Morgunblaðið - 27.01.2011, Page 30

Morgunblaðið - 27.01.2011, Page 30
30 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. JANÚAR 2011 Raðauglýsingar 569 1100 Nauðungarsala Uppboð Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á henni sjálfri, sem hér segir: Smiðjuvellir 17, mhl. 01-0103, verslun, fastanr. 229-7080, Akranesi, þingl. eig. Smiðjuvellir ehf., gerðarbeiðandi Arion banki hf., þriðjudaginn 1. febrúar 2011 kl. 13:00. Sýslumaðurinn á Akranesi, 25. janúar 2011. Halla Bergþóra Björnsdóttir, sýslumaður. Uppboð Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir: Möðrufell 13, 205-2825, Reykjavík, þingl. eig. Jocelyn Betangcor Ragnarsson, gerðarbeiðendur Bílaumboðið Saga ehf. og Reykjavíkur- borg, mánudaginn 31. janúar 2011 kl. 10:30. Torfufell 29, 205-2933, Reykjavík, þingl. eig. Guðfinnur Hafliði Einars- son, gerðarbeiðendur Reykjavíkurborg, Sýslumaðurinn á Blönduósi ogTorfufell 29, húsfélag, mánudaginn 31. janúar 2011 kl. 11:00. Sýslumaðurinn í Reykjavík, 26. janúar 2011. Uppboð Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins að Skógarhlíð 6, Reykjavík, sem hér segir á eftirfarandi eignum: Arahólar 6, 204-9235, Reykjavík, þingl. eig. Örn Ægir Reynisson, gerðarbeiðandi Sýslumaðurinn á Blönduósi, mánudaginn 31. janúar 2011 kl. 10:00. Álftahólar 4, 204-9078, Reykjavík, þingl. eig. Þórhallur Eiríksson og Þórdís Þórarinsdóttir, gerðarbeiðendur Avant hf. og NBI hf., mánudaginn 31. janúar 2011 kl. 10:00. Barmahlíð 30, 203-0090, Reykjavík, þingl. eig. Birgir Guðmundsson, gerðarbeiðandiTryggingamiðstöðin hf., mánudaginn 31. janúar 2011 kl. 10:00. Baugatangi 2, 226-8600, Reykjavík, þingl. eig. Elísabet M. Kristbergs- dóttir og Guðmundur Hinrik Hjaltason, gerðarbeiðandi Íbúðalána- sjóður, mánudaginn 31. janúar 2011 kl. 10:00. Bíldshöfði 7, 204-2927, Reykjavík, þingl. eig. Fasteignafélagið Ártún ehf., gerðarbeiðandi Reykjavíkurborg, mánudaginn 31. janúar 2011 kl. 10:00. Efstaleiti 14, 203-2781, Reykjavík, þingl. eig. Sigurður Örn Sigurðsson, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, mánudaginn 31. janúar 2011 kl. 10:00. Fiskislóð 43, 231-3086, Reykjavík, þingl. eig. Fiskislóð 43 ehf., gerðarbeiðandi Faxaflóahafnir sf., mánudaginn 31. janúar 2011 kl. 10:00. Garðhús 55, 204-0547, Reykjavík, þingl. eig. Þórdís Ósk Helgadóttir, gerðarbeiðendur Frjálsi fjárfestingarbankinn hf. og Íbúðalánasjóður, mánudaginn 31. janúar 2011 kl. 10:00. Garðsstaðir 36, 223-9539, 50% ehl., Reykjavík, þingl. eig. Sigurður Guðjónsson, gerðarbeiðandi Sýslumaðurinn í Kópavogi, mánudaginn 31. janúar 2011 kl. 10:00. Grænahlíð 9, 203-1070, 25% ehl., Reykjavík, þingl. eig. Sturla Sig- hvatsson, gerðarbeiðandiTollstjóri, mánudaginn 31. janúar 2011 kl. 10:00. Jörfabakki 32, 204-8339, Reykjavík, þingl. eig. Margrét Guðlaugs- dóttir, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, mánudaginn 31. janúar 2011 kl. 10:00. Laugateigur 30, 201-9389, Reykjavík, þingl. eig. Gústaf Adolf Her- mannsson, gerðarbeiðandi Íslandsbanki hf., mánudaginn 