Morgunblaðið - 16.02.2011, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 16.02.2011, Blaðsíða 24
24 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. FEBRÚAR 2011 ✝ Guðlaug Ólafs-dóttir fæddist 9. febrúar 1928 í Dalbæ í Gaulverja- bæjarhreppi. Hún lést á hjúkr- unarheimili Hrafn- istu í Kópavogi. 8. febrúar 2011. Foreldrar henn- ar voru hjónin Sig- ríður Jónsdóttir, f. 12. janúar 1893 í Eystra-Geldingaholti í Gnúp- verjahreppi, d. 19. febrúar 1969, og Ólafur Gestsson, f. 20. september 1888 á Húsatóftum á Skeiðum, d. 21. ágúst 1968. Systkini Guðlaugar voru Jón, f. 1920, d. 1982, Guðný Gróa, f. 1921, 2009, Gestur, f. 1922, d. 1988, Eggert, f. 1923, d. 1978, Hjörtur, f. 1926, d. 2004, og Ingunn, sem lést þriggja vikna gömul árið 1930. Hinn 17. mars 1951 giftist Guðlaug eftirlifandi eig- inmanni sínum, Jóni Arnfinni Þórarinssyni, f. 28. desember 1926. Foreldrar hans voru hjónin Guðný Jónsdóttir, f. 4. apríl 1896, d. 12. september 1986, og Þórarinn J. Ein- arsson, f. 3. september 1897, d. 23. maí 1989. Börn Guðlaugar og Jóns eru Guðný Rut, leik- son. Dóttir: Erla Marey, f. 2010. Eiginkona Arnfinns Sævars er Helga Daníels- dóttir, f. 10. apríl 1966. Börn: 1) Andri Pétur, f. 1983. Son- ur: Markús Blær f. 2007. 2) Ísabella Erna, f. 1994. 3) Gabríela Rut, f. 1996. 4) Daní- ela Sara, f. 1997. Á uppvaxtarárunum var heimili Guðlaugar á Efri- Brúnavöllum á Skeiðum, en ábúð hófu foreldrar hennar þar á jörð sinni árið 1931 sem stóð samfellt til árins 1962. Hún fór til náms við Hús- mæðraskóla Suðurlands á Laugarvatni 1947. Að námi loknu flutti hún til höf- uðborgarinnar með manns- efni sínu, Jóni A. Þórarins- syni, sem hún kynntist á Laugarvatni. Samhent ráku þau matvöruverslunina Vörðufell mestan hluta starfsævinnar, en að því loknu starfaði Guðlaug um tíma í mötuneyti Ora og síðar mötuneyti kennara í Kópa- vogsskóla. En uppvaxtartíma barnanna helgaði hún uppeld- is- og heimilisstörfum. Guð- laug var mikil hannyrðakona og listhneigð, eins og heimili þeirra hjóna og afkomenda hennar bera vitni um í ótal fallega máluðum postulíns- munum og málverkum. Útför Guðlaugar verður gerð frá Digraneskirkju í dag, 16. febrúar 2011, kl. 13. Jarðsett verður í Kópavogs- kirkjugarði. skólakennari, f. 15. desember 1950, Ólafur Haukur, landfræðingur, f. 20. apríl 1953, og Arnfinnur Sævar, framkvæmdastjóri, f. 22. júlí 1958. Eiginmaður Guð- nýjar Rutar er Lárus Valberg. f. 26. desember 1951. Börn: 1) Aldís, f. 1968, sambýlismaður Ívar Bragason. Börn: Ástrós Rut, f. 1988, Garibaldi, f. 1998, og Rú- rik Lárus, f. 2003. 2) Guðjón, f. 1974, eiginkona Valgerður Ósk Ómarsdóttir. Börn: Róbert Ómar, f. 2004, Kristófer Jón, f. 2007, og Helena Rut, f. 2010. 3) Snorri, f. 1978. Sonur: Egill Orri, f. 2001. 4) Eiríkur, f. 1981, eiginkona Elín Njáls- dóttir. Sonur: Lárus, f. 2006. Eiginkona Ólafs Hauks er Inga Lára Helgadóttir, f. 1. júlí 1954. Börn: 1) Helgi Már f. 1977, sambýliskona Árný Ösp Sigurðardóttir. Synir: Sesar Máni, f. 2004, og Ólafur Valur, f. 2008. 2) Jón Örn, f. 1981, sambýliskona Edda Guðríður Ævarsdóttir. 