Morgunblaðið - 27.01.2011, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 27.01.2011, Blaðsíða 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. JANÚAR 2011 ✝ Gyða Jónsdóttirfæddist á Sauð- árkróki 4. ágúst árið 1924. Hún lést á líkn- ardeild Landakots- spítala 17. janúar 2011. Foreldrar henn- ar voru hjónin Geir- laug Jóhannesdóttir, f. 28. júlí 1892, d. 6. apríl 1932, og Jón Þ. Björnsson, skólastjóri á Sauðárkróki, f. 15. ágúst 1882, d. 21. ágúst 1964. Seinni kona Jóns var Rósa Stefánsdóttir, f. 10. október 1895, d. 14. júlí 1993. Fósturbarn þeirra er Geirlaug Björnsdóttir, f. 1939. Gyða var sjötta í röð tíu systkina. Þau eru; Stefán, f. 1913, Jóhanna Margrét, f. 1915, Þorbjörg, f. 1917, Sigurgeir, f. 1918, Björn, f. 1920, Ragnheiður Lilja, f. 1923, Jóhannes Geir, f. 1927, Ragnheiður, f. 1929, og Geirlaugur, f. 1932. Gyða giftist Ottó A. Michelsen for- stjóra, f. 10. júní 1920 á Sauð- árkróki, d. 11. júní 2000. Hann er sonur hjónanna Guðrúnar Páls- dóttur, f. 9. ágúst 1886, og Jörgens Franks Michelsen úrsmíðameistara, fríður, f. 13. apríl 1993, c) Guð- mundur Ottó, f. 28. september 2000, d) Grímur Dagur, f. 2. október 2002. Önnur börn Ottós eru, 1) Helga Ehlers Wolf, f. 5. janúar 1945. Maki Reinhard Wolf. 2) Theodór Kristinn, f. 25. júlí 1951. Maki Árný Elíasdótt- ir. Gyða lauk námi við Héraðskólann á Laugarvatni árið 1943. Síðar fór hún utan til náms. Dvaldi hún nokk- ur ár í Noregi og Finnlandi og lagði þar stund á nám í ýmsum list- greinum með aðaláherslu á listvefn- að. Lauk hún prófi sem heimilisiðn- aðarkennari árið 1953. Gyða kenndi vefnað við Húsmæðraskólann á Blönduósi og starfaði á tímabili við listvefnað hjá Stefáni bróður sínum og konu hans Ernu Ryel. Gyða var mjög listræn og liggja eftir hana fjölmörg ofin listaverk, m.a. verk sem hún vann eftir íslenskum fyr- irmyndum á Þjóðminjasafni Íslands. Gyða hafði mikinn áhuga á tónlist og söng og starfaði m.a. með kór Slysa- varnafélags Íslands. Lengst af söng hún með Kirkjukór Bústaðasóknar, en Gyða og Ottó voru mjög virk í starfi sóknarinnar alla tíð. Síðustu árin átti Gyða góðan vin í Böðvari Jónssyni frá Gautlöndum í Mývatns- sveit en hann lést í nóvember 2009. Útför Gyðu Jónsdóttur fer fram frá Bústaðakirkju í dag, 27. janúar 2011, og hefst athöfnin kl. 13. f. 25. janúar 1882. Ottó og Gyða gengu í hjónaband 6. ágúst 1955. Börn þeirra eru, 1) Óttar, f. 14. jan. 1956. Óttar kvæntist Sigþrúði Alberts- dóttur. Þau skildu. Þeirra sonur er a) Kjartan Þór, f. 13. júní 1988. Önnur börn Ótt- ars eru, b) Kaare, f. 18. maí 1986, og c) Samuel Hjalti, f. 18. júlí 1996. 2) Kjartan, f. 14. jan. 1956, d. 28. júní 2010. Kjartan var barnlaus. 3) Helga Ragnheiður, f. 14. mars 1957. Eiginmaður hennar er Stefán S. Guðjónsson. Börn þeirra eru a) Snorri, f. 7. desember 1981, maki Líf Magneudóttir, börn þeirra eru Styrkár Flóki og Bríet Magnea. Son- ur Lífar er Dagur Ari Kristjánsson, b) Guðrún, f. 20. janúar 1983, c) Ottó Stefán, f. 29. apríl 1986, maki Anna Lilja Gísladóttir, d) Ragnheiður Gyða, f. 20. nóvember 1990. 4) Geir- laug, f. 16. september 1964. Eig- inmaður hennar er Grímur Guð- mundsson. Börn þeirra eru a) Bryndís Gyða, f. 5. júní 1991, b) Snæ- Þegar fyrsti snjór vetrarins féll í síðustu viku lést tengdamóðir mín, Gyða Jónsdóttir, á líknardeild Landakotsspítala. Það var friðsælt þennan morgun, 17. janúar. Gyða var búin að glíma við erf- iðan sjúkdóm sem tók smám saman frá henni allt þrek. Stutt er síðan við kvöddum Kjartan. Hann hafði átt í sínum veikindum í þrjú ár. Sú glíma var oft erfið og reyndi mikið á tengdamömmu og okkur öll. Nú eru þau bæði laus úr þessum