31. janúar 2011 kl. 10:00. Miðhús 34, 204-1258, Reykjavík, þingl. eig. Ingunn Steina Ericsdóttir, gerðarbeiðandi Lífeyrissjóður starfsm. Rvborgar, mánudaginn 31. janúar 2011 kl. 10:00. Skógarás 20, 227-6623, Reykjavík, þingl. eig. Eignarhaldsfélagið Jörð ehf., gerðarbeiðendur Frjálsi fjárfestingarbankinn hf. og Vörður tryggingar hf., mánudaginn 31. janúar 2011 kl. 10:00. Sólheimar 18, 202-1469, Reykjavík, þingl. eig. Ástríður Ingibjörg Hannesdóttir, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, mánudaginn 31. janúar 2011 kl. 10:00. Æsufell 6, 205-1709, Reykjavík, þingl. eig. Ólöf EddaTrampe og Þórir Arnar Jónsson, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og Æsufell 6, húsfélag, mánudaginn 31. janúar 2011 kl. 10:00. Sýslumaðurinn í Reykjavík, 26. janúar 2011. Uppboð Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins að Hörðuvöllum 1, Selfossi, sem hér segir, á eftirfarandi eignum: Austurvegur 17, Svf. Árborg, fnr. 161847, þingl. eig. Sigfús Kristinsson, gerðarbeiðandi Sveitarfélagið Árborg, fimmtudaginn 3. febrúar 2011 kl. 10:00. Austurvegur 19, Svf. Árborg, fnr. 218-5391, þingl. eig. Sigfús Kristins- son, gerðarbeiðandi Sveitarfélagið Árborg, fimmtudaginn 3. febrúar 2011 kl. 10:00. Austurvegur 19, Svf. Árborg, fnr. 218-5392, þingl. eig. Sigfús Kristins- son, gerðarbeiðandi Sveitarfélagið Árborg, fimmtudaginn 3. febrúar 2011 kl. 10:00. Austurvegur 21, Svf. Árborg, fnr. 218-5396, þingl. eig. Sigfús Kristins- son, gerðarbeiðandi Sveitarfélagið Árborg, fimmtudaginn 3. febrúar 2011 kl. 10:00. Austurvegur 21, Svf. Árborg, fnr. 218-5397, þingl. eig. Sigfús Kristins- son, gerðarbeiðandi Sveitarfélagið Árborg, fimmtudaginn 3. febrúar 2011 kl. 10:00. Austurvegur 40c, Svf. Árborg, fnr. 197868, þingl. eig. Sigfús Kristins- son, gerðarbeiðandi Sveitarfélagið Árborg, fimmtudaginn 3. febrúar 2011 kl. 10:00. Austurvegur 42, Svf. Árborg, fnr. 218-5455, þingl. eig. Sigfús Kristins- son, gerðarbeiðandi Sveitarfélagið Árborg, fimmtudaginn 3. febrúar 2011 kl. 10:00. Austurvegur 42, Svf. Árborg, fnr. 218-5456, þingl. eig. Sigfús Kristins- son, gerðarbeiðandi Sveitarfélagið Árborg, fimmtudaginn 3. febrúar 2011 kl. 10:00. Austurvegur 42, Svf. Árborg, fnr. 225-7991, þingl. eig. Sigfús Kristins- son, gerðarbeiðandi Sveitarfélagið Árborg, fimmtudaginn 3. febrúar 2011 kl. 10:00. Austurvegur 44, Svf. Árborg, fnr. 218-5457, þingl. eig. Sigfús Kristins- son, gerðarbeiðandi Sveitarfélagið Árborg, fimmtudaginn 3. febrúar 2011 kl. 10:00. Austurvegur 44, Svf. Árborg, fnr. 218-5462, þingl. eig. Sigfús Kristins- son, gerðarbeiðandi Sveitarfélagið Árborg, fimmtudaginn 3. febrúar 2011 kl. 10:00. Austurvegur 44, Svf. Árborg, fnr. 218-5463, þingl. eig. Sigfús Kristins- son, gerðarbeiðandi Sveitarfélagið Árborg, fimmtudaginn 3. febrúar 2011 kl. 10:00. Austurvegur 44, Svf. Árborg, fnr. 218-5464, þingl. eig. Sigfús Kristins- son, gerðarbeiðandi Sveitarfélagið Árborg, fimmtudaginn 3. febrúar 2011 kl. 10:00. Álftarimi 9, Svf. Árborg, fnr. 