3) Hrafnhildur Ólafsdóttir, f. 1983, sambýlis- maður Kristinn Már Ingimars- Minningar um yndislega og hjartahlýja konu leita nú í hug- ann við andlát elskulegrar tengdamóður minnar. Guðlaug ræktaði garðinn sinn á allan hátt af kærleika og alltaf var hún tilbúin að rétta öðrum hjálpar- hönd. Hún var mikil húsmóðir og ávallt mjög vinnusöm, og lék allt í höndum hennar. Guðlaug var mikil listakona og nutu margir góðs af, þar á meðal dætur mín- ar, sem allar eiga handprjónaðar peysur eftir ömmu sína og hand- málaða bolla og diska sem hún málaði handa allri fjölskyldunni. Þegar jólin nálguðust stóð hún fyrir laufabrauðs- og flatköku- bakstri og kom þá fjölskyldan saman og lærði handtökin hjá henni. Samverustundir með fjöl- skyldunni voru henni dýrmætar. Minningar um yndislega tengda- móður mun ég varðveita um ókomna tíð. Missir Jóns tengda- pabba er mikill, og vil ég biðja al- góðan Guð að styrkja hann í þessum mikla missi. Nú að leið- arlokum þakka ég henni fyrir allt það sem hún var mér og fjöl- skyldu minni og bið henni Guðs blessunar. Helga. Ég finn minningar um ömmu Laugu ylja mér um hjartarætur og áttum við margar góðar stundir saman. Fyrstu minningar um ömmu eru frá Hlíðarvegi þar sem ég og mamma komum oft við. Ég man sérstaklega eftir jól- um með ömmu, afa, mömmu, pabba og Sævari frænda. Dúkkuvagninn sem ég fékk frá ykkur í jólagjöf er sérstaklega ofarlega í minningunni ásamt dúkkunni minni honum Nonna sem fylgdi mér í mörg ár. Oft var farið í búðina fyrir ömmu með Sævari frænda og var þá yfirleitt keypt Mars- súkkulaðistykki sem við hámuð- um í okkur áður en við komum heim með mjólkina. Þegar þau fluttu á Þingholts- brautina voru margar veislur haldnar sem eru ljóslifandi í minningunni. Áramótin voru alltaf tilhlökk- unarefni en þá bauð amma öllu sínu fólki í mat og fengum við alltaf besta rækjukokkteil í heimi með bleiku sósunni í for- rétt. Amma var dugleg að halda ut- an um sitt fólk og alltaf gott að vera í návist hennar. Ég finn fyrir tómarúmi í hjartanu eftir að amma dó en nú verður það okkar að hugsa vel um elsku afa sem hefur misst mikið en þau voru mjög náin. Ég kveð þig amma mín með ljóði sem þú söngst alltaf fyrir mig þegar ég var lítil stelpa að fara að sofa: Ó, faðir, gjör mig lítið ljós um lífs míns stutta skeið, til hjálpar hverjum hal og drós, sem hefur villst af leið. (Matthías Jochumsson) Góða nótt amma mín. Þín Aldís. Elsku amma, núna er kallið komið. Mig langar að þakka þér fyrir þann tíma sem ég fékk að njóta með þér. Það sem situr efst í huga mér eru heimsóknirnar í sumarbústaðinn til ykkar afa þegar ég var yngri. Oft fékk ég að gista hjá ykkur í bústaðnum og var þá mikið sport að fara í heita pottinn eða dunda sér við leik úti. Toppurinn var þegar þú smurðir nesti sem borðað var í lautinni, sem virkaði djúp í þá daga. Það var alltaf hægt að treysta á góðar stundir í bú- staðnum í Grímsnesinu. Á menntaskólaárunum vann ég á sumrin nálægt heimili ykk- ar afa í Lækjasmáranum og kom því iðulega til ykkar í hádeginu. Hvort sem þið voruð heima eða í bústaðnum ykkar voru dyrnar mér alltaf opnar. Alltaf fékk ég hlýjar móttökur og stundum biðu jafnvel gómsætar ömmu- pönnukökur eftir mér. Þú varst mikil listakona og eru ófá verkin til eftir þig, hvert öðru fallegra. Mér finnst ómetanlegt að eiga málaða hluti eftir þig. Elsku amma mín, blessuð sé minning þín. Hrafnhildur Ólafsdóttir. Á þessari stundu leitar hug- urinn óhjákvæmilega til minna yngri ára og allra þeirra stunda sem ég átti með ömmu í Kópi. Stunda sem voru ungum dreng ómetanlegar og stunda sem áttu stóran þátt í að undirbúa ungan dreng undir lífið og móta hann til framtíðar. Eftir