Skátablaðið


Skátablaðið - 01.04.1945, Page 15

Skátablaðið - 01.04.1945, Page 15
ÆFING með signal-horni, flöggum eða öðru, sem til fellur. Flokksforingjarnir koma nú hver með sinn flokk og fylkja þeim á flötinni fyrir framan aðalstöðvarnar. Yfirflokksfor- inginn getur séð urn að skipa flokkunum rétt upp og skipað fyrir um kveðjur, þegar sveitar- og aðstoðarsveitarforinginn koma. Síðan ávarpar sveitarforinginn skátana og skýrir fyrir þeim æfinguna. Þá hefjast gönguæfingar. Meðan á allri æfingunni stendur gilda auðvitað reglur þær um hegð- un, sem sagt er frá í Skátabókinni bls. 49. Kl. 3.15 fær hver flokksforingi innsiglaðar fyrirskipanir um hvað gera skuli og fara flokkarnir þá hver til síns tjalds. Hefjast nú æfingar flokkanna samkvæmt því. Þegar fyrirskipanirnar eru útbúnar er um tvennt að velja. Annað hvort að láta alla æfinguna vera eina keppni, eða þá láta flokkana æfa hvern sitt atriði og hafa síðan hressandi keppni í lokin. Hér er smásýnishorn af tilhögun. 1. flaggastafróf. Flokkarnir fá mismunandi skilaboð til að senda til aðalstöðvanna. Stig fyrir að ná sem flestum skeytum réttum. 2. björgunarlinukast. Keppni innan flokksins. 3. söfnun. Keppni í hvaða flokkur geti safnað flest- um blómum (með rót og öllu) á 15. mín. 4. lijálp í viðlögum. Ganga frá beinbroti. Stöðva blóðrás. 5. leynimerki. Leikur. Allir flokkarnir fara inn í tjöld sin. (Rifin tjöld forboðin.) Síðan er einn maður sendur úr hverjum flokki, þannig að þeir mætist allir á einum stað. Sendi- SKÁTABLAÐIÐ mennirnir eiga að merkja slóð sína með leynimerkjum. Þó meiga þeir ekki skrifa bréf. Þegar merki er gefið frá aðalstöðvun- um flýta flokkarnir sér út og rekja hver slóð síns sendimanns. Sá flokkurinn, sem fyrstur er, vinnur. Ætlast er til að flokkarnir haldi sambandi við aðalstöðvarnar með semafor-flöggum. Er þar fengin ágæt æfing í flaggastafrófinu. Einnig er hægt að hafa skeyti og tilkynn- ingar, sem fara milli flokkanna og aðal- stöðvanna á dulmáli, svo að aðrir skilji það ekki. En þá þarf auðvitað að ákveða fyrir- fram kóda fyrir hvern flokk. Kl. 5.15 er drukkið. Bezt er að skipa sér- stakan bryta fyrir æfinguna, sem sér um allt í sambandi við eldamennskuna. En hann þarf að fá hjálparmenn úr hverjum flokki. Þegar menn eru orðnir mettir, er fylkt á nýjan leik og sveitarforinginn ávarpar skát- ana í lokin. Síðan eru tjöldin tekin niður og svæðið hreinsað. Eftir það heldur hver til síns heima. 15

x

Skátablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skátablaðið
https://timarit.is/publication/801

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.