218-5285, þingl. eig. Ari Sveinsson, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og Íslandsbanki hf., fimmtudaginn 3. febrúar 2011 kl. 10:00. Bankavegur 8, Svf. Árborg, fnr. 218-5550, þingl. eig. Sigfús Kristins- son, gerðarbeiðandi Sveitarfélagið Árborg, fimmtudaginn 3. febrúar 2011 kl. 10:00. Eyravegur 16, Svf. Árborg, fnr. 218-5724, þingl. eig. Inga Ragna Holdö, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, fimmtudaginn 3. febrúar 2011 kl. 10:00. Fossvegur 4, Svf. Árborg, fnr. 226-1924, þingl. eig. Stefán Óskar Orlandi, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður ogTryggingamiðstöðin hf., fimmtudaginn 3. febrúar 2011 kl. 10:00. Heimahagi 8, Svf. Árborg, fnr. 218-6372, þingl. eig. Ingveldur Eiríksdóttir og Páll Skaftason, gerðarbeiðandi Sveitarfélagið Árborg, fimmtudaginn 3. febrúar 2011 kl. 10:00. Jórutún 1, Svf. Árborg, fnr. 162329, þingl. eig. Sigfús Kristinsson, gerðarbeiðandi Sveitarfélagið Árborg, fimmtudaginn 3. febrúar 2011 kl. 10:00. Kjarrhólar 26, Svf. Árborg, fnr. 229-0102, þingl. eig. Bjarni Auðunsson og Sigurrós Jónasdóttir, gerðarbeiðandi Sveitarfélagið Árborg, fimmtudaginn 3. febrúar 2011 kl. 10:00. Langamýri 17, Svf. Árborg, fnr. 225-8902, þingl. eig. Sturla Bergsson, gerðarbeiðendur Íslandsbanki hf. og Sjóvá-Almennar tryggingar hf., fimmtudaginn 3. febrúar 2011 kl. 10:00. Reynivellir 10, Svf. Árborg, fnr. 224-4470, þingl. eig. Sigfús Kristins- son, gerðarbeiðandi Sveitarfélagið Árborg, fimmtudaginn 3. febrúar 2011 kl. 10:00. Tröllhólar 1, Svf. Árborg, fnr. 227-3816, þingl. eig. Ólafur Veturliði Björnsson og Áslaug Dröfn Heiðarsdóttir, gerðarbeiðendur Almenni lífeyrissjóðurinn, Íbúðalánasjóður, Sveitarfélagið Árborg, Sýslu- maðurinn á Blönduósi og Vörður tryggingar hf., fimmtudaginn 3. febrúar 2011 kl. 10:00. Vallartröð 10, Svf. Árborg, fnr. 226-6086, þingl. eig. Óli Pétur Gunnars- son, gerðarbeiðandi Sveitarfélagið Árborg, fimmtudaginn 3. febrúar 2011 kl. 10:00. Vallholt 15, Svf. Árborg, fnr. 192288, þingl. eig. Sigfús Kristinsson, gerðarbeiðandi Sveitarfélagið Árborg, fimmtudaginn 3. febrúar 2011 kl. 10:00. Vallholt 20, Svf. Árborg, fnr. 218-7568, þingl. eig. Guðjón Eðvarð Guðbjörnsson, gerðarbeiðendur Sveitarfélagið Árborg ogTrygginga- miðstöðin hf., fimmtudaginn 3. febrúar 2011 kl. 10:00. Sýslumaðurinn á Selfossi, 26. janúar 2011. Ólafur Helgi Kjartansson. ✝ Þorbjörg „Tobbý“Jóna Sigurjóns- dóttir Innocenti fæddist á Lindargötu 3 í Reykja- vík 3. ágúst 1925. Hún lést eftir stutt veikindi á sjúkrahúsi í Bangor, Main 15. janúar 2011. Foreldrar hennar voru þau Jórunn Björns- dóttir, f. 15. september 1901, og Sigurjón Hildi- brandsson, f. 15. janúar 1896. Synir Þorbjargar eru þeir Mark Sigurjón, f. 11. apríl 1954, kvæntur Lori Roggman, og Eric Jón, f. 26. júní 1959, kvæntur Peggy (Bo- yd) Innocenti. Barnabörn Þorbjargar eru þau Ian, Þór, Ariel og Kira og barnabarnabarn hennar Gabriella. Þorbjörg gekk í skóla í Reykjavík og fór síðan utan til náms í Kanada. Hún vann hér á landi hjá bandaríska