Morgunblaðið - 16.02.2011, Page 29

Morgunblaðið - 16.02.2011, Page 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. FEBRÚAR 2011 Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Fyrir skömmu kom út í Kanada diskur með gítarleikaranum Birni Thoroddsen, Rich- ard Gillis, trompet- leikara og stjórn- anda, Stórsveit Reykjavíkur og Agli Ólafssyni söngvara og hefur hann hlotið mjög góða dóma vestra. Af því tilefni bjóða Björn, Salurinn í Kópavogi og Stórsveit Reykjavíkur upp á tón- leika í Salnum sunnudaginn 13. mars og er aðgangur ókeypis. „Við viljum gera eitthvað til þess að gleðja fólk og láta það hafa um eitthvað annað að hugsa en kreppu,“ segir Björn og leggur áherslu á að öll vinna verði gefin á tónleikunum og því komi peningar hvergi við sögu. Vestur-Íslendingurinn dr. Rich- ard Gillis kemur frá Kanada og stjórnar sveitinni á tónleikunum, en hann hefur útsett tónlist Björns vegna tónleikanna. Gillis er frá Sas- katchewan, starfar sem prófessor við tónlistarskóla Manitoba-háskóla og hefur verið stjórnandi Stórsveitar Winnipeg-borgar frá 1991 auk þess að vera þekktur trompetleikari vestra. Samvinna síðan 2000 Björn og Gillis hafa unnið saman síðan leiðir þeirra lágu fyrst saman snemma árs 2000. Þeir hafa gefið út fjóra diska saman og margoft spilað saman á tónleikum í Kanada, Banda- ríkjunum og á Íslandi, m.a. í hljóm- sveitunum Cold Front með Steve Kirby og fleiri tónlistarmönnum og Guitar Islancio þar sem Jón Rafns- son og Gunnar Þórðarson hafa auk þess verið í lykilhlutverkum. Auk þess hefur Björn oft leikið sem sér- stakur gestur með Stórsveit Winni- peg-borgar og starfað sem gesta- kennari hjá Gillis. Samvinna félaganna hefur sér- staklega verið árangursrík vestra. Þeir hafa til dæmis komið fram við ýmis tækifæri í Íslendingabyggðum og reyndar má gera því skóna að Cold Front og Guitar Islancio séu þekktustu „íslensku“ böndin í ís- lenska samfélaginu vestra. Haustið 2009 stjórnaði Gillis Stór- sveit Reykjavíkur á tónleikum í Ráð- húsinu, þar sem flutt voru lög eftir Björn og í kjölfarið ákvað hann að gefa út disk með sveitinni, Birni og Agli Ólafssyni söngvara. Diskurinn Rhymes var tekinn upp í Stúdíói Sýrlandi í fyrra, en fyrir skömmu gaf Ice Music Press hann út í Kan- ada með opinberum styrk þaðan. Diskurinn hefur fengið mjög góða dóma, meðal annars fjórar stjörnur af fimm í Winnipeg Free Press, út- breiddasta dagblaði Manitoba. Þessi 10 laga diskur er töluvert frábrugðinn fyrri diskum félaganna. Til þessa hafa þeir lagt áherslu á djassinn en núna er alþjóðlegra yf- irbragð á lögunum. Nýtt áhlaup í Vesturheimi Björn og Gillis ætla að fylgja disknum eftir í Bandaríkjunum og Kanada í sumar og koma til með að spila með ýmsum stórsveitum vestra. Gillis stjórnar þá sveitunum á hverjum stað og Björn spilar með sem gestaleikari. „Þetta er alveg nýtt áhlaup. Hann stjórnar hljóm- sveitunum og ég leik sem gestaleik- ari. Þetta er mjög spennandi, æv- intýrið byrjaði með tónleikum og það endar með tónleikum,“ segir Björn. Tónleikar Björn Thoroddsen og Richard Gillis stilla saman strengi sína með Stórsveit Reykjavíkur. Nýr diskur hjá Birni Thoroddsen og félögum  Frítt á tónleika í Salnum og ferð um Vesturheim í sumar Söngvarinn Geir Ólafsson snýr aftur til landsins í dag eftir vel heppnaða heimsókn vestur um haf. Þangað var honum boðið til að syngja með Dons Randis á skemmti- stað Randis, The Baked Potato í Hollywood og stóð upphaflega aðeins til að hann myndi syngja með sveit. Þegar út var komið vildu þó fleiri fá Geir til að syngja og þannig var honum boðið að syngja með ýmsum hljómsveitum, þar á meðal með stórsveit Ted Hermans í Palm Springs sem fékk hann tvívegis sem gest með sveitinni og þá til að syngja megnið af sama prógrammi og hann söng með Randi. „Þetta hefur verið miklu meira en ég reiknaði með,“ segir Geir og bætir við að þetta hafi allt verið ótrúlegt ævintýri. „Það að fá að vinna með hverjum snillingnum af öðrum er frábært tækifæri og líka mikil lífsreynsla,“ segir hann en bætir við að hann taki þó öllu umstanginu með ró; „maður verður að vera rólegur, jákvæður og op- inn fyrir tækifærum, en aðalatriðið er að standa sig sem best á sviðinu.