viðjum og sameinuð á ný með fólkinu sínu en því trúum við og það gerðu þau líka. Nú þrjátíu árum eftir að kynni okkar Gyðu hófust, fjórum barna- börnum og tveimur barnabarna- börnum síðar, er margs að minnast og margt sem ber að þakka. Gyða var glæsileg kona, tíguleg í fasi en þó umfram allt velviljuð, kærleiks- rík og umhugað um samferðafólk sitt. Hún missti ung móður sína, að- eins sjö ára gömul, og þurfti snemma að standa á eigin fótum. Gyða fór að heiman sextán ára göm- ul og hóf að vinna fyrir sér. Hugur hennar stóð þó til frekara náms enda góðum gáfum gædd. Lauk hún prófi frá Héraðsskólanum á Laug- arvatni og síðan Húsmæðraskólan- um á Laugalandi. Síðar bætti hún við sig námi í listum í Noregi og Finnlandi og útskrifaðist sem heim- ilisiðnaðarkennari. Gyða tengda- móðir mín var ákaflega listræn en það átti hún ekki langt að sækja. Eftir hana eru til teikningar og list- vefnaður sem bera fögru hand- bragði fagurt vitni. Það á m.a. við um vefnað sem hún vann upp úr fyrirmyndum á Þjóðminjasafni Ís- lands. Gyða var þannig gerð að hún tal- aði aldrei illa um nokkurn mann. Alls staðar heillaði hún þá sem hún hitti með sinni góðu nærveru, hóg- værð og hlýju. „Notalegt af þér að hringja svona, Stefán minn,“ sagði tengda- mamma iðulega þegar ég hringdi. Það gerði ég oft, einkum eftir að hún var orðin lasburða. Þá var spjallað um allt milli himins og jarð- ar, oft um Krókinn og Skagafjörð, m.a. skógræktina, en Gyða hafði frá mörgu að segja af viðburðaríkri ævi. Svo vildi hún fá að heyra fréttir, að- allega af börnunum og fjölskyld- unni. Hún fylgdist vel með öllu. Gyða hafði yndi af tónlist og söng. Hún tók þátt í kórastarfi, lengst af með Bústaðakirkjukór en Bústaða- kirkja skipaði stóran sess í lífi henn- ar og Ottós þau ár sem þau bjuggu í Litlagerðinu. Þau tóku þátt í bygg- ingu kirkjunnar, hún skóf timbur og bakaði pönnukökur og hann var „sóknarnefndarformaðurinn með hamarinn“ eins og sagði í fyrirsögn dagblaðs frá þeim tíma. Ottó, eiginmaður Gyðu, var um- svifamikill athafnamaður með mörg járn í eldinum. Störf Ottós settu, eðli máls samkvæmt, svip sinn á líf þeirra beggja. Þó að þau væru ólík um margt voru þau samrýnd hjón sem deildu sömu lífsgildum. Þau voru samtaka þegar kom að Sauð- árkróki og sælureitnum þar, kristi- legum gildum, reglusemi, væntum- þykju til annarra og starfinu í Bústaðasókn. Umfram allt var þeim þó umhugað um velferð barna sinna og barnabarna. Nú að leiðarlokum vil ég þakka Gyðu, tengdamóður minni, allar góðu stundirnar og allt það sem hún hefur kennt mér. Stefán S. Guðjónsson. Amma Gyða var alltaf einn af föstu punktunum í tilverunni. Hún lét sig uppvöxt okkar og uppeldi varða frá fyrsta degi enda nutum við oft samvista við hana fyrstu ævi- ár okkar. Eftir að við urðum fulltíða rifjaði hún það gjarnan upp. Ekki hvað síst þegar hún og Snorri voru „inni í lugga“ að fylgjast með fram- kvæmdum við Keilugrandann. Þegar móðir okkar varð amma minntist amma þess með einstakri hlýju þegar hún varð amma sjálf. Sagði hún að það að verða amma væri það besta í heiminum. Líklega hefur sú einkunn ekkert með okkur systkinin að gera enda minnumst við þess ekki að hafa verið úr hófi fram góð barnabörn. Amma var hins vegar alltaf alveg einstaklega góð amma. Í æsku fórum við oft með ömmu og afa norður í Skagafjörð. Þá var gist á Skógargötunni og við börnin send á reiðnámskeið. Ömmu fannst mjög gaman að gefa fólki að borða og á hverjum degi voru í boði kræs- ingar. Minnisstæðust er okkur leikni hennar í að baka pönnukökur og líklega höfum við sporðrennt þúsundum pönnukaka. Amma Gyða kenndi okkur tvennt mikilvægt um