sendiráðinu um tíma þar sem hún kynntist fyrrverandi eiginmanni sínum, Eu- gene Innocenti, 1953. Hún starfaði til margra ára á skrifstofu Beverly Hospital í Massachusetts og síðar sem sjálfboðaliði í gjafa- vöruverslun sama sjúkrahúss. Árið 2001 flutti hún ásamt Eric Jóni syni sínum og fjöl- skyldu hans til Main. Bálför hefur farið fram í Main í kyrrþey. Þorbjörg verður síðar jarð- sett hjá foreldrum sínum á Íslandi. Árið 1925 var að sönnu merkilegt ár í fjölskyldu minni. Þá fæddust þrjár frænkur, systkinabörn, með stuttu millibili, Hjördís Þorbjörg í maí (móðir mín), Þorbjörg Vigfús- dóttir Arnason (Tua) í Noregi í júlí og Þorbjörg Jóna (Tobbý) í ágúst, allar skírðar í höfuðið á ömmu sinni. Hjördís og Tobbý slitu barnsskónum við Lindargötuna í Reykjavík, Tobbý á Lindargötu 10 og Hjördís á nr. 15. Tua hefur alltaf búið í Noregi. Hún er nú sú eina af þrenningunni sem enn er á lífi, því Hördís dó 1983 og nú lést Tobbý 15. janúar síðastlið- inn á afmælisdegi pabba síns. Þessar þrjár frænkur héldu alltaf sambandi, þrátt fyrir að Tobbý gift- ist og flytti til Bandaríkjanna, Tua býr í Noregi og Hjördís bjó á Íslandi. Öll ár gengu jólakortin á milli þeirra og síðan einnig til Bryndísar móð- ursystur minnar og svo áfram til næsta ættliðar, ég fékk meira að segja jólakortin frá henni meðan ég bjó í Svíþjóð, hún fann mig þar. Svo notuðu þær tækifærin þegar þau gáfust að heimsækja hver aðra. Þannig heimsótti Tua dóttur sína og tengdason þegar þau voru við nám í Bandaríkjunum og Tobbý hitti hana þar. Hjördís var á ferð í Bandaríkj- unum árið 1983 ásamt eiginmanni og syni, þau gistu hjá Tobbý og syni hennar, Eric Jon, og hans fjölskyldu í þrjár vikur í þeirri ferð. Ég minnist Tobbýjar fyrst og fremst fyrir það hvað mér fannst mikill ævintýraljómi vera yfir henni. Hún kom til foreldra sinna á Íslandi annað hvert ár, þá voru synirnir Mark Sigurjon og Eric Jon með í för og gjarnan eiginmaður hennar, en þau slitu síðar samvistir. Tobbý var alltaf kát og glöð, hitti vinkonur sín- ar, drakk kaffi á Borginni og reykti skrítnar sígarettur, en alltaf var hún jafn fín og vel til höfð. Hún átti líka sitt eigið rúm hjá foreldrum sínum og fyrir litla stelpu var svakalega gaman að heimsækja Jóku og Sig- urjón og hoppa í rúminu, innan um alla púðana og pífurnar sem voru á prinsessurúminu því. Síðasta heimsókn hennar til Ís- lands var fyrir nokkrum árum, en ég varð þá þeirrar gleði aðnjótandi að fara með henni og Mark og fjöl- skyldu í Bláa lónið. Unga fólkið busl- aði og skríkti, en við Tobbý lögðum upp í leiðangur og ég held að við höf- um kannað hvern einasta fermetra af Bláa lóninu saman í rólegheitum. Við spjölluðum um heima og geima og hún rifjaði upp gamlar sögur af Lindargötunni. Svo fóru jólakortin að breytast í símtöl og síðustu árin hefur hún hringt reglulega til að fá fréttir, eða öllu heldur útskýringar á fréttum sem hún sá í sjónvarpinu, en hún horfði allaf á CNN og BBC. Hún fylgdist vel með öllu hér heima, bæði þegar „grínistinn“ varð borgarstjóri