonni okkar.
Elín og Ragnheiður.
Elsku Sjonni.
Hvernig er hægt að segja í örfáum
orðum allt það sem mann langar að
segja til þín? Þú sem alltaf varst
hrókur alls fagnaðar í okkar fjöl-
skyldu og reyndar hvar sem þú fórst.
Þessar minningar með þér eru svo
margar og góðar og allar eru þær
augnablik í lífi okkar og minna okkur
á hversu stutt þetta líf er. Annar í
jólum var einn af þeim dögum sem
við hlökkuðum svo til. Þá voruð þið
Þórunn með jólaboð fyrir alla í fjöl-
skyldunni. Börnin okkar munu aldr-
ei gleyma þér og Þórunni spila
„Göngum við í kringum“. Þá varst þú
á gítarnum og Þórunn jólatréð og
allir krakkarnir dönsuðu í kringum
ykkur full aðdáunar á ykkur báðum
hvað þið voruð rosalega flott og frá-
bær. Svona var þetta. Þessum degi
verður við haldið og ávallt dagurinn
okkar fyrir minningu þína. Það er
ekki hægt að sætta sig við að þú sért
farinn, en við munum læra að lifa
með því og halda í allar þær minn-
ingar sem þú hefur gefið okkur.
Ég trúi því að þú sért kominn til
ömmu og afa nafna þíns, þar sem þið
spilið saman, hann á nikkuna og þú á
gítarinn. Þar mun sko engum leiðast.
Elsku Sjonni minn. Þú ert eins og
karakterinn sem þú lékst í Buddy
Holly-söngleiknum. Tekinn frá okk-
ur í blóma lífs þíns, allt of ungur og
allt of fljótt.
Hvert sem þú ferð og hvar sem þú
lendir.
Þá í dag við þig syrgjum og fellum tár.
Við vitum öll að allt hefur sinn endi
en alltaf er skilnaðurinn mjög sár.
Elsku Eyja, Gunni, Árni, Nína,
Þórunn og börn og aðrir aðstand-
endur.
Missir ykkar er mikill.
Guð veri með ykkur og styrki í
þessari sorg.
Hvíldu í friði, Sjonni minn.
Sigurður Hjaltested.
Það er gnístandi sársauki sem
fylgir því að þurfa að setjast niður og
skrifa minningarorð um Sjonna.
Hann var einu ári yngri en ég. Þegar
ég hitti hann fyrst vorum við tvítug-
ir.
Hann með sítt hár og tattú. Rokk-
ari. Ég hugsaði „þetta er ekki að fara
Sigurjón Brink HINSTA KVEÐJA
Elsku sonur minn með fal-
lega brosið og hlýja hjartað.
Horfinn nú er sonurinn ungi,
í huga mínum harmurinn gnístir,
Ó, þessi mikli þungi.
Við í daufu ljósi veginn göngum,
allt í lausu lofti svífur.
Í þráðum örlaganna höngum
Minningin um brosið hans bjarta,
og glaðlega lundin.
Eftir situr í mínu hjarta.
Sofðu vært sonur minn.
Kveðja
mamma.