standa minning- ar, sem ég mun búa að alla tíð. Það mun seint renna mér úr minni andrúmsloftið á Þinghóls- brautinni. Þar var alltaf rólegt og þar áttum við barnabörnin sannkallað athvarf þar sem vel var hlúð að okkur og þar gátum við stundað okkar barnaleiki áhyggjulaus. Þar var óútskýrð ró og kærleikur sem umvafði mann. Og ferðirnar allar sem farnar voru í Grímsnesið voru auðgandi á svo ótalmarga vegu. Samveru- stundir með ömmu og afa, ná- lægðin við náttúruna, kyrrðin og mikill ærslagangur á víxl virkaði eins og paradís fyrir okkur frændurna. Þar urðu til mikil verkfræðileg undur þegar ham- arinn var mundaður, fleyin ótal- mörg sem fóru í sína fyrstu sigl- ingu á Hvítánni og enduðu svo feril sinn á botni árinnar, og það yfirleitt í jómfrúferðinni. En þar urðu líka til sterk bönd ungs drengs við ömmu sína og afa og fyrir það verð ég ævinlega þakk- látur. Börnum er það eðlislægt að kanna hversu langt þau komast. Og í það nýtti ég nokkrar af sam- verustundum okkar ömmu. Til- raunastarfsemi minni á því svið- inu var þó ávallt tekið af mikilli útsjónarsemi þar sem yfirburð- um og reynslu var beitt á óskilj- anlega árangursríkan hátt. Öll- um heiðarlegum tilraunum mínum til að fjölga gráum hárum ömmu var þannig umsvifalaust mætt af sanngirni og hafði ég heilmikinn lærdóm af. Það er því með miklu þakklæti sem ég kveð ömmu. Áhrif henn- ar á líf mitt voru mikil og djúp- stæð. Eiríkur. Lækkar lífdaga sól. Löng er orðin mín ferð. Fauk í faranda skjól, feginn hvíldinni verð. Guð minn, gefðu þinn frið, gleddu’ og blessaðu þá, sem að lögðu mér lið. Ljósið kveiktu mér hjá. (H. Andrésd.) Í dag kveðjum við Guðlaugu Ólafsdóttur. Kynni okkar af Laugu, eins og hún var alltaf kölluð í okkar hópi, hafa varað í 50 ár. Gleðin er okkur efst í huga í minningunum frá þessum tíma, þegar við vorum ung og vorum að byggja upp framtíðina. Bund- umst við sex hjón tryggðabönd- um sem hafa haldist þannig alla tíð. Var farið í útilegur á hverju sumri með börnunum þegar þau voru ung. Árshátíðir sem sam- anstóðu af vinafólki voru haldnar á hverjum vetri, allt að 90 manns mættu. Öll skemmtiatriði voru heimagerð af þeim hjónum sem voru í forsvari hverju sinni. Svo var það útrásin, nú skyldi halda út í heim og varð Spánn fyrir val- inu. Söfnun stóð yfir í tvö ár og endurtekið á tveggja ára fresti. Einnig var komið saman á hverju sumri í sumarhúsum í Grímsnesinu í nær þrjátíu ár. Ríkti þar gleði og einhugur. Elsku Lauga, með þessum kveðjuorðum langar okkur að þakka þennan tíma sem var ógleymanlegur. Það var fallegt að sjá hvað Jón stóð vel við hlið konu sinnar í þessum erfiðu veikindum hennar. Við sendum Jóni og fjölskyldunni innilegar samúðarkveðjur. Biðjum góðan guð að vera með ykkur. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem) Þínir vinir, Fanney, Erla, Sigríður og Sverrir. Guðlaug Ólafsdóttir ✝ Skúli H. Norð-dahl arkitekt fæddist í Reykjavík 29. júní 1924. Hann lést á hjúkr- unarheimilinu Skjóli 8. janúar 2011. Foreldrar hans voru Haraldur Skúlason Norðdahl tollvörður, f. 24.9. 1897, d. 24.1. 1993 og Valgerður Jónsdóttir Norð- dahl húsmóðir, f. 20.9. 1895, d. 30.9. 1960. Systkini Skúla eru: Kristín Guðrún, f. 8.8. 1926, Guðmundur, f. 29.2. 1929, Jón Bjarni, f. 24.4. 1931 og Jóhannes Víðir, f. 2.6. 1939. Þann 29. mars 1947 kvæntist Skúli Sigríði Guðrúnu Elíasdótt- ur húsmóður, f. 22.11. 1925, d. 1.5. 