og eins í hruninu og eldgosinu í fyrravor. Nú er glæsileg kona fallin frá, 85 ára gömul. Við komum til með að sakna hennar, jólakortanna og sím- talanna. Fjölskylda Hjördísar sendir hugheilar kveðjur til sona hennar, tengdadætra og barnabarna, og biðj- um góðan guð að sefa sorg þeirra. Guð blessi minningu mikillar konu. Guðrún Kristinsdóttir (Dúna). Kveðja frá fjölskyldunni í Bandaríkjunum Þorbjörg móðir okkar var mikið fyrir ferðalög og ferðaðist víða, bæði á meginlandi Evrópu og Norður- Ameríku. Hún var mikið fyrir út- saum og prýddi heimili hennar hand- verk hennar. Hún hafði gaman af því að kaupa góða og vandaða hluti, njóta lífsins og vera með fjölskyldu og vinum. Einnig fannst henni gott að fá sér góðan Martini í góðum fé- lagsskap. Hún hélt alltaf sambandi við fjölskyldu, ættingja og vini á Ís- landi og heimsótti þá reglulega. Þorbjörg var ástrík móðir, amma og langamma. Við eftirlifandi synir hennar og makar þeirra, barnabörn og barnabarnabarn kveðjum Tobbý með þessum orðum. Mark Sigurjón og Lori, Eric Jón og Peggy, Ian, Þór, Ariel, Kira og Gabriella. Langri og góðri ævi er lokið. Þor- björg (Tobý) frænka lést 15. janúar eftir stutt veikindi. Hún bjó í Banda- ríkjunum mestan hluta lífs síns en hélt þó alla tíð góðu sambandi við fólkið sitt á Íslandi. Tobý var frænka pabba en eftir skilnað foreldra okkar sýndi hún mömmu sem áður mikið trygglyndi og vináttu. Eftir lát henn- ar hélt Tobý áfram góðu sambandi við okkur systurnar og okkar börn. Fölna lauf og blikna blóm, blöð sín hneigja undir þennan dulardóm að deyja. Þó fölni laufin, blikni blóm og blundi kraftur, undir vorsins virkum róm þau vakna aftur. (J. Hj. Jónsson) Við þökkum Tobý frænku alla góð- vild og ræktarsemi. Ágústa, Anna Þóra, Sigrún og Margrét. Hinsta kveðja. Ég horfi yfir hafið um haust af auðri strönd, í skuggaskýjum grafið það skilur mikil lönd. Sú ströndin strjála og auða, er stari eg héðan af, er ströndin stríðs og nauða, er ströndin hafsins dauða, og hafið dauðans haf. En fyrir handan hafið þar hillir undir land, í gullnum geislum vafið það girðir skýjaband. Þar gróa í grænum hlíðum með gullslit blómin smá, í skógarbeltum blíðum í blómsturlundum fríðum má alls kyns aldin sjá. Þar sé ég sólu fegri á súlum standa höll í dýrð svo dásamlegri, hún drifin gulli er öll. Þar sé ég fylking fríða og fagurbúna sveit um ljóssins sali líða með ljóssins ásýnd blíða í unaðs aldinreit. Ég hljóður eftir hlusta, ég heyri klukkna hljóm. Hve guðleg guðsþjónusta er Guðs í helgidóm! Ég heyri unaðsóma og engla skæra raust, um Drottins dýrðarljóma, um Drottins verk þeir róma um eilífð endalaust. Er þetta hverful hilling og hugarburður manns? Nei, það er fögur fylling á fyrirheitum hans, er sýnir oss í anda Guðs eilíft hjálparráð, og stríðsmenn Guðs þar standa við stól hins allvaldanda. Þar allt er eilíf náð. (Vald. Briem) Hvíl í friði elsku frænka. Bryndís Ágústa, Finnur og börn. Þorbjörg Jóna Sigur- jónsdóttir Innocenti

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.