Póstmannablaðið - 01.05.1994, Qupperneq 3

Póstmannablaðið - 01.05.1994, Qupperneq 3
Ný viðhorf hafa skapast Ávarp Halldórs Blöndal, samgönguráðherra Nú eru ríflega tvær aldir síðan festa komst á póstflutninga hér á landi með því að reglulegar póstferðir hófust milli Eyjatjarðar og Bessa- staða í október 1783. Það var eyfirski landpósturinn Gunnar Rafnsson, sem þá lagði upp í sína fyrstu för frá Espihóli og síðan um sýslumanns- setrin á Víðivöllum og Víðidalstungu yfir Holtavörðuheiði til Bessastaða. Hann átti eftir að gegna þessu starfi um tveggja áratuga skeið. Störf land- póstanna voru erfið og háskaleg og má segja að gangi kraftaverki næst hversu sjaldan þeir urðu fyrir slysi eða fórust í póstferðum. Eftir því sem tímar liðu efldist póst- þjónustan og komst í fastar skorður. Tilgangurinn er vitaskuld sá að tryggja með öruggum hætti að bréf geti borist frá einum stað til annars hér á landi eða erlendis með svo ódýrum hætti sem verða má og skuli allir sitja við sama borð, hvort sem viðskiptin eru mikil eða lítil eða jafnvel hverfandi. Þetta er sú gamla hugsun. Nú eru tímarnir að breytast. Ekki er lengur nauðsynlegt að glögg skilaboð berist bréflega heldur er auðvelt að senda þau milli fjarlæg- ustu staða loftleiðis enda samkeppni á þessu sviði sem öðrum harðnandi. Þessi nýju viðhort' hljóta að hafa áhrif á eðli póstþjónustunnar þótt mikilvægi hennar sé ekki minna en áður og raunar vaxandi. Eg hef verið þeirrar skoðunar að bæði vegna viðskiptavina póstþjón- ustunnar og starfsmanna sé nauðsyn- legt að íhuga það fordómalaust hvernig hinum nýju og ströngu kröf- um nútíma þjóðfélags verður best svarað. Það er vexti og viðgangi póstþjónustunnar fjötur um fót að marka henni til frambúðar bás sem opinberri stofnun. Starfsmennirnir, ekki síður en viðskiptavinirnir, hljóta að ætlast lil þess að póstþjónustunni séu gefnar frjálsar hendur til að halda velli í samkeppninni og sækja inn á markaðinn með þeim fjölbreytilega hælti sem nútíma atvinnurekstur kret'st. Við megum ekki gleyma því að póstþjónustan starfar í alþjóðlegu umhverfi sem auðvitað setur henni skorður, en gefur henni líka tækifæri Halldór Blöndal, samgönguráðhen a til þess að færa út starfsemi sína ef rétt er að staðið. Nú, þegar Póstmannafélag Islands er 75 ára árna ég póstmönnum heilla og færi þeim þakkir fyrir mikilvæg störf. Félagið hefur á liðnum áratugum ekki aðeins staðið vörð um hagsmuni stéttarinnar í þröngum skilningi þeirra orða heldur líka, og það er mikilvægt, lagt áherslu á menntun hennar og starfshæfni. Þess vegna er hún vel undir það búin að mæta þeim miklu kröfum sem lil hennar eru gerðar í hinu flókna viðskiptaum- hverfi nútíma þjóðfélags. Þakkir til póstmanna Ávarp póst- og símamálastjóra Miklar breytingar hafa orðið í meðferð og tlutningi pósts á þeim 75 árum sem liðin eru frá því Póst-mannafélagið var stofnað. Þá fluttu landpóstarnir póstinn lil við- takenda að jafnaði tvisvar í mánuði og til útlanda fór allur póstur með skipum. Stórbættar samgöngur inn- anlands og daglegt tlug til annarra landa eiga sinn þátt í þeim stór- kostlegu breytingum sem hafa orðið á póstþjón-ustunni síðan þá. Hinu má hins vegar ekki gleyma að mikið starl'og góð skipulagning ligg- ur að baki þeirrar góðu póst-þjónustu sem við búum við í dag. Nú er svo komið að yfir 80% lands- manna fá póstinn sinn daginn eftir að hann er póstlagður innanlands. Mark- viss og vönduð vinnubrögð við afgreiðslu pósts, flokkun og undir- búning flutnings, hafa skilað sér í því að fyrirtækið hefur getað sett sér gæðastaðla og staðið við þá. Póst- menn sjálfir hafa tekið virkan þátt í því að móta framtíðarstefnu fyrir póstinn og skilgreina hlutverk hans og markmið. Stjórn PFI og félags- menn allir eiga þakkir skildar fyrir þetta starf en það ber vott um skilning póstmanna á síbreytilegu viðskiptaumhverfi okkar. Póstmannastéttin er enn eldri en Póstmannafélag íslands og er nú unnið að því að rita sögu hennar. Það er mikilvægt að gleyma ekki að færa klukkuna sína fram til þess tíma sem maður lifir á og það er póstmönnum löngu Ijóst. Þeir vita að störf þeirra eru til vegna viðskiptavinanna og því Ólafur Tómasson, póst- og síma- málastjóri hafa þeir í stefnuskrá póstsins sett sér það markmið að þróa framsækið fyrirtæki sem eflist á forsendum viðskiptavinanna. A 75 ára afmæli Póstmannafélags Islands færi ég póstmönnum inni- legar hamingjuóskir og þakka þeim trúmennsku og vel unnin störf á liðn- um árum.

x

Póstmannablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Póstmannablaðið
https://timarit.is/publication/802

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.