1992. Kjörforeldrar hennar voru Elías Kærnested Pálsson og Guðrún Guðmundsdóttir. Skúli, Sigríður Helga, Val- gerður Kirstín og Matthildur Þóra. Skúli ólst upp í Reykjavík. Hann varð stúdent frá Mennta- skólanum í Reykjavík 1944 og nam arkitektúr við Tæknihá- skólann í Þrándheimi, Noregi, 1947-1951 og skipulagsfræði við Konunglega tækniháskólann í Stokkhólmi 1952. Skúli starfaði hjá Borgarskipulagi Stokk- hólms 1952-53. Hann rak eigin teiknistofu í Reykjavík frá 1954 samhliða störfum við teiknistofu SÍS 1954-56, Skipulagsdeild Reykjavíkurborgar 1956-60, Rannsóknastofnun bygging- ariðnaðarins 1964-65, var skipu- lagsstjóri Kópavogs 1969-1989. Skúli skrifaði greinar um skipu- lags- og byggingamál í fagtíma- rit og dagblöð, hélt útvarps- erindi um daginn og veginn reglulega á árunum 1955-56 og um bygginga- og skipulagsmál. Hann gegndi ýmsum fé- lagsstörfum. Jarðarför Skúla fór fram í kyrrþey. Sambýliskona Skúla síðustu árin var Björg Valgeirs- dóttir, f. 12.5. 1925. Skúli og Sigríður eignuðust 5 börn: 1) Guðrún Valgerður, f. 26.8. 1948, gift Loga Jónssyni, f. 19.11. 1948, þau eiga 2 dætur: Ástu og Hrund og tvo dóttursyni, 2) Guð- björg Astrid, f. 8.10. 1953, eig- inmaður hennar var Þórarinn Kjartansson, f. 28.7. 1952, d. 17.11. 2007, synir þeirra eru Kjartan og Skúli, 3) Ingibjörg Lára, f. 11.9. 1959, eiginmaður hennar er Jón Þrándur Steins- son, f. 9.5. 1958, börn þeirra eru Halldóra, Arnar og Haukur, 4) Valgerður Hrund, f. 17.9. 1963, 5) Elías Skúli, f. 16.8. 1965, kvæntur Sigrúnu Faulk, f. 1.8. 1968, börn þeirra eru Þorvaldur Genginn er öðlingurinn Skúli H. Norðdahl. Kynni okkar hófust árið 1958 í sambandi við störf okkar beggja. Hann var fagmað- ur sem maður gat treyst til góðra verka, átti auðvelt með að hlusta á viðhorf og ábendingar annarra en mín reynsla var sú að hann hugsaði fyrst og fremst um hag viðskiptamannsins. Það var því auðvelt val fyrir okkur hjónin að velja arkitekt að húsi og heimili okkar. Við veltum fyrir okkur hugmyndum Skúla og okkar í næstum ár, sem hæfðu fjölskyldu og efnahag sem byggðist á laun- um en ekki lánum sem voru ekki í boði. Niðurstaðan var eins og Skúli sagði hús frá vöggu til graf- ar sem reyndust orð að sönnu. Í sambandi við starf mitt átt- um við oft samskipti sem ávallt voru hreinskiptin. Með samræð- um náðum við ávallt farsælli nið- urstöðu. Sóknarnefnd Garða- sóknar valdi Skúla sem arkitekt að safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli og Vídalínskirkju sem var gæfu- spor. Þar voru litlir fjármunir til framkvæmda en framlag félaga í Bræðrafélagi Garðakirkju og fjölskyldna þeirra með sjálfboða- vinnu bjargaði miklu. Erfitt var að fá að greiða Skúla fyrir vinnu sína og svarið var gjarnan: „Ég hef ekki tekið það saman“ eða: „Það liggur ekkert á því að borga núna.“ Svona voru mín kynni af honum. Ég vil votta fjölskyldu Skúla samúð og vona að minning um góðan dreng styrki ykkur í sorg- inni. Að lokum vil ég þakka Skúla fyrir meira en hálfrar aldar vin- áttu. Far þú í friði, kæri vinur. Jón Fr. Sigvaldason. Fallinn er frá Skúli Haralds- son Norðdahl arkitekt sem setti eftirminnileg spor í félagssögu okkar arkitekta. Eftir stúdents- próf frá MR fór Skúli til náms í byggingarlist í NTH í Þránd- heimi og lauk þaðan prófi árið 1951. Skúli hélt þaðan til Stokk- hólms og nam skipulagsfræði við Konunglega tækniháskólann og starfaði