Skátablaðið - 01.04.1945, Qupperneq 17
ungaráðsmaður“, og nafnið „deildarráðsfor-
ingi“ finnst mér ekki gott, enda er víst ekki
nema eitt félag hér á landi, sem starfar í
mörgum deildum. —
Ég tel rétt að geta þess hér, að hvert
einasta skátafélag innan Skátasambands
Bandaríkja N.-Ameríku er undir eftirliti
gæzlumanna, — „Troop Committee" eins
og það heitir á ensku, — og má sjá nánar
um þetta í bókinni: Handbook for Scout-
masters, útg. af B.S.A., en þá bók hef ég
verið að lesa í sumar og lært margt af.
Á aðalfundi félagsins, annað hvert ár,
skulu þeir, er kosningarrétt hafa, kjósa skrif-
lega fimm menn sem gæzlumenn félagsins.
Skal svo tilkynna stjórn B.Í.S. kjörið, og
velur hún þrjá af þessum mönnum sem
gæzlumenn, en hinir tveir verða varamenn.
— Kjörtímabil þeirra er tvö ár.
Starfssvið:
í. Gæzlumenn eru málsvari félagsins út á
við.
2. Gæzlumenn stuðla að réttum skilningi
kennara, skólastjóra, presta og annarra
á skátamálefnum með einkasamtölum,
fyrirlestrum í félögum og á annan hátt.
3. Gæzlumenn ábyrgjast, að félagið starfi
í anda skátalaganna og skátaheitsins.
4. Gæzlumenn kjósa einn úr sínum hópi
til þess að sitja í dómstól félagsins. Aðal-
fundur félagsins kýs aftur á móti tvo
skáta í dómstólinn.
5. Gæzlumenn stuðla að útvegun á hent-
ugu húsnæði fyrir félagsstarfsemina.
6. Gæzlumenn fylgjast með starfsemi fé-
lagsins. Hafa þeir því frjálsan aðgang að
öllum fundum í félaginu, mega yfirfara
allar fundargerðabækur o. sl. — Undan-
tekið: fundir og bækur dómstóls.
7. Gæzlumenn fylgjast með eignum, fjár-
hag og bókhaldi félagsins, m. a. með
því að þeir kjósa einn úr sínum hóp
SKÁTABLAÐIÐ
sem annan endurskoðanda félagsreikn-
inganna.
8. Gæzlumenn skulu sérstaklega stuðla að
því að æðstu foringjar félagsins mennti
sig vel í skátafræðum, — og aðstoðar-
foringjar taki það virkan þátt í stjórn
félagsins, að þeir séu vel undir það
búnir að taka við stjórn, ef aðalforingj-
ar láta af störfum.
a) Félag skal ekki hakla skemmtun, hluta-
veltu eða annað slíkt til fjáröflunar,
nema með samþykki gæzlumanna.
b) Félag skal ekki leggja í húsakaup eða
önnur fjárfrek fyrirtæki, nema með sam-
þykki gæzlumanna.
Með skátakveðju.
Hafsteinn O. Hannesson.
Ævintýralegur
næturleikur. Frh■ af bls-12
víst högg í höfuðið um leið og hann datt,“
sagði sveitarforinginn. „En hvernig gaztu
fundið okkur?“ spurði Pétur sveitarforingj-
ann. „Otrarnir hans Vilfreðs komu og sögðu
okkur einhverja tröllasögu um læknisbif-
reið, póstvagn, dauða menn og þjófa. Við
lögðum því strax af stað að leita að ykkur.
En því miður höfðum við ekki hugmynd
um, hvert þið höfðuð þotið, en allt í einu
rak Jón í úlfaflokknum upp óp rnikið.
Hann hafði þá fundið merkið, sem þið
gerðuð á veginn hjá gatnamótunum. Við
skildum strax, hvert þið höfðuð farið, og
rétt í því kom lögregluvagninn. Ég sagði
þeim, hvernig í öllu lá, og svo ókum við
af stað. Hitt vitið þið eins vel og ég. En
það veitir líklega ekki af að fara að koma
ykkur heim.“ „Já, ég gæti nú þegið að fá
eitthvað í gogginn," sagði Tom. „Og ég
fataskipti," sagði Monk. „Ja, þetta var nú
meiri næturleikurinn,“ geispaði Pétur. „Ja-
há, þetta er næturleikur, sem segir sex,“
sagði Jack, um leið og hann spýtti rauðu.
*7