Morgunblaðið - 16.02.2011, Side 27
DAGBÓK 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. FEBRÚAR 2011
Grettir
Smáfólk
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
ÞETTA ER VISSULEGA
ÁNÆGJULEGUR...
...DAGUR!
LÍKAM-
LEG VINNA
ER GÓÐ
HÚN HJÁLPAR TIL
VIÐ AÐ HVÍLA HUGANN
ÞEGAR MÉR LÍÐUR ILLA
ÞÁ BYGGI ÉG KASTALA
ÉG ER BÚINN AÐ VERA
FREKAR ÞUNGLYNDUR
ÉG ER BÚIN
AÐ FÁ NÓG AF ÞVÍ
AÐ HREINSA UPP
EFTIR ÞIG!
HELGA, ÞÚ
ERT YNDISLEG OG
DUGLEG KONA...
...OG
ÉG VIL AÐ ÞÚ
VITIR AÐ ÉG
KANN AÐ
META ÞAÐ!
ÉG ÆTLA AÐ
SÝNA ÞÉR ÞAÐ MEÐ ÞVÍ
AÐ KAUPA NÝJAN PLÓG
HANDA ÞÉR!
ÉG FÓR AFTUR Í
RÆKTINA Í DAG,
Í FJÓRÐA SKIPTIÐ Í
ÞESSARI VIKU
VEL
GERT HJÁ
ÞÉR!
ÉG ER LÍKA
HÆTTUR AÐ BORÐA
DJÚPSTEIKTAN MAT OG
BORÐA HELMINGI MINNA
EN ÉG GERÐI ÁÐUR
FRÁBÆRT!
ÉG ER SVO
STOLT AF
ÞÉR ELSKAN!
*ANDVARP!*
ÞETTA
ER PATT-
STAÐA
ÉG GET
EKKI LOSAÐ MIG
ÚR ÞESSARI
VÉL...
OG ÞÚ GETUR
EKKI SAGAÐ Í
SUNDUR KLÆRNAR
EF TIL VILL
VÆRI BEST AÐ VIÐ
KÆMUMST AÐ
EINHVERS KONAR
SAMKOMULAGI
HVAÐ HEFURÐU
Í HUGA?
Vestfirsku
alparnir
Skaginn milli Arn-
arfjarðar og Dýra-
fjarðar er stundum
nefndur vestfirsku
alparnir. En hvernig
skal það nafn vera
til komið? Maður var
nefndur Einar Þ.
Guðjohnsen, ferða-
málafrömuður og
fararstjóri til
margra ára, og kom
oft með ferðahópa til
Vestfjarða á sinni
tíð. Eftir því sem
næst verður komist
mun hann fyrstur manna hafa
byrjað að kalla skagann vestfirsku
alpana, þar sem hvassbrýnd fjöll-
in, hornin og tind-
arnir á utanverðum
skaganum minntu
hann mjög á hin
þekktu Alpafjöll suð-
ur í Evrópu. Það er
vert að rifja þetta
upp núna, þegar í
fjölmiðlum dynja aug-
lýsingar þar sem
koma fyrir nöfnin
norðlensku alparnir,
siglfirsku alparnir og
austfirsku alparnir,
svo dæmi séu nefnd.
Hallgrímur Sveinsson,
Brekku, Dýrafirði.
Ást er…
… að fara vel með það
sem á að endast lengi.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara
Aflagrandi 40 | Vinnustofa, postulín kl.
9, útskurður/postulín/Grandabíó kl. 13.
Árskógar 4 | Handavinna/smíði/
útskurður kl. 9. Heilsugæsla kl. 10.
Bólstaðarhlíð 43 | Spiladagur, glerlist
og handavinna allan daginn.
Bústaðakirkja | Handavinna, spilað og
föndrað sem fyrr kl. 13. Börn úr Foss-
vogsskóla mæta og spila félagsvist.
Hjúkrunarfræðinemar koma og kynna
sér félagsstarfið. Ritningarlestur og
bæn.
Dalbraut 18-20 | Handavinna kl. 9, leik-
fimi kl. 10, verslunarferð í Bónus kl.
14.40.
Dalbraut 27 | Handavinnustofa kl. 8,
vefnaður kl. 9, leikfimi kl. 11.
Félag eldri borgara, Reykjavík |
Göngu-hrólfar fara í létta göngu kl. 10.
Söngvaka kl. 14, umsjón Helgi Seljan og
Sigurður Jónsson. Söngfélag FEB kóræf-
ing kl. 17. Aðalfundur félagsins föstudag
18. febrúar kl. 13. í Stangarhyl 4.
Félagsheimilið Boðinn | Stólaleikfimi
kl. 10.30, hádegismatur kl. 12.
Félagsheimilið Gjábakki | Botsía kl.
9.30/10.30, leiðbeinandi í handavinnu
kl. 9, glerlist kl. 9.30/13, félagsvist kl. 13,
viðtalstími FEBK kl. 15, bobb kl. 16.30. Á
morgun, 17. feb., kl. 14 verður Góugleði
með góðri dagskrá og vöfflukaffi.