“ Geir hefur verið boðið að koma aftur út í haust og þá til að spila með hljómsveit Dons Randis að nýju, en líka með stórsveit Ted Hermans og fleiri sveitum. Don Randi er síðan væntanlegur til landsins í sumar að hljóðrita breiðskífu með Geir sem stendur til að gefa út á árinu. arnim@mbl.is Frábært tæki- færi og mikil lífsreynsla  Geir Ólafsson gerði víðreist Sveifla Geir Ólafsson með stórsveitarleiðtog- anum Ted Herman. 568 8000 – borgarleikhus.is – midasala@borgarleikhus.is NEI, RÁÐHERRA! (Stóra sviðið) Þri 22/2 kl. 20:00 forsýn Sun 6/3 kl. 20:00 5.k Fös 25/3 kl. 22:00 aukasýn Mið 23/2 kl. 20:00 forsýn Þri 8/3 kl. 20:00 aukasýn Lau 26/3 kl. 19:00 12.k Fim 24/2 kl. 20:00 forsýn Mið 9/3 kl. 20:00 6.k Fös 1/4 kl. 19:00 Fös 25/2 kl. 20:00 frumsýn Fös 11/3 kl. 19:00 7.k Lau 2/4 kl. 19:00 Lau 26/2 kl. 19:00 2.k Fös 11/3 kl. 22:00 aukasýn Sun 3/4 kl. 20:00 Þri 1/3 kl. 20:00 aukasýn Mið 16/3 kl. 20:00 8.k Fim 7/4 kl. 20:00 Mið 2/3 kl. 20:00 3.k Fim 17/3 kl. 20:00 9.k Lau 9/4 kl. 19:00 Fös 4/3 kl. 19:00 4.k Fös 18/3 kl. 19:00 10.k Sun 10/4 kl. 20:00 Fös 4/3 kl. 22:00 aukasýn Fös 18/3 kl. 22:00 ný aukas Sun 17/4 kl. 20:00 Lau 5/3 kl. 19:00 aukasýn Fim 24/3 kl. 20:00 11.k Lau 5/3 kl. 22:00 aukasýn Fös 25/3 kl. 19:00 aukasýn Tveggja tíma hláturskast...með hléi Ofviðrið (Stóra sviðið) Fim 17/2 kl. 20:00 7.k Fim 3/3 kl. 20:00 Sun 13/3 kl. 20:00 Sun 20/2 kl. 20:00 Fim 10/3 kl. 20:00 Ástir, átök og leiftrandi húmor Fjölskyldan (Stóra svið) Lau 19/2 kl. 19:00 aukasýn Lau 12/3 kl. 19:00 aukasýn Sun 27/3 kl. 19:00 aukasýn Sun 27/2 kl. 19:00 aukasýn Sun 20/3 kl. 19:00 aukasýn Fim 31/3 kl. 19:00 lokasýn Aukasýningar vegna mikillar eftirspurnar. Allra síðustu sýningar! Faust (Stóra svið) Fös 18/2 kl. 20:00 lokasýn Síðasta sýning! Elsku Barn (Nýja Sviðið) Mið 16/2 kl. 20:00 Fim 17/2 kl. 20:00 Sun 20/2 kl. 20:00 lokasýn Síðustu sýningar! Afinn (Litla sviðið) Fim 17/2 kl. 20:00 Lau 19/2 kl. 19:00 Sun 27/2 kl. 20:00 Fös 18/2 kl. 19:00 Sun 20/2 kl. 20:00 Lau 19/3 kl. 19:00 Óumflýjanlegt framhald Pabbans. Sýnt á Stóra sviðinu í mars Nýdönsk í nánd (Litla svið) Mið 16/2 kl. 20:00 3.k Fös 25/2 kl. 20:00 6.k Lau 26/2 kl. 22:00 Mið 23/2 kl. 20:00 4.k Fös 25/2 kl. 22:00 Fim 24/2 kl. 20:00 5.k Lau 26/2 kl. 19:30 Sáldrandi brjáli sem aldrei fyrr Skoppa og Skrítla á tímaflakki (Litla svið) Lau 19/2 kl. 14:00 Sun 27/2 kl. 12:00 Sun 20/2 kl. 14:00 Sun 27/2 kl. 14:00 Bestu vinkonur allra barna Nei Ráðherra – forsalan í fullum gangi! Ath. Sýningar hefjast kl. 19:00 Nánar á leikhusid.is Sími miðasölu 551 1200 Mbl, GSP ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ Miðasala í Háskólabíói » Sími 545 2500 » www.sinfonia.is Sinfóníuhljómsveit Íslands Rómantíska sinfónían Fim. 24.02. kl. 19:30 Hljómsveitarstjóri: Bertrand de Billy Einleikari: Isabelle Faust Anton Bruckner: Sinfónía nr. 4, Rómantíska sinfónían Ludwig van Beethoven: Fiðlukonsert Hljómsveitarstjóri: Louis Langrée Einleikari: Kirill Gerstein Johannes Brahms: Píanókonsert nr. 2 Robert Schumann: Sinfónía nr. 4 Gerstein spilar Brahms Fim 17.02. kl. 19.30

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.