matseld. Það fyrra er að allt má krydda með salti, pipar og smánegul. Hið síðara er hin svo- nefnda frjálsa aðferð. Áratuga- reynsla og mennt í hússtjórnarskól- um hafði auðvitað gefið ömmu gott auga fyrir magni. Allsendis ófeimin höfum við svo apað upp eftir henni Gyða Jónsdóttir ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, JÓNAS HELGASON, Æðey, sem lést fimmtudaginn 20. janúar, verður jarð- sunginn frá Grafarvogskirkju föstudaginn 28. janúar kl. 15.00. Þeim sem vildu minnast hins látna er bent á Hjarta- heill. Katrín S. Alexíusdóttir, Alexíus Jónasson, Edda María Hagalín, Magnús Helgi Jónasson, Sigrún Helgadóttir, Jónas Kristján Jónasson og barnabörn. ✝ Hjartkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, VAGN KRISTJÁNSSON, Boðaþingi 7, Kópavogi, áður Fellsmúla 14, Reykjavík, lést á Landspítalanum í Fossvogi fimmtudaginn 20. janúar. Útför hans fer fram frá Grensáskirkju föstudaginn 28. janúar kl. 11.00. Svana H. Björnsdóttir, Kristján Vagnsson, Hólmfríður Ingvarsdóttir, Björn Vagnsson, Stefán Vagnsson, Guðveig S. Búadóttir, Hreinn Vagnsson, Guðrún Sverrisdóttir, Birgir Vagnsson, Kristín Kristinsdóttir, Gunnar Vagnsson, Elísabet H. Sigurbjörnsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÓSEP HJÁLMAR ÞORGEIRSSON, lést á hjúkrunarheimilinu Sundabúð á Vopnafirði sunnudaginn 23. janúar. Jarðarförin fer fram frá Vopnafjarðarkirkju mánudaginn 31. janúar kl. 13.00. Jóna, Þorgerður, Gyða, Jósep og fjölskyldur. ✝ SMÁRI FANNDAL EINARSSON, Skriðu, Hörgárdal, lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri föstudaginn 21. janúar. Útförin fer fram frá Möðruvallakirkju í Hörgársveit mánudaginn 31. janúar kl. 14.00. Sigurbjörg H. Sæmundsdóttir, Sverrir Haraldsson og fjölskylda. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi, sonur, tengdasonur, bróðir og mágur, GÍSLI ÓLAFUR ÓLAFSSON, Vættagili 21, Akureyri, sem lést af slysförum fimmtudaginn 20. janúar, verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju föstudaginn 28. janúar kl. 10.30. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á reikning nr. 0162-26-6800, kt. 060668-5319. Halla Jensdóttir, Ingvar Örn Gíslason, Ellen Heiður Hreinsdóttir, Ólafur Sveinn Gíslason, Auður Björk Gísladóttir, Eva Hrund Gísladóttir, Embla Sól Ingvarsdóttir, foreldrar, tengdaforeldrar og aðrir aðstandendur. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, stjúpfaðir, tengdafaðir, afi, langafi og bróðir, JÓN SVEINBJÖRN ARNÞÓRSSON stofnandi Iðnaðarsafnsins á Akureyri, Kambagerði 7, Akureyri, andaðist á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri sunnudaginn 23. janúar. Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn 4. febrúar kl. 13.30. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Krabbameinsfélagið. Gisela Rabe-Stephan, Guðbjörg Jónsdóttir, Elna Katrín Jónsdóttir, Jón Hannesson, Arnþór Jónsson, Nanna Baldursdóttir, Jónas Jónsson, Bryndís Lárusdóttir, Helga Elísabet Jónsdóttir, Vilhjálmur H. Waltersson, Friðrik Weisshappel Jónsson, Tine Weisshappel Holmboe, Jón Stefán Pétursson, Anna Margrét Hauksdóttir, Markús Hermann Pétursson, Berglind Rós Guðmundsdóttir, Anna-Lind Pétursdóttir, Skúli Helgason, Sigríður Arnþórsdóttir og fjölskylda, Kristinn Arnþórsson og fjölskylda, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær faðir okkar, afi og langafi, ÁRMANN KRISTJÁNSSON, síðast til heimilis að Víðimel 74, lést á hjúkrunarheimilinu Mörk mánudaginn 24. janúar. Jarðarförin verður auglýst síðar. Rögnvaldur Rúnar Ármannsson, Kristín Inga Ármannsdóttir, Ingólfur Ómar Ármannsson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.