Félagsheimilið Gullsmára 13 | Mynd-
list kl. 9.05, ganga kl. 10, postulíns-
málun, kvennabrids, málm- og silf-
ursmíði kl. 13. Íslendingasögur kl. 16.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ |
Vatnsleikfimi kl. 8.15/12.10, kvenna-
leikfimi kl. 9.15, 10, 11, bútasaumur/
brids kl. 13.
Félagsstarf Gerðubergi | Vinnustofur
kl. 9. Vatnsleikfimi kl. 9.50. Leikfimi kl.
10.30, sungið og dansað. Frá hádegi er
spilasalur opinn.
Grensáskirkja | Samverustund eldri
borgara í safnaðarheimilinu kl. 14.
Háteigskirkja – starf eldri borgara |
Setrið opnar kl. 10, kaffispjall. Helgi-
stund kl. 11, brids kl. 13 veitingar.
Hraunsel | Pútt kl. 10, næsti bók-
menntakl. 23. febr. kl. 10.30, línudans kl.
11, boltaleikfimi kl. 12, glerbræðsla/
handavinna og tréskurður kl. 13, bingó
kl. 13.30, vatnsleikfimi kl. 14.40, kór kl.
16.
Hvassaleiti 56-58 | Jóga kl. 8.30 og
9.30. Vinnustofa kl. 9 hjá Sigrúnu. Sam-
verustund kl. 10.30, lestur og spjall.
Hæðargarður 31 | Fastir liðir. Ný dag-
skrá liggur frammi. Tölvuleiðbeiningar
alla mánudaga kl. 13.15. Leiðbeinandi
Sigríður Kristjánsdóttir. Áttu útsaumað-
an öskupoka frá því í den? Öskupoka-
sýning í undirbúningi í tilefni af öskudeg-
inum. Spænskan er byrjuð.
Íþróttafélagið Glóð | Ringó í Kópavogs-
skóla kl. 14.40.
Korpúlfar Grafarvogi | Á morgun keila í
Öskjuhlíð kl. 10. Bókmenntaklúbbur
hefst í Eirborgum kl. 13.30, sjúkra-
leikfimi kl. 14.30 og listasmiðja er opin
e.h. fimmtudaga.
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Hjúkr-
unarfræðingur kl. 10.30, iðjustofa – gler-
málun kl. 13.
Neskirkja | Opið hús kl. 15. Þorvaldur
Víðisson er á leið til Noregs til að vera
prestur í nágrenni Þrándheims. Hann var
áður miðbæjarprestur. Hann segir okkur
frá því sem skiptir hann mestu máli í líf-
inu. Kaffiveitingar á Torginu.
Norðurbrún 1 | Útskurður kl. 9, hjúkr-
unarfræðingur kl. 10, félagsvist kl. 14.
Kvöldskemmtun – Bandalag kvenna
skemmtir kl. 20.
Vesturgata 7 | Sund kl. 10, spænska kl.
13, myndmennt kl. 11.30, verslunarferð í
Bónus kl. 13, tréskurður kl. 14.30.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Tréskurður
og smiðjan, bókband kl. 9, handa-
vinnustofa kl. 9, morgunstund kl. 10,
verslunarferð kl. 12.20, upplestur kl.
12.30, Dans fyrir alla kl. 14.
Atli Harðarson sendi Vísna-horninu kveðju í tilefni af
vísum í slitruhætti í gær um þjóð-
arleiðtogann Mubarak:
„Jósefína Meulengracht Diet-
rich er gul læða, hagmælt og
fjölvís, sem býr á Akranesi. Hún
er ættuð frá Egyptalandi og fylg-
ist vel með smáfuglum og frétt-
um sem þaðan berast. Síðast þeg-
ar hún lagðist yfir Moggann á
eldhúsborðinu heima hjá sér
mjálmaði hún milli þess sem hún
las:
-barak heitir maður Mú-
(mörg er bagan út úr kú)
á hann lýður -aði pú-
-inn úr landi því er flú-.
Margt fleira hefur Jósefína
kveðið sem í minnum er haft. Eitt
sinn þegar hún þurfti að reka ill-
an hund af landareign sinni
heyrðist hún hvæsa:
Heyra mátti að hundur gó
hoppaði og næstum fló
út um gluggann gullinló
glottandi með brýnda kló.“
Davíð Hjálmar Haraldsson sá
myndir af glæsilegum bændum
Hörgárdals, sem fara með hlut-
verk í sýningu leikfélagsins á
staðnum eftir myndinni Full
Monty. Hann hreifst með þjóðinni
og varð að orði:
Flekkóttir af fjósakúk
flíka vænum sinum,
vöðvafjöld og bleikum búk.
Ber þó Doddi af hinum.
Þorleifur Konráðsson varð að
játa það á sig að hafa klikkað á
fjölmörgum atriðum í heim-
ilisverkum um helgina, en þegar
frúin á heimilinu tók því með
jafnaðargeði orti hann:
Hlýtt og stillt er hennar geð,
hugsun öll í lagi
þótt hún burðast megi með
mig í eftirdragi.
Pétur Blöndal pebl@mbl.is
Vísnahorn
Af slitrum og
hagmæltri læðu