síðan á teiknistofu þar í borg um skeið. Skúli hélt til Ís- lands árið 1954 til starfa á teikni- stofu SÍS. Skipulagsstörf voru honum æ huglæg og árin 1956-1960 starf- aði hann á skipulagsdeild borg- arinnar. Um tíma starfaði hann hjá Rannsóknarstofnun bygging- ariðnaðarins, en árið 1969 varð hann skipulagsstjóri Kópavogs- bæjar og gegndi því starfi um 20 ára skeið, eða þar til hann fór á eftirlaun 1989. Auk ýmissa einbýlishúsa teiknaði Skúli m.a. Vídalíns- kirkju ásamt safnaðarheimili í Garðabæ og Hafralækjarskóla í Aðaldal. Skúli gekk í Húsameist- arafélag Íslands árið 1953 og varð félagi nr. 27 frá stofnun þess. Nafni félagsins var síðan breytt í Arkitektafélag Íslands árið 1956. Hann gerðist fljótlega virkur í málefnum arkitekta og lét mikið að sér kveða í fé- lagsstörfum. Skúli var kosinn rit- ari félagsins á aðalfundi 1954 og jafnframt í tímaritsnefnd. Árum saman sat hann í ýmsum nefnd- um félagsins. Skúli var mjög ná- kvæmur í störfum og gerðar- bókafærslur hans eru til eftirbreytni. Hann var á móti til- slökun á reglum félagsins. Lög bar að túlka bókstaflega og hnika ekki frá t.d. gjaldskrá og sam- keppnisreglum eða opna leiðir fram hjá þeim. Ýmsir ungir arki- tektar töldu eflaust Skúla standa gegn eðlilegum framförum og vera ekki opinn fyrir nýjum við- skiptaháttum, en hann sat við sinn keip og átti dygga fylgis- menn. Skúli var virkur í gufubaðs- klúbbi arkitekta í Nauthólsvík, en hann var þá líka mál- skrafsstaður arkitekta. Þeir fé- lagarnir Skúli og Hannes Kr. Davíðsson fóru þar oft á kostum í umfjöllun um arkitektúr og þjóð- félagsmál. Skúli skrifaði fjölda greina um fagleg mál auk stjórn- málagreina. Hann var róttækur í skoðunum og barðist fyrir opn- ara samfélagi og gegn spillingu. Á aðalfundi AÍ 1990 var Skúla veitt viðurkenning fyrir vel unnin störf, sem er æðsta viðurkenning þess á eftir heiðursfélaganafn- bót. Gamlir starfsbræður minn- ast Skúla sem mikils málafylgju- manns, sem barðist fyrir því sem hann áleit að væri stéttinni fyrir bestu. Í haust urðum við kollegarnir þeirrar ánægju aðnjótandi að heimsækja Skúla á dvalarheim- ilinu Skjóli til að fræðast af hon- um frekar um félagið. Auk ýmiss fróðleiks hafði hann yndi af því að segja okkur frá sveitinni sinni Mosfellssveit sem blasti við út um gluggann. Síðustu heimsókn okkar til hans og blessunarorðin sem fylgdu okkur heim geymum við í huga okkar og við minnumst með hlýju góðs félaga. Að leiðarlokum viljum við fyrir hönd Arkitektafélags Íslands þakka Skúla H. Norðdahl sam- fylgdina og samstarfið um leið og við vottum aðstandendum samúð okkar. Albína Thordarson, Haraldur Helgason, Örnólfur Hall. Skúli H. NorðdahlMorgunblaðið birtir minning- argreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Greinarnar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins. Smellt á reitinn Senda inn efni á forsíðu mbl.is og viðeigandi efn- isliður valinn. Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda ör- stutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síð- una. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu að- standendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hve- nær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í for- málanum, sem er feitletraður, en ekki í minningargreinunum. Undirskrift | Minningargreina- höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.