Morgunblaðið - 27.01.2011, Page 23

Morgunblaðið - 27.01.2011, Page 23
MINNINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. JANÚAR 2011 uppskriftar- og mælingaleysið með góðum árangri, þá einna helst við pönnukökubakstur þar sem við segjumst baka eftir leyniuppskrift ömmu. Í seinni tíð urðu svo ákveðin hlutverkaskipti þar sem það varð fastur liður að fara með box af smá- kökum til ömmu í Miðleitið á að- ventunni. Það einkenndi ömmu Gyðu að hún bara gerði hlutina. Til dæmis fannst henni ekkert tiltökumál að kenna Guðrúnu að prjóna aðeins fjögurra ára gamalli svo hún gæti fengið að vera með í saumaklúbbi. Amma Gyða var alltaf svo góð við alla og lét aldrei ljót orð falla um nokkurn mann. Hún sagði að ef maður gæti ekki talað fallega um fólk ætti maður ekki að tala um það. Amma þreyttist aldrei á að segja okkur sögur frá uppvaxtarárum sín- um á Sauðárkróki. Hún gat talað endalaust um lífið á Króknum, gælunöfn fólks og uppnefni, at- vinnuuppbyggingu og þróun skóla- starfs þegar hún var að alast upp. Okkur fannst gaman að heyra hvað amma hafði upplifað mörg ævintýri á ævi sinni. Hún talaði t.d. oft um hernámið á Króknum. Amma vor- kenndi svo bresku hermönnunum enda voru þeir bara strákar sem söknuðu mömmu sinnar. Amma var alltaf hjá okkur á stórhátíðum. Þó að hún hafi aldrei verið hrifin af rjúpum, því henni fannst synd að borða svona fallega fugla, voru samverustundirnar með fjölskyldunni henni dýrmætastar. Það var ómetanlegt að fá að njóta félagsskapar hennar nú um jólin. Þær góðu minningar, eins og aðrar, munu lifa með okkur lengi og eru okkur huggun við fráfall ömmu Gyðu. Snorri, Guðrún, Ottó og Gyða. Hún Gyða, góða og fallega frænka mín hefur kvatt okkur. Hún barðist við sjúkdóm sinn af mikilli reisn og kvaddi með þeirri tign sem einkenndi hana alla tíð. Hún var frænka sem ég elskaði og virti. Vel gefin, vel lesin og alltaf gaman að spjalla við hana því hún hafði alltaf frá einhverju skemmti- legu að segja. Oft á tíðum sagði hún mér sögur af Króknum, af afa Jóni, henni, pabba og hinum yngri systk- inunum. Það leyndust margar skondnar minningar í þeim sjóði. Gyða átti gott líf. Góðan mann, fjögur góð börn, fallegt heimili og sinn auð sem var alúð, reisn og æðruleysi. Ég vil þakka henni fyrir margar yndislegar samverustundir, í Litla- gerðinu, Miðleitinu og á heimili for- eldra minna. Þær minningar eru ljúfar. Guð blessi þig, elsku frænka. Hrönn Geirlaugsdóttir. Væna konu, hver hlýtur hana? Hún er miklu meira virði en perl- ur. Svo kvað Salómon konungur. (Orðskv. 31.10.) Mér koma þessi orð í hug þegar ég minnist Gyðu, tengdamóður son- ar míns. Mér virtust samskipti hennar við menn og málleysingja einkennast af yfirvegaðri rósemd og kærleika. Ekki heyrði ég hana fella dóma um nokkurn mann, sagði í mesta lagi þegar hún var spurð um álit sitt á mönnum, sem voru eða eru mjög í umræðunni: „Æ, ég þekki ekki blessaðan manninn.“ Í þessum anda var einnig heilræði sem hún deildi með barnabörnum sínum: Ef þú getur ekki sagt eitt- hvað gott um manninn eða málið er bara best að segja ekki neitt. Gyða talaði oft um æskuheimili sitt á Sauðár króki og bar mikla elsku til for- eldra sinna og systkina. Eru bjartar bernskuminningar ekki hið besta veganesti hverri manneskju, styrk- ur og vörn? Góðar og kærleiksríkar minning- ar átti Gyða að heiman, minningar sem voru henni styrkur, fagrar minningar sem hún skilaði börnum sínum og barnabörnum. Ég er þakklát fyrir að hafa kynnst Gyðu Jónsdóttur og er ríkari fyrir. Bryndís Víglundsdóttir. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐMUNDUR SIGURJÓNSSON, Glósölum 7, Kópavogi, sem lést þriðjudaginn 18. janúar, verður jarð- sunginn frá Bústaðakirkju föstudaginn 28. janúar kl. 15.00. Eygló Olsen, Valgerður Anna Guðmundsdóttir, Steinþór Óskarsson, Marta Elísabet Guðmundsdóttir, Þórður Vilberg Oddsson, afabörn og langafabörn. ✝ Ástkær sambýlismaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, JÓHANN STEINMANN SIGURÐSSON, Stóru-Tjörnum, Þingeyjarsveit, áður til heimilis að Ránargötu 29, Akureyri, verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju föstudaginn 28. janúar kl. 13.30. Guðríður Sigurgeirsdóttir, Erna Jóhannsdóttir, Egill Bjarnason, Jónína Ingibjörg Jóhannsdóttir, Jón Símon Karlsson, Hólmfríður Jóhannsdóttir, Lars Inge Karlson, Elínrós Þóreyjardóttir, Sigurður Helgi Jóhannsson, Eygló Inga Bergsdóttir, Aðalsteinn Jóhannsson, Linda Ívarsdóttir, afa- og langafabörn. ✝ Útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, BRYNDÍSAR TÓMASDÓTTUR, Jökulgrunni 7, Reykjavík, sem lést laugardaginn 15. janúar, fer fram frá Áskirkju föstudaginn 28. janúar kl. 15.00. Eiríkur Eiríksson, Marie M. Eiríksson, Auðunn Eiríksson, María Sighvatsdóttir og fjölskyldur. ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, SÓLVEIG KARVELSDÓTTIR, verður jarðsungin frá Háteigskirkju föstudaginn 28. janúar kl. 13.00. Sigurður Pálsson, Páll Daníel Sigurðsson, Linda Sjöfn Þórisdóttir, Edda Huld Sigurðardóttir, Þorlákur Már Árnason, Eggert Sigurðsson, Ásta Björk Lundbergsdóttir og barnabörn. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, HRAFNHILDUR ÞÓRÐARDÓTTIR, sem lést miðvikudaginn 19. janúar, verður jarð- sungin frá Bústaðakirkju föstudaginn 28. janúar kl. 13.00. Þeir sem vilja minnast hennar, vinsamlegast láti líknarfélög njóta þess. Þórður G. Lárusson, Unnur K. Sigurðardóttir, Halldór R. Lárusson, Guðlaug Jónasdóttir, Lárus H. Lárusson, Rósa Hallgeirsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, STELLA JÓHANNA MAGNÚSDÓTTIR, er látin. Jarðarförin fór fram í kyrrþey þriðjudaginn 25. janúar að ósk hinnar látnu. Bestu þakkir fyrir auðsýnda samúð og umhyggju sendum við ættingjum, vinum og heilbrigðis- starfsfólki. Nikulás Sveinsson, börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi, FRÍMANN JÓNSSON fyrrv. forstjóri, áður Álfheimum 40, lést á Sóltúni í Reykjavík miðvikudaginn 19. janúar. Jarðarförin fer fram í kyrrþey að ósk hins látna. María Frímannsdóttir, Baldur Ólafsson, Frímann Frímannsson, Hildur Gísladóttir, Rósa Kristín Baldursdóttir, Ólafur Björn Baldursson, Anna Rún Frímannsdóttir, Frímann Örn Frímannsson og fjölskyldur. ✝ Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir og afi, ÓLI G. JÓHANNSSON listmálari, lést á Landspítalanum fimmtudaginn 20. janúar. Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju mánudaginn 31. janúar kl. 13.30. Lilja Sigurðardóttir, Örn Ólason, Christina Nielsen, Sigurður Ólason, Áshildur Hlín Valtýsdóttir, Hjördís Óladóttir, Björn L. Þórisson, Hrefna Óladóttir, Sverrir Gestsson og barnabörn. Elsku afi minn. Það er með söknuð í hjarta, en ekki sorg, að ég kveð þig með þessum orðum. Í mínum huga er það söknuður sem ræður ríkjum þegar ástvinir eru kvaddir sem eiga að baki langa ævi. Og þú, afi minn, áttir langa og góða ævi. Þú eignaðist átta börn með Dúnu þinni. Dúnu þinni sem þú varst alltaf svo skotinn í og saknaðir svo mikið eftir andlát henn- ar. Og ég er sannfærð um, að þið eruð núna sameinuð og hafið um svo ótal- margt að tala. Sorgin fyllir ekki hjarta mitt þegar ég hugsa til baka og rifja upp svo ótal- margar stundir sem ég átti með þér og Dúnu ömmu. Það er söknuður sem ég finn því ekki mun ég kíkja aftur í kaffi í Árskógana. – Krakkarnir mínir eiga margar og góðar minningar um Pétur Jónsson ✝ Pétur Jónssonfæddist í Reykja- vík 9. júní 1921. Hann lést á Landspít- alanum við Hring- braut 6. janúar 2011. Útför Péturs fór fram frá Fossvogs- kirkju 19. janúar 2011. ykkur tvö sem eru rifj- aðar upp þegar við ým- ist sitjum saman og spjöllum eða flettum í gegnum myndaalbúm. Þær minningar eru ei- lífar. Sérstaklega yljar það yngri stelpunum mínum hvernig langafi heilsaði þeim þegar við kíktum í heimsókn. Þá tókstu í höndina á þeim og smelltir kossi á handarbakið. Þeim fannst það svo skemmtilegt og vildu meina að þær einar fengju þannig móttökur. Þú varst flottur og skemmtilegur afi sem sárt verður saknað. Þú varst afi sem hafðir skemmtilegan húmor. Þú varst afi sem ég fékk oft að sitja í fanginu á, þegar ég var lítil. Þú varst afi sem bjóst til góðan mat og bakaðir frábærar jólakökur. En af hverju, afi, vildir þú ekki segja mér leyndarmálið að baki bestu brúnu sósu í heimi, sem borin var fram með steikta lambalær- inu? Elsku afi minn. Guð og góðar vætt- ir geymi þig og Dúnu ömmu. Blessuð sé minning ykkar. Elín. Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Greinarnar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins. Smellt á reit- inn Senda inn efni á forsíðu mbl.is og viðeigandi efnisliður valinn. Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.